Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
JS---------------------------
MORGUNBLAÐIÐ
DANS
Haukur Freyr Hafsteinsson og Hanna Rún
Óladóttir komu, sáu og sigruðu.
Arnar Georgsson og Tinna Rut Péturs-
dóttir tóku sig vel á dansgólfinu.
Grétar Ali Khan og Jóhanna Berta Bern-
burg í öruggum Paso Double-sporum.
Jón Þór Jónsson og Unnur
Kristín Óladóttir.
ÞAÐ var á haustdögum 1989
sem Dansskóli Jóns Péturs
og Köru var stofnaður. Fyr-
ir ungt fólk, þau Jón Pétur
Úlfljótsson og Köru Arngrímsdóttur,
eigendur skólans, var það stór
ákvörðun að leggja út í stofnun fyrir-
tækis sem þessa. Nú hefur skólinn
“^erið starfræktur í 10 ár og er stærri
en nokkru sinni fyrr og því má með
sanni segja að þetta hafi verið þeim
mikið gæfuspor. Nemendur skólans
eru á öllum aldri og felst starfsemin
aðallega í því að kenna fólki almenn-
an dans.
I tilefni af afmæli skólans var efnt
til mikillar og glæsilegrar afmælis-
hátíðar í Laugardalshöllinni sl. laug-
ardag að viðstöddu fjölmenni. Dans-
hátíðin fól í sér keppni, opna öllum
danspörum, annarsvegar og hinsveg-
ar sýningar frá nemendum skólans,
^fnúverandi og fyrrverandi. Rúsínan í
pylsuendanum var svo sýning heims-
meistaranna Marcusar og Karenar
Hilton, MBE, sem eiga að baki 16
heimsmeistaratitla, bæði sem áhuga-
og atvinnumenn.
Keppnin hófst á keppendum í A-,
B- og D-flokkum. Þetta eru þeir
flokkar sem í eru þeir sem eru að
hefja sinn keppnisferil í dansi, en eru
kannski ekki að keppa í fyrsta sinn.
Allir þessir flokkar, ungir sem eldri,
dönsuðu suður-ameríska dansa (lat-
in) og stóðu sig allir með stakri prýði.
Að öðrum flokkum ólöstuðum fannst
mér sérstaklega gaman að sjá flokk
Börn I, þ.e. börn 9 ára og yngri.
Vandvirkur og vel dansandi hópur.
Spennandi og glæsilegt
Seinni hluti keppninnar var sér-
lega spennandi og glæsilegur, en
hann samanstóð af keppni og sýning-
um. Hann hófst á sýningu yngstu
barnanna og dansinn sem sýndur
var var Ykt elding úr söngleiknum
Grease, stórskemmtilega útfærð
sýning með yngsta fólkinu. í þessum
hluta var eingöngu keppt í K- og F-
riðlum og var það veizla fyrir augað.
Yngstu keppendurnir voru í
flokknum Börn I-K og voru það börn
9 ára og yngri. Dans þeirra var sér-
lega skemmtilegur og líflegur, en
þessir keppendur dönsuðu suður-am-
eríska dansa. Það voru Haukur
Freyr og Hanna Rún sem báru sigur
ui' býtum og þarf það ekki að koma
neinum á óvart, því þetta eru frábær-
ir dansarar og vel með á nótunum.
Flokkur Börn II-K dansaði hina sí-
gildu samkvæmisdansa (standard) og
gerði það af mikilli list. Jónatan Amar
og Hólmfríður fóru með sigur af hólmi
eftir sérstaklega glæsilega frammi-
stöðu á dansgólflnu. Þeim hefur farið
gífurlega mikið fram í standard-döns-
unum síðan ég sá þau síðast og eru
svo sannarlega á réttri leið. Þau hafa
staðið sig vel á erlendum vettvangi í
sumar og haust og meðal annars var
tbeim boðið til keppni í sínum aldurs-
rlokki í haust ásamt tæplega 10 öðrum
pörum víða að úr heiminum.
