Morgunblaðið - 24.03.2000, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kvennaskólinn í Reykjavík
verður hugsanlega fluttur
Kanna samstarf
við Seltjarnarnes
HÚSNÆÐISMÁL Kvennaskól-
ans í Reykjavík eru til umfjöll-
unar í nefnd á vegum mennta-
málaráðuneytisins og Reykja-
víkurborgar sem fjallar um
framtíðarskipan framhaldsskóla
í borginni. Áð sögn Ingibjargar
Guðmundsdóttur, skólastjóra
Kvennaskólans, er meðal annars
verið að kanna möguleika á að
byggja nýtt húsnæði annaðhvort
í miðborginni eða vestar í borg-
inni og í samstarfi við Seltjarn-
arnesbæ.
Mikil þörf á viðhaldi á
núverandi húsi skólans
„í skólasamningi okkar er
ákvæði um að ákvörðun um
framtíðarhúsnæði Kvennaskól-
ans eigi að taka á árinu 2000,“
sagði Ingibjörg. „Kvennaskólinn
býr þrengst allra framhalds-
skóla. Við erum í þremur húsum
og erum með fæsta fermetra á
hvem nemanda og langt undir
öllum viðmiðunarmörkum."
Sagði hún að mikil þörf væri á
viðhaldi á núverandi húsnæði en
jafnframt hefðu verið kannaðir
möguleikar á að stækka hús-
næðið við Fríkirkjuveg. „Það
hefur einnig komið til tals að
byggja skólann á öðrum stað og
þá einhvers staðar í vesturbæn-
um í samstarfi við Seltjarnar-
nesbæ,“ sagði Ingibjörg. „Mér
finnst það alveg koma til greina
að byggja á núverandi lóð skól-
ans en það er sjálfsagt þungt
fyrir í kerfinu. Menn eru að tala
um götumyndina við Fríkirkju-
veginn og í Lækjargötu en það
hafa mörg vígi fallið að undan-
förnu. Það er verið að byggja í
Austurstræti og við Lækjargötu
öðrum megin og af hverju þá
ekki hér?“
Milli 530 og 540 nemendur
eru í Kvennaskólanum í vetur
og sagði Ingibjörg að aðsókn að
skólanum hefði verið góð undan-
farin ár og mun meiri en unnt
hefði verið að ráða við.
Endurbættur veð-
urvefur á mbl.is
OPNAÐUR hefur verið endur-
bættur veðurvefur á mbl.is. Þar er
m.a. nýtt veðurkort þar sem hægt
er að fylgjast með veðurathugun-
um Veðurstofu íslands en þær
berast átta sinnum á sólarhring.
Auk þess má nálgast þar sex daga
tölvuspá Veðurstofunnar sem
berst einu sinni á sólarhring.
Kortið sýnir veðurathuganir og
spá fyrir 11 staði á landinu. Þar
má sjá upplýsingar um veður, hita-
stig, vindátt og vindstyrk á hverj-
um stað. Hægt er að sjá skýringar
veðurtákna og breyta metrum á
sekúndu í vindstig. Á vefnum eru
einnig upplýsingar um veðurhorf-
ur á landinu í textaformi og tengl-
ar í alþjóðlega veðurvefi, auk
hjálparsíðu, þar sem finna má leið-
beiningar við að ná í og setja upp
ókeypis hugbúnað á tölvunni, en
hann er nauðsynlegur til að skoða
veðurkortið.
Morgunblaðið/RAX
Samstarfsmenn Þórólfs Magnússonar afhentu honum mál-
verk. Sverrir Orn Valdimarsson og Egill Sandholt halda á
verkinu og Guðlaugur Sigurðsson heldur tölu. Á innfelldu
myndinni sést Þórólfur stíga út úr Dornier-vélinni á Gjögri.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Þórólfi þökkuð farsæl störf
ÞÓRÓLFUR Magnússon, flugstjóri
hjá Islandsflugi, lét af störfum í gær
en hann á 65 ára afmæli í dag og má
ekki lengur stunda flug í atvinnu-
skyni. Hann var kvaddur með við-
höfn, bæði á Gjögri og á Reykjavík-
urflugvelii.
