Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 5
Námsferð Garðyrkjuskólans
til Englands haustið 1999
- fyrri hluti
Glæsileg höggmynd í garðinum í Wisley.
SÚ HEFÐ hefur skapast við
Garðyrkjuskóla ríkisins að hver ár-
gangur skólans fer í náms- og kynn-
isferð til útlanda einu sinni á náms-
tímanum. Ferð þessi er
farin að hausti annars
skólaárs nemendanna
og skipulögð með góð-
um fyrirvara. Nemend-
ur standa sjálfír straum
af kostnaði við ferðina
og fara ýmsar leiðir í
fjáröflun sinni, selja
nánustu ættingjum kló-
settpappír í áskrift,
halda bingó með dular-
fullum vinningum, gefa
út blað og margt fleira.
Þó má segja að drýgst-
ur hluti farareyrisins
komi inn á sumardag-
inn fyrsta en þá er opið
hús í Garðyrkjuskólan-
um og sjá nemendur um að skipu-
leggja dagskrá allan daginn. Kennt
er á fimm brautum við Garðyrkju-
skólann, blómaskreytingabraut,
garðplöntubraut, skrúðgarðyrkju-
braut, umhverfísbraut og ylræktar-
braut og var lögð á það áhersla að
hver nemendahópur sæi eitthvað
sem tengdist viðkomandi sérgrein.
Að þessu sinni var farið til Suður-
Englands. Með nemendum í för
voru skólastjóri og tveir kennarar
en síðar bættust tvær kjarnorku-
konur í hópinn, þær Jóhanna Katrín
Helgadóttir, stjómmálafræðingur,
sem þarna var í hlutverki túlks, og
Ragnhildur Skarphéðinsdóttir,
landslagsarkitekt, sem leiddi skrúð-
garðyrkjunema í allan sannleika um
garðamenningu Lundúnaborgar.
Námsferðin hófst
með heimsókn í garð
Konunglega breska
garðyrkjufélagsins
(RHS) í Wisley. Garð-
ur þessi var stofnaður
fyrir hartnær 100 ár-
um og hefur vaxið að
umfangi með árunum.
Á hverju ári heimsæk-
ir um hálf milljón
manna garðinn og
fjölgar gestum ár frá
ári. Mikill fjöldi garð-
yrkjumanna starfar í
garðinum auk þess
sem þar eru um 30
nemendur í garðyrkju-
námi. Garðurinn er
tæpir hundrað hektarar að stærð og
í raun má segja að einn dagur dugi
engan veginn til að gera honum
nógu góð skil. Þar er að finna um
fjörutíu þúsund mismunandi teg-
undir af garðplöntum en ai'fí virðist
ekki þrífast þar vel að sama skapi. I
Wisley fara fram umfangsmiklar
prófanir á garðplöntum þar sem
metið er hvort viðkomandi plöntur
séu nógu góðar til ræktunar í görð-
um. Þær plöntur sem sleppa í gegn-
um síuna fá sérstaka vottun, AGM
(Award of Garden Merit) og þykir
það að sjálfsögðu mjög eftirsóknar-
vert. Allur hópurinn fékk leiðsögn
um garðinn fyrir hádegi en því mið-
ur rigndi eins og hellt væri úr fötu
allan tímann, nema rétt í hádeginu
þegar allir sátu inni á veitingastað
garðsins og snæddu hádegisverð.
Að hádegisverðinum loknum fór
hver braut og skoðaði viðkomandi
deild garðsins en garðinum er skipt
upp í fjölmargar deildir; umhverfis-
deild, grænmetis- og ávaxtadeild,
viðhaldsdeild, sem sér um umhirðu
á grasflötum og fullvöxnum trjám,
fjölæringadeild o.fl. Eftir gönguferð
um garðinn gerðu garðyrkjunem-
arnir (og kennararnir) sitt besta til
að eyða gjaldeyrinum sínum í bóka-
búð garðsins en hún hefur, merki-
legt nokk, sérhæft sig í garðyrkju-
bókum!
Annan dag ferðarinnar skiptist
nemendahópurinn í þrennt, blóma-
skreytinganemarnir fóru og heim-
sóttu garðyrkjuskólann Writtle Col-
lege en þar er mjög góð blóma-
skreytingadeild. Garðplöntubraut,
ylræktarbraut og skrúðgarðyrkju-
braut keyrðu upp til Birmingham
og þrömmuðu þar um risavaxna
garðyrkjusýningu. Sýning þessi
nefnist Glee og er haldin árlega í
september en þar sýna um 1.000
fyrirtæki afurðir sínar, hvort sem
um er að ræða plöntur, mold, potta
eða annað sem tengist garðyrkj-
unni. Umhverfisbrautin eyddi deg-
inum í Windsor Great Park en hann
liggur umhverfis Windsor kastala
og er engin smásmíði. Yfirgarð-
yrkjumaður drottningarinnar var
með nemendunum fyrir hádegi en
eftir hádegi tók yfirskógarvörður
hennar hátignar við og það verður
að segjast eins og er að þetta hljóm-
ar eins og setning úr ævintýrinu um
Mjallhvíti.
