Morgunblaðið - 26.10.1999, Síða 53

Morgunblaðið - 26.10.1999, Síða 53
flH________________________________________________________________ . , ......................................................................-...........—__________________________^Jflflfli________________________________________________________________________________________.^JflMflfl MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 53— Kalda stríðið krufið FULLYRÐINGAR þess efnis að á íslandi hafi verið geymd kjamorkuvopn og -sprengjur á sjötta áratuginum hafa vakið mikla athygli hér á landi og víða eriendis. Fréttirnar eiga rætur að rekja til rannsókn- ar nokkurra banda- rískra vísindamanna á skýrslu frá varna- rmálaráðuneyti Bandaríkjanna um út- breiðslu og staðsetn- ingu bandarískra kjarnavopna frá 1945 til 1977. Þá skýrslu höfðu rannsakendur fengið í hend- ur í krafti bandarísku upplýsinga- laganna. Enn hvílir leynd yfír stórum hluta skýrslunnar þar sem strikað hefur verið yfir orð og setningar svo ekki megi greina ritmál. Nið- urstaða vísindamannanna er að nafn íslands hafi verið máð út með þessum hætti á tilteknum stað í skýrslunni og draga megi þá álykt- un af samhenginu að hér hafi verið geymd kjamorkuvopn á árunum 1956 til 1959. Bandarísk stjómvöld hafa hins vegar lýst því yfir við Halldór Asgrímsson, utanríkisráð- herra, að niðurstaða skýrsluhöf- unda sé röng. Nú hefði mátt ætla að ríkisstjórn Islands hefði séð ástæðu til þess að fyrra bragði að greina Alþingi frá framvindu mála og því hvort leitað hefði verið svara bandarískra yfir- valda, strax og ofangreind tíðindi bárust. Sú varð ekki raunin og því var það að frumkvæði Samfylking- arinnar að efnt var til utandag- skrámmræðu um mál- ið samdægurs á Alþingi svo að ræða mætti með hvaða hætti stjómvöld hygð- ust bregðast við full- yrðingum vísinda- mannanna. Davíð Oddssyni, forsætisráðheri-a, sem hljóp í skarð utanríkis- ráðherra í umræðunni, virtist fyrirmunað að ræða fregnirnar með málefnalegum hætti. Forsætisráðherra hrökk beint í kaldast- ríðsgírinn og jós úr skálum reiði sinnar yf- ir stjórnarandstöðuna fyrir að dirf- ast að taka málið upp á þingi. Málf- lutningur sjálfstæðismanna var reyndar allur með þeim hætti að ætla mátti að þeim hefði verið kippt aftur til fortíðar í einu vetfangi. Kalda stríðinu er lokið og heims- mynd okkar hefur gjörbreyst. En það breytir því ekki að við verðum að hafa kjark til þess að rýna í for- tíðina og draga af henni lærdóma sem nýtast við mótun utanríkis- stefnu sem tekur mið af breyttri heimsmynd. í ljósi þessa mun Sam- fylkingin leggja fram á Alþingi þingsályktunartillögu þess efnis að vinnuhópur sérfræðinga fái það verkefni að rannsaka hemaðarlegt hlutverk íslands í kalda stríðinu, jafnframt því að fara ofan í saum- ana á samskiptum okkar við Banda- ríkin og Sovétríkin á tímum kalda stríðsins. í hálfa öld hafa umræður um ut- anríkismál hér á landi stjórnast af afstöðu fólks og flokka til aðildar- innar að Atlantshafsbandalaginu. Kjarnorkuvopn Forsætisráðherra, segir Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, hrökk beint í kaldastríðsgírinn. Kreddur og hugmyndafátækt kalda stríðsins lifa enn góðu lífi í hugum ráðamanna eins og málflutningur forsætisráðherra bar vitni um á dögunum. Samfylkingin vill snúa af þessari braut og leggja grann að ut- anríkisstefnu sem endurspeglar nýja tíma og breytta heimsmynd. En slík stefna verður þá aðeins haldbær og trúverðug að Islending- ar takist á við það verkefni að kryfja sögu kalda stríðsins, hvað okkur varðar, til mergjar. Höfundur er þingkona fyrir Sam- fylkinguna í Reykjaneskjördæmi. Bókhaldskerfi KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 • Simi 568 8055 www.islandia.is/ketfisthroun Þórunn Sveinbjarnardóttir LANGAR ÞIG AÐ NÁLGAST VERKEFNIN FRÁ NÝRRI HLIÐ? Rekstrarleigusamningur £ngin útborgun 29.086 kr. ó mánuði Fjármögnunarleiga Utborgun 270.000 kr. 16.582 kr. á mánuði Rekstrarleiga er miðuS vi8 24 mánu8i og 20.000 km akstur á ári. Fjármögnunarlaiga er miðuð vi8 60 mánuBi og 25% útborgun, greiSslur eru án vsk. Vsk leggst ofan á Ieigugrei8slur en viBkomandi faer hann endurgreiddan ef hann er meS skattskyldan rekstur. Allt verS er án vsk. ATVINNUBÍLAR FyRIRTÆKJAÞJÓNUSTA Grjótháls 1 Sfmi 575 1200 Söludeild 575 1225/575 1226 RENAULT Reykjavík • Skeifunni 17 • Sími 550 4000 Akureyri • Furuvöllum 5 • Sími 461 5000 Umboðsmenn um iand allt Ergo Pro Verð frá aðeins kr. 116.700 m/vsk. TREYSTU fl • • TOLVUNfl ÞINfl Tæknival Það sem skiptir einna mestu máli í rekstri fyrirtækja er að geta treyst á tölvubúnað sinn. Á einungis tveimur árum hafa Fujitsu tölvurnar rækilega sannað sig sem afkastamiklar og öruggar tölvur sem sameina ekki aðeins áreiðanleika og mjög lága bilanatíðni heldur einnig fallega hönnun og ótrúlegt verð. Fujitsu er einn af þremur stærstu framleiðendum PC tölva, fartölva og netþjóna I heiminum. Njóttu þess að geta treyst tölvunni þinni. FUJITSU - óbeislað afl Ergo Pro • 400 MHz Intel Ceieron örgjörvi • 128Mb vinnsluminni « 4,3GB harður diskur • 17" skjár • 10/100 netkort . Hljóðkort • Geisladrif . Hátalarar • 3 ára ábyrgð TAKMARKAÐ MAGN Verð frá kr. 116.700 m/vsk. «3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.