Morgunblaðið - 25.02.2000, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Kvótaþing hefur ekki skilað tilætluðum árangri samkvæmt nýútkominni skýrslu
Sjómenn taka
enn þátt í
kvótakaupum
Kvótaþing hefur ekkl komið í veg fyrir þátt-
töku sjómanna í kvótakaupum að mati dr.
Birgis Þórs Runólfssonar. Þetta kemur
fram í skýrslu sem Birgir vann fyrir
stjórnvöld um áhrif þingsins á íslenskan
sjávarútveg. Hann segir Kvótaþing ekki
hafa leitt til hækkunar á aflamarki.
Helgi Mar Árnason gluggaði í skýrsluna
og ræddi við hagsmunaaðila.
MEGINTILGANGUR þess að setja
Verðlagsstofu skiptaverðs og Kvóta-
þing á fót, ásamt nýjum takmörkun-
um á flutningi aflamarks, var að
gera viðskipti með aflamark sýni-
legri og minnka möguleika á að
hægt væri að blanda saman viðskipt-
um með aflamark og viðskiptum
með afla. Að baki lá einnig sú af-
staða sjómanna að þeir væru með
einum eða öðrum hætti að fjár-
magna kaup útgerða á aflamarki.
Sérstaklega var markmiðið að koma
veg fyrir svokölluð „tonn á móti
tonni“ viðskipti.
Sjávarútvegsráðherra fól dr.
Birgi Þór Runólfssyni, dósent við
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
íslands, að kanna hvaða áhrif Kvóta-
þing og Verðlagsstofa, auk breyt-
inga á lögum um takmörkun á flutn-
ingi aflamarks milli skipa, hafa haft
á íslenskan sjávarútveg, sérstaklega
á stöðu og möguleika einstaklingsút-
gerðarinnar.
í skýrslunni kemur fram að veru-
lega dró úr flutningi aflamarks á
fískveiðiárinu 1998/99, fyrsta starfs-
ári Kvótaþings, bæði innan útgerða
og milli útgerða. Vergur flutningur á
þorskaflahámarki milli óskyldra að-
ila minnkaði um rúm 60%, úr 69 þús-
und tonnum í 25 þúsund tonn.
Hreinn flutningur á þorskaflamarki,
þ.e. mismunur þess sem sama út-
gerðir kaupir og selur á Kvótaþingi,
dróst einnig saman, eða um nær
45%. Einnig dró mikið úr flutningi
aflamarks annarra tegunda.
Stærri útgerðir fluttu meira afla-
mark frá sér en til sín. Skuttogarar,
sem felstir eru í eigu stærri útgerða,
fluttu mest aflamark frá sér. Smá-
bátar á aflamarki fluttu einnig hlut-
fallslega mikið frá sér. Flutningur á
þorskaflamarki til einstaklingsút-
gerða fiskveiðiárið 1998/99 nam
rúmlega 4.500 tonnum en var um
11.800 tonn árið áður. Suðumesja-
menn fluttu til sín mest þorskafla-
mark á tímabilinu, ríflega 8.500
tonn, en það er álíka magn og Norð-
lendingar fluttu frá sér. Hreinn
flutningur á þorskaflamarki á milli
iandshluta minnkaði úr rúmum 14
þúsund tonnum í tæp 9 þúsund tonn
milli ára.
Kvótaþing ekki leitt til hærra
verðs á aflamarki
Fjöldi kvótalítilla og kvótalausra
báta átti viðskipti á Kvótaþingi og
voru nokkrir þeirra í hópi stærri
kaupenda. Þau fyrirtæki sem mest
versluðu á Kvótaþingi teljast öll til
50 stærstu útgerða landsins og
keyptu þau t.a.m. um 20% af því
þorskaflamarki sem um þingið fór.
Lítill eða enginn munur er á meðal-
verði í aflamarkskaupum kvótalítilla
útgerða og þeirra kvótameiri.
Frá því að starfsemi Kvótaþings
hófst hefur verð á þorskaflamarki
hækkað um meira en 20%. Sambæri-
Morgunblaðið/Sverrir
Dr. Birgir Þdr Rundlfsson kynnir skýrslu um áhrif Kvdtaþings og Verð-
lagsstofu skiptaverðs í sjávarútvegsráðuneytinu í gær.
leg og jafnvel meiri hækkun hefur
orðið á aflamarki nokkurra annarra
tegunda. Hefur af þessari ástæðu
verið fullyrt að þessar verðhækkanir
séu afleiðingar af tilkomu og starf-
semi tilboðsþingsins. Ef verðhækk-
un þorskaflamarks er hins vegar
borin saman við fiskverðshækkanir
og afurðaverðshækkanir virðist sem
þær séu álíka. Þannig hækkar vísit-
ala saltfiskafurða þorsks frá ágúst-
mánuði 1997 til ágústmánaðar 1998
um 15% og 25% til sama mánaðar
1999. Langtímasamband virðist vera
milli afurðaverðs, fískverðs og verðs
á aflamarki, en ekkert skammtíma-
samband virðist þó á milli þessara
stærða. Ýmsar skýringar geta átt
hér við, m.a. sú að verð á aflamarki
flestra fiskitegunda sveiflast mikið
innan ársins, m.a. vegna þess að
gæftir eru misjafnar eftir árstíðum.
