Morgunblaðið - 25.02.2000, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 25.02.2000, Blaðsíða 76
> ATLAIMTSSKIP - ÁREIBANUEIKI í FLUTNINGUM - I Lcitið upplýsinga í síma 520 2040 | www.atlantsskip.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMIS69U00, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT'AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTII FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/RAX _ Fuglavinir á bensín- stöðinni ÞEGAR bensínafgreiðslumennirn- ir hjá Skeljungi við Miklubraut mæta til vinnu klukkan hálfátta á morgnana bíður þeirra á tröppun- um fjöldi svangra lítilla gogga. Afgreiðslumennimir þar byij- uðu að fóðra smáfugla á bak við , Jírensínstöðina fyrr í vetur og nú hefur gjafmildi þeirra spurst út meðal fuglanna í hverfínu og fjölg- ar þeim sífellt. „Við höfum bara svo gaman af þessu,“ segir Örn Ólafsson, starfs- maður stöðvarinnar, „en þetta er orðið svolítið mikið og þeir eru orðnir mjög kræfír. Við erum farn- ir að þurfa að læðast bak við hús öðru hvoru og gefa þeim, milli þess sem við afgreiðum, til að halda þeim frá tröppunum hjá okkur. Þegar við opnum klukkan hálfátta á morgnana bíða þeir eftir okkur við dymar. Það eru aðailega þrest- irnir sem koma snemma á morgn- ana en stararnir koma ekki fyrr en £ ^pm ellefu, því þeir sofa út.“ Hann segir að fuglarnir hverfi svo yfírleitt rétt fyrir hádegi, lík- lega til að fá sér miðdegislúr, en láti svo sjá sig aftur síðdegis. Fá brauð, kökur, kæfu og pítsu Örn segir að fuglarnir séu æstir í nær allan mat, nema fuglafóður. „Við gefum þeim aldrei fugla- fóður. Þeim fínnst ýmislegt gott og við gefum þeim allt milli himins og jarðar. Þeir eru voðalega hrifnir af alls kyns brauði og kökum og komum við með brauð að heiman þegar það er farið að þorna í ís- skápnum." _ Hann segir að þeim finnist kæfa uka mjög góð og pepperóní. Fugl- arnir hafi líka smekk fyrir pítsu og í raun hvaða mat sem er. Vinnufé- lagarnir taki því með sér í vinnuna ýmislegt sem til fellur í eldhúsinu heima og rífi niður handa smáfugl- unum, á bak við bensínstöðina. Kvótaþing’ óþarft í núverandi mynd KVÓTAÞING er óþarft í núverandi mynd, enda hefur þingið ekki skilað tilætluðum árangri þar eð sjómenn taka enn þátt í kvótakaupum. Þetta er niðurstaða skýrslu sem dr. Birgir Þór Runólfsson, dósent við við- skipta- og hagfræðideild Háskóla íslands, vann fyrir sjávarútvegs- ráðherra og var kynnt í gær. Lögum um Kvótaþing og tak- markanir á framsali aflamarks var komið á árið 1998, meðal annars til að koma í veg fyrir þátttöku sjó- manna í aflamarkskaupum. Birgir kannaði í skýrslunni áhrif þessa, auk laga um Verðlagsstofu skipta- verðs, á íslenskan sjávarútveg. Hann segir að þrátt fyrir tilkomu Kvótaþings taki sjómenn ennþá þátt í kvótakaupum og það veki spurningar um gagnsemi þingsins í núverandi mynd. Birgir segir enn- fremur að þær takmarkanir sem settar voru á framsal aflamarks, hin svokallaða 50% regla, hafi ekki heldur dregið svo úr þátttöku sjó- manna í aflamarkskaupum að það réttlæti áframhald hennar. Tak- mörkunin leiði hins vegar til minni sveigjanleika hjá útgerðum og minni hagkvæmni. Sama fyrirkomulag og á Verðbréfaþingi æskilegra Birgir telur hins vegar ekki að leggja beri Kvótaþing niður. Til- koma þess hafi leitt til þess að opin- berar upplýsingar liggi fyrir um viðskipti og verð aflamarks. Hann leggur til að fyrirkomulag Kvóta- þings verði með svipuðu sniði og á Verðbréfaþingi. Þá telur Birgir að Kvótaþing hafi ekki leitt til hærra verðs á veiðiheimildum, heldur komi þar til aðrir þættir, s.s. afurða- verð og minna framboð aflamarks. Margt óvænt Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, segir margt í skýrslu Birgis koma sér á óvart. „Ég átti von á því að Kvótaþing hefði skilað meiri árangri við að koma í veg fyrir þátttöku sjómanna í kvótaviðskipt- um. Ég hélt einnig að Kvótaþing hefði meiri áhrif á verð á aflamarki en skýrsluhöfundur telur.