Morgunblaðið - 26.10.1999, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
AUÐUR
AUÐUNS
Auður sína pólitísku eldskírn og
mun íljótt hafa komið í ljós að þar
hafði Sjálfstæðisflokkurinn eignast
öflugan og einarðan talsmann. Hún
bjó að góðri menntun, þekkingu og
reynslu. Sem lögfræðingur
Mæðrastyrksnefndar um árabil
öðlaðist hún að eigin sögn innsýn í
þjóðfélagið, sem hún hefði tæplega
ella fengið. Þar fór því saman trúin
á einstaklingsfrelsi og jafnrétti og
samkennd með þeim sem minna
mega sín.
_ A vettvangi borgarstjórnar
Reykjavíkur starfaði Auður síðan
óslitið til ársins 1970. Þar voru
henni falin margvísleg trúnaðar-
störf. Forseti borgarstjórnar var
hún frá 1954 og borgarstjóri um
eins árs skeið. I störfum sínum
sem forseti borgarstjórnar ávann
Auður Auðuns sér virðingu bæði
samherja og andstæðinga fyrir
réttsýni og örugga stjórn. Allan
þann tíma sem hún starfaði í borg-
arstjórn átti hún sæti í fræðsluráðj
og var formaður þess 1962-1970. í
viðtali við Morgunblaðið þegar hún
kvaddi borgarstjóm kvað hún
starfíð að skólamálunum hafí verið
hvað ánægjulegast. Þegar Auður
^hóf störf í borgarstjórn hafði íbú-
um Reykjavíkur fjölgað um fjórð-
ung kjörtímabilið á undan og sjálf-
stæðismenn í meirihluta tóku til
óspilltra málanna við að mæta
þörfum ört vaxandi höfuðborgar.
Það var ekki bara á sviði skóla-
mála, sem ný verkefni voru að-
kallandi, heldur líka í húsbygging-
um, gatnagerð, hitaveitufram-
kvæmdum, raforkuframleiðslu og
áfram mætti telja. A sjötta og sjö-
unda áratugnum risu fjölmargir
•jnýir skólar og ýmsar nýjungar
komu fram s.s. sálfræðideild skóla.
Meðal síðustu verka Auðar sem
formanns fræðsluráðs var að
ganga frá áætlun um eflingu sál-
fræðiþjónustu í skólum, samþykkt
um að stofna forskóla fyrir 6 ára
börn og tillögum um bókasöfn í
skólum.
A vettvangi Kvenréttindafélags
Islands starfaði Auður Auðuns um
áratugaskeið. Þar beitti hún sér
íyrir margvíslegum réttindamálum
kvenna. Má þar til dæmis nefna
mæðralaun, fæðingarstyrk, barna-
lífeyri, rétt kvenna í búskiptum og
ýmis sifjaréttarmálefni. Félagið
naut góðs af lögfræðiþekkingu
nennar enda mörg baráttumál á
þessum árum einmitt tengd löggjöf
landsins. Hún fylgdi þessum mál-
um eftir hvort sem var í borgar-
stjóm, á Alþingi, þar sem hún átti
sæti í fimmtán ár, eða í ríkisstjóm.
Auður starfaði lengi í stjórn Menn-
ingar- og minningarsjóðs kvenna,
sem hefur það að meginmarkmiði
að styðja konur til framhaldsnáms,
og var hún formaður hans
1960-1976. Auður Auðuns var gerð
að heiðursfélaga Kvenréttindafé-
lags Islands 19. júní 1985, en þá
vora sjötíu ár liðin frá því að ís-
lenskar konur fengu kosningarétt.
Leiðir okkar lágu ekki saman
fyrr en hún hafði lokið sinni form-
legu stjórnmálaþátttöku á vett-
vangi borgarstjórnar og þings.
Enn brann þó sami eldmóðurinn og
hún hélt áfram að láta tO sín taka
innan Sjálfstæðisflokksins. Með
virðulegri framkomu sinni, heitri
sannfæringu og rökföstum mál-
flutningi hélt hún áfram að hafa
áhrif. Hún lá hvorki á skoðunum
sínum né liði sínu og hvatti aðrar
konur til dáða. Með lífsstarfi sínu
markaði hún víða brautryðjenda-
spor. Hún sýndi í verki viljans
merki.
Blessuð sé minning Auðar Auð-
uns.
Inga Jóna Þórðardóttir.
Ég vil minnast frú Auðar Auðuns
með þakklæti og vinarhug. Við vor-
um sambýliskonur í fjörutíu og
fímm ár og áttum mikil samskipti,
sem öll vora með eindæmum far-
sæl. Hún var svo hreinskiptin og
nákvæm mannvera. Sérlega eru
mér hugljúfar minningarnar um
samverustundir okkar í gai'ðinum,
umhverfís heimili okkar á Ægissíðu
86. Við önnuðumst garðinn sameig-
inlega, báðum til mikillar ánægju.
