Morgunblaðið - 25.02.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 25.02.2000, Blaðsíða 52
!jp FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR HULDA KRISTÍN ÞORVALDSDÓTTIR + Hulda Kristfn Þorvaldsdóttir fæddist í Stykkis- hóimi 15. júlí 1928. Hún lést á Landspítal- anum 15. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Þorvald- ur Þorleifsson frá Hömrum og Sesselja Kristjánsdóttir. Þau eru bæði látin. --j _ Börn þeirra voru Aslaug Ingibjörg, f. 31.5. 1922, d. 29.5. 1945, Jarðþrúður Guðný, f. 18.11. 1923, d. 12.10. 1965. Sæmunda, f. 16.7. 1926, d. 25.11.1986, Hulda Kristín, sem hér er kvödd, Ragna, f. 4.12. 1929, Jens, f. 4.2. 1931, d. 20.10. 1993, Vilhjálmur, f. 5.6. 1932, d. 28.6. 1976, og Ársæll, f. 2.1. 1936, d. 6.6.1947. Hulda giftist Braga Ámasyni, f. 12.7. 1928, d. 3.12. 1997 . Böm þeirra em Jenný Lind, Eiríkur Ottó, Sigurð- ur Þór, Kristján og Hildur Þóra. Áður átti Hulda Ársæl og Leif. Útfór Huldu fer fram frá Áskirlq'u í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Kalliðerkomið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimirkveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margseraðminnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku mamma, tengdamamma og -amma. Hafðu þökk fyrir allt. Guð geymi þig. Ársæll, Elín, Óskar, Guðríður og Kristbjörg. Hún mamma mín er dáin eftir mikil og langvarandi veikindi og loks fékk hún langþráða hvíld. Nú er hún komin til hans Braga síns og mun sjálfsagt lifa þar góðu lífí til eilífðar. Eg, bömin og eiginmaður minn mun- um sárt sakna hennar mömmu og með söknuði í hjarta viljum við kveðja hana mömmu, tengdamömmu og ömmu með þessum fáu orðum. Nú leggégaugunaftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur, mínverivömínótt Æ, virzt mig að þér taka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú.íþínahönd, síðast þegar ég sofna hér sitji Guðs englar yfir mér. Hvíl í friði. (H.Pét) Hildur, Einar og börn. Mín elskulega móðir. Nú ertu horfin frá mér og barnabörnum þín- um. Við eigum eftir að sakna þín mikið því við áttum góðar stundir saman þegar við hittumst. Eg man það líka þegar leiðir okkar skildu og ég flutti norður á land. Þá var leiðin lengri að fara fyrir okkur til þess að heimsækja ykkur. Ég man það svo vel þegar ég, Freyja og bömin kom- um í heimsókn til ykkar suður hvað það lifnaði yfir þér og pabba. Þá gát- um við talað um svo margt saman og krökkunum þótti svo gaman að koma í heimsókn til ykkar. Þá vissi maður að þeim leið vel að fá að vera í fang- inu á ömmu og afa. Síðan þegar við fórum aftur þá var erfitt fyrir okkur að kveðja ykkur. Ég minnist þess líka að þegar þið voruð komin á Hrafnistu þá notaði ég allar mínar stundir sem mér gáfust til að líta við hjá ykkur. Þó vildi ég að þær hefðu orðið fleiri, því mér leið alltaf svo vel að hitta ykkur. Það var líka sárt að fá þær fregnir af þér, móðir mín, að þú værir orðin svona veik. Það liðu held- ur ekki margir dagar þangað til ég fékk þær fregnir að þú værir látin. Ég vona það fyrir okkar hönd að þið eigið eftir að hittast aftur og svo vona ég líka að þið takið á móti okkur svo við verðum öll saman á ný. Við söknum þín, móðir mín kær. Sorg er þung í hjarta en minninguna eigum við milda, Ijúfa og bjarta um svo margt sem þú lést okkur falla í skaut. Hún ávallt mun okkur ylja þótt hér um stundir að leiðir okkar skilji. Ég kveð þig nú og kærar þakk- ir fyrir allt það góða sem þú hefúr sýnt okkur. Guð