Morgunblaðið - 25.02.2000, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stúdentaráðskosning-
ar í Háskóla Islands
Röskva
héit
meiri-
hlutanum
RÖSKVA, samtök félagshyggju-
fólks, vann sigur í Stúdentaráðs-
kosningum Háskóla íslands í
fyrradag, en þetta er 10. árið í röð,
sem Röskva fer með sigur af hólmi.
Röskva fékk 51% atkvæða og 5
menn kjörna, en Vaka, félag lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, fékk 45%
atkvæða og 4 menn kjörna. Munur-
inn á fylkingunum var 173 atkvæði
og þýða úrslitin að Röskva heldur
meirihluta í Stúdentaráði.
Um 2.827 háskólanemar tóku
þátt í kosningunum, eða um 44% af
þeim sem eru á kjörskrá. Auðir
seðlar voru 101 og ógildir 29. Kjör-
sóknin að þessu sinni var aðeins
betri en í fyrra en þá var hún 42%.
Árið 1998 var kjörsókn 47%.
í fyrradag var einnig kosið til
háskólaráðs og hlaut Röskva 1.444
atkvæði, Vaka 1.299.
Utankjörfundaratkvæði
ógild
Á fundi kjörstjórnar kom upp
deila um gildi 51 atkvæðis sem
greidd höfðu verið utan kjörfund-
ar. Snerist deilan um það hvort at-
kvæði sem greidd höfðu verið utan
auglýstrar utankjörfundarat-
kvæðagreiðslu væru gild atkvæði.
Átta fulltrúar í kjörstjórn töldu svo
ekki vera þar sem ekki hefði verið
rætt um slíka atkvæðagreiðslu á
fundum kjörstjórnar. Fimm kjör-
stjórnarfulltrúar, þar á meðal for-
maður kjörstjórnar, töldu slík at-
kvæði vera greidd í samræmi við
19. gr. laga Stúdentaráðs og því
gild atkvæði. Kjörstjórn samþykkti
með 8 atkvæðum gegn 5 að skoða
ætti þessi atkvæði sem ógild og að
þau kæmu ekki til talningar. Var
farið eftir þeirri ákvörðun við taln-
ingu.
Deutsche Messe AG, Hannover/Krebs
Allt það nýjasta f upplýsingatækninni er á CeBIT-sýningunni í Hannover og þar eru einkatölvur af öllum
gerðum áberandi.
CeBIT hófst í gær
í Hannover
Reiknað
með 700
þúsund
manns
Hannover. Morgunbladið.
ALLT það nýjasta í upplýsinga-
tækni er kynnt á sýningunni CeBIT
sem hófst í Hannover í gær og
stendur fram á miðvikudag. Þetta
er stærsta sýning sinnar tegundar í
heiminum.
Á áttunda þúsund fyrirtækja
sýna vörur sínar og þjónustu á 450
Deutsche Messe AG, Hannover/Langefeld
Smærri, Iéttari og öflugri far-
sfmar draga að sér athygli gesta
á CeBIT-sýningunni.
þúsund fermetrum og reiknað er
með að gestir verði um 700 þúsund.
Það mátti vel merkja á aðsókninni í
gærmorgun þegar allar lestir voru
drekkhlaðnar af fólki þrátt fyrir
tíðar ferðir. Gistiherbergi í Hann-
over voru upppöntuð fyrir þremur
árum og fara margir þá leið að
gista í nágrannabyggðarlögunum;
sumir jafnvel í Hamburg en það
tekur um eina og hálfa klukkustund
að ferðast þaðan með lest til
Hannover.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, flutti ræðu við upphaf
hátíðarinnar og talaði um mikil-
vægi Netsins og upplýsingatækni.
Einnig kom fram við opnunina að
um 30 þúsund störf væru á lausu í
tölvutækni í álfunni og er atvinnu-
miðlun á meðai nýjunga á CeBIT.
Sex fslensk fyrirtæki sýna á bás
sem Útflutningsráð er með á leigu
og einnig verður sífellt meira um að
íslensk fyrirtæki taki þátt í kynn-
ingum erlendra samstarfsaðila eða
viðskiptavina.
Landsmenn tilnefni
„öndvegishús og
merkileg mannvirki“
LISTAHÁT’IÐ í Reykjavfk efnir,
ásamt Morgunblaðinu, Arki-
tektafélagi Islands og byggingar-
listadeild Listasafns Reykjavíkur,
til ljósmyndasýningar þar sem
viðfangsefnið verður fslensk
byggingarlist. Yfirskrift sýning-
arinnar er „Öndvegishús og
merkileg mannvirki". Þar verður
reynt að velja úr og gera skil
þeim byggingum og mannvirkjum
sem einhverra hluta vegna hafa
framar öðrum sett svip sinn á ís-
lenska byggingarlist. Nefnd fag-
manna mun velja 50 byggingar
og mannvirki sem hún telur skara
fram úr hvað varðar útlit, hönn-
un, áhrif á þróun byggingarlistar,
notagildi, og samspil við umhverfi
sitt, svo eitthvað sé nefnt.
Aðstandendur verkefnisins
hvetja nú landsmenn til að líta
sér nær, skoða umhverfi sitt og
kveða upp sinn dóm. Þess er farið
á leit að fólkið í landinu tilnefni
þau hús eða mannvirki sem á ein-
hvern hátt hafa vakið athygli
þess.
