Morgunblaðið - 24.03.2000, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
AKUREYRI
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Gamli kvennaskólinn á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit
Meðferðarheimili
fyrir stúlkur tekur
til starfa í sumar
SVEITARSTJÓRN Eyjafjarðar-
sveitar og Bamaverndarstofa hafa
gert með sér samning um að lang-
tímameðferðarheimili fyrir stúlkur
verði komið upp í gamla kvennaskól-
anum á Laugalandi í Eyjafjarðar-
sveit. Um er að ræða að meðferðar-
heimilið að Varpholti í Glæsibæj-
arhreppi, norðan Akureyrar, verður
flutt í gamla kvennaskólann.
Bjami Kristjánsson, sveitarstjóri
í Eyjafjarðarsveit, sagði að nú fljót-
lega yrði hafist handa við nauðsyn-
legar breytingar á skólahúsnæðinu,
en um allumfangsmiklar fram-
kvæmdir væri að ræða. Húsið var
byggt sem húsmæðraskóli en hann
var lagður niður á áttunda áratugn-
um; þá var húsnæðið leigt Hitaveitu
Akureyrar á meðan framkvæmdir á
hennar vegum stóðu yfir. Um nokk-
urra ára skeið var gmnnskóli starf-
andi í húsinu, en starfsemi hans var
fyrir nokkmm ámm flutt yfir á
Hrafnagil. Síðustu ár hefur húsnæð-
ið því verið vannýtt. Þó hefur hand-
verksfólk í Eyjafjarðarsveit haft að-
setur í hluta hússins.
Barnavemdarstofa mun taka
tvær hæðir af þremur á leigu til 10
ára, en annars staðar í húsnæðinu
verður handverksfólk áfram með að-
stöðu. Þá hefur heimilisfræði-
kennsla Hrafnagilsskóla farið fram
á Laugalandi og svo verður áfram.
Samband eyfirskra kvenna hefur
einnig afnot af um 30 fermetra rými
í viðbyggingu norðan við skólann og
í kjallara er leikfangasmiðjan
Stubbur til húsa. Bjarni sagði að
engar áætlanir væm um annað en að
þessi starfsemi yrði áfram í húsinu.
„Við emm afskaplega ánægð með
þennan samning,11 sagði Bjarni.
„Það var orðið mjög brýnt að gera
endurbætur á húsnæðinu og í það
verður farið á næstunni. Við fáum
þessa starfsemi inn í sveitarfélagið
og hugsanlega skapast í kjölfarið
fleiri atvinnutækifæri og þá teljum
við það líka heiður að okkar sveitar-
félag skyldi vera valið til að hýsa
þessa starfsemi."
Starfsemin hefst í sumar
Gamla kvennaskólahúsið verður
afhent 1. ágúst n.k. Ingjaldur Arn-
þórsson, forstöðumaður Varpholts,
sagði að um yrði að ræða langtíma-
meðferðarheimili fyrir stúlkur á
aldrinum 13 til 18 ára. í Varpholti er
gert ráð fyrir 6 unglingum en þar
hafa að undanfömu verið 8 ung-
menni. A hinu nýja heimili í Eyja-
fjarðarsveit verður pláss fyrir 10
stúlkur.
Kvennasamband Akureyrar
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Sigfríður Inga Karlsdóttir, deildarstýra í mæðravemd Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri, sýnir stjórnarkonum í Kvennasambandi Akur-
eyrar hvað tækin sem þær gáfu gera. Frá vinstri er Guðrún Sigurðar-
dóttir, þá Kristrún Bergsveinsdóttir, Margrét Kröyer, Kristjana
Jónsdóttir og Helga Rósantsdóttir, en Sigfríður Inga er lengst til hægri.
Heilsugæslustöð
fær góðar gjafír
Listasafnið
á Akureyri
Barnæska
í íslenskri
myndlist
NÝ sýning verður opnuð í
Listasafninu á Akureyri í
kvöld, föstudagskvöldið 24.
mars kl. 20. Hún ber yfir-
skriftina: Sjónauki 11, Barn-
æska í íslenskri myndlist og
Barnið: Ég.
Hlutverk sjónaukanna er
að ljá gestarýnum tækifæri
til að koma á framfæri sjón-
armiðum sínum með því að
velja myndir á sýningu og
fjalla um þær á fræðilegan
hátt.
