Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 59
Arnar heldur forystunni
á Haustmóti TR
SKAK
HAUSTMÓT TR
3.-29.10. 1999
í
NÍU umferðir hafa nú verið tefld-
ar á Haustmóti Taflfélags Reykja-
víkur og eru einungis tvær umferðir
eftir. Haustmótið í ár er jafnframt
minningarmót um Benóný Bene-
diktsson skákmeistara sem lést árið
1991. Úrslit í níundu umferð í A-
flokki urðu sem hér segir:
Kristján Eðvarðss.
- Arni H. Kristjánss. V2-V2
Sævar Bjarnason
- Arnar E. Gunnarss. V2-V2
Jón Viktor
- Sigurbjörn Björnsson V2-V2
Einar K. Einarsson
- Þorvarður Ólafsson V2-V2
Jón Á. Halldórsson
- Júlíus Friðjónsson 0-1
Stefán Kristjánsson
- Björn Fr. Björnsson 0-1
Staðan í A-flokki eftir níu umferð-
ir er þessi:
1. Arnar E. Gunnarsson 7 v.
2. _3. Jón V. Gunnarsson 6'/2 v.
2. 3. Sigurbjöm Bjömsson 6‘/2 v.
4. Sævar Bjarnason 6 v.
5. Stefán Kristjánsson 5 v.
6. Jón Árni Halldórsson 4'/2 v. +fr.
o.s.frv.
í B-flokki var ákveðið að keppend-
ur yrðu einungis tíu talsins og er
keppni þar því lokið. Ástæðan var sú,
að tveir keppenda taka þátt í heims-
meistaramóti barna, sem hófst á
sunnudaginn á Spáni. Það voru
einmitt Spánarfararnir sem urðu
I efstir í flokknum og skutu þar með
ýmsum eldri og reyndari skákmönn-
um aftur fyrir sig:
1. Sigurður Páll Steindórsson 7‘/2 v.
2. Guðjón Valgarðsson 7 v.
3. Erlingur Þorsteinsson 6V2 v.
4. Torfi Leósson 6/2 v.
5. Jón Þorleifur Jónsson 4‘/2 v. - o.s.frv.
í C-flokki eru keppendur 25 og er
staðan er þessi eftir níu umferðir:
1. 2. Guðni Stefán Pétursson 7 v.
1. 2. Guðmundur Kjartansson 7 v.
3._4. Ingvar Örn Birgisson 6V2 v.
I 3._4. Guðmundur Sverrir Jónsson 6V2 v.
5. Baldur Már Bragason 6 v.
6. Baldvin Þór Jóhannesson 6*/2 + fr.
7. _8. Emil Petersen 514 v.
7._8. Víðir Petersen 5V4 v. - o.s.frv.
Tíunda umferð verður tefld á
morgun, miðvikudag, en ellefta og
síðasta umferð verður tefld á föstu-
daginn og hefst taflið klukkan 19.30.
Flokkur Fgjldi FIIE st. Hæ stu st. FuBtrúiÉlands Stig
D xengjrU -18 89 73 2 528 D aví5 K ^.rtansson 2154
DxsngirU-16 104 68 2 506 S ijuiður p . s teiidóiss. CL.945)
DxengirU-14 109 47 2.406 G uð;þn H . V afeaiðsson a.880)
D lengirU -12 103 17 2 397 DagurAmgrín sson a^20)
DiengirU-10 97 3 2 204
StúIkarU-18 64 27 2303 Haxpa Iigólfedóttir ^500)
StnkurU-16 66 30 2354 íigirpig Edda Bigid. a.440)
S tnkurU -14 79 11 2 276
S tnlcurU -12 73 6 2 229
StúIkurU-10 61 0
Teflt er í Faxafeni 12 og eru áhorf-
endur velkomnir.
Heimsmeistaramót
barna hafíð
Heimsmeistaramót barna og ung-
linga, 18 ára og yngri, hófst á Spáni
á sunnudaginn. Að þessu sinni eiga
íslendingar sex fulltrúa á mótinu,
fjóra pilta og tvær stúlkur. Mótið er
mjög sterkt og fjölmennt, en alls eru
þátttakendur 845 í tíu aldursskiptum
flokkum, fímm flokkum pilta og
fimm flokkum stúlkna. Meðal kepp-
enda eru 277 skákmenn með alþjóð-
leg skákstig. Stigahæstu keppend-
urnir eru:
Lazaro Bruzon, Kúbu (2528)
Peter Acs, Ungverjal. (2525)
Pons Vallejo Francisco, Spáni (2519)
Lenier Dominguez, Kúbu (2506)
Allir þessir piltar tefla í elsta ald-
ursflokki, 17—18 ára, nema Lenier
Dominguez sem teflir í flokki 15-16
ára. Stigahæsta stúlkan er Viktorija
Cmilyte frá Litháen. Hún teflir í
flokki 15-16 ára stúlkna og er með
2.354 stig.
