Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 72
£2 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Hagatorgi, sírni 530 1919 síd is'n sö.xat iimiii \/ ★ ★ HASKOLABIO HASKOLABIO ________Sýnd kl. 7,___ NOTIING HILL Sýnd kl. 11. ALLT UM MÓÐUR MÍNA Sýnd kl. 9. Síö. sýn. 4 STEVEIARTIN Miskonnarlausir Kl.6.45, 9 og 11.15. B.i. 16. EDDIE MURPHY Blygðunarlausir Klækjóttir R-iuíaA wtK* > iiwriii .wwpflbi Wfriii .vwrfiiÐ iM Bf6HðU , NÝn 0G BETRA^™ ^ ■ m SAGA-MÍ) i J FERÐU ÍBlÓ Alfíibakka 8, simi 5Ö7 8900 og 587 8905 J |ll/(í WIUI5 1 f ,||| J m "k ★ ★ ^^t^msverkur ■ ★ ★ ★ 1/2 Kvikmyndir.is ■ ★ ★ ★ Rás 2 * . ★★★ Dv ■ THC - ' ýjaTTA ý Tll-AlilCARl/ITIÍ • ; Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b.i. 12. hhdksitai Kl. 4.40, 6.45, 9 og 11.15. b.i. ie. hiidigital ; ÉJAI ?,9ogii mammmgmnmi Kl. 5, 7, 9 og 11. kl. 9 og 11.20. Síð. ■ ; Kl. 5 og 7. Is.'tal. wnociw. B.i.10. Kl. 5, 7, 9og 11. sýn. 2 FYRIR1 . www.samfilm.is TRimPORm® Leið til betri heilsu Námskeið Trimform meðferðartækin eru m.a. notuð við: -Vöðvauppbyggingu -vöðvabólgu -grenningu -vaxtarmótun -örvun blóðrásar -þvagleka -O.fl. Næsta námskeið verður haldið miðvikudaginn 3. nóvember skráning í síma 5114100. Alþjóða Verslunarfélgið ehf. Skipholti 5, 105 Reykjavík sími: 511 4100 ^yfíorgoret kökumeikið komið aftur! LEBBOU MERKiO Á MUSINIO BRAINBOW Það er margt að munal FÆST f APÓTEKUM OG HEILSUVERSLUMUM Fyrir þá sem hafa ekki efni á að gleyma Prinsinn sigraði en Tyson í vandræðum Tyson kemur af fjöllum þegar dæmd eru af honum tvö stig. Hugað að hné Norris sem treysti sér ekki til að halda áfram. Prinsinn Naseem Hamed hafði ástæðu til að fagna eftir sigur á Soto. Þetta er þriðji bardaginn í röð sem Tyson missir stjórn á sér. Hann beit í bæði eyru Evanders Holyfields árið 1997 og var dæmd- ur úr leik, sektaður um 210 milljón- ir króna og úrskurðaður í 15 mán- aða keppnisbann. Eftir viðureignina sagði Tyson að Holy- field hefði reynt að stela matnum af borði fjölskyldu sinnar með því að skalla sig og aðstoðarmenn Tysons sögðu Holyfield veimiltítu fyrir að æsa sig yfir því þegar stykki var bitið úr eyranu á honum og spýtt á gólfið. Tyson sneri aftur í hringinn í jan- úar síðastliðnum og barðist við Frans Botha frá Suður-Afríku. En hann var næstum dæmdur úr leik eftir fyrstu lotu þegar hann reyndi að brjóta handlegg Bothas í návígi. Það olli næstum uppþoti í hringn- um. Eftir að hafa tapað fjórum fyrstu lotunum vann Tyson á ósannfærandi rothöggi í fimmtu lotu. Eftir bardagann sagði hann: „Eg sannaði ekkert.“ Hann á enn eftir að sanna sig. HELGIN var viðburðarík fyrir áhugamenn um hnefaleika. Prins- inn Naseem Hamed gaf tóninn á föstudagskvöld þegar hann varði WBO-meistaratitil sinn í fjaðurvigt gegn Cesar Soto og vann WBC- meistaratitilinn. Vann hann á sam- hljóða úrskurði dómaranna eftir bardaga sem stóð í tólf lotur. En það var Mike Tyson sem enn sem fyrr komst í fréttimar þegar hann sló andstæðing sinn Orlin Norris í gólfið eftir að búið var að flauta af fyrstu lotuna. Norr- is meiddist á hné í fallinu og var dæmdur ófær um að halda áfram. Fyrir vikið var bardaginn ógiltur. Upphaf endalokanna? Viðureignin átti að marka nýtt upphaf fyrir Tyson sem búist hafði verið við að yrði fljótur að rota Norris; átti það að skila honum aftur í fylkingarbrjóst hnefaleik- anna og gera honum kleift að komast úr skuldum upp á milljónir dollara og afla sér og hópi fjárfesta milljóna í viðbót. Nú eru horfur á að þetta geti orðið upphaf enda- lokanna fyrir Tyson. Hann lamdi Norris með vinstri handar höggi eftir að bjallan hafði ljóslega hringt út fyrstu lotu. Norris féO í gólfið og eftir að hann gekk út í sitt hom og settist niður sagðist hann hafa snúið hægra hnéð á sér og að hann gæti ekki haldið áfram. Síðar staðfesti læknir að hné hans væri bólgið og að hann liði kvalir. Skipuleggjendur bardagans úrskurðuðu að hann væri ómark og að Tyson fengi ekkert af þeim 10 milljónum dollara [700 milljónum króna] sem honum hafði verið heit- ið. Norris, sem einn af hverjum tólf hafði spáð sigri, fékk sínar 55 millj- ónir króna. Dómarinn Richard Steele dró tvö stig af Tyson þegar eftir að Tyson lamdi Norris í gólfið og úrskurðaði að um óviljaverk hefði verið að ræða. Tyson þreyttur á öllum og allir þreyttir á Tyson Með úrskurð Steele í huga og að Tyson er gullnáma fyrir skipuleggjendur hnefaleika í Nev- ada er ólíklegt að Tyson verði refs- að fyrir athæfi sitt. Og Tyson, sem er 33 ára, kenndi andstæðingi sín- um um ófarirnar. „Hann hætti eftir að hann var sestur," sagði Tyson. „Hann vissi að í næstu lotu myndi ég velgja honum undir uggum.“ Hann gagnrýndi líka dómarann Reuters Dómarinn gengur í milli eftir að Tyson sló Norris í gólfið. og sagði að stigin tvö hefðu verið dregin af sér „vegna þess að ég heiti Mike Tyson." Og Tyson hélt áfram: >vAllir sem hafa keppnisskap vita að ef maður getur haldið áfram, heldur maður áfram. Hann gekk út í sitt hom. Svo meiddur var hann á hnénu. Hann hlýtur að hafa meitt sig eftir að hann settist nið- ur.“ Tyson lét að því liggja að hann hygðist hætta hne/aleikum. „Eg vil bara fara heim. Eg er þreyftur á öllu og öllum," sagði hann. „Ég vil ekki berjast meira. Ég er bara þreyttur, þreyttur." Fleiri virðast orðnir þreyttir og það á hegðun Tysons. Umfjöllun fjölmiðla var afar neikvæð um hann og sagði Joe Larkin, sem er yfir íþróttum á sjónvarpsstöðinni Showtime, sem Tyson skuldar 13 milljónir dollara: „Ég skil vel ef að- dáendur hnefaleika freistast til að segja að nú sé nóg komið. Það eru fullkomlega skiljanleg viðbrögð. En á þessum tímapunkti vitum við ekki hvað gerðist."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.