Þá verður einnig að hafa í huga að
aðrir þættir hafa breyst samhliða
stofnun Kvótaþings. Þar má t.a.m.
nefna að framsal á aflamarki var
takmarkað við 50% af úthlutuðu
aflamarki skips. Sú breyting, ein og
sér, hefði getað valdið því að verð á
aflamarki hækkaði. Það er því a.m.k.
hugsanlegt að áhrif þessara tveggja
samtímabreytinga vinni hvor á móti
annarri. Þá ber einnig að nefna að
úthafsveiðar hafa minnkað og hluti
fiskveiðiflotans stundar nú meiri
veiðar í lögsögunni.
Sjómenn taka enn
þátt í kvótakaupum
Megintilgangur þess að setja
Kvótaþing á laggimar var m.a. að
gera útgerðum erfiðara við að láta
sjómenn taka þátt í kvótakaupum.
Birgir segir í skýrslunni að þrátt
fyrir það virðist margt benda til að
þátttaka sjómanna í kvótakaupum
sé enn til staðar. Um það vitni bæði
fiskverð og aflamarksviðskipti ein-
stakra skipa og ummæli forystu-
manna hagsmunasamtaka. Þátttaka
fiskverkenda í kvótakaupum virðist
staðreynd og eru fiskverðsmál flækt
af þeim ástæðum. Ekkert virðist því
til fyrirstöðu að fiskverkendur greiði
sjálfir kvóta skipa sem hjá þeim
landa. Þetta vekur upp spurningar
um gagnsemi Kvótaþings í núver-
andi mynd að mati Birgis.
Þá segir Birgir enn fremur að
ekki verði séð að sú takmörkun á
framsali aflamarks, að einungis sé
heimilt að flytja af fiskiskipi afla-
mark sem nemur 50% af því afla-
marki sem fiskiskipi er úthlutað í
upphafi fiskveiðiárs, hafi dregið svo
úr þátttöku sjómanna í aflamarks-
kaupum að það réttlæti framhald
hennar. Aflamarksviðskipti hafi
dregist saman af ýmsum öðrum og
fleiri ástæðum en þeirri að löggjöf-
inni var breytt. Lagabreytingin hafi
hins vegar dregið ennþá meira úr
flutningi aflamarks, bæði á milli út-
gerða og innan útgerða. Að þessu
leyti leiði takmörkunin til minni
sveigjanleika hjá útgerðum og minni
hagkvæmni.
Birgir segir ennfremur að tilkoma
Kvótaþings hafí leitt til þess að opin-
berar upplýsingar liggi fyrir um við-
skipti og verð aflamarks. Fyrir-
komulag Kvótaþings leiði þó til þess
að ekki liggi fyrir milli hverra við-
skipti eiga sér stað. „Má segja að
það fyrirkomulag dragi úr hve sýni-
leg viðskiptin eru. Eðlilegra væri ef
fyrirkomulag Kvótaþings væri með
svipuðu sniði og fyrirkomulag Verð-
bréfaþings, en þó með þeirri kvöð að
öll aflamarksviðskipti milli óskyldra
aðila verði að tilkynna til þingsins og
þau verði síðan birt þar.
Þær stofnanir sem líklega eru
best til þess fallnar að hafa áhrif á
þátttöku sjómanna í aflamarksvið-
skiptum eru Verðlagsstofa og úr-
skurðarnefnd sjómanna og útvegs-
manna. Verðlagsstofa getur með
gagnaöflun og gagnavinnslu kort-
lagt afla- og aflamarksviðskipti ein-
stakra útgerða og fískverkenda,"
segir í skýrslunni.
Áhrif Verðlagsstofu óljós
Allgóð sátt virðist ríkja meðal
hagsmunaaðila með starf Verðlags-
stofu skiptaverðs, að mati Birgis
Þórs. Stofan aflar gagna um verð á
afla og afurðum og vinnur úr þeim
gögnum og kemur þeim á framfæri,
m.a. á vefsíðu stofunnar. Stofan inn-
kallar einnig fiskverðssamninga
milli sjómanna og útgerða, gerir
reglulegar úrtakskannanir og sendir
fyrirspurnir til útgerða þegar svo
ber við.
Birgir segir að innköllun samn-
inga og fyrirspumir Verðlagsstofu
hafi stundum leitt til þess að físk-
verð haíi hækkað hjá útgerð í kjöl-
farið og með því leysist sum mál,
sem annars hefðu mögulega lent á
borði úrskurðarnefndar. Málum sem
vísað er til úrskurðamefndar hefur
ekki fjölgað með tilkomu Verðlags-
stofu að því fram kemur í skýrsl-
unni. Á hinn bóginn virðist þessi
gagnaöflun og gagnavinnsla stof-
unnar ekki hafa stuðlað að auknu
samkomulagi um álitamál. Það sem
helst er gagnrýnt er að upplýsingar
um fiskverð í beinni sölu em oft
gamlar þegar þær berast Verðlags-
stofu. Einhverjar útgerðir hafa
hugsanlega notfært sér tafir í upp-
lýsingastreymi og komast þá upp
með að greiða verð utan viðmiðunar-
marka stofunnar.
