Morgunblaðið - 24.03.2000, Page 26

Morgunblaðið - 24.03.2000, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU ERLENT Búnaður Stjörnu-Odda vekur athygli erlendis BANDARÍSKA vísindablaðið New Scientist greinir í nýjasta tölublaði sínu frá mikilvægi búnaðar sem Stjömu-Oddi hefur þróað og hann- að til að merkja fiska niður á allt að 1.000 metra dýpi. „Petta er virt vísindarit sem er dreift i miklu magni um allan heim og því er um gífurlega mikla og jákvæða kynn- ingu að ræða,“ segir Sigmar Guð- björnsson, framkvæmdastjóri Stjörnu-Odda. Sigmar segir að öll kynning sé mikilvæg og umfjöllunin í New Scientist skipti miklu máli enda hafi tímarit víðs vegar um heiminn fylgt í fótsporin, þar á meðal World Fishing, netfréttabréfin Ocean- space og Environment Network News auk þess sem blöð eins og Fishing News International, Sea Technology, Ocean News & Techn- ology, Fisheries Product News, Fiskeren í Noregi og Ingeniören í Danmörku ætli að fjalla um málið. „Við erum að teygja okkur lengra en aðrir í rannsóknum á sjávarauð- lindinni og erum núna í fram- leiðsluþróun en umfjöllunin er ekki aðeins mikilvæg fyrir okkur heldur fyrir ímynd íslenskra sjávaraf- urða.“ Stjörnu-Oddi, Hafrannsókna- stofnun og Grandi hf. hafa starfað að umræddu verkefni með stuðn- ingi frá Rannsóknarráði íslands. „Ef ekki hefði komið til styrkur frá Rannís á sínum tíma hefði þetta ekki orðið eldra,“ segir Sigmar. „Trúin á verkefnið var til staðar og tekin var áhætta en nú erum við að uppskera árangurinn. Á döfinni er að ljúka þróuninni á búnaðinum og undirbúa okkur þannig að við get- um farið að merkja fjölda fiska.“ Morgunblaðið/Gunnar Guðmundur Einarsson aflakló landar gdðum afla eftir vel heppnaðan línuróður. Guðmundur Einars- son kominn í 436 tonn Bolungarvík. Morg-unblaðið. ÞAÐ er oft líf í tuskunum þegar smá- bátamir í Bolungarvík koma að til að landa. Aflabrögð hafa verið mjög góð að undanförnu, þó tíðarfarið hafi verið leiðinlegt hefur ekki verið lang- varandi gæftaleysi það sem af er marsmánuði. Frá Bolungarvík eru gerðir út um fimmtán svo kallaðir hraðfiski- bátar sem flestir róa með línu yfir vetrarmánuðina og hafa þeir aflað mjög vel, t.d. var heildarafli þessara báta um 500 lestir í febrúar. Einn þeirra er Guðmundur Einarsson sem gerir út 5,9 lesta Viking 800, Guðmund Einarsson ÍS. 5,4 tonn að meðaltali í róðri í mars Fréttaritari hitti Guðmund er hann var að koma úr róðri á dögun- um með 4,3 tonn á 20 bala, þar af voru um tvö tonn steinbítur sem Guðmundur kvaðst vera að reyna að ná í núna þar sem hann væri utan kvóta. Guðmundur er ákaflega fengsæll skipstjóri, aflaði t.d. tæplega 75 tonna í febrúar í 16 róðrum eða hátt í 5 tonn í róðri að meðaltali. Öllu betri hefur aflinn þó verið hjá honum það sem af er mars því hann hefur komið með 65,5 tonn að landi í 12 róðrum eða 5,4 tonn að meðaltali í róðri. Það sem af er kvótaárinu hefur Guðmundur fiskað 436 tonn, þar af 129 tonn af ýsu og 12 tonn af steinbít. Guðmundur sagðist mest fara þetta 12 til 16 mílur út frá Bolungarvík, það tæki svona um klukkutíma að sigla út á miðin en heldur lengri tíma tæki að sigla með aflann í land. Færeyjabankamálinu lokið Den Danske Bank greiðir 300 milljónir Kaupmannahöfn. Morgunblaðiö. MEÐ 300 milljónum danskra króna, sem Den Danske Bank greiðir danska ríkinu, var í gær endi bund- inn á Færeyjabankamálið svokall- aða. Um leið verður ekkert úr milljarðastefnu á hendur bankanum vegna yfirtöku færeysku land- stjómarinnar 1993 á Færeyja- banka, dótturbanka Den Danske Bank, sem síðar kom í ljós að var skuldugri en landsstjómin áleit hafa verið upplýst við yfirtökuna. Bankinn fellst á að greiða féð, en hafnar því að greiðslan sé viður- kenning á að bankinn hafi gert eitt- hvað rangt. Mogens Lykketoft fjár- málaráðherra lýsti sig í gær ánægðan með niðurstöðuna, en í röðum stjórnarandstöðunnar heyrð- ust óánægjuraddir um að málinu lyki án þess að nokkur væri dreginn til ábyrgðar. Eftir að Den Danske Bank hafði haft framkvæði að því við Poul Nyrap Rasmussen forsætisráð- herra yfirtók færeyska landsstjóm- in Færeyjabanka í mars 1993. Er leið á árið kom í ljós að bankinn var mun verr staddur en virst hafði. I ágúst hafði landsstjórnin neyðst til að taka um 2,4 milljarða lán hjá dönsku stjóminni vegna taps á bankanum. Árið