Efnilegir dansarar
Flokkur Unglingar I&II keppti í
suður-amerískum dönsum og döns-
uðu 5 pör til úrslita. Það voru Björn
Vignir og Hjördís Ösp sem sigruðu
_að mínu mati mjög örugglega í þess-
Stórkostleg sýning
á afmælishátíð
„Ýkt elding.“
Þessir litlu
dansarar
gerðu aldeilis
lukku í hóp-
dansatriði
undir stjórn
Jóns Péturs.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Marcus og Karen Hamilton
voru með eina glæsilegustu
danssýningu sem sést hefur.
dans, stórglæsilegar danssýningar
og falleg umgjörð.
Islendingar gætu eignast
heimsmeistara
Tíu ára afmælishátíð Dansskóla Jóns
Péturs off Köru var veisla fyrir augað og
Jóhann Gunnar Arnarson skortir orð til að
lýsa frammistöðu heimsmeistaranna
Marcusar og Karenar Hilton.
um flokki, en þau hafa einungis
dansað saman síðan síðsumars. Stór-
efnilegir dansarar.
Flokkur Unglingar I-F dansaði
standard-dansana og samkvæmt
venju var vel dansað og keppnin
spennandi. Sigurvegarar voru Hrafn
og Helga. Þau dönsuðu frábærlega
vel, og hef ég ekki séð þau dansa
standard-dansana svona vel áður.
Þau eru greinilega í uppsveiflu!
Unglingar II-F kepptu í latin-
dönsum og dönsuðu 4 pör í úrslitum.
Þetta var sá flokkur sem mér fínnst
hafa sýnt jafnmesta framfor, þ.e. öll
pörin eru mun betri en á síðasta
keppnisári og það töluvert mikið
betri. Öruggir sigurvegarar voru
samt Hilmir og Ragnheiður, sem
hafa náð góðum árangri að undan-
förnu á erlendum vettvangi.
Sá flokkur sem var e.t.v. einna
mest spennandi var Flokkur áhuga-
manna-F. Þessi flokkur keppti í lat-
in-dönsum. Eftir mjög harða keppni
við Árna og Erlu stóðu Isak og
Helga Dögg uppi sem sigurvegarar.
ísak og Helga Dögg eru sérlega
glæsilegir dansarar og eru tiltölu-
lega nýbyrjuð að dansa saman. Þau
hafa verið að gera mjög góða hluti í
haust og var meðal annars boðið að
taka þátt í móti í Hong Kong á
haustdögum.
Síðastur en ekki sístur var Flokk-
ur fullorðinna, sem dansaði latin-
dansa. Þessir dansarar eru búnir að
stunda dans með góðum árangi'i
mörg undanfarin ár. A síðustu miss-
erum hafa þau verið að færa sig
uppá skaftið og eru farin að stunda
dans með frjálsri aðferð. Það var
gaman að sjá þessa dansara á gólfínu
á laugardaginn. Öruggir sigurvegar-
ar voru Björn og Bergþóra, sem eru
margfaldir Islandsmeistarar.
Þessi danskeppni var í alla staði
mjög glæsileg og skemmtileg. Eg vil
leyfa mér að segja að þetta hafi verið
ein glæsilegasta, ef ekki sú glæsileg-
asta, keppni sem ég hefi séð hér á
Fróni. Það hélst allt í hendur; góður
Rúsínan í pylsuendanum var þó
sýning Marcusar og Karenar Hilton,
MBE. Þetta er án efa glæsilegasta
danssýning sem fyrir augu manna
hefur borið hér á landi. Kann ég í
raun engin lýsingarorð til að lýsa því
hve stórkostleg þessi sýning var, þó
er íslenskan rík af lýsingarorðum!
Marcus kynnti sýninguna og á milli
dansa skipti Karen alltaf um kjól.
