Morgunblaðið - 24.03.2000, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Nýr samningur um þjónustu við
fatlaða undirritaður
Samið um 330
milljónir á ári
SAMNINGUR um framhald
reynsluverkefna Akureyrarbæjar í
þjónustu við fatlaða á Eyjafjarðar-
svæðinu hefur verið undirritaður,
en það gerðu þeir Páll Pétursson
félagsmálaráðherra og Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akur-
eyri. Samningsupphæðin er 330
milljónir króna á ári, í ár og á því
næsta. Samningurinn gildir til loka
árs 2001, en þá er áætlað að þjón-
usta Svæðisskrifstofa flytjist al-
mennt til sveitarfélaganna.
Akureyrarbær hefur frá árinu
1996 annast þjónustu sem Svæðis-
skrifstofa málefna fatlaðra á Norð-
urlandi annaðist áður. Verkefnið
var eitt af svonefndum reynslu-
verkefnum bæjarins. I meginatrið-
um byggist samningurinn á núver-
andi þjónustustigi en auk þess eru í
honum fjárveitingar til reksturs á 6
nýjum þjónustuíbúðum fyrir fatl-
aða sem teknar verða í notkun í
byrjun næsta mánaðar. Nær samn-
ingurinn til umfangsmikillar þjón-
ustu, sem m.a. er fólgin í rekstri
sambýla, stuðningi við sjálfstæða
búsetu fatlaðra, aðstoð á vinnu-
markaði, verndaðri vinnu og þjón-
ustu á endurhæfingarstað, þjón-
ustu á hæfingarstöð og ráðgjöf við
einstaklinga.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði það sína skoðun að
þetta væri hinn rétti farvegur, þ.e.
að sveitarfélögin önnuðust þessa
þjónustu, skjólstæðingarnir væru
ánægðari, aðstandendur þeirra sem
og sveitarstjórnar- og ráðuneytis-
fólk. Þetta væri því sú braut sem
reyna ætti að þræða. Góð reynsla
hefði verið af samningum af þessu
tagi þar sem þeir hefðu verið gerð-
ir. Hann sagði mikla grósku í þess-
um málaflokki, en í sinni ráðuneyt-
istíð hefðu útgjöld vaxið um 85%.
Umfangsmikil þjónusta
Kristjáns Þórs Júlíussonar sagði
að samningurinn næði til 13 sveit-
arfélaga í Eyjafirði auk Hálshrepps
í S-Þingeyjarsýslu. Hann tók einn-
ig undir með Páli varðandi vöxt í
þessari þjónustu og sagði að árið
1997 hefði greiðsla vegna samnings
um þessa þjónustu verið 229 millj-
ónir króna en nú væri samið um
330 milljónir. Hann nefndi sem
dæmi um umfang verkefnisins að á
Akureyri væru rekin 13 sambýli
fyrir fatlaða en í þeim byggju 66
einstaklingar, þá væri dagþjónusta
rekin á tveimur stöðum og ein
skammtimavistun en stöðugildi
væru um 130 talsins. Um 125 ein-
staklingar njóta heimaþjónustu af
einhverju tagi.
Frá Eyjafjarðarsveit
Jörflin Melgerði
Eyjafjarðarsveit auglýsir hér með eftir hugmyndum að nýt-
ingu jarðarinnar Melgerðis, sem liggur sunnan Mel-
gerðismela, þar sem m.a. er athafnasvæði hestamanna.
Jörðin er í u.þ.b. 25 km fjarlægð frá Akureyri í umhverfi þar
sem hafin er mikil skógrækt og uppgræðsla. Henni fylgja um
30 ha ræktaðs lands og bithaga og veiðiréttur í Eyjafjarðará.
Auk þess eftirtaldar fasteignir:
íbúðarhús, hæð, kjallari og ris, samtals um 130 fm. Húsið er
hæft til sumarbúsetu en þarfnast viðhalds til að þar megi
hafa búsetu allt árið.