Tilnefna má eina til þijár bygg-
ingar eða mannvirki, hvaðanæva
af landinu sem er. í yfirskrift
þessa úrvals felst að byggingin
skipi öndvegi í huga þess er vel-
ur, sé í öndvegi f umhverfi sínu
og hafi til að bera fagurfæðilegt
gildi byggingarlistar sem skipi
henni í ákveðið öndvegi. Mikil-
leiki, íburður eða stærð þarf ekki
endilega að ráða ferðinni heldur
rökstudd skoðun um að byggingin
hafi eitthvað það til að bera sem
geri hana að „öndvegishúsi“ eða
„merkilegu mannvirki" og höfði
til fólks á jákvæðan hátt út frá
gefnum forsendum. Velja má
byggingu frá hvaða tíma íslenskr-
ar byggingarsögu sem er.
í tilnefningunni þarf að koma
fram rökstuðningur fyrir valinu,
þar sem útskýrt er í stuttu máli
hvað þessi tiltekna bygging hefur
til að bera umfram aðrar, nafn og
staðsetning byggingarinnar, og ef
fyrir liggja, upplýsingar um höf-
und byggingarinnar og bygging-
arár. Gott væri að ljósmynd eða
stafræn mynd fylgi með, sé bygg-
ingin ekki þeim mun þekktari.
Tilnefningum skal skilað til
Listahátíðar í Reykjavík, Pósthólf
88, 121 Reykjavík, merktum
„Öndvegishús og merkileg mann-
virki“ fyrir 1. apríl nk.
Morgunblaðið mun birta mynd-
ir af tilnefndum byggingum í apr-
íl og maí og að endingu mun
dómur almennings verða lagður
fram samhliða dómi hinnar fag-
legu nefndar á sýningunni „Önd-
vegishús og merkileg mannvirki"
sem verður opnuð á Listahátfð
hinn 21. maí nk. í nýjum húsa-
kynnum Listasafns Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu.
Selskersviti. Minnt er á að ábendingamar geta bæði verið um hús og
mannvirki.
Allar
greiðslur
skattlagðar
sem laun
ALMENNA reglan er sú að allar
greiðslur, sem ganga til starfs-
manna, hvaða nafni sem þær nefn-
ast, eru laun í hendi þeirra og skatt-
lagðar sem slíkar, sagði Indriði H.
Þorláksson ríkisskattstjóri aðspurð-
ur um skattalega meðferð launa á
borð við þau, sem stjómendur og
starfsmenn Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins fengu á síðasta ári.
Á aðalfundi bankans á miðvikudag
kom fram að fimm æðstu stjómend-
ur FBA höfðu að meðaltali 17 millj-
ónir króna í laun og áunninn kaup-
auka á síðasta ári. Að auki verður
útgreiddur kaupauki starfsmanna
FBA vegna síðasta árs að meðaltali
100 þúsund krónur á mánuði og því
til viðbótar geymast um 100 þúsund
króna mánaðargreiðslur á mann, eða
um 48% af áunnum bónus, og verða
greiddar út á næsta ári eða síðar, allt
eftir því hvort árangur bankans á
þessu ári verður betri en á síðasta ári
eða ekki.
Indriði sagði að meta þyrfti hvert
tilfelli þegar peningar væm lagðir til
hliðar eða í sjóði, en reglan væri sú
að tekjur yrðu skattskyldar um Ieið
og þær yrðu eign viðkomandi og
kæmi það útborgunartíma ekki við.
„Ef maður fær laun með því að fá
afhent hlutabréf eða ávísun á ein-
hver verðmæti era verðmæti þeirrar
afhendingar á einhveiju gangverði
tekjur hans,“ sagði hann. „[Skatt-
lagningin] ræðst af því hvaða form er
á þeirri eign. Ef maður fær hlutabréf
afhent er litið á verðmæti á þeim
tíma og það hefur ekki áhrif þótt
hlutabréfið falli í verði seinna. Þetta
er alveg eins og hann fengi afhentan
pening til að kaupa hlutabréfið. Það
gildir einu þótt féð sé fast, málið er
metið á þeim grandvelli hvers konar
íyrirkomulag og hvernig eignarhald-
ið á þessu er. En það þarf að taka
íram að þetta er ekki hægt að meta
nema allar upplýsingar liggi fyrir.“
Að sögn Indriða gildir einu hvort
um er að ræða laun eða bónus varð-
andi skattlagningu. Hátekjuskattur
er 45,37% af þeim tekjum, sem eru
umfram 3.278 þúsund krónur á mann
miðað við álagningu vegna tekna á
árinu 1999, eða 7% umfram almenn-
an skatt, sem er 38,37%.
------♦-♦-4-----
Samgönguráðherra
Óskalisti
frekar en
forgangs-
röðun
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir, í samtali við Morgun-
blaðið, að tillögur sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu að vegaáætlun
séu allra góðra gjalda verðar, en þær
beri með sér að forsvarsmenn sveit-
arfélaganna hafi ekki getað gert upp
á milli verkefna.
„Tillögumar gera ráð fyrir mun
meiri tekjuöflun en vegasjóður hefur
yfir að ráða og eru þessar tillögur
þar af leiðandi óskalisti frekar en
forgangsröðun, segir Sturla.
Hann segir tillögurnar bera með
sér að sveitarfélögin hafi í raun ekki
komið sér saman um að forgangs-
raða, heldur virðist sem öll sveitar-
félögin fái óskir sínar uppfylltar.
Þýða aukin útgjöld bfieigenda
„Ég mun óska eftir fundi með for-
svarsmönnum sveitarfélaganna til
að ræða þessa stöðu og fá betri skýr-
ingar. Eg tel ekki ólíklegt að bæjar-
stjórarnir og borgarstjórinn hafi
góðan skilning á því að fram-
kvæmdaáform verða að byggjast á
því að það liggi fyrir tekjuöflun.“