Morgunblaðið - 25.02.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.02.2000, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Flugleiðir að WAP-væðast Geta keypt farmiða með farsímum FLUGLEIÐIR hafa opnað WAP-þjónustu sem gerir við- skiptavinum félagsins kleift að bóka flugferðir með far- símum með því að tengjast Netinu í gegnum WAP-miðl- ara. „Flugleiðir eru fyrsta flugfélagið í heiminum til þess að bjóða þessa þjónustu en Islendingar verða fyrstir allra til að fá aðgang að þjón- ustunni. Gert er ráð fyrir að á næstu tveimur vikum muni Flugleiðir bjóða þessa þjón- ustu á öllum mörkuðum sín- um. Útbreiðsla og hagnýting þjónustu Flugleiða mun síðan fara eftir WAP-væðingu símafélaga um allan heim,“ segir í fréttatilkynningu frá Flugleiðum. „Það er afar einfalt fyrir eigendur farsíma, sem styðja WAP, að bóka ferðir með Flugleiðum. Nauðsynlegt er fyrir farsímaeigendur að hafa skráð sig sem notendur að bókunarkerfi Flugleiða á vef félagsins - www.icelandair.is - áður en hafist er handa. Þeir sem nú þegar hafa skráð sig geta notað notendanöfn sín og lykilorð þegar kemur að því að bóka ferðina með farsímanum. Bókanir eru gerðar skref fyrir skref Bókanir eru gerðar skref fyrir skref. Þegar farsímanot- andi hefur tengst Netinu skal fyrst velja brottfararstað og áfangastað, næst eru slegnar inn upplýsingar um ferðatíma og því næst farrými. Að því loknu birtist niður- staða leitar um hvaða flug er í boði miðað við ferðaleið og tíma. Næsta skref er að velja flug og slá inn notendanafn og lykilorð. Að því búnu birt- ast á skjánum upplýsingar um bókunina og samþykkis viðskiptavinar leitað. Þegar bókun hefur verið staðfest er staðfestingarnúmer bókunar sent. Er þá ekki annað að gera en að bíða eftir farmið- anum sem sendur er í pósti. Prófanir á kerfinu hafa gefíð góða raun Flugleiðir hafa þróað WAP-þjónustu sína í sam- vinnu við Salt Kerfí og Dím- on-hugbúnaðarhús. Prófanir á kerfínu hafa staðið yfír í nokkrar vikur og gefíð góða raun. Allar frekari upplýsingar um notkun og stillingar á WAP-þjónustu Flugleiða er að finna á vef félagsins www.icelandair.is." I --------------------------- | Rúta fauk i á hliðina SAUTJÁN farþegar lítillar rútu sluppu ómeiddir eftir að hún fauk á hliðina undir Ingólfsfjalli laust eftir klukkan 14 í gær. Bálhvasst I var undir Ingólfsfjalli þegar óhappið varð og hálka. Að sögn lögreglumanns sem fór á vettvang var rútan nánast kyrr- stæð er hún fór á hliðina. Rútunni var komið á réttan kjöl um klukkan 17 og urðu nokkrar tafír á umferð rétt á meðan björg- unaraðgerðir stóðu yfír. Skemmdir á rútunni urðu ekki stórvægilegar. _________________________ Upplýsingar um kaupanda og seljanda, hvað keypt og upphæð ' ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------ , ' ----------------i------------------------i-------------í Jón og Gunna skoða vöruúrval í ekringlunni. Hvað er keypt? Jafnframt er valinn greiðslumáti og afhendingarmáti (hraði). ekringla UDDlvsinaar Upplýsingar um vöru, magn, verð og aðrar uppl. Verslanir, innlendar og erlendar Upplýsingar um kaupanda og seljanda, hvað keypt, afhendingarmáta (hraða) og hver greiði fyrir flutning Greiðsla fyrir afhenta vöru Islands- póstur Vöruhótel Greitt með... 1. kreditkorti 2. færslu úr heimabanka 3. við afhendingu | Staðfesting J á móttöku vöru frá seljanda Banki Verslunarmiðstöðin eKringla verður opnuð í haust V erslað í sýndar- veruleikahúsi varðandi verslun á Netinu bæði fyrir kaupendur og seljendur og segja umhverfi þetta hafi ýmsa mikilvæga kosti í för með sér. Til dæmis verði öryggi varðandi greiðslu tryggt með því að sér- stakur banki starfar sem milliliður kaupanda og seljanda. Viðskipta- vinurinn þarf því eingöngu að gefa bankanum upp kortanúmerið sitt, en ekki versluninni sjálfri. Þar að auki tekur bankinn greiðsluna ekki út af kortinu fyrr en dreifingar- aðilanum Islandspósti hefur borist varan í hendur. Sérstaklega hentugt fyrir minni verslanir og fyrirtæki „Það er verið að búa til um- hverfi, hálfgert sýndarveruleika- hús, þar sem hægt er að eiga við- skipti við margar verslanir í einu,“ segir Tryggvi Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Gagnvirkri miðlun. Tryggvi segir að fyrirkomulag þetta sé sérstaklega hentugt fyrir smærri verslanir og fyrirtæki því boðið sé upp á ódýrari leið til að markaðssetja vörur og koma þeim á framfæri. Einnig verði auðveld- ara að stofna nýjar verslanir og fyrirtæki vegna þess að stofn- kostnaður er margfalt lægri. Hann segir að erlendum versl- unum verði jafnframt boðin þátt- taka og mun íslandspóstur þá