Morgunblaðið - 24.03.2000, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
wv
'tfc
„Kjaftshögg
ríkisp akkanum
Formaður VMSÍ I
segir Jiað eins og
kjaftshögg i pakka
rikisstjómarmnar
hvcrnig aldraðir og ör
yrkjar em skildir eft-
Allsherjaræfing björgunarsveita
Æfír saman
ólíka þætti
Jón Gunnarsson
Slysavamafélagið
Landsbjörg stend-
ur fyrir björgunar-
æfingu í Reykjavík í dag
og á morgun. Þetta er
fyrsta landsæfing hinna
nýju samtaka og ein
stærsta æfing sem hefur
farið fram í þéttbýli hér-
lendis. Hún stendur
sleitulaust í sólarhring,
frá klukkan 20 í kvöld.
Jón Gunnarsson er for-
maður Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar. Hann
var spurður hvert væri
markmið þessarar æfing-
ar.
„Markmiðið er að æfa
saman hina ólíku þætti
hjá björgunarsveitunum.
Þarna verða mjög fjöl-
breytt verkefni; allt frá
því að æfa aðkomu að stórslysum
til viðbragða við jarðskjálfta, auk
þess verða minni verkefni, svo
sem tækjaverkefni fyrir snjóbfla
og snjósleða og hefðbundin leit-
ar- og björgunarverkefni. Megin-
þungi skipulagningarinnar hefur
hvílt á herðum félaga í Hjálpar-
sveit skáta og Flugbjörgunar-
sveitinni í Reykjavík."
-Hverjir taka þátt í þessari
æfinev?
„Áætlaður fjöldi þátttakenda,
þar með taldir sjúklingar og
skipuleggjendur, er um 750
manns. Þetta fólk kemur víðs
vegar að af landinu og kemur úr
björgunarsveitum sinna sveita.
Einnig em þátttakendur úr
Slökkviliði Reykjavíkur, grein-
ingarsveit lækna frá Sjúkrahúsi
Reykjavíkur, sjúklingar úr röð-
um eldri skáta, unglingadeilda
björgunarsveita og skátafélaga á
höfuðborgarsvæðinu."
-Gera svona æfingar mikið
gagn?
„Já, þær eru mjög gagnlegar,
við skoðum árangur af svona æf-
ingum til þess að meta stöðuna
og reyna að læra af því sem við
sjáum að betur má fara. Einnig
að slípa saman þætti eins og
samvinnu milli björgunarsveita
og annarra aðila, svo sem lækna
og slökkviliðsmanna. Gildi svona
æfinga er mjög mikið.“
- Hvemig verður framkvæmd
æfingarinnar?
„Æfingin hefst klukkan 20
með hundrað manna stórslysi um
borð í skóiaskipinu Sæbjörgu í
Reykjavíkurhöfn. Síðan verða
stöðugt í gangi minni verkefni,
svo sem snjóflóðaæfing í Bláfjöll-
um milli 13 og 15 á laugardag og
fólk getur fylgst með ef það vill. I
Kringlunni verða björgunarverk-
efni tengd klifursúlunni sem
hefst klukkan 10 á laugardag og
verður á klukkustundar fresti.
Þá verður fjöldi smærri verkefna
í gangi allan tímann víða á höfuð-
borgarsvæðinu. Æfingunni lýkur
svo með flugslysaæfingu sem
hefst klukkan 16 í Öskjuhlíð og
öllum er heimilt að fylgjast með.
Það er reiknað með um tvö
hundruð slösuðum og
þrjú til fjögur hundruð
manna björgunarliði."
- Er hlutverk björg-
unarsveita vaxandi í
samfélaginu?
„Já, það er það.
Mikil þörf er fyrir björgunar-
sveitir og hefur það sannreynst
sérstaklega í vetur, einkum sl.
tvo mánuði, þar sem varla hafa
liðið dagar án þess að björgunar-
sveitir hafi verið að störfum ein-
hvers staðar á landinu. Þetta fyr-
irkomulag sem Islendingar hafa
á björgunarmálum er þjóðfélag-
inu mjög hagkvæmt og á sér ekki
► Jón Gunnarsson fæddist í
Reykjavík 21/9 1956. Hann
stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík og lauk síðan námi í
rekstrar- og viðskiptagreinum
frá Háskóla íslands. Hann hefur
verið bóndi, starfað sem sölu-
stjóri á Stöð 2, rekur ásamt konu
sinni heildverslunina Rún sem
rekur verslanir Kello og BIu di
blu. Jón er formaður stjórnar
Slysavamafélagsins Lands-
bjargar. Hann er kvæntur Höllu
Ragnarsdóttur verslunarmanni
og eiga þau þrjú börn.
fordæmi annars staðar. Að hafa
svo vel þjálfaðar og vel útbúnar
sveitir sjálfboðaliða sem tilbúnar
eru á hvaða tíma sólarhrings sem
er þegar annað kerfi björgunar-
þátta þjóðfélagsins þrýtur, er
ómetanlegt. Þessu fyrirkomulagi
þurfum við að hlúa að og það ger-
ist best með stuðningi valdhafa
og almennings við málstaðinn en
sá stuðningur hefur sannarlega
verið fyrir hendi.“
-Heyrst hefur að skipulag
björgunarsveita hafi verið í
deiglunni?
„Já það er rétt. í dag verður
skrifað undir samkomulag um ís-
lenska björgunarsveit sem mun
starfa á alþjóðavettvangi. Undir-
búningur þessa hefur staðið um
nokkurt skeið á vegum utanríkis-
ráðuneytis, dómsmálaráðuneytis
og Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og má segja að fyrsta al-
vöru skrefið hafi verið stigið þeg-
ar þessir aðilar í sameiningu
stóðu fyrir að senda lið björgun-
arfólks á jarðskjálftasvæði í
Tyrklandi. Samningur þessi sem
undirritaður verður í dag skil-
greinir hlutverk þeirra aðila sem
að honum koma gagnvart starf-
semi þessarar sveitar."
- Er þetta kostnaðarsamt fyr-
irtæki, þessi alþjóðabjörgunar-
sveit?
„Það fer eftir aðstæðum
hverju sinni, flutningur á fólki og
búnaði er dýrasti þátturinn í
þessu og að þeim kostnaðarlið
koma opinberir aðilar
með okkur. Þeir aðilar
úr okkar röðum sem
munu gefa kost á sér
og veljast til þessara
starfa í framtíðinni
verða sjálfboðaliðar og
fá ekki greidd laun frekar en aðr-
ir sem starfa að björgunarstörf-
um á vegum björgunarfélaganna.
I þessari sveit verður og leitað til
lækna og annarra aðila sem
tengjast björgunarstörfum.
Kostnaðinn af björgunaræfing-
unni í kvöld og á morgun greiða
Slysavarnafélagið Landsbjörg og
aðildarsveitir þess.
Björgunar-
sveit á al-
þjóðavett-
vangi stofnuð