gefi þér góðan stað til að hvíla á. Sigurður og börn. Nú kveð ég þig, elsku mamma mín, með söknuði í hjarta, en ég veit að þú og pabbi eruð aftur saman. Ég hugga mig við það að þú ert ekki ein. Ég vil þakka þér fyrir allar þær gleðistundir sem við áttum saman. Ég hefði viljað gefa þér meiri tíma, en við vitum aldrei hvenær kallið kemur. Nú eru allar þrautir að baki og nú líður þér vel, mamma mína. Hafðu þökk fyrir allt sem þú gerð- ir fyrir mig og mína. Móðir; þín minning mæta, mérgeymistætíðhjá. Hryggðin vill hug minn græta, erhugsaumburtfórþá. Margs því að má ég sakna, meira en ég fæ séð, sorgin, hún við það vaknar, varlafæsthuggunléð. (Guðlaugur Sigurðsson) Guð fylgi þér. Þinn sonur Ottó. Elsku mamma, tengdamamma og amma. Það er sárt að missa þig svo alltof fljótt. En minningarnar eru yndislegar þegar við vorum að koma með Báru Lind til ykkar í heimsókn á Kleppsvegi þar sem hún fékk að knúsa ykkur, hún var ekki heilbrigð en þekkti samt ömmu sína og afa. Þann 22. þessa mánaðar fæddist Stjána og Klöru lítill sólargeisli sem þú varst búin að bíða eftir að sjá. En þú fylgist með honum frá öðrum stað. Elsku mamma, tengdamamma og amma við söknum þín mikið en Villa litla þykir eflaust skrítið að fara ekki til Huldu ömmu og fá að fikta smá í dótinu hennar. Og elsku Bára Lind fær ekki oftar að knúsa þig, því hún er einstaklega hlýtt og gott bam. Elsku mamma, tengdamamma og yndislega amma, þú gafst okkur allt það besta og við vitum að pabbi tekur þér opnum örmum. Ástar- og saknaðarkveðja. Guð geymi þig. Kristján, Klara, Bára Lind, Vilhelm og óskírður. Elsku mamma mín, nú ert þú farin frá okkur alltof fljótt. Þú varst alltaf mjög hress og glettin alveg eins og pabbi var og þegar hann dó fyrir rúmlega tveimur árum varst það þú sem huggaðir mig en ekki öfugt. Það var erfiður tími fyrir okkur öll, en hann fékk það sem hann þráði. En elsku hjartað mitt, hvað ég á eftir að sakna þín og allra minna ferða til þín upp á Hrafnistu með eitthvert góð- gæti. Ég sakna þín sem yndislegrar móður og góðs og trausts vinar. Þú hlakkaðir ósköp til þess að sjá litla krílið hans Stjána og Klöru, en þeim fæddist drengur 22. feb. og einnig hans elsku Stebba míns og Eddu sem á að fæðast í mars. En hún Katla litla þeirra veit að Hulda amma er farin til afa Braga og hann ætlar að passa hana. Þú áttir stóran hóp af gullmolum sem þú varst stolt af og þau eiga öll eftir að sakna ömmu sinnar. Þú varst svo sæl og ánægð með hann Unnar minn og þér þótti svo afar vænt um hann, því allt gerði hann fyrir þig og taldi það aldrei eftir sér að trilla þér niður í Blómaval eða í Kolaportið. Elsku mamma mín, ég elska þig af öllu hjarta og ég á yndislegar minn- ingar sem ég geymi og varðveiti í hjarta mínu. Ég veit að elsku pabbi tekur vel á móti þér. Gefðu honum stórt knús frá mér. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj.Sig.) Hvíldu í friði, ástin mín. Þín dóttir Linda. Mig langar að skrifa nokkrar línur um Huldu Þorvaldsdóttur, því hún var mér mjög kær. Mér fannst ég eiga eitthvað í henni. Hún dvaldi á Hrafnistu í Reykja- vík, þegar ég kynntist henni og það var eldri dóttir hennar hún Linda, sambýliskona mín, sem kynnti okkur fyrir rúmum tveimur árum. Margar ferðirnar fórum við Linda á Hrafn- istu eða tókum hana heim til okkar. Þetta varð fljótlega viss þáttur í lífi okkar sem sárt er saknað nú. Oft komum við með eitthvað að borða, t.d. hákarl, harðfisk, rituegg og fleira. Ég naut þess að sjá hversu ánægð hún varð og andlitið Ijómaði. Þinn tengdasonur Unnar. Elsku amma, það er erfitt að sætta sig við það að nú sért þú farin og að ég sjái þig ekki aftur. Sagt er að tíminn lækni öll sár og þó svo hann geri það þá læknar hann ekki söknuðinn sem mun sitja í hverju okkar hjarta. Ég veit það amma mín að nú líður þér vel því nú ert þú kom- in til afa eftir tveggja ára aðskilnað og ég veit að nú ert þú í góðum hönd- um. