Morgunblaðið - 25.02.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000 25
Tele Danmark vex
mest erlendis
Stefnt á að helmingur veltunnar komi frá útlöndum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÞAÐ var með skiljanlegu stolti sem
Henrik Dyremose framkvæmda-
stjóri Tele Danmark og fyrrverandi
ráðherra kynnti ársreikninga fyrir-
tækisins fyrir síðasta ár. Þetta fyrr-
verandi ríkissímafyrirtæki sækir nú
42 prósent veltu sinnar til umsvifa
erlendis og stefnir á að eftir tvö ár
verði helmingur veltunnar erlendis.
Tele Danmark er í eigu SBC Comm-
unications-samsteypunnar.
Á hlut í 21 fyrirtæki í 13 iöndum
Samkeppnin á heimamarkaðnum
er orðin mjög hörð, en á móti færir
Tele Danmark út kvíarnar erlendis.
Fyrirtækið á, eða á hlut í, 21 fyrir-
tæki í þrettán löndum. Umsvifa-
svæðin eru Norður-Evrópa, Eystra-
saltslönd, Rússland, Mið- og Aust-
ur-Evrópa.
Heildarveltan á síðasta ári var
38,2 milljarðar danskra króna, sem
er fjórtán prósent aukning frá árinu
áður. Heima fyrir nam aukningin að-
eins 6,3 prósentum, en erlendis jókst
veltan um 26,3 prósent. Dyremose
undirstrikaði að á fjórum árum hefði
Tele Danmark fertugfaldað veltuna
erlendis.
Vaxandi hlutdeild í farsíma-
og Netmarkaðnum
Hin góða afkoma gæti gefið
stjómvöldum hugmynd um að síma-
verð væri of hátt, en í Berlingske
Tidende hafnar Dyremose þeim
vangaveltum. Hann bendir þess í
stað á að símaverð hafi lækkað jafnt
og þétt undanfarin ár, um 3-4 prós-
ent árlega. Auk þess keppi um 60
símafyrirtæki á danska markaðnum,
-------------------
HGS opn-
ar útsölu-
markað í
haust
HGS ehf. opnar nýja herrafata-
verslun, sem væntanlega mun heita
Stockmann, næstkomandi haust í
bláu húsunum við Faxafen. Um er
að ræða eins konar útsölumarkað
fyrir aðrar verslanir í eigu sömu
aðila en rétt er að taka fram að
verslunin á ekkert skylt við sam-
nefnda herrafatakeðju í Skandin-
avíu.
Fyrir rekur HGS ehf. verslanirn-
ar Hugo Boss og Cöru í Kringl-
unni. Eigendur HGS eru þeir Guð-
mundur Ólafsson, Hákon Hákonar-
son, Sigurjón Örn Þórsson og Hák-
on Magnússon en þeir þrír síðast-
nefndu eru eigendur Háess ehf.
sem rekur Herragarðsverslanirn-
ar, skóverslanir Steinars Waage og
Toppskóinn, auk verslananna Blu-
es og Hanz í Kringlunni.
Hákon Hákonarson, einn eigend-
anna segir að Stockmann verslun-
inni muni svipa til hinna svokölluðu
„outlet“ útsölumarkaða sem eru vel
þekktir í Bandaríkjunum og hafa
verið að ryðja sér rúms í Evrópu. í
versluninni verði boðið upp á eldri
merkjavöru úr öllum herrafata-
verslunum HGS og Háess eftir út-
sölur þeirra, en auk þess verði boð-
ið upp á ódýrari herrafatnað, sem
verði sérstaklega keyptur inn fyrir
Stockmann. „Þessi verslun mun
bjóða útsöluverð allan ársins
hring,“ segir Hákon.
Hann bætir við að með þessari
verslun sé stefnt að því að vinna
nýja markaði, þ.e. að nálgast annan
hóp viðskiptavina og spáir hann því
að slíkum útsölumörkuðum muni
fjölga hérlendis í framtíðinni.
Nýr Toppskór
Við hlið verslunarinnar í Faxa-
feni mun Háess opna Toppskóinn,
nýja verslun til viðbótar við þá sem
nú er rekin í Veltusundi. Hákon
segir þá verslun verða uppbyggða
þannig að viðskiptavinurinn af-
greiði sig sjálfur að miklu leyti
enda verði allar birgðir geymdar í
versluninni sjálfri.
sem sýni að samkeppnin sé vel virk
þar.
Heima fyrir sækir Tele Danmark í
sig veðrið á farsímamarkaðnum,
heldur sínu á Netmarkaðnum, en
hefur tapað markaðshlut í milli-
landasamtölum, þar sem veltan hef-
ur minnkað um 7,7 prósent. Tele
Danmark hefur ekki getað boðið
lægi-i millilandataxta en ýmsir kepp-
inautar og það sýnir sig líka í minnk-
andi markaðshlut.
Kaup erlendis fyrir
110 milljarða íslenskra króna
Fjöldi farsímanotenda hjá Tele
Danmark hefur aukist um 32 prós-
ent. í notkun textaskilaboða milli
farsíma hefur nánast orðið spreng-
ing. I janúar í fyrra voru sendar
tvær milljónir boða, en sextán millj-
ónir í janúar í ár. Það kostar 50 aura
danskar að senda slíkt boð. Herferð
til að ná í fleiri Netáskriftir hefur
gefist vel, því Netáskrifendum hefur
fjölgað um 79 prósent. Fjöldi fast-
netsnotenda Tele Danmark hefur
staðið í stað. Góð afkoma á að verða
undirstaða undii’ þenslu og kaup er-
lendis. Dyremose sagði það verða
auðvelt að nota 10 milljarða danskra
króna, um 110 milljarða íslenskra
króna, til að fjárfesta í fyrirtækjum
erlendis. Hann vildi þó ekki tiltaka
hvaða fyrirtæki verið væri að bera
víurnar í þar sem ekki hefur verið
gengið frá endanlegum samningum
þai- að lútandi, en það yrði bráðlega
ljóst.
Tele Danmark stefnir að því að
hafa stjórnunarleg undirtök í þeim
fyrirtækjum, sem það á hlut í. Þeirri
stöðu hefur það náð í um helmingi
þehra fyrirtækja, sem það á hlut í.
Ein af góðum fjárfestingum erlendis
hefur verið kaup á Talkline í Þýska-
landi, sem Tele Danmark á að fullu.
Velta þess jókst um 22,4 prósent á
síðastliðnu ári.
''HC: ‘ 'tr
Meira úrval - betri kaup