Morgunblaðið - 24.03.2000, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
1
FRÉTTIR
Ljósmynd/Sveinn Hjartarson
slökkva eldinn í íbúðarhúsinu á Sauðárkrdki.
Skemmdir í íbúð á Sauðárkróki
Kviknaði í sjónvarpi
TALSVERÐAR skemmdir urðu í
íbúð á Sauðárkróki af völdum elds
sem þar kom upp í gær.
Eldur kviknaði út frá sjónvarpi í
íbúð á neðri hæð við Lindargötu á
Sauðárkróki laust eftir klukkan
fjögur í gær. Kona, sem búsett er í
íbúðinni, var komin út á götu
ásamt tveimur börnum sínum þeg-
ar slökkvilið kom á vettvang. Tals-
verður hiti og reykur var inni í
íbúðinni en slökkvistarf gekk
greiðlega.
Talsverðar skemmdur urðu á
íbúðinni og þá sérstaklega stofunni
þar sem sjónvarpstækið var. Ekki
þurfti að reykræsta íbúð á efri
hæð hússins.
Sveiflur milli ársfiórðunga í meðallaunum rafíðnaðarmanna
Munur á tölum RSI og
Launakannanir Rafidnaðarsambands íslands og
Kjararannsóknarnefndar
1998-IV 1999-1 1999-11 1999-111
Rafvirkjar, mánaðarlaun í dagv.
Haqdeild RSÍ kr. 152.600 161.100 156.500 159.200
Kjararannsóknarnefnd Hrein mánaðarlaun 144.022 141.864 140.038 146.600
Föst mánaðarlaun 191.294 167.471 165.276 172.900
Rafeindavirkjar, mánaðarlaun í dagv
Hagdeild RSÍ kr. 152.600 161.100 156.500 159.200
Kjararannsóknarnefnd
Hrein mánaðarlaun 140.473 165.429 155.021 144.500
Föst mánaðarlaun 154.750 191.952 169.010 204.600
NOKKUR munur er á upplýsing-
um kjararannsóknarnefndar og
Rafiðnaðarsambands íslands um
meðallaun rafiðnaðarmanna hér á
landi. Kemur þetta fram í yfirliti,
sem RSÍ hefur sent frá sér.
Yfirlitið birtist á heimasíðu RSÍ
á Netinu og þar kemur fram að
ástæður munarins felist líklega í
því að hagdeild RSÍ vinni tölur
sínar úr gögnum yfir alla rafiðnað-
armenn með sveinspróf á landinu,
en kjararannsóknarnefnd sé ein-
ungis með tvær stéttir; rafvirkja
og rafeindavirkja.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður RSÍ, segir að yfirlitið sýni
vel sveiflur í launum rafiðnaðar-
manna enda hafi þeir búið við
markaðslaunakerfi allt frá árinu
1987. Sveiflur milli ársfjórðunga
geti orðið mjög miklar og því hafi
verið brugðið á það ráð að kanna
laun félagsmanna RSÍ tiltölulega
ört og birta niðurstöðurnar jafn-
harðan. „Það má með sanni segja
að yfirlit sem þetta endurspegli vel
efnahagsástandið í þjóðfélaginu
hverju sinni,“ segir Guðmundur.
Margt bendir til þess að rafiðn-
aðarmenn og Samtök atvinnulífs-
ins geti náð saman í dag um nýjan
kjarasamning til febrúar árið 2004,
með uppsagnarákvæðum þó. Það
yrði eitthvert lengsta samnings-
tímabil á almenna vinnumarkaðn-
um hér á landi. I yfirlitinu birtast
tvær tegundir launa frá kjararann-
sóknarnefnd. Hrein mánaðarlaun
eru grunnlaun rafiðnaðarmanna,
en föst mánaðarlaun eru hrein
mánaðarlaun auk fastra hlunninda
á borð við bifreiðastyrk o.fl.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Aðsteðjandi
átök rædd
Bíll 17 ára ökumanns fór fimm
veltur niður snarbrattar skriður
„Fann hvernig
bílbeltin héldu
mér föstum“
Kvartað
undan
dreifíbréfi
NOKKUÐ bar á tilkynningum
til lögreglunnar í Reykjavík í
gærkvöldi vegna skilaboða í
dreifibréfi sem dreift var í hús í
auglýsingaskyni. í bréfinu stóð
orðrétt: „Þú færð það óþvegið
þegar við komum á föstudag-
inn.“
Að sögn eins viðtakanda í
Reykjavík fékk hann þau við-
brögð lögreglunnar að hann
væri í hópi fjölmargra sem
hringt hefðu og kvartað undan
orðalagi bréfsins sem mun vera
auglýsing fyrir vikublað.
Lést á
heimili sínu
MAÐURINN, sem lést á heim-
ili sínu í nágrenni Húsavíkur
síðastliðinn laugardag, hét Jón
Frímann Jónsson til heimilis að
bænum Bláhvammi, Reykja-
hverfi.
Hann fæddist 4. febrúar 1934
og lætur eftir sig fjögur upp-
komin börn og fósturson.
Lögreglan á Húsavík rannsa-
kar mannslátið og situr maður
á þrítugsaldri í gæsluvarðhaldi
vegna rannsóknar málsins.
FULLTRÚAR Samtaka atvinnu-
lífsins hittu formenn ríkisstjórnar-
flokkanna að máli í Stjórnarráðinu
í gær til að ræða aðsteðjandi átök á
landsbyggðinni, en að öllu óbreyttu
hefst verkfall hjá 26 aðildarfélög-
um innan Verkamannasambands
íslands 30. mars nk.
