Morgunblaðið - 24.03.2000, Page 28

Morgunblaðið - 24.03.2000, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Yfirmaður NASA fyrir þingnefnd vegna afdrifa Marsfarsins Neitar ásökun- um um yfir- hylmingu Washington, AP, AFP, Reuters. DANIEL Goldin, yfirraaður NASA, bandarísku geimvísinda- stofnunarinnar, vísaði í fyrradag á bug fréttum í fjölmiðlum um að stofnunin hefði þagað um hönnun- argalla í Marsfarinu sem hvarf í desember. Hann viðurkenndi hins vegar að minni framlög og fækk- un starfsfólks hjá stofnuninni hefði aukið hættu á mistökum. Bandariskir fjölmiðiar hafa síð- ustu daga flutt fréttir af því að yf- irmenn hjá NASA hafi vitað um alvarlegan galla í Marsfarinu áð- ur en því var skotið á loft. Er einkum nefnt að litlar eldflaugar áfastar farinu, sem áttu að hægja á ferðinni er það kæmi inn til lendingar á Mars, hafi verið gall- aðar eða kannski öllu heldur bún- aðurinn sem átti að kveikja á þeim. Vegna þess sé líklegt að geimfarið hafi brotlent á Mars 3. desember sl. Goldin kom fyrir vísindanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í fyrradag og sagði þá að vissulega hefðu menn haft áhyggjur af flaugunum eða hemlunum og frá því hefði verið skýrt á blaða- mannafundi snemma í nóvember, næstum mánuði áður en Marsfar- ið átti að lenda. Ferðin þangað tók alls II mánuði. Vaxandi gagnrýni NASA hefur legið undir si'vax- andi gagnrýni að undanförnu fyr- ir tíð mistök f geimrannsóknun- um; fyrir ýmis tæknileg vandamál sem komið hafa upp í geimferju- áætluninni og fyrir tafir og óraunhæfar kostnaðaráætlanir varðandi smi'ði alþjóðlegu geim- stöðvarinnar. Það eru þó afdrif tveggja Marsfara sem fylltu mæl- inn hjá mörgum. Marsfarið, sem hvarf í desem- ber, kostaði rúmlega 12 milljarða ísl. kr. og nokkruin mánuðum áð- ur, í september, eyðilagðist annað sem átti að kanna lofthjúpinn um reikistjörnuna rauðu. Það kostaði rúmlega níu milljarða kr. Mistök- in þykja einstaklega álappaleg því að þá gleymdist að laga enskar mælieiningar að mctrakerfinu. Engin stefnubreyting Þessi dýru mistök hafa vakið efasemdir um þá stefnu Goldins og raunar stjórnvalda að gera geimrannsóknir „ódýrari, hrað- virkari og betri“ en Goldin sagði í fyrradag að engin stefnubreyting væri fyrirhuguð. Kvaðst mundu halda áfram að samþykkja áætl- anir þótt þeim fylgdi nokkur áhætta. Væri það í samræmi við vilja bandarískra skattborgara sem hefði fundist kostnaðurinn við NASA of mikill. Goldin viðurkenndi þó að NASA ætti í nokkrum erfiðleikum vegna þess að starfsfólkinu hefði verið fækkað á sama tíma og verkefn- unum hefði Qölgað og mikil áhcrsla lögð á að flýta þeim. Af- leiðingin væri sú að margir fengju ekki næga þjálfun. Hjá NASA starfa nú 18.000 manns en 25.000 áður. Goldin vildi raunar ekki gera of mikið úr mistökum hjá stofnun- inni og sagði að frá 1992 hefðu geimskotin verið 146, metin á rúmlega 1.300 milljarða ísl. kr., og þar af hefðu 10 misfarist. Kostnaðurinn við þau hefði verið um 47 milljarðar kr. Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT Uppstokkun boðuð í flokki þjóðernissinna á Taívan AP Chen Shui-bian, nýkjörinn forseti Taívans, lyftir baunaspírukörfum sem kaupsýslumenn færðu honum til að minna hann á uppruna sinn. Chen er kominn af fátækum bændum. Formaður Kuom- intang segir af sér Taipei. AFP, AP. LEE Teng-hui, fráfarandi forseti Taívans, hyggst segja af sér í dag sem formaður flokks þjóðernissinna, Kuomintang, hálfu ári fyrr en ráð- gert var. Margir af flokksbræðrum Lees höfðu lagt fast að honum að draga sig strax í hlé og kennt honum um ósigur flokksins í forsetakosn- ingunum á laugardag. Skrifstofustjóri Liens Chans vara- forseta staðfesti að Lee hygðist láta af formennsku á skyndifundi mið- stjórnar flokksins í dag. Lee hafði ákveðið skömmu eftir kosningarnar að segja af sér sem formaður flokks- ins í september, ekki á næsta ári eins og ráðgert hafði verið fyrir forseta- kosningarnar. Hann hefur nú fallið frá þeirri ákvörðun vegna daglegra mótmæla við höfuðstöðvar flokksins í Taipei og vaxandi þrýstings frá at- kvæðamiklum félögum í Kuom- intang, sem hefur verið við völd á Taívan í rúma hálfa öld. Tíðindin urðu til þess að verð taív- anskra hlutabréfa hækkaði um 5,1% eftir að hafa lækkað vegna óvissunn- ar um þróunina í stjómmálum lands- ins og samskiptunum við kínversk stjórnvöld. Fjármálasérfræðingar sögðu að fjárfestar litu á afsögn Lees sem „merki um stöðugleika og nýtt upphaf í stjórnmálum landsins". Talsmaður