Morgunblaðið - 25.02.2000, Page 46
FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
KIRKJUSTARF
Niður með
hrepparíginn
EIN er sú kúnst
sem velflestir áhrifa-
valdar sögunnar hafa
kunnað og iðkað með
tiltölulega góðum
árangri, að deila og
drottna. Þótt mark-
miðið, hið yfirlýsta,
•hafi sjaldnast verið að
láta talsmenn ís-
lenskra sveitarfélaga
deila sín á milli hefur
það verið ískyggilega
algeng niðurstaða að
opinberum fjármun-
um sé ráðstafað í
Reykjavík vegna
ósættis um aðrar
ákvarðanir. Viðhorf
eins og Austfirðingurinn talaði fyr-
ir er hann sagði: „Ef ekki í Norð-
fjörð, þá ekki á Austurland" koma
tæpast á jafnvægi í byggð lands-
ins, í það minnsta tel ég líklegra
að þau vinni gegn uppbyggingu ut-
an suðausturstrandar Faxaflóa.
• En „þegar ein beljan mígur þá er
annarri mál“ og hugsuðurinn á bak
við hugmynd um uppbyggingu er
oftar en ekki tekinn fyrir og sak-
aður um hlutdrægni í þágu síns
nánasta umhverfis.
Á nýrri öld vona ég
að við berum gæfu til
að koma hrepparíg úr
stjórn sveitarfélag-
anna og hefja aukið
samstarf milli ólíkra
svæða. Níðhöggur til-
heyrir ekki bjartri
framtíð. Talsmenn
þeirra byggða sem
ekki sópa að sér tug-
um manna á ári
hverju ættu að stilla
saman strengi sína og
spila landslag þjóðinni
til heilla.
Það er eitthvað
gruggugt við það að
þau fyrirtæki og þær
stofnanir sem eru beinlínis reknar
til að þjónusta þá sem búa ekki á
suðausturströnd Faxaflóa skuli
vera staðsettar á Seltjarnarnesinu
og vindi upp á sig þar. Landsmenn
hljóta að sjá að myndin er skökk
og hana þarf að laga. „Flutningur
ríkisstofnana út á land“ er í hug-
um ýmissa málaður dökkum litum,
m.a. vegna þrætugirni þeirra sem
vildu hafað stungið upp á flutn-
ingnum. Aðalatriðið má ekki
gleymast fyrir deilum um áætlun-
Arnljótur Bjarki
Bergsson
arstað stofnananna, að renna stoð-
um undir atvinnulífið á svæðinu
sem er væntanlegt umhverfi stofn-
unarinnar. Skynsamlegt væri að
skeyta sem minnstu um hverjir
málshefjendur eru en grípa þau
tækifæri með gleði sem gefast til
að leggja góðu máli lið til að styðja
við vöxt samfélagsins.
Ég vil að lokum benda á það
sannleikskorn sem hrökk af vörum
herra Sigurbjörns Einarssonar
Samfélagsmál
Á nýrri öld vona ég að
við berum gæfu til að
koma hrepparíg úr
stjórn sveitarfélaganna,
segir Arnljótur Bjarki
Bergsson, og hefja auk-
ið samstarf milli ólíkra
svæða.
biskups á sjómannadegi 1963: „Við
eigum ein og sömu örlög, erum
eitt. Við berjumst stundum hver
við annan um dægurmál, skoðanir
og stefnur. En í dýpri skilningi er-
um við að stríða og starfa hver
með öðrum og hver fyrir annan...“
Höfundur er í sljðrn S US fyrir
Norðurland eystra.
II
fíÍtíKMÚhreinsunin
gsm 897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
Fjárveitingar til vegamála á höfuðborgarsvæðinu
1990-99 og skv. vegaáætlun 200-04
1.800
Lægri súlan árið
2000 sýnir frestun
framkvæmda sem
færast yfir á næsta
ár. Því eru rauntölur
fyrir þessi tvö ár
661 m.kr í ár 2000
og 1.612 m.kr.
á næsta ári.
il Skipholti 70 ♦ sími 553 5044
Yfir 1.500 notendur
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Simí 568 8055
http://www.kertisthroun.is/
Veður og færð
á Netinu
mbl.is
_/KLLTA/= EITTH\SAO NVTl-
Vegasjóður og höf-
uðborgarsvæðið
VEGAÁÆTLUN
hefur verið til umræðu
á Alþingi. Einnig
nokkuð í fjölmiðlum.
