Morgunblaðið - 24.03.2000, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framtíð fjarskiptaþjónustu rædd á hádegisverðarfundi IMARK
Aukin samkeppni leiðir til
enn frekari verðlækkana
Morgunblaðið/Ásdís
Rætt var um fjarskiptamál á hádegisverðarfundi IMARK í gær.
FORSVARSMENN íslensku síma-
fyrirtækjanna eru á einu máli um að
aukin samkeppni í fjarskiptum leiði
til enn frekari verðlækkana á þjón-
ustunni. Fram kom í máli Ólafs Þ.
Stephensen, forstöðumanns upplýs-
inga- og kynningarmála hjá Lands-
símanum, á hádegisverðarfundi sem
IMARK stóð fyrir í gær, að fyrirséð
væri að markaðshlutdeild Landssím-
ans á innlendum markaði mundi
dragast saman með aukinni sam-
keppni og fyrirtækið hefði hafið út-
rás á alþjóðlegan fjarskiptamarkað
með samstarfi við erlenda aðila.
Símgjöld munu hverfa
Páll Þór Jónsson, framkvæmda-
stjóri Frjálsra fjarskipta, sagði í sínu
erindi að hann væri þess fullviss að
símgjöld, eins og rnenn þekktu þau í
dag, hyrfu. Fyrirtækið hefði sagt öll-
um gjöldum stn'ð á hendur og það
væri stefna fyrirtækisins að gera
verðskrár einfaldari á þann veg að
mínútugjald endurspeglaði kostnað
notenda. Hann taldi jafnframt að í
framtíðinni yrði stuðst við annars
konar aðferðir hjá fjarskiptafyrir-
tækjunum og mínútur yrðu að
magni. Þannig réðist kostnaður við
notkun Netsins af því hve mikið
menn notuðu það fremur en hve
lengi þeir væru tengdir Netinu.
Kostnaður yrði reiknaður eftir
magni líkt og greitt er fyrir rafmagn
á heimilunum þar sem einvörðungu
er mælt hve mikil notkunin er. Þann-
ig yrði einnig notkun sjónvarps,
tölvu og síma mæld og notendur
greiddu í samræmi við notkun.
„Þjónustuframboð á eftir að auk-
ast gríðarlega. Opið internet er orðið
nánast sjálfgefið nú til dags og allir
ætla að taka það upp enda er það
eðlilegur hlutur,“ sagði Páll Þór.
Hann sagði að Frjáls fjarskipti hefðu
þá sýn að fjarskipti væru verslunar-
vara. Notendur veldu þá vöru sem
hentaði þeim, væri á hagstæðustu
verði eða þar sem þjónustan væri
best. Ekkert fyrirtæki mundi skara
fram úr á öllum sviðum og sam-
keppnin ætti ekki síður eftir að koma
erlendis frá.
Meiri hraði og gæði fyrir
stöðugt lægra verð
Ólafur Stephensen sagði að Sím-
inn tæki ekki þátt í verðstríði. Fyrir-
tækið tæki þátt í samkeppni og legði
áherslu á gæði, traust, áreiðanleika
og hagkvæmar lausnir til frambúðar.
Almennt um framtíðarhorfurnar
sagði Ólafur að óhætt væri að full-
yrða að notendur héldu áfram að fá
meira fyrir peninga sína í formi
meiri gæða, hraða og bandbreiddar
fyrir hlutfallslega og stöðugt lægra
verð. 1. apríl geti íslendingar valið
sér fjarskiptafyrirtæki til að skipta
við í millilandasímtölum með föstu
forvali. Ólafur sagði ekkert nema
gott um aukna samkeppni að segja
og þessi þróun hefði verið fyrirséð.
Ólafur greindi frá áformum al-
þjóðlega fjarskiptafyrirtækisins
@IPbell, sem Síminn fjárfesti í fyrir
stuttu ásamt öðrum íslenskum og er-
lendum fyrirtækjum. Fyrirtækið
byggir á nýrri tækni sem nýtir inter-
net, eða IP-staðal, til fjarskipta.
