Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI:KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Endurskoðuð verðbólguspá Seðlabankans
Verðbólga
í ár meiri en
áætlað var
Már Guðmundsson aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans segir að verð-
bólguspáin fyrir næsta ár byggist
m.a. á óbreyttu gengi, að launa-
hækkanir verði 6,5% milli ára og
raunverð húsnæðis á höfuðborgar-
svæðinu hækki í byrjun næsta árs.
Már sagði að verðbólguspáin
byggðist því ekki á sérstakri bjart-
sýni en ef gengið styrktist og launa-
hækkanir á næsta ári yrðu eitthvað
lægri gæti verðbólgan orðið minni.
Verðbólgan sem Seðlabankinn
spáir nú er mun meiri en í helstu
viðskiptalöndum Islendinga og í
spánni segir að hún sé meiri en
hægt sé að una.
„Skili aðhald í peningamálum sér
í hærra gengi og/eða verði launa-
hækkanir minni en gert er ráð fyrir
í forsendum spárinnar verður verð-
bólga minni en hér er spáð. Til
dæmis myndi 1V4% hækkun gengis
krónunnar á næstu mánuðum,
ásamt því að laun hækkuðu 1%
minna á næsta ári en gert er ráð
fyrir í spánni, leiða til þess að verð-
bólga yrði rúmlega 214% frá upphafi
til loka næsta árs í stað rúmlega
3>/2%. Aukning kaupmáttar launa
yrði hins vegar nánast hin sama í
báðum tilfellum," segir í spá Seðla-
bankans.
■ Seðlabankinn/20
SEÐLABANKINN spáir 3,3%
verðbólgu milli ársmeðaltala 1998
og 1999 og 4,6% hækkun frá upp-
hafi til loka árs 1999. I júlí síðast-
liðnum spáði bankinn að samsvar-
andi hækkanir yrðu 3% og 4%. Þá
spáir bankinn 4,1% verðbólgu milli
áranna 1999 og 2000 en 3,7% verð-
bólgu frá upphafi til loka næsta árs
1 fSfíniðað við óbreytt gengi frá því sem
það er í dag. Þetta kemur fram í
nýrri verðbólguspá sem Seðlabank-
inn birti í gær.
Banaslys í
Ljösavatns-
skaröi
^IANASLYS varð í Ljósavatns-
skarði í Suður-Þingeyjarsýslu á sjö-
unda tímanum í gærkvöldi þegar
bfll fór út af veginum og valt.
Tveir menn voru í bílnum og beið
farþeginn bana. Bflstjórinn var
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri, en ekki er talið að hann
hafi verið mikið slasaður.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Húsavík var hálka á vegin-
um, en rannsókn á orsökum slyssins
er ekki lokið.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Niðurstaða viðhorfskönnunar meðal 8.000 ríkisstarfsmanna
-Koiiur í meirihluta
en fáar við sljórn
AÐEINS tveir af hverjum tíu for-
stöðumönnum ríkisstofnana eru
konur þrátt fyrir að meirihluti
starfsmanna ríkisins séu konur.
Þetta kemur fram í skýrslu fjár-
málaráðuneytisins, sem ber nafnið
Starfsumhverfi ríkisstarfsmanna við
aldahvörf, en hún byggist á könnun
á viðhorfum 8.000 ríkisstarfsmanna.
I skýrslunni kemur fram að 54%
^“vTkisstarfsmanna eru konur. Hjá
átta af fjórtán ráðuneytum er engin
kona forstöðumaður ríkisstofnunar.
Hjá tveimur ráðuneytum er ein
kona forstöðumaður og hjá einu
ráðuneyti eru þær þrjár. Um fjórir
af hverjum tíu millistjórnendum eru
konur en aðeins tæplega tveir af
hverjum tíu forstöðumönnum.
I skýrslunni segir að þegar litið
sé til núgildandi ráðningarfyrir-
komulags og meðalstarfsaldurs
Vínveitingastaðir í Reykjavík orðnir 169
17 ný leyfí veitt á
sjö mánuðum
FRÁ því í mars á þessu ári hafa
verið veitt 17 ný vínveitingaleyfi í
f Veykjavík og eru staðir með vín-
veitingaleyfi alls orðnir 169 í höfuð-
borginni. Ný lög um vínveitinga-
staði tóku gildi í júlí á síðasta ári en
dregið var að afgreiða ný leyfi með-
an beðið var eftir reglugerð sem
loks var gefin út í mars sl.
Þriggja mánaða reynslutímabfl
með frjálsan afgreiðslutíma vínveit-
4®ágahúsa sem hófst í ágúst var ný-
verið framlengt um níu mánuði og
verður nú eitt ár. 27 staðir hafa leyfi
til að hafa opið eins lengi og þeir vilja
aðfaranætur laugardaga, sunnudaga
og helgidaga en leyfisveitingin er
bundin við miðbæinn í Reykjavík, frá
Klapparstíg að Aðalstræti, og einnig
tiltekin athafnasvæði.