eftir vora Færeyja- banki og Sjóvinnubankinn samein- aðir undir nafninu Færeyjabanki, sem enn starfar og stendur nú traustum fótum. Hvað það varðar er ánægja í Færeyjum með ráðstöfun- ina, en minni ánægja með að hún varð mun dýrari en búist var við. Landstjómin áleit að Den Danske Bank hefði ekki upplýst hana að fullu um stöðu bankans og þar sem hún hafði orðið að taka á sig miklar fjárhagslegar skuldbind- ingar vegna yfirtökunnar stefndi hún bankanum og fór fram á 1,5 milljarða danskra króna í skaðabæt- ur. Áður hafði bankinn boðið 250 milljónir vegna málsins, en án þess að viðurkenna að honum bæri skylda til þess. Skuldir Færeyinga við Dani nema nú 4,4 milljörðum danskra króna, en aðeins hluta þess má relqa til bankayfirtökunnar. Færeyingar fóra fram á að málið yrði kannað og það var gert af danskri nefnd, sem skilaði skýrslu um málið í ársbyrjun 1998. Skýrslan benti til tvöfeldni Den Danske Bank og lausra taka danskra embættis- manna á málinu, en mat manna var að hin siðferðilega ábyrgð lægi hjá forsætisráðherra. Síðar á árinu varð úr að danska ríkið yfirtók mála- rekstur gegn bankanum frá lands- stjórninni, sem í staðinn fékk á ný efnahagsstuðning frá dönsku stjórninni. Þegar færeyskir þing- menn studdu skömmu síðar efna- hagsaðgerðir dönsku stjórnarinnar álitu margir að þarna hefðu verið gerð hrossakaup um þann stuðning. Lykketoft lykilmaður Vitað er að Mogens Lykketoft hefur mjög unnið að því að ná sátt- um í málinu í stað þess að fara í mál við bankann, sem hefur heldur ekki haft áhuga á margra ára dýram málaferlum. Hvorki Venstre né íhaldsflokkurinn hyggst styðja málalokin þegar þau verða tekin fyrir í fjármálanefnd þingsins, en heldur ekki greiða atkvæði gegn þeim og koma þannig í veg fyrir málalok. Formælendur flokkanna segja að stjórnin beri ábyrgð á hvernig málin standa nú. Einnig er óánægja með að Færeyjabankamál- inu skuli ljúka án þess að í raun hafi komið í ljós hjá hverjum ábyrgðin lá. Það verður svo verkefni sagn- fræðinga framtíðarinnar að komast að því hvað gerðist í raun þá mánuði sem yfirtaka Færeyjabanka var í bígerð og hvort síðar hafi verið reynt að hylja einhver spor. Leiðtogafundur ESB í Lissabon N et- o g nútíma- væðing skal efld Lissabon. AFP. LEIÐTOGAR Evrópusambandsins, ESB, freistuðu þess í Lissabon í gær að koma sér saman um leiðir til að virkja tækni 21. aldarinnar til að leggja baráttunni gegn atvinnuleysi og félagslegu misrétti lið - og gera Evrópuríkin betur í stakk búin að veita Bandaríkjunum samkeppni í framsæknasta geira vestræns efna- hagslífs, sem byggist á netvæðingu og hagnýtingu nútíma tölvu- og fjar- skiptatækni. Þá ræddu leiðtogamir ennfremur stöðuna á vestanverðum Balkan- skaga, þar sem stefna og aðgerðir ESB- og NATO-ríkjanna hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Gestgjafi fundarins, Antonio Gut- erres, forsætisráðherra Portúgals, sagði að aðildarríkin þyrftu að sam- einast um stórátak til að gera hinum þjóðfélagslega lakar stöddu kleift að taka virkan þátt í tölvutæknivæddu efnahagslífi 21. aldarinnar. Þykir það til merkis um hve langt Evrópu- ríkin era á eftir Bandaríkjunum í þessari þróun, að um 70% allra net- viðskipta í heiminum fara fram í Bandaríkjunum, en aðeins um 20% í Evrópu. Upp kom sú tillaga á fundinum, að ESB-ríkin settu sér það takmark að ná 3% meðalhagvexti í öllu samband- inu, en Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og fleiri settu sig upp á móti hugmyndum um slík tölulega fastsett markmið. Wolfgang Schússel, kanzlari Aust- urríkis, lýsti því yfir við upphaf fund- arins, að hann vonaðist til að geta talið hina leiðtogana á að fallast á að byrja að draga úr þeim pólitísku refsiaðgerðum sem hin ESB-ríkin 14 hafa beitt Austurríki frá því Schúss- el myndaði ríkisstjórn í byrjun febr- úar með hinum umdeilda Frelsis- flokki. Virtust þó litlar horfur á að hann ætti erindi sem erfiði. Vakti at- hygli, að Schússel - sem er þaulvan- ur fundahöldum á vettvangi ESB sem fyrrverandi utanríkisráðherra - mætti að þessu sinni með bindi í stað þverslaufu, en hún verið hefur ein- kenni klæðaburðar hans í gegn um tíðina. Andstæðingar stjórnarsam- starfs Þjóðarflokks Schússels og Frelsisflokksins hafa gert þver- slaufu að tákni íyrir nýju stjómina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.