Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 45

Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNBNGAR ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 45. i f ANDRIFREYR ARNARSSON + Andri Freyr Arnarsson fædd- ist á Landspítalan- um 10. maí 1993. Hann lést á Barna- spítala Hringsins 14. október sfðastliðinn og fór útfor hans fram frá Hafnar- Qarðarkirkju 25. október. Mig langar í örfáum orðum að minnast lítils frænda míns, Andra Freys, sem verður ávallt hetja í mínum huga. Hann háði harða baráttu af æðruleysi og þolin- mæði við erfíðasta sjúkdóm okkar tíma. Ég minnist þess þegar þið komuð í heimsókn til okkar vestur í Litla-Holt, hve gaman okkur Gumma þótti að sjá svo hrausta stráka leika sér og ærslast og að sjá hvað þeir voru samrýndir bræðurnir. Missir Egils er mikill. og gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Við sendum einnig fjöl- skyldum ykkai' innileg- ar samúðai'kveðjur. Helga, Guðmundur og Sigmar Atli. Ég veit um lind, sem ljóðar svo ljúft að raunir sofna, um lyf sem læknar sárin og lætur sviðann dofna. Um lítið blóm, sem brosir svo blítt, að allir gleðjast. Um rödd, sem vekur vonir, þá vinir daprir kveðjast. Ég þekki gleði góða, sem græðir allt með varma og sælu, er svnkur aldrei, en sefar alla harma. Ég veit um stjörnu, er vakir, þó vetrarmyrkur ríki, - um ást, sem er á verði, þó ástir heimsins sríki. degi tók ég á móti nemendum 1.- K í Öldutúnsskóla. Þar var prúður og fallegur hópur barna saman kominn með nýjar skólatöskur og eftirvænt- inguna blikandi í augunum. Þau voru að stíga sín fyrstu spor í grunnskóla. Þegar mér var tjáð að einn nemandi minn, Andri Freyr, gæti ekki komið strax, sökum veikinda sinna, dimmdi sem snöggvast í huga mínum og ég hugsaði um hve stutt væri á milli áhyggjulausrar æsku og þeirrar sem þarf að glíma við erfiðleika og sorg. Ég fór heim til Andra Freys og hitti þar yndislegan dreng sem var áhugasamur og spenntur með nýja skóladótið sitt, svo tilbúinn að menntast og byrja í skóla. Mér þótti mjög vænt um að vera með honum þessa stuttu stund. I skólanum ræddum við um Andra Frey og hlökkuðum til að fá hann í hópinn. Nokkrir nemenda minna voru með honum í leikskóla og sögðu okkur hinum hve góður drengur hann væri og góður vinur. Við söknum þess að fá ekki að vera með Andra Frey og kynnast honum betur. Við trúum því að hann sé nú lítill engill hjá Guði, laus við allar þjáningar og baði sig í hinu dýrðlega ljósi himnaríkis. Með þessari bæn viljum við í K-bekknum kveðja Andra Frey: Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifumar, ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er. Það næðir hér og nístir mig. (Vilhj. Vilhj.) Ég man þegar ég sagði Sigmari frá sjúkdómi Andra Freys, útskýrði fyrir honum að lyfin sem hann þyrfti gerðu hann fyrst mjög veikan og honum myndi stundum líða mjög illa, en þau myndu samt smátt og smátt lækna hann. Honum fannst þetta mjög skrýtið og spurði í barnslegri einlægni af hverju hann fengi þá ekki bara send lyf frá útlöndum sem myndu lækna hann strax. Ég sagði honum að ekki væri búið að finna upp svo góð lyf við þessum sjúkdómi. Hann setti þá hljóðan og hugsaði sitt og sagði svo eftir langa þögn að nú væri hann búinn að ákveða hvað hann ætlaði að verða þegar hann yrði stór. Hann ætlaði að verða upp- finningamaður og finna upp lyf sem myndu strax byrja að lækna fólk með krabbamein og að því þyrfti þá ekki að líða svona illa á meðan lyfin væru að lækna þau. Hann bætti svo við: „Ég vildi óska að ég væri orðinn fullorðinn svo að ég gæti strax fund- ið upp lyf fyrir Andra.“ Við óskuð- um þess svo sannarlega líka, að við gætum eitthvað gert til hjálpar í stað þess að þurfa að standa svo van- máttug hjá. Við dáðumst að krafti ykkar og æðruleysi í hvert sinn er við komum í heimsókn til ykkar, hve sterk þið gátuð verið og dugleg að styðja Andra Frey í gegnum alla erf- iðleikana. Mamma er ég sigli út á heimisins breiðu höf heiman fyrsta sinni er dýrmætust sú gjöf er gafst þú ungum syni því gjöful var þín hönd gleðinnar og kærleikans mér sýndi lönd. (Olafur G. Þórhallsson) Eftir að við fluttumst til Noregs hefur mér þótt erfitt að geta ekki komið í heimsókn til ykkar og reynt að styðja við bakið á ykkur á ein- hvern hátt. Við vitum öll að núna líð- ur honum vel, í styrkum höndum Lilju ömmu sinnar og Lalla frænda sem hann hitti aldrei en kynntist í gegnum minningar ykkar. Elsku litli frændi, okkur langar að lokum að kveðja þig með þessum orðum langafa Sigmars Atla: Það hefði átt að hylja þína gröf með baldurs- brá ' og byrgja þig í hvítra rósa múg, því vetrarnóttin döpur og draumlaus flýgur hjá með dökkra vængja súg. I lotning hefði lotið þér hin hljóða blómahirð og hjúfrað þig með trega í faðmi sér, í ástúð