Þórólfur er ættaður af Ströndum
og var því viðeigandi að síðasta
áætlunarferðin væri til Gjögurs.
fbúar Ámeshrepps fjölmenntu á
Gjögurflugvöll og tóku á móti Þór-
ólfi með blómum og kaffi og með-
læti og vildu með því sýna honum
þakklætisvott fyrir frábæra þjón-
ustu við byggðarlagið. Þórólfur hef-
ur flogið til Gjögurs í áætlunarflugi
í 28 ár, fyrst fyrir Vængi.þá Amar-
flug og loks Islandsflug. Aður flaug
Þórólfur í leiguflugi til Gjögurs en
hann hóf störf sem atvinnuflug-
maður árið 1965 og hefur mestallan
tfmann verið í innanlandsflugi.
Þórólfur hefur verið farsæll í
starfi enda setti hann ávallt vel á sig
öll kennileiti og er einn þeirra flug-
manna sem taldir em þekkja landið
best úr lofti.
Þegar Þórólfur kom úr fluginu til
Gjögurs var tekið á móti honum
með viðhöfn á Reykjavíkurflugvelli.
Við athöfn í flugskýli íslandsflugs
sæmdi Ómar Benedikt sson fram-
kværndastjóri hann fyrsta gull-
merki félagsins en Þórólfur hefur
verið flugstjóri hjá félaginu frá
stofnun. Flugmenn íslandsflugs af-
hentu honum málverk að gjöf. Við-
staddur var stór hópur starfsmanna
félagsins, flestir aðstoðarflugmenn
sem með honum hafa starfað og fólk
sem tengist fluginu á ýmsan hátt.
Fjármálaráðherra um endurskoðaða þjóðhagsspá
Staðfestir að efna-
hagsútlitið er biart
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
segir að endurskoðuð þjóðhagsspá
Þjóðhagsstofnunar staðfesti í aðal-
atriðum að efnahagsuppsveiflan hér
standi föstum fótum og framlengist
að minnsta kosti um eitt ár frá því
sem áður hafi verið reiknað með.
Horfumar séu góðar en áfram þurfi
að hafa andvara á sér vegna þátta í
efnahagslífinu sem séu viðsjár-
verðir.
„Langtímahorfurnar eru í flest-
um atriðum mjög hagstæðar. Það
er gert ráð fyrir minnkandi verð-
bólgu, áframhaldandi hagvexti,
aukningu kaupmáttar og stöðug-
leika á þessu tímabili sem þarna er
til umfjöllunar," sagði Geir.
Hann sagði að almennt mætti
segja að spáin fæli í sér þá mjúku
lendingu sem rætt hefði verið um
og hann hefði stundum sagt að ætti
að vera snertilending.
Viðskiptahallinn áhyggjuefni
Geir sagði að vissulega væri mik-
ill viðskiptahalli áhyggjuefni, en í
þeim efnum væri vert að hafa nokk-
ur atriði í huga. I fyrsta lagi væri
búið að breyta um uppgjörsaðferð
sem hefði nokkur áhrif á tölurnar
til hins verra nú og eitthvað aftur í
tímann. Til viðbótar væri óvenju
stór skekkjuliður í uppgjörinu
vegna ársins 1999 sem munaði 15
milljörðum króna og virtist vanta
inn í útflutninginn. Þá væri þess að
gæta að mikill innflutningur væri
fyrirhugaður á skipum og flugvél-
um á þessu ári sem ekki yrði varan-
legur og hefði þarna áhrif, auk þess
sem áberandi væru áhrif vegna
aukinnar einkaneyslu. Það væri
þannig ekki hið opinbera sem væri
að eyða um efni fram, heldur staf-
aði viðskiptahallinn að stórum hluta
af ákvörðunum sem teknar væru í
einkageiranum, sem væri allt ann-
ars eðlis en ef hið opinbera væri að
auka skuldir sínar. Auðvitað þyrfti
hins vegar að halda áfram á þeirri
braut að auka innlendan sparnað.
„Að öðru leyti staðfestir þetta að
útlitið er bjart að því er varðar at-
vinnumálin, framleiðsluna og kaup-
mátt almennings. Ef þokkalegur
stöðugleiki verður hér á vinnu-
markaði, eins og margt bendir til
að geti orðið, eiga lífskjörin að geta
haldið áfram að batna hér hægt og
örugglega næstu árin og það er
auðvitað kjarni málsins að mínu
mati,“ sagði Geir ennfremur.
Sérblöð í dag
Stoke fær 35 milljónir króna /B1
Arsenal og Leeds í undanúrslit
UEFA-keppninnar /B3
Fylgstu
meö
nýjustu
fréttum
www.mbl.ls