Birgir segir erfitt að fullyrða
hvort starf Verðlagsstofu og
úrskurðanefndar hafi víðtæk áhrif,
þ.e. utan þeirra fyrirtækja sem af-
skipti em höfð af. „Svo virðist sem
munur á milli fiskverðs í beinni sölu
til fiskverkenda og fiskverðs á inn-
lendum fiskmörkuðum hafi ekki
minnkað eftir tilkomu Verðlags-
stofu,“ segir Birgir í skýrslunni.
Ekki skilað þeim árangri
sem vonast var eftir
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands, segist
geta tekið undir margt í skýrslu
Birgis. Sjómannasambandið hafi til
dæmis lengi haldið því fram að verð
á leiguheimildum hafi haldist í hend-
ur við afurðaverð og verð á fisk-
mörkuðum. Hann tekur einnig undir
það að Kvótaþing hafi ekki komið í
veg fyrir þátttöku sjómanna í kvóta-
kaupum. „Kvótaþing hefur ekki skil-
að þeim árangri sem við vonuðumst
eftir. En Kvótaþingi var hins vegar
ekki komið á fyrir sjómenn, heldur
fyrir útvegsmenn svo kvótabraskið
gæti haldið áfram. Með skýrslunni
staðfestist að útvegsmenn fara
framhjá lögunum með því að láta
fiskverkendurna kaupa veiðiheim-
ildirnar og veiða síðan fyrir þá.
Kvótaþing hefur hinsvegar verið
sjómönnum gagnlegt að því leyti að
þessi viðskipti eru uppi á borðinu."
Sævar segir að af sinni hálfu komi
ekki til greina að fyrirkomulagi
Kvótaþings verði breytt í líkingu við
það sem er á Verðbréfaþingi. „Þá er-
um við komnir í sama farið og áður.
Eg hef hins vegar boðið bæði stjórn-
völdum og útvegsmönnum að af-
nema Kvótaþing. En í staðinn verð-
ur að koma eðlileg verðmyndun á
fiski. Uns það gerist verður Kvóta-
þing að vera,“ segir Sævar.
Hlýtur að leiða til þess
að Kvótaþing verður aflagt
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍU, sagðist í gær
vera sammála niðurstöðu skýrslunn-
ar í meginatriðum. Sér virðist við
fyrstu sýn að niðurstaða skýrslunn-
ar sé sú sama og útvegsmenn hafi
haldið fram lengi, að Kvótaþing sé
óþarft. Það sama megi segja um
takmarkanir á framsali aflamarks.
„Þessi skýrsla hlýtur að leiða til þess
að Kvótaþing verður aflagt. Við höf-
um alltaf viljað hafa viðskipti með
aflamark sem frjálsust, enda leiðir
Kvótaþing ekkert annað af sér en
aukinn kostnað og fyrirhöfn. Hins
vegar höfum við talið að Kvótaþing
skrúfi upp verð á heimildum, vegna
þess hve blind viðskiptin eru,“ sagði
Friðrik.
Heildarviðskipti á Kvótaþingi
fiskveiðiárið 1998/99
J Magn miðast við V
Tegund slægðan fisk • ';
Þorskur ^
Ýsa
Ufsi
Karfi
Steinbítur
Úthafskarfi
Grálúða
Skarkoli
Langiúra §
Sandkoli
Skrápflúra
Síld
Loðna
Humar
Úthafsrækja
Flæmingjarækja
jmL
Þorskur, Noregur
SAMTALS:
Magn, lestir Meðalverð, krónur/kg Verðmæti millj. kr.
24.865 99,21 2.466,9
4.886 46,28 226,1
3.420 30,10 102,9
4.351 40,60 176,6
2.240 22,06 49,4
323 31,72 10,2
778 83,80 65,2
2.149 44,67 96,0
184 39,35 7,2
998 18,13 18,1
1.029 15,19 15,6
4.802 5,32 25,5
42.089 0,39 16,4
39 398,55 15,5
5.271 3,59 18,9
1.877 30,86 57,9
55 37,73 2,1
99.354 3.370,9
Verðþróun á aflamarki þorsks á
Kvótaþingi og selt magn 1998-1999
Verð á aflamarki þorks á Kvótaþingi, kr/kg
® Sept.1 Okt.' Nóv.' Des. j Jan.' Feb. Mars' Apr.' Maí' Júní' Júlí' Ág. Sept.' Okt.' Nóv.' Des.
1998 1—|—...... 1 1999
4.000
Selt aflamark þorks á Kvótaþingi, tonn
Sept. Okt. Nóv. Des.
1998
■MnaHMMi
Jan. Feb. Mars Apr. Mai Júní Júlí Ág. Sept. Okt. Nóv. Des.
----------------1999-------------------