Hún lét sér mjög annt um blómin
og umhirðu þeirra. Við gengum oft
um garðinn og töluðum við trén og
blómin, sem hann prýddu. Það vora
ánægjulegar stundir.
Ég kveð frú Auði Auðuns með
söknuði og virðingu. Börnum henn-
ar og barnabörnum, sem ég ber
mjög hlýjan hug til, votta ég samúð
mína og sendi þeim hugheilar
kveðjur á erfíðri stundu.
Laufey.
Auður Auðuns var ein heil-
steyptasta manneskja sem ég hef
kynnst. Hún bar mikla persónu og
hafði fágætan hæfileika til að
greina aðalatriði frá aukaatriðum
og sjá álitamál í stóra samhengi. A
níræðisaldri hafði hún mun skýrari
sýn á pólitísk markmið og hugsjón-
ir en hið kraftmikla unga fólk sem
mest kveður að á vettvangi þjóð-
mála í dag. Þótt heilsan gengi úr
+
Okkar ástkæra mágkona og frænka,
ÁSDÍS KJARTANSDÓTTIR,
Selvogsgrunni 11,
Reykjavík,
andaðist á kvennadeild Landspítalans mánu-
daginn 25. október.
Útförin auglýst síðar.
Aðstandendur.
Elskuleg systir okkar og mágkona,
KRISTÍN SIGRÍÐUR VILHELMSDÓTTIR,
áður til heimilis
í Víðíhlíð 5,
andaðist á Landspítalanum laugardaginn
23. október sl.
Jón Vilhelmsson, Steinunn Gísladóttír,
Halldór Vilhelmsson, Áslaug B. Ólafsdóttir.
MINNINGAR
Með Ragnhildi Helgadóttur menntamálaráðherra 19. júní 1985.
vistinni og líkaminn setti henni
skorður síðustu árin, var andinn
sem fyrr vakinn og sofinn í málefn-
um dagsins. Hún fylgdist grannt
með stjórnmálum og lét sig varða
hvernig hlutum var skipað.
Þegar ég hringdi til hennar íyrir
mörgum árum, þeirra erinda að
leita ráða í flóknu máli, grunaði
mig síst að það yrði upphaf dýr-
mætrar vináttu. Hún bauð mér
heim til sín og samtal sem ég hafði
gert ráð fyrir að tæki um fimmtán
mínútur, stóð í fjórar klukkustund-
ir. Gilti þetta um samfundi okkar
upp frá þessu. Þeir stóðu jafnan
lengur en að var stefnt, enda erfitt
að rífa sig frá þeirri veislu sem
samfundur við Auði Auðuns var.
Ég hafði lengi borið virðingu fyrir
hinum glæsilega frumherja og ver-
ið stolt yfír að vera í sömu röðum
og hún, en nú lagðist djúp væntum-
þykja í hennar garð við stoltið og
virðinguna. Eldurinn sem hún gat
tendrað í manni og skotheld rök-
semdarfærslan var stöðugt ný upp-
götvun, en kannski kom mér mest
á óvart við frekari kynni hvað hún
hafði gott skopskyn og var
skemmtileg. Það var ekki sú mynd
sem ég að óreyndu hafði haft af
dómsmálaráðherranum íyrrver-
andi.
Auður Auðuns var ekki haldin
hneigð til stefnu undan vindi þegar
baráttumál hennar voru annars
vegar. Einhverju sinni þegar ungar
konur sem höfðu sóst eftir öragg-
um sætum á framboðslista, en lent
í varamannasætum, stóðu upp hver
af annarri á fjölmennum fundi og
lýstu ánægju sinni með listann,
steig í ræðustól fyrsta konan sem
tók lögfræðipróf við Háskóla Is-
lands, fyrsta konan sem varð borg-
arstjóri í Reykjavík og fyrsta kon-
an sem varð ráðherra í ríkisstjórn
á Islandi og lýsti á eftirminnilegan
hátt undrun sinni á þessari lítil-
þægni. Orð hennar féllu í fremur
grýttan jarðveg, þar sem ekki var
til þess ætlast að menn létu í ljósi
annað en velþóknun á skipan mála.
Sjálfri fannst mér það jaðra við
sjónhverfingu þegar kona á eftir-
launaaldri talaði eins og hún stæði í
baráttunni miðri og framtíðin væri
hennar, meðan jafnaldrar mínir og
þaðan af yngi’i konur tjáðu sig eins
+
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR
frá Ásgarði,
Vestmannaeyjum,
Hrafnistu, Reykjavík,
er látin.
Svanhildur Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
+
Móðir okkar, systir, tengdamóðir, amma og
langamma,
LILJA SALÓMONSDÓTTIR VAN BEERS,
lést á sjúkrahúsi í Santa Barbara í Banda-
ríkjunum sunnudaignn 24. október.