Ólafur segir að samstarfsaðilar í
þessu verkefni séu í hópi öflugustu
stórfyrirtækja í samskiptatækni.
,Á.ætlanirnar gera ráð fyrir upp-
byggingu á nýju fjarskiptaneti sem á
að geta lækkað fjarskiptakostnað
verulega með hagnýtingu IP-stað-
alsins. Þannig verður hægt að flytja
hvers kyns upplýsingar samtímis,
hvort sem það er tal, tölvugögn, fax
eða videomyndir. I upphafi verða um
50 tengipunktar í tíu löndum, þar á
meðal íslandi, og síðan er ætlunin að
byggja upp net 1.000 tengipunkta
um allan heim,“ sagði Ólafur. Hann
sagði að kerfið byði upp á nýja leið til
verðlagningar á fjarskiptaþjónustu
sem byggðist á magni fluttra gagna
en ekki tímalengd á tengingu.
Markaðshlutdeild Landssímans
mun fara lækkandi
„Hjá Símanum horfum við eðlilega
til þess að vaxtarmöguleikar fyrir-
tækisins í hefðbundinni fjarskipta-
þjónustu hér á landi eru takmarkað-
ir. Fyrirséð er að markaðshlut-
deildin innanlands fari lækkandi og
þess vegna horfum við til þess að
tryggja vöxt fyrirtækisins með því
að hasla okkur völl í skyldum grein-
um bæði innanlands og erlendis og
höfum hafið þessa útrás í ajþjóðlegri
fjarskiptaþjónustu,“ segir Ólafur.
Þá upplýsti Ólafur á fundinum
verðlækkun á ADSL-þjónustu, sem
er liður í heildarendurskoðun á verð-
lagningu á þjónustu fyrirtækisins,
og sömuleiðis að nú væri að hefjast
tilraun tU gagnvirks Netaðgangs í
gegnum Breiðbandið. Vonir stæðu
til að fullburða þjónusta á því sviði
yrði til síðar á árinu.
Sigurður Ingi Jónsson, yfirmaður
viðskiptamótunar hjá Íslandssíma,
sem hefur þjónustu með millilanda-
símtöl fyrir einstaklinga 1. aprfl nk.,
rakti sögu fyrirtækisins. Hann sagði
að þróunin í verðlagsmálum væri
mjög augljós. Verðið væri að verða
mun hagkvæmara en það hefði verið.
Sigurður Ingi tók undir það að fram-
tíðin væri sú að notkunin yrði mæld
eftir magni en ekki tíma. Það sem
réði verðlagningu væri samkeppnin,
aðföng og nýtingarhlutföll þjónust-
unnar; því meira sem sími væri not-
aður því ódýrari yrði þjónustan.
Hann minnti á að þótt til stæði að
lækka skrefagjöld í fastlínukerfinu
innanlands stæði jafnframt til að
hækka fastagjaldið.
Frægustu
skákmenn
heims
keppa í
Kópavogi
DAGANA 1. og 2. apríl nk. fer
fram Heimsmótið í Kópavogi á
vegum Skáksambands íslands,
þar sem keppt verður í atskák.
Mótið er eitt sterkasta skákmót
sem haldið hefur verið hérlend-
is og fer fram í Salnum, Tónlist-
arhúsi Kópavogs.
I atskákinni er umhugsunar-
tími keppenda aðeins 25 mínút-
ur en meðal þátttakenda eru
frægustu skákmenn samtím-
ans, m.a. Garríj Kasparov, ind-
verski stórmeistarinn Vishw-
anathan Anand og fleiri þekktir
skákmenn, t.d. Jan Timman og
Viktor Kortsnoj.
Sex íslenskir
skákmenn tefla
Alls keppa tólf skákmenn á
mótinu og þar af sex íslenskir;
Jóhann Hjartarson, Hannes
Hlífar Stefánsson, Margeir
Pétursson, Jón L. Árnason,
Helgi Ólafsson og Friðrik
Ólafsson. Sjónvarpsstöðin
Skjáreinn mun senda beint út
frámótinu.