“ Árni á von á því að skýrslan verði rædd á Alþingi og hann mun einnig ræða við hagsmunaaðila um niður- stöðu hennar. Hann segir of snemmt að segja til um hvort gerð- ar verði breytingar á lögunum í kjölfar skýrslunnar. ■ Sjómenn taka/26 Baða sig í vodka Morgunblaðið/RAX Fleiri Islendinga til friðar- gæzlu London. Morgunblaðið. HALLDÓR Ásgrímsson utanrík- isráðherra átti síðdegis í gær fund með brezka varnarmálaráð- herranum, Geoff Hoon. Halldór sagði í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn að þeir ráðherrarnir hefðu rætt tvö mál; undirbúning að öryggis- og varnarstefnu Evrópu og samstarf íslands og Bretlands í friðargæzlu. Halldór sagði að hann hefði á fundinum komið á framfæri óánægju Islendinga varðandi und- irbúninginn að öryggis- og varnar- stefnu Evrópu. Sú óánægja snýst um að lönd, sem eru utan Evrópu- sambandsins en í Atlantshafs- bandalaginu, verði utangátta í því ferli. Sagði Halldór að brezki ráð- herrann hefði sýnt skilning á mál- inu og sagzt myndu taka fullt tillit til þess. Hitt málið, sem ráðherrarnir ræddu, er samstarfssamningur um friðargæzlu, sem verið er að vinna að milli íslands og Bretlands. Halldór sagði að íslenzkir læknar og hjúkrunarfólk væru nú í brezkri deild í Tulsa í Bosníu og hefði fengizt ákaflega góð reynsla af því samstarfi. Viðræðurnar nú eiga að skapa fólki í öðrum störf- um tækifæri til þess að taka þátt í friðargæzlu, sem myndi auka hlut íslands, en það sagðist utanríkis- ráðherra telja æskilegt og mikil- vægt um leið. Halldór Ásgrímsson sagði fund- inn hafa verið mjög góðan og gagnlegan. Fundurinn fór fram í brezka varnarmálaráðuneytinu og stóð í röska hálfa klukkustund. Fundinn sátu með Halldóri; Hjálmar W. Hannesson ráðuneyt- isstjóri, Þorsteinn Pálsson, sendi- herra í London, og Þórður B. Guð- jónsson, sendiráðsritari í London. í dag, föstudag, á Halldór Ás- grímsson fund með brezka utan- ríkisráðherranum, Robin Cook, sem nýkominn er úr Rússlands- ferð. A fundinum munu ráðherr- arnir ræða ýms tvíhliða málefni Is- lands og Bretlands, þ.ám. Sella- field. Tillaga gerð um 10% arðgreiðslu í Búnaðarbanka Islands hf. STARFSMENN Hringrásar lentu í heldur óvenjulegu baði þegar verið var að farga 4.000 lítrum af vodka fyrir ÁTVR í gær. Áfengið er úr smygli sem tollgæsl- an upplýsti árið 1997 og var í geymslu hjá ÁTVR þar til dæmt hafði verið í málinu. Áð sögn Daða Garðarssonar hjá ÁTVR er smygl- uðu áfengi ávallt fargað. Hagnaður j ókst um 95% á milli ára Lifandi morgunþáttur! * fjórir fréttatímar * opin dagskrá * virka daga kl. 7-9 HAGNAÐUR Búnaðarbanka ís- lands jókst um 95% á milli áranna 1998 og 1999, að því er fram kem- ur í lykiltölum úr rekstri bankans á síðasta ári, sem birtar voru í gær. Stjórn bankans mun leggja til á aðalfundi 8. mars að greiddur verði 10% arður af nafnverði hlutafjár, samtals um 410 milljón- ir. Hluthafar í Búnaðarbankanum eru nú 33.300 talsins. Methagnaður varð af rekstri Búnaðarbankans á síðasta ári og nam hagnaður fyrir skatta 1.704 milljónum og 1.221 milljón að teknu tilliti til skatta. Aukning varð á öllum helstu tekjustofnum bankans en mest munar um aukn- ar tekjur af verðbréfaviðskiptum, að því er fram kemur í tilkynn- ingu. Lækkandi kostnaðarhlutfall Kostnaðarhlutfall bankans, eða rekstrarkostnaður sem hlutfall af tekjum, hefur lækkað talsvert frá árinu 1997 þegar það var 68,5% en var á síðasta ári 61,4%. Að sögn Jafets Ólafssonar, framkvæmda- stjóra Verðbréfastofunnar, hefur kostnaðarhlutfall íslenskra banka verið of hátt í samanburði við er- lenda banka. Hér hafi kostnaðar- hlutfall bankanna verið á bilinu 65-70% en í kringum 40% hjá er- lendum bönkum. Að mati Jafets er ánægjulegt að tekist hafi að lækka kostnaðarhlutfall Búnaðarbankans. Niðurstöðutala efnahagsreikn- ings Búnaðarbankans var 117,7 milljarðar í árslok 1999, miðað við 88,5 milljarða í lok ársins 1998. Út- lán í árslok voru 81 milljarður króna og hækkuðu um 16,6 millj- arða á árinu. Hlutdeild Búnaðar- bankans í útlánum banka og spari- sjóða var 21% í árslok og hlutdeild í innlánum um 23%, skv. bráða- birgðatölum. ■ Hagnaðurinn/24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.