Derik Henry Van Beers,
Lilja Ingibjörg Mc Alister, Jack Mc Alister,
Gyða Salómonsdóttir,
Jóhanna Sumarliðadóttir, Sigfús B. Sigurðsson,
barnabörn og langömmubarn.
og þær væru af kynslóð mæðra
sinna. Ég man enn þá kennd undr-
unar sem um mig fór, þegar ég
skildi að í salnum var fólk sem taldi
við hæfi að Auður Auðuns beygði
hegðun sína undir flokksfriðinn í
máli sem brann á henni og hún
taldi sjálfsagt réttlætismál. Henni
var mjög í mun að konur væru í
forystu í stjómmálum og atvinnu-
lífi til jafns við karla, og þótti með
eindæmum hversu hægt miðaði í
þá átt. Og hún hafði ráð á að tjá sig
um þau mál með afgerandi hætti.
Enginn fremur en hún.
Fyidr kom að ég heimsækti hana
í fylgd annarra. Þegar ég faðmaði
hana að skilnaði þegar svo bar við
nú síðsumars, hvíslaði hún að mér
„Þú kemur kannski ein næst! - við
þurfum svo margt að spjalla.“ Nú
er rödd hennar hljóðnuð.
Auður Auðuns setti í raun og
sannleika svip á samtíð sína og
raddi nýja braut. Framkoma henn-
ar á opinberum vettvangi ein-
kenndist af reisn og virðulegri ein-
urð. Hún mun skipa sérstakan sess
í íslenskri stjórnmálasögu og er
glæsileg og verðug fyrirmynd fyrir
þær konur sem nú eru að komast
til áhrifa á Islandi í krafti mennt-
unar sinnar og hæfileika.
Sjálf sakna ég einstaks vinar og
ógleymanlegra samverustunda.
Guð blessi minningu Auðar Auð-
uns.
Linda Rós Michaelsdóttir.
Látin er merk kona, Auður Auð-
uns lögfræðingur. Hún gekk til liðs
við Zontaklúbb Reykjavíkur
skömmu eftir stofnun hans 1941 og
var þar félagi fram á síðustu ár
þegar hún sagði sig úr klúbbnum
sökum heilsubrests.
Eitt af markmiðum Zontahreyf-
ingarinnar er „að bæta lagalega,
stjórnmálalega og félagslega stöðu
kvenna", ekki síst í hinum svoköll-
uðu þróunarlöndum þar sem margt
hefur áunnist íyrir tilstilli Zonta.
Þessi stefnumál samtakanna era
mjög í takt við lífsstefnu Auðar.
Hún var brautryðjandi á þessum
sviðum hér á landi. Hún sýndi kjark
og áræði þegar hún fyrst kvenna
nam hér lögfræði, hún var fyrsta
kona sem varð borgarstjóri Reykja-
víkur og fyrsta kona hér til að setj-
ast í ráðherrastól. Hún var konum
fyrirmynd að þessu leyti, ekki með
háværam yfirlýsingum heldur með
því að sýna hvað hægt var að gera.
Auður var mjög virk í Zonta-
klúbbnum. Hún var þrisvar for-
maður og einkenndust störf henn-
ar af vandvirkni og nákvæmni.
Hún gætti þess að félagarnir fylgd-
ust með því sem var að gerast á er-
lendum vettvangi auk þess sem
hún hvatti til vinnu að innlendum
verkefnum. Vegna menntunar
sinnar var hún sjálfkjörin í laga-
nefnd klúbbsins þar sem hún vann
að þýðingu og mótun íslenskra laga
Zonta og endurskoðun þeirra þeg-
ar þörf var á. Þá vann hún að
samningu skipulagsskrár Margrét-
arsjóðs, en sá sjóður var stofnaður
af klúbbnum árið 1944 fyrir tilstilli
Margrétar Rasmus í þeim tilgangi
að aðstoða þá sem brautskráðust
frá Málleysingjaskólanum, en
starfssviðið hefur síðan verið víkk-
að. Þá var Auður formaður undir-
búningsnefndar fyrir norrænt
Zontaþing sem hér var haldið 1977.
Auður var alla tíð áhugasöm um
málefni Zonta og vann þar mikið
eins og sést af framansögðu og er
þó ekki allt upp talið. Hún vann
störfin af látleysi og öryggi, fum-
laust, og nýttist því tíminn vel,
enda hefði henni varla tekist ann-
ars að sinna samtímis stóru heimili,
erilsömum störfum og félagsmál-
um.
Félagar í Zontaklúbbi Reykja-
víkur þakka Auði Auðuns hin fjöl-
mörgu störf hennar í þágu klúbbs-
ins og minnast hennar með virð-
ingu og þakklæti. Börnum hennar
og öðrum aðstandendum eru send-
ar einlægar samúðarkveðjur.
F.h. Zontaklúbbs Reykjavíkur,
Þuríður J. Kristjánsdóttir.