Það er varla hægt að fara til Eng-
lands án þess að koma við í konung-
lega grasagarðinum í Kew. Þar
eyddi bróðurpartur hópsins þriðja
deginum. Maðurinn sem ætlaði að
taka á móti hópnum var svo hepp-
inn að hann komst óvænt í fræsöfn-
unarferð til Kína og lagði af stað að
morgni þessa dags en vinnufélagar
hans hlupu í skarðið og stefndu
hópnum inn í nýbyggt gróðurhús
sem kostaði væna fúlgu. Kew garð-
urinn var stofnaður í kringum 1750
og þar eru enn til tré sem gróður-
sett voru við stofnun garðsins. Eins
og í Wisley þá er Kew garðurinn
það stór að hópurinn fékk einungis
nasaþefinn af því sem þar er að
finna en þarna gafst tækifæri til að
skoða aðstöðuna bak við tjöldin^r
Blómaskreytingabrautin hélt hins
vegar af stað til Leeds til að heim-
sækja fyrirtæki á blómaskreytinga-
sviðinu.
Guðríður Helgadóttir,
fagdeildarstjóri
garðplöntubrautar.
BLOM
VIKUNMR
424. þáttur
llmsjón
Sigríður Hjartar
AIU GLYSINGÁ
FUIMOIR/ MANIMFAGNAÐUR
Verzlunarskóli íslands
Fræðslufundur um
forvarnir og vímuefni
verður haldinn í dag, þriðjudaginn 26. október,
kl. 20.00 í hátíðarsal skólans (2. hæð).
Þar mun Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur,
flytja erindi um þátt foreldra í forvörnum og
Eiríkur Pétursson, rannsóknarlögreglumaður,
talar um vímuefnamál frá sjónarhorni lögreglu.
Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til
að fjölmenna.
Norræna
stjórnsýslusambandið
Aðalfundur íslandsdeildarinnar verður haldinn
í Borgartúni 6föstudaginn 29. október 1999
kl. 16.00.
HUSNÆÐI I BOOI
íbúð til leigu
í miðborg Barcelona
Leigist allt frá viku upp í mánuð.
Upplýsingar í síma 899 5863, fyrir hádegi
(Helen).
LISTMUNAUPPBOÐ
Listmunir
Erum að taka á móti verkum á
næsta listmunauppboð.
Fyrirviðskiptavini leitumviðað
verkum eftir Þórarinn B. Þorláksson,
Jón Stefánsson, Ásgrím Jónsson,
Kristínu Jónsdóttur, Gunnlaug
Blöndal og Gunnlaug Scheving.
Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 14, s. 551 0400.
KENNSLA
VINNUEFTIRLIT RIKISINS
Administration of occupational safety and health
Bíldshöfða 16 ■ Pósthólf 12220 • 132 Reykjavík
Réttindanámskeið fyrir
bílstjóra um flutning á
hættulegum farmi
Athugið að vegna mistaka birtist röng
dagsetning um fyrirhugað námskeið á
Reyðarfirði í auglýsingu í Morgunblaðinu
sunnudaginn 24. október 1999. Rétt dag-
setning er 4.-7. nóvember 1999.
Fyrirhugað er að halda námskeið, ef næg þátt-
taka fæst, fyrir stjórnendur ökutækja, sem vilja
öðlast réttindi (ADR-skírteini) samkvæmt reglu-
gerð nr. 139/1995 til að flytja tiltekinn hættuleg-
an farm á vegum á íslandi og innan Evrópska
efnahagssvæðisins.
Reyðarfirði 4.-7. nóvember 1999:
Grunnnámskeið og flutningur í tönkwn.
Námskeiðsgjald er kr. 28.000, fyrir grunnnám-
skeið og kr. 9.100 fyrir námskeið um flutning
í tönkum. Greiða skal staðfestingargjald kr.
10.000 fyrir grunnnámskeið og kr. 5.000 fyrir
síðara námskeiðið í síðasta lagi viku fyrir upp-
haf námskeiðanna.
Skráning og nánari upplýsingar hjá umdæmis-
skrifstofu Vinnueftirlits ríkisins, Bláskógum 3,
700 Egilsstöðum, s. 471 1636, fax 471 2017,
netfang vinnueftirlit@ver.is.
V
FELAGSSTARF
Aðalfundur Félags
sjálfstæðismanna í
Hlíða- og Holtahverfi
verður haldinn í dag, þriðjudaginn 26. október, kl. 17.00 í Valhöll,
Háaieitisbraut 1, Reykjavík.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Félags sjálfstæðismanna
í Hliða- og Holtahverfi.
V
Félagsfundur
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, heldur
félagsfund í Valhöll, Háaleitisbraut 1, miðviku-
daginn 27. október nk.
Fundurinn hefst kl. 20.00 stundvíslega.
Dagskrá: Kosning uppstillingarnefndar.
Gestur fundarins, Stefania Óskarsdóttir, stjórn-
málafræðingur, ræðir um konur og lýðræði.
Sjálfstæðiskonur, fjölmennum!
Stjórnin.
TIL SOLU
Pallanet
Þrælsterk og
meðfærileg.
Hentug í skjólgirðingar.
Rúllur 3x50 m og 2x50 m.
Verð pr. fm 99.50 m. vsk.
HELLAS,
Suðurlandsbraut 22,
s. 551 5328,568 8988,
852 1570, 892 1570.
SMAAUGLYSINGAR
ATVINNA
Hárskerar — hárskerar
Hárskera vantar é litla rakara-
stofu. Vinnutími samkvæmt
samkomulagi.
Upplýsingar í sfma 862 5186.
FELAGSLIF
□ Hamar 5999102619 I
□ HUN 5999102619 VI
□EDDA 5999102619 I - 1 ATKV
I.O.O.F. Rb. 1 ■ 14910268-
m
| Aðaldeild KFUK,
Holtavegi ^
Fundur í kvöld kl. 20.30. Biblíu-
lestur í umsjá Kristjáns Búason-
ar. Allar konur velkomnar.
augl@mbl.is