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki heimsótt þig í litla herbergið þitt, þar sem þú ljómaðir alltaf þegar ég og AJmar komum til þín enda varstu ævinlega þakklát fyrir að við komum, sama hversu stutt við vor- um hjá þér, bara að fá að sjá okkur gat glatt þitt hjarta. En núna verð- um við að láta okkur nægja að hugsa um þig og það munum við alltaf gera. Við misstum ekki einungis þig held- ur einnig bestu ömmu sem nokkur gat átt. Þú varst okkur öllum svo yndisleg og góð og gafst okkur svo margar fallegar minningar og fyrir þær munum við ætíð elska þig. Elsku amma, áður en ég kveð þig með fallegri vísu vil ég þakka þér fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir mig en mest af öllu vil ég þakka þér fyrir að hafa verið amma mín. Minning þín er mjúk og hlý og mun standa oss nærri, með hveiju vori vex á ný ogverðurávalltkærri. (M. Ásg.) Megi Guð geyma þig. Þín Hulda Sædís. KARL VALGARÐSSON + Karl Valgarðs- son fæddist í Reykjavík 10. des- ember 1939. Hann lést í Reykjavík 18. desember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Fossvog- skapellu 30. desem- ber. Elsku Kalli minn! Mig langar til að kveðja þig í hinsta sinn. Það kom eins og reiðar- slag þegar ég frétti að þú værir látinn. Árið 1986 kynntumst var gaman að sjá þig vera farinn að lyftast upp aftur. Við fundum að við áttum margt sameiginlegt. Á jólun- um 1986 fórum við í sitthvora áttina. Svo árið 1987-88 hittumst við aftur og vorum við meira og minna saman eftir það. Ég vil þakka fyrir samverustundimar sem við áttum. Ég á margar góðar minning- ar um okkur sem ég varðveiti í mínu hjarta og bið ég guð um að vernda og blessa minningu þína. við í Víðinesi og áttir þú mjög erfitt. Ég sá strax að þér leið ekki vel, ég vildi hjálpa þér í sorginni sem þú varst í, og það leið ekki nema vika þar til að þú gast tjáð þig við mig eins og þú hefðir þekkt mig alla tíð. Það Veit honum, Drottin, þína eilífu hvíld og lát þitt eilífa )jós lýsa honum. Hann hvíli í friði. Amen. Sólnin E. Heiisan og lífið fjara stundum fljótt, fyrr en varir komin dauðans nótt Þannig endaði æfileiðin þín, áður en varði, látna vina mín. Saknaðar funheitu falla nú tár, er flyt ég þér kveðjuna mína. Vertu svo blessuð um eilífðar ár, annist Guð sálina þína. (Guðlaugur Sigurðsson.) Hvfl í friði. Sóley. Elsku amma og langamma okkar er farin. Nú kveðjum við þig með sorg í hjarta er þú ferð á fund Braga afa, sem við kvöddum fyrir rúmum tveimur árum. Við vitum að þið fylg- ist vel með okkur, okkur sem eftir sitjum. Lítill tími var til að kveðja, en gott er að eiga og geta haldið í allar þær minningar og stundirnar sem við áttum saman. Á okkar yngri ár- um þegar við systkinin komum suður til pabba og Sollu var Reykjavíkur- ferðin aldrei fullkomnuð nema koma allavega einu sinni til ykkar og var það alveg lágmark. Svo voru það einnig yndislegar stundir sem við áttum með þér þegar þú komst heim til pabba og Sollu, í mat eða kaffi, og svo gistirðu stundum yfir helgi. Þú sást hvað smá tilbreyting gerði