Að þessu sinni tóku þrír
starfsmenn kennaradeildar
Háskólans á Akureyri að sér
að kanna hvort sömu tilhneig-
inga gætti við lýsingar á
börnum í íslenskri myndlist
og alþjóðlegri. Þetta eru þau
Chia-jung Tsai listfræðingur,
Guðmundur Heiðar Frí-
mannsson, heimspekingur og
deildarforseti, og Kristján
Kristjánsson, prófessor í
heimspeki.
I vestursal safnsins gefur
að líta afrakstur af listrænni
vinnu barna sem fengu það
verkefni, undir handleiðslu
Rósu K. Júlíusdóttur við
Myndlistaskólann á Akureyri,
að lýsa sjálfum sér í starfi og
leik. Auk barnanna eiga 30
listamenn verk á sýningunni.
Listasafnið er opið þriðju-
daga til fimmtudaga frá 14 til
18, föstudag og laugardag frá
kl. 14 til 22 og á sunnudögum
frá 14 til 18.
STJÓRN Kvennasambands Akur-
eyrar færði Heilsugæslustöðinni á
Akureyri nokkur tæki að gjöf; sí-
rita til að mæla hjartslátt fósturs,
hvíldarstól, handtæki til að hlusta
hjartslátt og tæki til þvagskimunar.
Guðrún Sigurðardóttir, formað-
ur Kvennasambands Akureyrar,
sagði að ákveðið hefði verið fyrir
um tveimur árum að safna fé til
kaupa á nýju sónartæki fyrir
mæðravernd Heilsugæslustöðvar-
innar þar sem það sem fyrir er þótti
úr sér gengið. Leitað var til um 50
félaga á svæðinu, m.a. kvenfélaga
og verkalýðsfélaga, og var erindinu
vel tekið en um 209 félög lögðu
málefninu lið. Síðar var horfið frá
því að kaupa nýtt sónartæki og áð-
urnefnd tæki keypt þess í stað, en
þau munu koma heilsugæslustöð-
inni að góðum notum.
Fjögur kvenfélög standa að
Kvennasambandi Akureyrar, eða
kvenfélögin Baldursbrá, Eining,
Framtíðin og Hlíf.
-----I-H----
Tónleikar
strengja-
deildar
STRENGJADEILD Tónlistarskól-
ans á Akureyri heldur tónleika á sal
Brekkuskóla (gagnfræðaskólahús-
inu) á laugardag, 25. mars, kl. 16.
Leikið verður á fiðlu, lágfiðlu, selló
og kontrabassa. Að tónleikunum
loknum verður foreldrafélag
strengjadeildar með kaffisölu. Að-
gangur að tónleikunum er ókeypis.
Kristján Gunnarsson í verkfæra-
herberginu. Altítt var að eld-
smiðir smiðuðu eigin verkfæri.
Morgunblaðið/Egfll Egilsson
Með fyrstu símunum á Þingeyri.
Síminn var notaður á milli húsa.
Eldsmíði að
gömlum hætti
VÉLA- og bílaþjónusta Kristjáns á
Þingeyri hefur tekið að sér viðgerðir
á svokölluðum „stakkettum", eða
málmgrindverkum, við leiðin í gamla
kirkjugarðinum við Suðurgötu í
Reykjavík. Stakkettin hafa legið
undir skemmdum, en til þess að lag-
færa þau þarf að notast við vinnulag
og tækni eldsmiða, sem ekki tíðkast
lengur og engar eldsmiðjur eru
starfandi í dag.
Kristján Gunnarsson, vélvirkja-
meistari á Þingeyri, er einn fárra
starfandi eldsmiða í dag og hefur
tekið þessar viðgerðir að sér, en
verkið er talið nema 3-4 ársverkum.
Að sögn Kristjáns var vélsmiðjan
þekkt á sínum tíma fyrir eldsmíði, og
það væri eflaust ástaeðan fyrir því að
þetta óvænta verkefni hefði borist
þeim í hendur.
Hann segir að viðgerðin sé viða-
mikið og jafnframt erfitt verk. Taka
þarf mót af þeim grindverkum sem
verst eru farin og steypa þau upp á
nýjan leik. Ákveðna tækni þarf til að
steypa mótin, mikið sé um smáatriði
og engar teikningar liggi fyrir sem
hægt sé að ganga í.