í fyrstu verðlaun eru 4,500
dollarar eða sem svarar um 325
þúsund íslenskum krónum, í
önnur verðlaun 3,500 dollarar
og í þriðju verðlaun 2,500 doll-
arar. Peningaverðlaun era
einnig veitt fyrir 4,- 6. sætið eða
frá 1,600 dollurum niður í 1,200
dollara.
Mánudaginn 3. apríl stendur
svo til að efna til tíu manna fjöl-
teflis uppi á íslenskum jökli,
þar sem Kasparov mun tefla við
þjóðþekkta Islendinga. Er ekki
enn afráðið á hvaða jökli verður
teflt en til greina koma Sól-
heimajökull, Langjökull eða
Snæfellsjökull.
Dregið hefur úr afköstum gufudreifíkerfís í
Hveragerði vegna þrýstingsbreytinga
Gæti þýtt fram-
kvæmdir í dreifíkerfí
Oddviti Tálknafjarðar um sameining-
arhugmynd félagsmálaráðherra
Hvergi farið
að ræða þetta
einu orði
ÞRÝSTINGSBREYTING hefur
orðið á jarðhitakerfinu í Hvera-
gerði og nágrenni þannig að afköst
gufudreifikerfisins þar hafa minnk-
að um milli 15 og 20% og segir
Guðmundur Baldursson, veitustjóri
Hitaveitu Hveragerðis, að þetta
geti kallað á umtalsverðar fram-
kvæmdir í dreifikerfinu.
„Það hafa orðið umtalsverðar
breytingar í jarðhitakerfi hér í
Hveragerði eða á suðurhluta
Hengilssvæðisins sem veldur lækk-
andi þrýstingi á gufudreifikerfinu,“
sagði hann. „Það má segja að það
séu þrjú hitaveitukerfi í bænum.
Eitt kerfanna er gufuveitukerfi og
þrýstingsbreytingin veldur minni
afköstum í því.“ Hin kerfin sem
era annars vegar tvöfalt kerfi og
hins vegar hefðbundið hitaveitu-
kerfi virka eðlilega.
Gerst samfara jarðhræringum
undanfarinna fjögurra ára?
Gufuveitukerfið dreifir gufu að-
allega til iðnaðarnota og til garð-
yrkjustöðva í bænum. „Það er í því
kerfi, sem þrýstingur hefur farið
lækkandi þannig að kerfið flytur
ekki eins mikla orku og áður,“
sagði hann og bætti við að talið
væri að flutningsgeta kerfisins
hefði sennilega minnkað um 15 til
20 af hundraði. Hann sagði að
þessi vandi væri tiltölulega nýtil-
kominn. „Það er ekki vitað með
vissu hvenær þetta gerist, en ekki
er ósennilegt að þetta hafi gerst
samfara þeim jarðhræringum, sem
verið hafa á svæðinu undanfarin
fjögur ár,“ sagði Guðmundur.
„Orkustofnun hefur verið að mæla
þrýsting í borholum á svæðinu, en
það var ekki fyrr en í haust að
menn áttuðu sig á því hvað var að
gerast.“
Hann sagði að ekki hefðu orðið
vandræði nema hjá tveimur not-
endum, sem gert hafa athugasemd-
ir. Einkum hefðu skapast vandræði
í garðyrkjustöð,_ sem væri í útjaðri
dreifikerfisins. í upphafi var talið
að ástæðan væri bilun í dreifikerf-
inu sjálfu og var þegar tekið til við
að leita að stíflum og þrengingum í
því þegar kvartanir bárust. Heim-
æðin að garðyrkjustöðinni var
víkkuð, breytingar gerðar á dreifi-
kerfinu og teknar brott lagnir, sem
taldar voru of grannar, en allt kom
fyrir ekki.
„Þegar það dugði ekki fengum
við Orkustofnun í lið með okkur og
hún hefur staðfest að um þessa
þrýstilækkun á jarðhitakerfinu sé
að ræða,“ sagði hann. „Ástæðuna
fyrir lækkuninni vitum við ekki.