Að höfðu samráði við ýmsa hags-
munaaðila þótti ástæða til að fram-
lengja reynslutímabilið en endanlegt
mat á tilrauninni fer fram að ári.
■ Vínveitingaleyfi/14
stjórnenda sé ljóst að langt sé í að
þessi hlutföll breytist nema gripið
verði til sértækra aðgerða. Skoða
þurfi til dæmis hvort unnt sé að
auka hlut kvenna með því að færa
forstöðumenn markvisst til í starfi.
Omar Kristmundsson, ritstjóri
skýrslunnar, segir þessar niður-
stöður sláandi. Hann segir athyglis-
vert að kvenkyns stjórnendur fái
heldur betri einkunn en karlar þeg-
ar spurt er um afstöðu svarenda til
stjómunarhátta. Hann segir að þótt
munurinn hafi að jafnaði ekki verið
mikill hafi hann komið fram í af-
stöðu svarenda til flestra þeirra
stjórnunarþátta sem spurt var um.
Vanda þarf betur til
ráðninga starfsmanna
í skýrslunni kemur fram að
nokkuð virðist skorta á að vandað
sé til ráðninga starfsmanna hjá
sumum stofnunum. Umtalsverður
hluti ríkisstarfsmanna, sem þátt
tóku í könnuninni, þekkti dæmi um
að ráðið hefði verið í starf hjá stofn-
uninni á öðrum forsendum en hæfni
umsækjenda. I skýrslunni er lagt til
að skoðað verði hvort ástæða sé til
þess að setja nánari reglur um það
hvemig staðið skuli að ráðningum
og skipun ríkisstarfsmanna.
■ Fáar konur/38
Aukin leiðni í Múlakvísl
LEIÐNI í Múlakvísl á Mýrdals-
sandi jókst talsvert í gær, að því
er fram kom í mælingum Reynis
Ragnarssonar lögregluvarðstjóra
í Vík, sem sést á myndinni við
mælingar í gær.
Um morguninn var ieiðnin 225
S/cm og var komin upp í 252
S/cm kl. 22.30 í gærkvöldi. Að
sögn Sverris Elefsen hjá Vatna-
mælingum Orkustofnunar er
þetta hæsti toppur sem komið
hefur fram í Múlakvísl frá því að
mælingar hófust í vatnsföllum frá
Mýrdalsjökli síðla sumars.
Starfsmenn Vatnamælinga
Orkustofnunar hafa sett upp
vatnshæðar-, lciðni- og vatnshita-
mæla í Jökulsá á Sólheimasandi, í
Múlakvisl, í Markarfljóti og í
Hólmsá til þess að vakta vatnsföll-
in sem renna frá Mýrdaisjökli.
Aukna leiðni má útskýra þannig
að á jarðhitasvæðum streyma súr-
ar gastegundir út í árvatnið og
Ieysast þar upp. Súrara vatn á
einnig auðveldara með að leysa
upp ýmsar steindir, sem getur
valdið aukinni leiðni. Aukin leiðni
er oft fyrirboði hlaups og í hlaupi
úr Grímsvötnum í febrúar 1999
fór leiðnin upp í 700 S/cm.
Sverrir segir að skýra megi
aukna leiðni núna með minnkandi
rennsli i ánni i kjölfar kólnandi
veðurs. Hann taldi að ekki væri
ástæða til að hafa áhyggjur af
þessari aukningu.
Nýr gæsluvarðhaldsúrskurður
í stóra fíkniefnamálinu
Grunaður um
peningaþvætti
KARLMAÐUR, sem handtekinn
var á sunnudag í tengslum við rann-
sókn stóra fíkniefnamálsins, var úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 4.
nóvember í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær að kröfu efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra.
Maðurinn, sem er á fimmtugs-
aldri, var handtekinn í kjölfar hús-
leitar sem gerð var á heimili hans ut-
an höfuðborgarsvæðisins. Er hann
grunaður um peningaþvætti og með-
ferð fíkniefna, en sama refsing ligg-
ur við peningaþvætti og fíkniefna-
brotum, eða allt að tíu ára fangelsi.
Alls sitja ellefu manns í gæslu-
varðhaldi vegna rannsóknar málsins,
þar af tíu sem lögreglan í Reykjavík
hefur fengið úrskurðaða í varðhald
og einn á vegum efnahagsbrotadeild-
ar.
Einum karlmanni, sem efnahags-
brotadeildin fékk úrskurðaðan í
varðhald, var sleppt úr haldi hinn 19.
október eftir að hann hafði setið átta
daga í gæsluvarðhaldi.