Áform um fram-
kvæmdir við jarðgöng
hafa verið rækilega
kynnt, en ekki síður
fjárþörf vegna fram-
kvæmda á höfuðborg-
arsvæðinu. Af því til-
efni hefur borgar-
stjórinn í Reykjavík
gert tilraun til þess að
gera störf mín tor-
tryggileg. Hefur Ingi-
björg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri
Vegir
Borgarstjóri hefur hald-
ið því fram, segir Sturla
Böðvarsson, að ég ásamt
forvera mínum í stóli
samgönguráðherra hafí
unnið gegn hagsmunum
höfuðborgarínnar.
haldið því fram að ég ásamt forvera
mínum í stóli samgönguráðherra
hafi unnið gegn hagsmunum höfuð-
borgarinnar og talið
að líklegt til vinsælda.
dag, 23. febrúar,
bættist borgarstjóran-
um liðsauki þar sem
var ritstjóri DV, Jónas
Kristjánsson, sem fer
mikinn og vandar mér
ekki kveðjurnar í rit-
stjórnargrein. Til fróð-
leiks fyrir lesendur
Morgunblaðsins og
einnig fyrir borgar-
stjórann og ritstjóra
DV vil ég rifja upp fjár-
veitingar til vegamála á
höfuðborgarsvæðinu
samkvæmt vegaáætlun
undanfarin ár og sam-
kvæmt tillögu um vegaáætlun fyrir
árin 2000-2004. Allar tölur eru á
áætluðu verðlagi 2000.
Sjá lfnurit.
Meðfylgjandi súlurit ber glögg-
lega með sér að framlög til höfuð-
borgarsvæðisins hafa aukist mjög í
tíð þeirra samgönguráðherra sem
borgarstjórinn velur að ráðast gegn.
Tölumar bera einnig með sér að í tíð
núverandi borgarstjóra Reykjavík-
urborgar hafa framlög verið meiri
en áður. Af þessum tölum geta les-
endur séð hversu borgarstjórinn í
Reykjavík og ritstjóri DV eru sann-
gjörn og málefnaleg í umfjöllun
sinni.
Höfundur er samgönguráðherra.
Sturla
Böðvarsson
rm-mmi m m
Íf l
f > ; . • : I j :? If'- | ! 'i ni i ’ ' U. li
Grafarvogskirkja
Safnaðarstarf
Kirkju-
klukku-
dagur
ÆSKULÝÐSDAGURINN verður
haldinn hátíðlegur í Grafarvogssöfn-
uði næstkomandi sunnudag kl. 14-
17. Dagskráin hefst með æskulýðs-
guðsþjónustu kl. 14 í Grafarvog-
skirkju og að henni lokinni verður
sýning í Rimaskóla frá kl. 15-17.30 á
verkum nemenda úr leik- og grunn-
skólum í Grafarvogi, en verkin hafa
verið unnin í tengslum við 1.000 ára
afmæli kristnitökunnar.
I æskulýðsguðsþjónustunni munu
unglingar og æskulýðsleiðtogar
kirkjunnar meðal annars taka mik-
inn þátt i helgihaldinu og hljómsveit
skipuð ungu fólki mun spila og félag-
ar úr Unglingakór kirkjunnar
syngja.
Á sýningunni í Rimaskóla verður
margt í boði. Meðal annars verða
sýnd og seld verk nemendanna gegn
vægu verði. Kaffihús verður á staðn-
um og tilkynnt verða úrslit úr ljóða-
og sögusamkeppni um kirkjuklukk-
ur. Ágóðinn af sölu verkanna og af
rekstri kaffihússins verður hluti
framlags bama og unglinga í Grafar-
vogskirkju til kaupa á kirkjuklukk-
um í Grafarvogskirkju en kirkjan
verður vígð 18. júní næstkomandi.
Prestur, sóknarnefnd og starfs-
fólk Grafarvogskirkju.
i0€3e
KRISTIN TRÚ
1 ÞÚSUND ÁR
ÁRIÐ 2000
Kirkjugöngur
Á MORGUN, laugardag, 26. febr-
úar, verður sjöunda kirkjugangan.