Útihús, fjós og kálfahús (hesthús) ásamt hlöðu, samtals
u.þ.b. 280 fm. Þessi hús þarfnast mikils viðhalds eða endur-
nýjunar.
Gistiskáli, u.þ.b. 125 fm, með gistirými fyrir allt að 20
manns. Um afnot hans eða kaup þarf að semja við fyrri leigj-
anda, sem er eigandi skálans. Stöðuleyfi er útrunnið.
Þeir, sem kynnu að hafa áhuga á að nýta þessa aðstöðu, að
hluta eða í heild, komi óskum sínum skriflega á framfæri á
skrifstofu Eyjafjarðarsveitar ásamt stuttri greinargerð um fyr-
irhugaða nýtingu eða athafnasemi á jörðinni í síðasta lagi 31.
mars nk.
Byggingarlóðir
( nýju hverfi norðan Reykár, þ.e. norðan og vestan Laugar-
borgar, hefur verið skipulagt byggingarsvæði. Þar er gert ráð
fyrir 11 einbýlishúsum ásamt 10 íbúðum í par- og raðhúsum.
Lóðir þessar eru hér með auglýstar til umsóknar. Upplýsing-
ar um verð og byggingarskilmála eru fyrirliggjandi á skrif-
stofu Eyjafjarðarsveitar.
Til greina kemur að einnig verði tekið til skipulagningar undir
íbúðarbyggð svæði, sem liggur sunnan og vestan heimavist-
arhúss Hrafnagilsskóla og bjóða þar fullbúnar íbúðir á góð-
um kjörum og af mismunandi stærðum í par- og raðhúsum.
Vakin er athygli á þessu svæði sem góðum valkosti fyrir
ungt fólk, sem er að hefja búskap, eða eldra fólk sem vill
minnka við sig og losa fjármuni. Áhugasömum er bent á að
hafa samband við skrifstofu Eyjafjarðarsveitar sem fyrst.
Komi í Ijós verulegur áhugi fyrir búsetu á þessum stað verð-
ur svæðið boðið verktökum til skipulagningar og uppbygg-
ingar, e.t.v. með þarfir tiltekins markhóps í huga.
Allar upplýsingar varðandi framanskráð veitir undirritaður í
síma 463 1250.
Sveitarstjóri.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hundarnir
hlutu blessun
DANIELLE Palade á Akureyri hef-
ur ræktað hunda af gerðinni Royal
Arctic Chihuahua um nokkurra ára
skeið og hún hefur ávallt farið með
hunda sín til blessunar í Kaþólsku
kirkjuna við Eyrarlandsveg á Ak-
ureyri. Nú nýlega fór hún með
hund sinn Goldie, þrjá hvolpa henn-
ar auk tveggja til viðbótar til bless-
unar í kirkjunni. Á myndinni sem
HALD var lagt á um 15 grömm af
hassi á Akureyri í vikunni og voru
tveir menn handteknir í kjölfarið.
Þeir viðurkenndu að eiga fíkniefnin.
Fjórir menn hafa setið í gæslu-
varðhaldi á Akureyri frá því á
fimmtudag í síðustu viku, en þeir
hafa viðurkennt að eiga nokkurt
magn fíkniefna sem rannsóknardeild
lögreglunnar á Akureyri lagði hald
á, eða um 50-60 grömm af hassi og
eitthvað af amfetamíni. Mennimir
voru allir úrskurðaðir í tveggja vikna
gæsluvarðhald, en þeir kærðu úr-
skurðinn til Hæstaréttar, en niður-
staða í málinu liggur ekki fyrir.
í fyrrinótt var brotist inn í
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum.
Bjóðum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum.
HafÖu samband
tekin var að lokinni athöfn fyrir
framan kirkjuna má sjá séra Pat-
rick Breen og systur Immaculata,
Daniellu og nokkur böm sem þar
voru viðstödd með hundana sem þá
höfðu hlotið blessun séra Patricks.
Fjöldi mynda var tekinn við þessa
athöfn en þær geta áhugasamir séð
á Netinu á slóðinni www.//
ismennt.is/not/orafn/pet.html.