Verkefnið krefst þess einnig að
ráða þarf bæði vélsmiði og eldsmiði
til verksins, sem ólíklegt má teljast
að séu starfandi í dag. Kristján telur
ekki ólíklegt að ráðast megi í svipuð
verkefni víða á landsbyggðinni í
framhaldi af þessu verki, enda séu
víða kirkjugarðar með svipuðum
leiðisgrindum.
Vélsmiðjan var rekin frá árinu
1913 undir nafninu Vélsmiðja Guð-
mundar J. Sigurðssonar, eða allt þar
til Kristján tók við rekstrinum árið
1995. Nú er hefðbundin framleiðsla
vélsmiðjunnar fólgin í ýmsum hlut-
um úr steypujárni fyrir útgerðina,
t.d. koppum, línuskífum, netaskífum
og ýmsu fleiru.
Éldsmiðjan er í nánast uppruna-
legu horfi í vélsmiðjunni og er vin-
sælt meðal ferðamanna að kíkja í
heimsókn til að kynnast gömlu hand-
bragði eldsmiðanna.
Kristnitökuhátíð
á Eskifirði
HALDIN verður Kristnihátíð á
Eskifirði sunnudaginn 26. mars.
Hefst hún með hátíðarmessu kl. 14 í
nýbyggingu Kirkju- og menningar-
miðstöðvar í Bleiksárgih.
Byggingaframkvæmdir hafa stað-
ið yfir frá því í sumar leið. Þar hefur
Gísli Stefánsson farið fyrir af hálfu
Byggðarholtsmanna og annarra
verktaka. Síðustu hönd er verið að
leggja á innréttingu kirkjuskips og
senn lokið við forstofu, snyrtingar,
fundarherbergi og eldhús. Hefur sér-
staklega verið hugað að hljómburði
hússins í allri hönnun. A kristnitöku-
afmælishátíð sóknarinnar gefst fólki
kostur á að fylgjast með framvindu
byggingar. Sóknin mætir nýrri öld
með nýjum og glæsilegum helgidómi
sem jafnframt verður menningarhús
Fjarðabyggðar. Eins og áður hefur
fram komið er stefnt að vígslu bygg-
ingar þann 24. september nk.
Kirkjukórar í Fjarðabyggð annast
og leiða söng ásamt hljómsveit og
organistum. Hljóðfæraleikarar,
nemendur og kennarar sjá m.a. um
undirleik og einsöng. Sóknarprestar í
Fjarðabyggð munu þjóna fyrir altari
og sóknarprestur prédika. Að athöfn
lokinni verða kaffiveitingar í boði
sóknamefndar ásamt tilheyrandi
dagskrá.
Settar verða upp sýningar í grunn-
skóla Eskifjarðar er stendur opinn
sunnudag 26. mars frá kl. 17-19. Gef-
ur þar að líta sýnishom af handverki
nemenda gmnnskóla Eskifjarðar,
gert í þemaviku um kristnitöku sl.
haust. Þá er þar farandsýning,
Kirkjur á Austurlandi, sett saman af
Pétri Sörenssyni, ljósmyndara, að
tilstuðlan afmælisnefndar á Austur-
landi, um 1000 ára kristnitöku á
Austurlandi. Síðast en ekki síst er
myndasýning, ágrip af sögu Hólma-
sóknar, tilurð fríkirkju og stofnun
Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarsókna,
myndir af prestum sem þjónað hafa
fyrir altari frá miðri 19. öld.
Síðast talda sýningin er framlag
menningarnefndar Fjarðabyggðar
til kristnihátíðar í prestakalhnu og
unnin í samstarfi við Hilmar Bjarna-
son safnvörð á Eskifirði, minjavörð á
Austurlandi, Guðnýju Zoega og Pét-
ur Sörensson, ljósmyndara. Verður
fólki gefinn kostur á því að pjóta
þeirrar sýningar a.m.k. fram eftir
ári.
LISTMUNAUPPBOÐ
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 5. MARS KL. 20.00 Á HÓTEL SÖGU
VINSAMLEGA KOMIÐ OG SKOÐIÐ VERKIN í GALLERÍI FOLD, RAUÐARÁRSTÍG 14 - 16, í
DAG KL. 10.00 - 18.00, Á MORGUN KL. 10.00 - 17.00 EÐA Á SUNNUDAGINN KL. 12.00 - 17.00.
SELD VERÐA UM 100 VERK, ÞAR Á MEÐAL FJÖLMÖRG VERK GÖMLU MEISTARANNA.
ART CALLERY
Rauðarárstíg 14-16,
sími 551 0400.