Meðal þátttakenda eru tveir af
ráðgjöfum heimsliðsins í nýafstað-
inni skák gegn Kasparov, sem tefld
var í gegnum netið og vakti gríðar-
lega athygli. Þetta eru þýska stúlkan
Elisabet Paehtz (2.276), sem teflir í
flokki 13-14 ára, og svo bandaríska
stúlkan Irina Krush (2.432). Irina
vakti aðdáun þátttakenda í skákinni
við Kasparov fyi-ir mikla eljusemi.
Greinilegt er, að hún skilur að ár-
angur í skák næst ekki öðruvísi en
með því að leggja hart að sér. Að því
leyti er skákin ekki frábrugðin öðr-
um viðfangsefnum þar sem hörð
samkeppni ríkir. Það sem vekur at-
hygli varðandi þátttöku Irina er að
hún teflir í flokki pilta 17-18 ára.
Ekki hefur sést skýring á þessu, en
ljóst er að miðað við skákgetu á hún
fullt erindi í þennan flokk. Það væri
fróðlegt að fylgjast með hvenær
undantekningar af þessu tagi verða
leyfðar í öðrum keppnisgreinum.
í meðfylgjandi töflu má sjá yíirlit
yfir einstaka flokka heimsmeistara-
mótsins og fulltrúa íslands. Dálkur-
inn „FIDE st.“ sýnir fjölda þátttak-
enda með FIÐE-stig í hverjum flokki
og „Hæstu st.“ eru stig stigahæsta
keppandans í viðkomandi flokki. I
dálkinum stig má sjá skákstig ís-
lensku keppendanna. Davíð Kjart-
ansson er eini keppandinn með al-
þjóðleg skákstig, en íslensk skákstig
eru sýnd innan sviga, þannig að hægt
sé að gera sér grein fyrir styi'kleika
hinna íslensku keppendanna.
Davíð Kjartansson er í 62. sæti í
sínum flokki hvað stigatölu varðar.
Hann er hins vegar töluvert nær
efstu keppendum í sínum flokki að
stigum en hinir íslensku keppend-
urnir. Tefldar verða ellefu umferðir.
Úrslit í fyrstu umferð urðu þessi:
Andrie Zaremba (2336)
- Davíð Kjartanss. 0-1
Allan S. Rasmuss. (2183)
- Sig. Steind.ss. 1-0
Davorin Kuljasev. (2067)
- Guðj. Valgarðs. 1-0
Dagur Arngrímss.
- Jose V. P. Lozoya 1-0
Harpa Ingólfsd.
- Cristina Moshina (2192) 0-1
Laila Viestad
- Ingibjörg Birgisd. V2-V2
Þetta var góður sigur hjá Davíð
gegn mun stigahærri bandarískum
skákmanni. Dagur fór einnig vel af
stað, en andstæðingur hans var
stigalaus Spánverji. Ingibjörg Edda
gerði jafntefli við norska stúlku.
Skákmót á næstunni
28.10. S.A. Öldungamót kl. 20
31.10. Hellir. Kvennamótkl. 13
31.10. S.A. Hausthraðskákmót kl. 14
31.10. T.R. Hausthraðskákmót
Daði Orn Jónsson
s
J
Aðeins í örfáa daga
útsala
••
Rýmum fyrir 2000 módelunum.
• Svigskíði - skór - bindingar - stafir.
• Gönguskíði - skór - bindingar - stafir.
• Snjóbretti - skór - bindingar.
Einnig mikið úrval af skíðasamfestingum,
skíðaúlpum, buxum, töskum og m.fl.
Bindingaásetningar unnar af fagmönnum
á fullkomnasta skíðaverkstæði landsins.
Munið eftir fríkortinu!
UTILIF
GLÆSIBÆ
Sími 581 2922 • www.utilif.is
I
ÍltíJSisi L)£jj: £
Nemendur í grunn-, framhalds-
og háskóla athugið!
Erum með einkakennslu og námskeið fyrir litia hópa
í stærðfræði, eðlisfræði og töivufræði.
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan, Brautarholti 4, 2. hæð, s. 551 5593
nxo
til útlaada
-auðvelt dð mund
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið urval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
SÍMINN
www.sxmi.is
Eucerin*
Microsott Novell.1
SYMANTEC.
F Adobe
Eru hugbúnaðarmál í Lagi
...hjá þínu fyrirtæki?
Hugbúnaður er verndaður af lögum um höfundarétt.
Margir tölvunotendur skáka í því skjólinu að þeir viti
ekki hvort forrit eru afrituð eða ósvikin. Þetta er ekki
gild afsökun. Nú er verið er að skera upp herör gegn
hugbúnaðarstuldi — ert þú með hreina samvisku?
Fengi tölvan þín hreint sakavottorð?
(ö
550-4000
...hringdu núna
Þjónusturáðgjafar Tæknivals veita öll svör við
spurningum um hugbúnað og þau leyfi sem
nauðsynleg eru fyrir löghlýðna tölvunotendur.
Tteknlval
www.taeknival.is
<|> mbUs
\LL.TAf= f/777/M£X /VWX
Fréttir á Netinu