nýta sér saminga sína við erlenda flutn- ingsaðila við að koma vörum til skila. Einnig segir hann að með tilkomu eKringlunnar sé verið að búa til mun stærri markað fyrir ís- lenska seljendur því fólk úti um allan heim muni geta verslað þar. í HAUST verður opnuð verslunar- miðstöð á Netinu, sem ber nafnið eKringla, sú fyrsta sinnar tegund- ar á Islandi. Fyrirtækið Gagnvirk miðlun hf. rekur eKringlu, en gert er ráð fyrir því að á annað hundr- að verslanir og þjónustufyrirtæki muni tengjast henni strax í upp- hafi og hejur verið gerður samn- ingur við íslandspóst um flutning á öllu því sem þar er keypt og selt. Sérstakur bauki er milliliður kaupanda og seljanda eKringla er einskonar yfírbygg- ing verslunar og þjónustu sem tengist saman á heimasíðunni ekringla.is. Á henni verður hægt að fara inn á heimasíður verslan- anna sjálfra eða leita að ákveðnum vörum og þjónustu með sérstakri leitarvél. Forsvarsmenn eKringlu segja hana opna marga nýja möguleika Mor^unblaðið/Þorkell Hallgrímur Kristinsson, verkefnastjóri eKringlu, Ágúst Olafsson, tals- maður Gagnvirkrar miðlunar og Tryggvi Þór Ágústsson, framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs hjá Gagnvirkri miðlun. Flutningskostnaður innifalinn nema annað sé tekið fram Varðandi flutningskostnað segir Tryggvi að hann verði yfirleitt innifalinn í verði vörunnar eða þjónustunnar - ef ekki verði það sérstaklega tekið fram, því áhersla er lögð á að viðskiptavinurinn sjái strax hversu mikið hann þarf raunverulega að borga fyrir vör- una. Vöruverð sé að sjálfsögðu undir hverjum og einum seljanda komið, en hann segir reiknað með að lægri rekstrarkostnaður muni halda vöruverði að einhverju leyti niðri. Auk þess megi búast við að sam- keppni stuðli einnig að Iægra vöru- verði, en mjög auðvelt verði fyrir neytendur að gera verðsamanburð milli Netverslananna og það muni líklega hvetja kaupmenn til að halda verðinu niðri. Ráðherra kynnir nýja verkefnaskrá og skipurit umhverfísráðuneytisins Möguleiki á um- hverfíssköttum skoðaður UMHVERFISRÁÐHERRA hefur hug á að skoða að hvaða leyti um- hverfisskattar, eða svokallaðir „grænir skattar", geti komið í stað núverandi skatta. Þetta kom fram á máli Sivjar Friðleifsdóttur um- hverfisráðherra á blaðamanna fundi í Perlunni sl. miðvikudag, en á fundinum sem haldinn var á 10 ára afmæli ráðuneytisins var verkefna- skrá og nýtt skipurit ráðuneytisins kynnt. „Við viljum skoða þessi mál, en þessi þróun á sér stað víða í ná- grannalöndunum til dæmis í Dan- mörku,." sagði Siv. „Ég myndi gjaman vilja sjá skattakerfið þróast þannig að það verði notað meira sem stýritæki í umhverfismálum." Magnús Jóhannesson, ráðuneyt- isstjóri umhverfisráðuneytisins, sagði að þetta væri mjög vandmeð- farið mál. Hann sagði að í Dan- mörku hefðu menn gert þetta í smáum skrefum. Akveðið hefði ver- ið að lækka tekjuskattsprósentuna um 1% á ári í fimm ár, en hækka samhliða því skatta á eldsneyti, en þannig væri í raun verið að skatt- leggja mengun. I verkefnaskránni er tekið á ýms- um málum, en Siv sagði að megin- áherslan væri lögð á hugmynda- fræðina á bak við hugtakið sjálfbæra þróun, en í henni er í grófum dráttum lögð áhersla á skynsamlega langtímanýtingu mannsins á gæðum náttúrunnar. Siv sagði mjög mikilvægt að allt samfélagið væri sér meðvitandi um sjálfbæra þróun og hefði þá hug- myndafræði að leiðarljósi í sínu lífi. Sem dæmi um aukna áherslu á sjálfbæra þróun þá mun sérstök skrifstofa sjálfbærrar þróunar og alþjóðamála, starfa í ráðuneytinu, samkvæmt nýju skipuriti þess. Heildstæð náttúru- verndaráætlun I verkefnaskránni er m.a. stefnt að því að vinna heildstæða náttúru- Morgunblaðið/Jim Smart Umhverfisráðuneytið átti 10 ára afmæli í gær og við það tilefni kynntu þau Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri nýja verkefnaskrá og nýtt skipurit ráðuneytisins. verndaráætlun fyrir landið, sem mun m.a. taka til þjóðgarða, vist- kerfa og nýtingar mannsins á nátt- úrunni. Ætlunin er að gera starf- semi náttúrustofa markvissari og færa ábyrgð á framkvæmd náttúru- verndar meira til sveitarfélaganna. Þá á að bjóða út rekstur almennrar þjónustu við ferðafólk í þjóðgörð- um. Stefnt er að því að stofna þjóð- garð á utanverðu Snæfellsnesi og vinna að undirbúningi Vatnajökuls- þjóðgarðs. I verkefnaskránni er stefnt að því að ísland gerist aðili að Kyoto- bókuninni þegar fyrir liggi viðun- andi niðurstaða í sérmálum þess. Þá á áfram að vinna að markvissu samstarfi um umhverfismál við önnur ríki, s.s. við Norðurlöndin og ríki ESB.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.