Brekkuskóla og farið rakleiðis að
lyfjaskáp og úr honum tekið lyfið
Rítalin, en það er gefið ofvirkum
bömum. Þá var einnig brotist inn í
Umferðarmiðstöðina á Akureyri, en
bæði þessi innbrot em til rannsókn-
ar hjá rannsóknardeild lögreglunnar
á Akureyri.
--------------
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju-
skóli á morgun, laugardaginn 25.
mars kl. 13.30. í Grenivíkurkirkju.
Kirkjuskóli verður í Svalbarðskirkju
á laugardag kl. 11. Guðsþjónusta í
kirkjunni kl. 14 á sunnudag. Ferm-
ingarfræðsla í safnaðarstofu kl. 11 á
sunnudag. Kyrrðarstund í Sval-
barðskirkju kl. 21 á sunnudagskvöld,
26. mars.
María Mey-
Augu Guðs
til sýnis í
Deiglunni
LÁRUS H. List setur upp málverk-
ið María Mey - Augu Guðs í Deigl-
unni í Kaupvangsstræti og verður
verkið til sýnis nú og út næstu viku.
Verk þetta var sýnt í Þjóðarbók-
hlöðunni fyrir réttu ári og vakti þá
athygli, segir í frétt frá listamann-
inum. Ekki síst vakti dagsetningin,
25. mars, athygli, níu mánuðum íyr-
ir fæðingu Krists. Með sýningunni
vildi listamaðurinn vekja athygli á
því að liðin voru 2000 ár frá getnaði
hans.
Láms vill með sýningunni gefa
Akureyringum kost á að skoða
þetta verk og meta það af eigin
raun, en eitt af því sem athygli
vakti í fyrra var að hann skyldi
halda í sýningarferð suður með eitt
listaverk í farteskinu.
A sunnudag verður opið í Deigl-
unni frá kl. 13 til 17, en í næstu
viku á hefðbundnum afgreiðslu-
tíma.
Láms sýnir um þessar myndir á
Kaffi Mokka í Reykjavík, en sú
sýning ber yfirskritina Eskimo Art.
--------------
Ferðafélag
Akureyrar
Skíðaganga í
Glerárdal
FERÐAFÉLAG Akureyrar býður
upp á skíðagönguferð inn á Glerár-
dal um helgina. Gist verður í skála
félagins, Lamba, og gengið verður
um dalinn eins og tími og aðstæður
leyfa. Brottför er frá húsakynnum
félagsins við Strandgötu kl. 9 á
laugardagsmorgun, 25. mars.
Skráning í ferðina er á skrifstof-
unni á föstudögum frá kl. 17.30 til
19.
-----♦-♦-♦----
Innbrot í
sumarbústað
BROTIST var hinn í sumarbústað á
Guðrúnarstöðum í Eyjafjarðarsveit
og þaðan stolið m.a. sjónvarpi og
myndbandstæki. Innbrotið uppgötv-
aðist um liðna helgi, en ekki er vitað
hvenær það var framið.
Sá eða þeir sem þar vora að verki
bmtu rúðu í sumarbústaðnum til að
komast inn, en að öðm leyti vom
skemmdir óvemlegar. Rannsóknar-
deild lögreglunnar á Akureyri
rannsakar innbrotið, en það er óupp-
lýst.
Opinn fyrirlestur
Titill: Hvemig getum við kennt betur?
Erindi um Momingside-
kennslu-líkanið; „bein fyrirmæli“,
fæmiþjálíun og símat.
Fyrirlesari: Guðríður Adda Ragnarsdóttir,
atferlisíræðingur og kennari.
Staður: Háskólinn á Akureyri,
Þingvallastræti 23, stofa 24.
hAskóunn
Aakureyri
Rannsóknardeild lögreglunnar
Tveir hand-
teknir með hass
t>
- vogir eru okkar fag -
Tími: Laugardagur 25. mars kl. 16.00.
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is