Meðal þess sem Marcus sagði á ís-
lensku var að þeim hjónunum þætti
gaman að vera loksins komin til Is-
lands. Hann sagði einnig að dans á
íslandi væri í mjög háum gæðaflokki
og hann efaðist ekki um að ekki væri
langt að bíða þess að íslendingar
eignuðust heimsmeistara í dansi.
Marcus og Karen hafa sjálfsagt unn-
ið til allra stórra titla sem hægt er að
hugsa sér á keppnisferli sínum.
Þeirra stærsta stund er þó eflaust
þegar þau veittu MBE-orðunni
(Member of the Order of the
Bristish Empire) viðtöku.
Ég get ekki lýst þessari sýningu
frekar eins og fyrr sagði og læt ég
hér því staðar numið. En að lokum:
Jón Pétur og Kara, til hamingju með
afmæli skólans og stórglæsilega
danshátíð!
ÚRSLIT
Börn I-K, latin
1. Haukur F: Hafsteinssy
Hanna R. Ólad...................HV
2. Amar D. Péturss7
Gunnhildur Emilsd...............GT
3. Aðalsteinn Kjartanss7
Tinna R. Pétursd..................KV
4. Karl Bemburg/
Helga S. Guðjónsd.................KV
5. Jón T. Guðmundssy
Ingibjörg Sigurðard...............HV
Börn II-K, standard
1. Jónatan A. Örlygssy
Hólmfríður Björnsd................GT
2. Araar Georgssy
Tinna R. Pétursd..................GT
3. Baldur K. Eyjólfss/
Erna Halldórsd....................GT
4. Þorleifur Einarss/
Ásta Bjarnad......................GT
5. Bjöm E. Bjömss/
Herdís H. Amalds..................HV
6. Björn I. Pálss/
Asta B. Magnúsd...................KV
Unglingar I-II-K, latin
1. Björn V. Magnúss/
Hjördís Ö. Ottosd.................KV
2. Láms Þ. Jóhannss/
Anna K. Vilbergsd.................HV
3. Jón Þ. Jónss/
Unnur K. Ólafsd...................HV
4. Baldur Þ. Emilss./
Dagný'Grímsd......................GT
5. Hermann Ó. Ólafss./
Kolbrún Gíslad....................GT
Unglingar I-F, standard
1. Hrafn Hjartars/
Helga Bjömsd......................KV
2. Sigurður R. Amarss/
Sandra Espesen....................HV
3. Davíð M. Steinarss/
Sunneva S. Ólafsd.................GT
4. Agnar Sigurðss./
Elín D. Einarsd...................GT
5. Friðrik Ámas/
Sandra J. Bernburg................GT
6. Ásgrímur G. Logas/
Bryndís M. Björnsd................GT
Unglingar II-F, latin
1. Hilmir Jenss/
Ragnheiður Eiríksd................GT
2. Davíð G. Jónss/
Halldóra S. Halldórsd.............GT
3. Grétar A. Khan/
Jóhanna B. Bernburg...............KV
4. Grétar B. Bragas/
Harpa L. Örlygsd..................GT
Ungmenni-F, latin
1. ísak H. Ngyen/
Helga D. Helgad...................HV
2. Árni Þ. Eyþórss./
Erla S. Eyþórsd...................KV
3. Hilmir Jenss./
Ragnheiður Eiríksd................GT
4. Hannes Þ. Egilss/
Linda Heiðarsd....................HV
5. Grétar A. Khan/
Jóhanna B. Bernburg...............KV
6. Eðvarð Þ. Gíslas/
Guðrún H. Hafsteinsd..............ÝR
Fullorðnir, latin
1. Björn Sveinssy
Bergþóra M. Bergþórsd.............GT
2. Jón Eiríkssy
Bagnhildur Sandhoit...............GT
3. Eyjólfur Baldurssy
Þórdis Sigurgeirsd................GT
4. Eggert Claessen/
Sigrún Kjartansd..................KV
5. Kristinn Sigurðssy
Fríða Helgad......................GT