Þessar göngur hafa notið vinsælda
og hefur myndast góður hópur um
30-40 manna sem gengið hafa á
hverjum laugardegi. Ferðin hófst frá
Seltjamameskirkju í lok október og
lá um vesturbæinn og miðbæinn inn í
Laugameskirkju, en þar var áð yfir
jól og áramót. Síðastliðinn laugardag
lá leiðin frá Laugameskirkju, að
Áskirkju og þaðan að Langholts-
kirkju. Nú á laugardaginn kemur
verður farið frá Langholtskirkju,
komið við í Grensáskirkju og þaðan
haldið í Bústaðakirkju. Framundan
er ganga á öllum laugardögum í
mars og tvo fyrstu laugardagana í
apríl, en leiðin liggur frá Bústaða-
kirkju upp í Grafarvog, Árbæ, Breið-
holt og um Kópavog, endað verður í
Kópavogskirkju hinn 8. apríl nk.
Fólk er hvatt til að kynna sér auglýs-
ingar í kirkjunum og koma og taka
þátt í gefandi og fræðandi starfi.
Laugardagur: Ganga nr. 7. Lagt
verður af stað frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 10 og hefst gangan við Lang-
holtskirkju. Gönguleiðin verður frá
Langholtskirkju að Grensáskirkju
og þaðan verður haldið í Bústaða-
kirkju. Hreyfing, fræðsla og bæna-
hald.
Veitingar í boði sóknarnefndar
Bústaðakirkju. Þátttökugjald er 500
kr. Frítt er íyrir böm undir 15 ára í
fylgd með fullorðnum.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir
alla aldurshópa kl. 11-13. Létt hreyf-
ing, slökun og kristin íhugun. Kyrrð-
ar- og bænastund í kirkjunni kl. 12.
Orgelleikur, sálmasöngur. Fyrir-
bænaefnum má koma til sóknar-
presta og djákna. Kærleiksmáltíð,
súpa, salat og brauð eftir helgistund-
ina. Lestur passíusálma kl. 18.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
k. 6.45. Mömmumorgunn kl. 10.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif-
un fyrir börn.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna. Trú
og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar-
stund.
Ffladelfía. Trúboðsnámskeið kl.
19-20. Trúboð í miðbænum um
kvöldið. Allir hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11 og
á sunnudögum kl. 17 er námskeið í
Daníelsbók. Allir hjartanlega vel-
komnir. Á laugardag er Hulda Jens-
dóttir með hugleiðingu en Steinþór
Þórðarson með biblíufræðslu. Sam-
komunum er útvarpað á FM 107.
Barna- og unglingadeildir á laugar-
dögum. Súpa og brauð eftir sam-
komuna.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 8 æskulýðsfélag Landakirkju
heldur af stað í æskulýðsmót í
Vatnaskógi. Kl. 12.30 Litlir læri-
sveinar, eldri deild. Kl. 13.15 Litlir
lærisveinar, yngri deild.
Keflavíkurkirkja. Bæna- og
söngstund í kirkjunni. Skúli Svav-
arsson kristniboði kemur í heimsókn
ásamt sönghóp.
Hofskirkja á Skaga. Kirkjuskóli
kl. 14.
Víkurprestakall í Mýrdal. Kirkju-
skólinn í Mýrdal er með samverur á
laugardagsmorgnum kl. 11.15 í Vík-
urskóla.
Frelsið, kristileg miðstöð. Bæna-
stund kl. 20 og Gen X, frábær kvöld
fyrir unga fólkið kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á ís-
landi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti:
Biblíufræðsla kl. 10.15.Guðsþjónusta
kl. 11.15. Ræðumaður Bertil Wik-
lander.
Safnaðarheimili aðventista,
Blikabraut 2, Keflavík: Lokað í dag,
laugardag. Gestum bent á að heim-
sókna Aðventkirkjuna í Reykjavík.
Safnaðarheimili aðventista,
Gagnheiði 40, Selfossi: Lokað í dag
laugardag. Gestum bent á að heim-
sækja Aðventkirkjuna í Reykjavík.
Aðventkirkjan, Brekastig 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl.
11.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Lokað í dag laugardag. Gest-
um bent á að heimsækja Aðvent-
kirkjuna í Reykjavík.
Vegna aðalfundar Samtaka Að-
ventkirkjunnar á Islandi þessa helgi
er engin samkoma í öðrum kirkjum á
laugardag.