þér gott og þér fannst það svo gaman. Svo man ég þegar ég kom með hana Söru í fyrsta skiptið til þín um jólin ’98, þá var hún rúmlega tveggja og hálfs mánaðar. Þar var kominn enn einn gimsteinn í langömmu- barnasafnið. Við sáum þig í síðasta sinn milli jóla og nýárs ’99 en þá grunaði okkur aldrei að þetta væri í síðasta sinn sem við sæjum þig. Þú lést geyma jólapakkann til Söru frá þér svo þú gætir fylgst með henni að opna hann, en þið hjálpuðust að við það. En svo kvöddumst við og sáumst ekki meir. Það er nú gott, elsku amma, að þið afi séuð saman á ný og njótið félags- skapar hvort annars, fyrir ofan, og við vitum að þið horfið niður til okkar og fylgist með okkur öllum stundum. Ykkar er sárt saknað. Samverustundimar þökkum við þér, þökk fyrir viðmótið hlýja. Kveðjuna síðustu semjum við hér, og sendum í heimkynnið nýja. (Guðlaugur Sigurðsson.) Guð blessi minningu þína. Einar, Rósa og Sara Sif. Elsku Hulda frænka, nú þegar komið er að kveðjustund verður okk- ur hugsað til liðinna ára, þegar við komum í heimsókn fyrst í litla húsið við Laufásveg, síðan í nýja húsið á sama stað, en það var alveg sama hvort þröngt var um ykkur eða rýmra; alltaf var okkur tekið jafn elskulega. Margar ánægjulegar stundir áttum við líka öll saman hjá ömmu og Hirti afa á Holtinu. Lífið fór ekkert sérstaklega mfld- um höndum um þig, Hulda mín, og oftar en ekki undraðist maður kjark þinn og þrek þegar erfiðleikar, veik- indi og mótlæti mættu þér, en ávallt stóðst þú sterk eftir sem áður. Líf margra væri um margt betra ef með- læti og mótlæti væri tekið af slíku æðruleysi eins og þú gerðir alltaf. Þú varst vinur vina þinna og máttir ekk- ert aumt sjá, varst alltaf tflbúin að veita aðstoð. Nú þegar veikindin hafa lagt þig að velÚ söknum við þín, okkur var ljóst að brugðið gat til beggja vona nú í síðustu veikindum þínum, en við vitum líka að þú þráðir að hitta Braga þinn aftur og nú ertu áreiðan- lega búin að hitta hann, sem og alla ástvini þína sem horfnir eru yfir móðuna miklu. Ef við þekkjum okk- ar fólk rétt hefur verið vel tekið á móti þér og mikið spjallað og skegg- rætt með miklum hlátri og hávaða. Við tengdafólk þitt og ættingjar þín- ir allir kveðjum þig og þökkum þér tryggð þína, vináttu og ættrækni. Börnum þínum og fjölskyldum vott- um við dýpstu samúð. Við biðjum Guð að blessa þig og varðveita, minning þín lifir með okk- ur. Sessejja Pálsdóttir. Mig langar með nokkrum orðum að minnast móðursystur minnar Huldu, sem nú hefur kvatt þennan heim. Það var ekki mjög mikið í stundaglösunum þeirra systkinanna á „Holtinu". Nú er aðeins ein systir eftir á lífi. Mörg ár eru liðin síðan Hulda og Bragi fluttu úr Hólminum. Þeirra síðasta ferð þangað var þegar þau hjónin komu á ættarmót sumar- ið 1993. Bragi var þá orðinn mikill sjúklingur og kominn í hjólastól en þeim var umhugað að koma og hug- urinn bar þau hálfa leið. Þessi ferð var þeim til mikillar ánægju og var lengi í minnum höfð og gerði þeim báðum auðveldara að láta hugann reika heim. í Hólminum byrjuðu þau sinn búskap, áttu sín börn og bú. Ekki var nú lífið alltaf dans á rós- um á þeim árunum, en dugnaður Huldu, þrautseigja og létt skap var gott veganesti. Það var gott að eiga þessar móð- ursystur sem vildu allt fyrir mig gera, stelpuna sem ólst upp hjá ömmu. Ein bjartasta bernskuminn- ing mín tengist Huldu sem þá, ung kona, var ráðskona í sveit og hafði mig hjá sér sumartíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.