Fundinn sátu (f.v.) Þorgeir Bald-
ursson, stjórnarmaður í SA, Hall-
dór Ásgrímsson, utanríkisráðherra,
Davíð Oddsson forsætisráðherra,
Finnur Geirsson, formaður SA, og
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA.
„Við óskuðum eftir fundi með
forystumönnum stjórnarflokkanna
til þess að gera þeim grein fyrir
áhyggjum okkar og afstöðu til
þeirrar alvarlegu stöðu sem mun
koma upp með stöðvun atvinnu-
rekstrar á landsbyggðinni, væntan-
lega á miðvikudagskvöld," sagði
Ari eftir fundinn í gær. Hann sagði
að staða samningamála hefði einnig
verið almennt rædd og höfuðfor-
senda þeirra langtímasamninga
sem unnið hefði verið að - að verð-
bólga fari minnkandi.
TELJA má víst að sautján ára
gamall piltur, Sigurður Þórarinn
Sigurðsson, búsettur á Stöðvar-
firði, hafi sloppið með undraverð-
um hætti frá því að hljóta alvarleg
meiðsl eftir meiriháttar umferð-
aróhapp í Staðarskriðum í norðan-
verðum Fáskrúðsfirði á miðviku-
dagskvöld.
Þórarinn missti bfl föður síns út
af veginum á 40 km hraða og
hrapaði hann 60-70 metra niður
snarbrattar skriður, fór nokkrar
veltur á leiðinni og stöðvaðist loks
á réttum kili. Þórarinn hlaut
minniháttar skrámur og Iemstrað-
ist nokkuð, en er kominn heim af
sjúkrahúsi eftir einnar nætur dvöl.
„Ég var að beygja fram hjá
steini á veginum, sem hafði hrunið
úr hliðinni fýrir ofan, og þá byrj-
aði bfliinn að renna og rann með
framendann út á vegbrúnina,"
sagði Þórarinn í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Bfllinn rann
spottakom eftir brúninni og ég
hélt að hann myndi stöðvast, en þá
fór afturdekkið líka út af og bfll-
inn rúllaði niöur. Hann fór a.m.k.
fimm veltur og ég fann hvernig
bflbeltin héldu mér föstum. Ég
hélt mér vel í stýrið til að festa
mig enn betur, en rak höfuðið f
hliðarrúðuna, braut hana í leið-
inni, skarst á höfði rétt við augað
og fékk líka högg á höndina. Þeg-
ar bfllinn staðnæmdist sparkaði ég
hurðinni upp og ákvað að ganga
upp á veginn aftur til að athuga
hvort ég yrði ekki var við bfl. Ég
átti ekki erfitt með gang og var
fljótlega tekinn upp í bfl og fékk
far til Fáskrúðsfjarðar. Þar var
mér komið til læknis sem saumaði
átta spor í gagnaugað á mér og
hélt mér til eftirlits á hjúkranar-
heimilinu þar til um morguninn
þegar ég fékk að fara heim.“
Vattarnesskriður era nyrst í
Staðarskriðum og hafa íjölmörg
umferðarslys orðið í skriðunum á
undanförnum árum.
Timamóta árangur hjá polförunum á miðvikudag
Lögðu að baki 9,15
km á sínum besta degi
NORÐURPÓLSFARARNIR Har-
aldur Öm Ólafsson og Ingþór Bjama-
son náðu frábæmm árangri á mið-
vikudag er þeir komust 9,15 km
áleiðis til norðurpólsins. Þeir eru
komnir um 60 km áleiðis á hinni 800
km löngu leið og sleðar þeirra famir
að léttast. Færið er einnig að batna en
frostið mikið sem áður.
Þegar þeir félagar hringdu í leið-
angursstjómina í gær var Kristján
Kristjánsson, KK, mættur með gítar-
inn og söng m.a. lagið Bein leið fyrir
þá í gegnum gervihnattasímann við
mikinn fögnuð pólfaranna. KK hafði
frétt að pólfaramir hefðu tekið með
sér geisladisk með lögum hans til að
hlusta á í því skyni að efla hjá sér bar-
áttuandann í tjaldstað að loknum
erfiðum göngudögum.
„Þetta var alveg æðLslegt. Við erum
nývaknaðir og það er ekki amalegt að
vakna með svona fyrirheit fyrir dag-
inn. Þetta er mikil uppörvun fyrir
okkur og einstakt innlegg í tilverana
hjá okkur, kærar þakkir,“ sögðu pól-
faramir eftir flutning lagsins.
Pólfaramir sögðu annars allt gott
að frétta af sínum högum, sleðamir
væra að léttast eftir því sem gengi á
nestið og færið að skána en frostið
enn mikið.
„Það hefur verið gríðarlega kalt,
a.m.k. 40 stiga frost. Við finnum fyrir
gríðarlegu álagi á búnaðinn en vonum
að það verði ekki til trafala,“ sagði
Haraldur. „Það mæðir mikið á mönn-
um og búnaði og við sátum við við-
gerðir fram eftir kvöldi í gær [mið-
vikudag] en mér sýnist þó allt í lagi
enn.“
Vakir mæta nú pólföranum æ oftar
en stutt er síðan þeir komu inn á
vakasvæði. „Við fórum yfir nokkrar
nýfrosnar vakir í gær [miðvikudag]
og stundum sjáum við ófrosið vatn í
vökum. Við þurftum m.a. að ganga
meðfram einni vök í gær þar sem hún
var ekki frosin en við förum alltaf var-
lega,“ sagði Haraldur og bað fyrir
kærar kveðjur heim.
\