Kuomintang sagði að framkvæmdastjóri flokksins, Huang Kun-hui, og aðstoðarmaður hans myndu einnig segja af sér á fundi miðstjómarinnar. Gert er ráð fyrir þvi að Lien Chan, varaforseti og for- setaefni Kuomintang í kosningun- um, verði formaður flokksins þar til nýr leiðtogi verður kjörinn á flokks- þingi í júní. Þingmenn Kuomintang hafa hingað til valið formanninn en forystumenn flokksins hafa fallist á kröfu grasrótarinnar um að allir fé- lagar flokksins fái atkvæðisrétt í leiðtogakjörinu. Viðskiptaveldi Kuomintang rannsakað Lien lofaði í gær að blása nýju lífi í Kuomintang og skipa nefnd til að leggja drög að uppstokkun innan flokksins. Hann sagði að nefndin yrði skipuð umbótasinnum, mönnum með nýjar hugmyndir, og fulltrúum sem flestra afla í samfélaginu. Þetta er aðeins í annað sinn sem gerðar eru verulegar breytingar á Kuom- intang sem var stofnaður fyrir 106 áram. Komið var á umbótum innan flokksins árið 1950 eftir rannsókn á því hvers vegna þjóðernissinnar biðu ósigur fyrir kommúnistum í borg- arastyrjöldinni í Kína og urðu að flýja til Taívans. Liu Tai-yin, sem hefur stjómað umdeildu viðskiptaveldi Kuom- intang, hefur einnig ákveðið að segja af sér. Flokkurinn hefur verið um- svifamikill í viðskiptalífinu og áætlað er að eignir hans nemi 200 milljörð- um taívanskra dala, andvirði 450 milljarða króna. Umbótanefndinni er meðal annars ætlað að skoða þessa starfsemi ofan í kjölinn. Lee varaforseti galt afhroð í for- setakosningunum, varð í þriðja sæti og fékk tæplega helmingi minna fylgi en sjálfstæðissinninn Chen Shui-bian, sem var kjörinn næsti for- seti Taívans. Ósigurinn var meðal annars rakinn til spillingar innan stjómai’flokksins og meintra tengsla ráðamannanna við glæpasamtök. Stjómvöld í Kína sögðu í gær að aðalsendifulltrúa þeirra í málefnum Taívans, Wang Daohan, yrði ekki heimilað að þiggja boð Taívana um að vera viðstaddur innsetningu Chens í forsetaembættið í næsta mánuði nema þeir samþykktu þá af- stöðu kommúnistastjórnarinnar í Peking að aðeins væri til „eitt Kína“. Chen hefur léð máls á að ræða þessa kröfu við leiðtoga Kína en hafnað því að samningaviðræður um bætt sam- skipti og hugsanlega sameiningu Taívans og Kína grandvallist á því að Taívan sé aðeins hérað í Kína. Hann vill að litið verði á þær sem viðræður tveggja jafnrétthárra landa. Kínversk stjórnvöld sögðust einn- ig vera algjörlega andvíg því að Chen færi í heimsókn til Bandaríkj- anna eða annarra ríkja sem hafa stjórnmálasamband við Kína. Bandaríska alrikisstjórnin, þrjú ríki og 29 borgir mynda samtök Kaupa aðeins byssur með öryggisbúnaði Washington. AFP. BANDARÍSK stjórnvöld, þrjú ríki og 29 borgir hafa samþykkt að skipta aðeins við þá byssuframleið- endur sem búa byssurnar nauðsyn- legum öryggisbúnaði. Gagnrýna þau jafnframt þingið harðlega fyrir seinagang í þessum málum. „Samtök sveitarfélaga um öragg- ari byssur“ vora stofnuð í fyrradag og þá tilkynnti Andrew Cuomo hús- næðismálaráðherra að samtökin myndu skipta við þá byssuframleið- endur sem færa að dæmi Smith and Wesson, stærsta vopnaframleiðanda í Bandaríkjunum. Fyrir viku setti fyrirtækið sér nýjar reglur um byssuöryggi og ábyrgð byssusala til að draga úr líkum á að byssurnar lentu í höndum glæpamanna eða óvita. Þá hefur fyrirtækið lofað því að innan þriggja ára verði allar byss- ur með búnaði sem leyfir aðeins eig- anda þeirra að nota þær. Gegn þessu hétu alríkisstjórnin og stjórnvöld í ríkjunum því að falla frá fyrirhuguð- um málaferlum gegn fyrirtækinu og efna ekki til nýrra af sömu sökum. Að samtökunum fyrrnefndu standa alríkisstjómin, New York, Maryland og Connecticut og 29 borgir, þar á meðal Los Angeles, San Francisco, Miami, Atlanta, New Orleans, Detroit, St. Louis og Hon- olulu. Cuomo kvaðst vona að frumkvæði samtakanna yrði til að knýja þingið til að samþykkja ný byssulög og hann minnti á að alríkisstjórnin ein keypti 20-30% af allri byssufram- leiðslunni í landinu. Elliot Spitzer, dómsmálaráðherra í New York-ríki, nefndi einnig að samtökin nýju væra miklu stórtækari í kaupum sínum á byssum en Samtök bandarískra byssueigenda en þau hafa barist hart gegn auknu öryggi og eftirliti. Sumir byssuframleiðendur hafa nú þegar neitað að fara að dæmi Smith and Wesson, til dæmis Glock og Browning, og þingmaðurinn Bob Barr, andstæðingur aukins eftirlits, sagði að það hefðu þau gert „í hinum sanna anda bandarísks einkafram- taks“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.