hefði hún vaggað þinni vöggu í skóg- arkyrrð ogvakaðyfirþér. (Guðmundur Böðvarsson) Elsku Kiddý, Smári og Egill Þorri, missir ykkar er mikill, guð geymi ávallt litla sólargeislann ykkar Það allt, sem ég hef talið, er eitt og sama: barnið, sú guðsmynd björt er gæfan og græðir jafnvel hjamið. A meðan lífið lifír það ljós mun aldrei deyja. Og mannsins björg og blessun er bamsins stjömu að eygja. (Hulda.) Sumarið kveður og haustið boðar komu sína. Loftið kólnar, laufin fölna og skólinn byrjar. Á björtum haust- Leiddu mína litlu hendi, ljúfí Jesú, þér ég sendi, bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesú, að mér gáðu. Kæru Kristín, Arnar Smári, Egill og aðrir ástvinii', við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur og biðjum Drottin að blessa ykkur og styðja í ykkar miklu sorg. Halla Sigurgeirsdóttir, umsjón- arkennari l.-K Öldutúnsskóla. ERLA HÖSKULDSDÓTTIR + Erla Bergþóra Höskuldsdóttir fæddist í Reykjavík 9. febrúar 1934. Hún lést á sjúkra- húsi í Kent á Englandi 11. októ- ber síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 22. október. Hví fóinar jurtin fríða og fellir blöð svo skjótt? Hví sveipar bamið blíða, svo brátt hin dimma nótt? Hvíverðurvonogyndi svo varpað niður í gröf? Hví berst svo burt í skyndi hin besta lífsins gjöf? (B.H.) pripi frá hinum ýmsu löndum sem var svo gaman að skoða. Eftir að mamma lést sáumst við sjaldnar, þá helst í afmælum eða í heimsókn hjá ömmu. Hún amma á erfitt með að skilja að hún sé búin að missa tvær dætur sínar úr þessum hræði- lega sjúkdómi. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af al- hug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Elsku Erla frænka. Við eigum erfitt með að trúa því að þú sért búin að kveðja okkur fyrir fullt og allt. Okkur systurnar langar að minnast þín, móðursystur okkar, með nokkr- um orðum. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til þín. Við komum oft til þín þegar við vorum litlar stelpur með mömmu. Þú áttir svo glæsilegt heimili. Við löbbuðum um stofuna þína í langan tíma bara til að skoða alla fallegu hlutina þína. Þú ferðaðist mikið og áttir minja- Við viljum votta hennar nánustu okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð.þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Guðbjörg Erlingsdóttir, María Erla Erlingsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, INGVELDUR STEFÁNSDÓTTIR, Reynigrund 41, Kópavogi, lést á kvennadeild Landspítalans sunnudaginn 24. október. Rögnvaldur Bjarnason, Stefán Rögnvaldsson, Herdís Jónsdóttir, Bjarni Rögnvaldsson, Helga Guðnadóttir, Birgir Rögnvaldsson, Guðrún Bergþórsdóttir, Rósa Rögnvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + MARTEINN BJÖRNSSON verkfræðingur og fv. byggingarfulltrúi Suðurlands, Víðivöllum 10, Selfossi, lést föstudaginn 22. október sl. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugar- daginn 30. október kl. 13.30. Arndís Þorbjarnardóttir, Björn Marteinsson, Ólöf Helga Þór, Guðrún Marteinsdóttir, Kristberg Kristbergsson, Hlín Kristbergsdóttir, Gunnar Sveinn Magnússon. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, LILJA JÓNSDÓTTIR, Aðalgötu 5, Keflavík, lést föstudaginn 22. október. Ari B. Oddsson, Guðrún Jóna Aradóttir, Sigurður J. Ögmundsson, Sigríður Aradóttir, Guðmundur Finnsson, Ari B. Sigurðsson, Finnur Sigurður Guðmundsson, Jón Oddur Sigurðsson, Arnar Páll Guðmundsson, Helga Jónsdóttir, Lúðvík Jónsson. + Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HAUKUR SKAGFJÖRÐ JÓSEFSSON húsgagna- og húsasmíðameistari frá Sauðárkróki, síðast til heimilis í Faxatúni 6, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju fimmtu- daginn 28. október kl. 13.30. Guðrún Stefánsdóttir Hjaltalín, Jósef Stefánsson, Sigríður Dúna Hauksdóttir, Elín Hauksdóttir, Alfreð V. Sigurjónsson, Helga Kristín Hauksdóttir, Reynir Kristjánsson, Erla Björk Hauksdóttir, Gunnlaugur Reynisson og afabörn. + JÓN ODDSSON hæstaréttarlögmaður, Ásbúð 102, Garðabæ, er látin. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28. október kl. 13.30. Valgerður Bára Guðmundsdóttir, Kristín Anna Jónsdóttir, Kristinn H. Kristjánsson, Björgvin Jónsson, Sigríður Dóra Magnúsdóttir, Guðmundur Baldursson, Bonnie Laufey Bupuis, Marta María Oddsdóttir, Þórður Magnússon, Kristín Oddsdóttir, Odd Lund ? og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRUNN JÓHANNSDÓTTIR, Garðatorgi 7, Garðabæ, áður til heimilis í Þrastahrauni 1, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mið- vikudaginn 27. október kl. 15.00. Jónína B. Jónasdóttir, Steinn Jónsson, Hallgrímur Jónasson, Ingibjörg E. Ásgeirsdóttir, Jónas Þór Jónasson, Bjarnheiður Gautadóttir, Edda Jóna Jónasdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.