Það geta verið áðurnefndar jarð-
hræringar sem valda henni, en það
geta verið aðrar ástæður, til dæm-
is niðurdráttur vegna orkunýtingar
á Nesjavallasvæðinu. Þetta eru
getgátur."
Hann sagði að héldi þessi þróun
áfram gæti farið svo að dreifa
þyrfti orku til garðyrkjustöðva og
til iðnaðar með öðrum hætti en nú
væri gert.
Nýtt hitaveitukerfi lagt?
Væntanlega yrði lagt nýtt hefð-
bundið hitaveitudreifikerfi í stað
gufudreifikerfisins. Hann sagði að
á sl. ári hefðu verið boraðar tvær
nýjar jarðhitaholur til að auka
rekstraröryggi hitaveitunnar, en
gufa úr þeim holum eykur ekki
flutningsgetu gufudreifikerfisins
og leysir ekki þann vanda.
Ekki er að svo stöddu hægt að
segja til um kostnað við nauðsyn-
legar endurbætur á gufudreifikerf-
inu sagði Guðmundur, fá þarf til
liðs við okkur ráðgjafa til að meta
hvað þurfi að gera og framkvæma
nauðsynlegar úrbætur í kjölfarið.
„Við stefnum að því að lenda
ekki í þessum vandræðum næsta
vetur,“ sagði hann. „Það kallar að
öllum líkindum á umtalsverðar
framkvæmdir á dreifikerfinu."
BJÖRGVIN Sigurjónsson, oddviti
Tálknafjarðarhrepps, segir að yfir-
lýsingar Páls Péturssonar félags-
málaráðherra og fréttaflutningur
af hugsanlegri sameiningu Bíldu-
dals og Tálknafjarðar séu komin
langt fram úr veruleikanum.
„Það er hvergi farið að ræða
þetta einu orði. Það eina sem við
höfum gert er að svara bréfi Páls
um viðræður um þessa hluti og
skipuð hefur verið nefnd, annað
ekki.
Ég skil ekki þennan fréttaflutn-
ing, hvorki af hendi Páls eða ann-
arra, að vera með svona yfirlýsing-
ar án þess að hafa hugmynd um
hvort þessi sameining kemur yfir
höfuð til gi-eina,“ sagði Björgvin.
Fram kom í Morgunblaðinu sl.
þriðjudag að félagsmálaráðherra
hefur óskað eftir að Vesturbyggð
tilnefni tvo menn til viðræðna um
hugsanlega sameiningu Bíldudals
og Tálknafjarðarhrepps. „Ég hef
hreyft þeirri hugmynd að færa
byggðina sem er sunnan Arnar-
fjarðar, þ.e. Ketildalahrepp hinn
forna og Bíldudalshrepp, úr Vest-
urbyggð og sameina hana Tálkna-
firði. Tálknfirðingar hafa tekið vel í
þetta og hafa tilnefnt tvo menn, að
beiðni minni, til að ræða frekar um
möguleika í stöðunni. Ég hef jafn-
framt óskað eftir að Vesturbyggð
tilnefni tvo fulltrúa til viðræðna,“
sagði Páll m.a. í frétt Morgun-
blaðsins sl. þriðjudag.
Kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti
Björgvin segir ekkert annað
hafa gerst í þessu máli en að bréfi
félagsmálaráðherra hafi verið svar-
að, enda sé það sjálfsögð kurteisi
að svara bréfum.
„Þetta kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti fyrir íbúana enda
var þetta ekki komið á það stig að
það ætti að fara að ræða um sam-
einingu. Því miður er þetta dæmi
um það þegar hlutirnir fara langt
fram úr sér,“ segir Björgvin.
Aðspurður hvernig honum litist
á hugmynd félagsmálaráðherra
sagðist Björgvin ekkert geta um
hana sagt því hann vissi ekkert
hvað héngi á spýtunni „Það er ná-
kvæmlega ekkert um þetta að
segja,“ sagði hann.