Morgunblaðið - 24.03.2000, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Islensk lög í
sparifötunum
Kristján Jóhannsson er á ferð og flugi þessa
dagana milli Deutsche Oper í Berlín og Vín-
aróperunnar. Eftir það stefnir hann m.a. á
---------------7--------
að halda tvenna tónleika á Islandi og gefa út
plötu með íslenskum lögum. Pétur Blöndal
hitti Kristján á ítölskum veitingastað gegnt
óperunni við Bismarckstrasse og talaði við
hann yfír ljúffengum lambakótelettum.
Kristján Jóhannsson sem Oþelló í dauðateygjunum í uppfærslu í Modena.
KRISTJÁN Jóhannsson
syngur um þessar mundir
í óperunni La Gioconda í
Deutsche Oper í Berlín,
sem er eitt af stærstu óperuhúsunum
í Þýskalandi. Hann tók fyrst þátt í
uppfærslunni fyrir fimm árum og
syngur að þessu sinni í þremur sýn-
ingum. „Verkið var upphaflega sett
upp árið 1974 og er uppfærslan hefð-
bundin og ein sú fallegasta í Berlín í
gegnum tíðina,“ segir hann.
Af því tilefni var efnt til móttöku
hjá sendiherrahjónunum Ingimundi
Sigfússyni og Valgerði Valsdóttur.
Þangað var boðið Kristjáni og eigin-
konu hans, Sigurjónu Sverrisdóttur,
forráðamönnum Deutsche Oper,
sendiherra Slóveníu, sem viðstaddur
var sýninguna, ásamt fleiri góðum
gestum, þar á meðal óperusöngvur-
unum Gunnari Guðbjömssyni og
Amdísi Höllu Ásgeirsdóttir, sem
bæði em fastráðin við ópemhús í
Berlín.
Það vekur athygli blaðamanns að
þegar Kristján talar um sýninguna
leggur hann áherslu á orðið hefð-
bundin og grettir sig þegar minnst er
á framúrstefnulegar uppfærslur.
„Nabucco var einmitt sett upp af um-
deildum leikstjóra, Hans Neuenfels, í
Deutsche Oper fyrir skömmu. Er það
nýmóðins uppfærsla þar sem m.a. er
gert lítið úr trúarbrögðum. Það olli
mikilli reiði og varð til þess að kard-
inálinn í Berlín skrifaði opið mót-
mælabréf í dagblaðið Die Welt. Að
mínum dómi er Neuenfels eins konar
djöfull í ópemnni, - og þeir em að
verða svo margir að það er óþolandi.
Svo lifum við með þessum andskota á
hverri sýningu, baulinu frá áhorfend-
um og óánægjunni, en þeir em á bak
og burt. Það er ákaflega
ósanngjarnt."
Sjálfur söng Kristján nýverið í um-
deildri uppfærslu á Oþelló í Modena
á Ítalíu. „Leikstjórinn og leiktjalda-
hönnuðurinn vom þýskir og það stóð
ekki steinn yfir steini í sýningunni.
Ég skil ekki af hveiju þeir semja ekki
bara eigin ópem; sýningin gekk ekki
upp með þeim breytingum sem þeir
gerðu og það var hundfúlt fyrir okk-
ur sem þurftum að standa á sviðinu."
Ömurlega búið að
íslenskum söngvurum
Á milli þess sem Kristján syngur
hlutverk Enzos Grimaldos í La
Gioconda flýgur hann til Vínar og
syngur í uppfærslu á Oþelló í Vínar-
óperanni. Eftir þessi verkefni liggur
leiðin til íslands. „Ég mun syngja
þrisvar á Islandi á þessu ári, en svo
oft hef ég ekki sungið heima síðan ár-
ið 1994 þegar Á valdi örlaganna eftir
Verdi var sett upp í Þjóðleikhúsinu.
Að þessu sinni syng ég svona oft
vegna þess að Reykjavík er ein af
menningarborgum Evrópu, sem er
mikil lyftistöng íyrir íslenska menn-
ingu. Ég vona að það verði til góðs og
að íslenskir söngvarar grípi tækifær-
ið.“
Hann segir það mikilvægt því öm-
urlega sé búið að söngvuram á Is-
landi. „Það læra um tvö til þrjú þús-
und manns söng; margir þeirra álíta
sig snillinga og það leynast vísast
nokkrir inni á milli. En enginn þeirra
fær tækifæri. Tugir milljóna em
lagðar í að mennta þetta fólk og svo
er því bara kastað út á gangstétt,
kannski eftir átta til tíu ára nám. Það
er sama sem engin aðstaða á Islandi,
ekkert tónlistarhús og aðeins einn
tónleikasalur. I ofanálag er enginn
atvinnusöngvari í landinu. Það er
bara kallað á söngvarana þegar mik-
ið liggur við og svo er viðmótið:
„Elsku vinur, þetta var frábært og
vertu blessaður.““
Að mati Kristjáns þarf hugarfars-
breytingu á íslandi og segist hann
raunar hafa fundið hana hjá stjóm-
málamönnujn og sendihermm, sem
séu mun jákvæðari en áður í garð
sönglistarinnar. Þá finnst honum við
hæfi að Þjóðleikhúsið sinni meira
tónlistarflutningi, óperum og óper-
ettum, eins og lög geri ráð fyrir, sam-
hliða metnaðarfullri leikhúsdagskrá,
og að það þurfi að sameinast Is-
lensku óperanni. „Það þarf að halda 3
til 5 uppfærslur á ári og fastráða 40
til 50 söngvara við Þjóðleikhúsið,"
segir hann. „Þá er ég ekki að tala um
stórstjömur, heldur trygga söngvara
sem geta sungið minni hlutverk og
leitt góðan kór; undirstöðuna í hverju
leikhúsi. Svo má ekki brenna sig aft-
ur á því að vera alltaf með sömu
söngvarana í aðalhlutverkum. Þeir
þurfa að vera lausráðnir og það þarf
að vera hreyfing á þeim.“
Kristján segist bjartsýnn á að
þetta eigi eftir að lagast á meðan
hann sé enn að brölta, næstu tíu til
fimmtán árin. Raunar eigi hann um
þessar mundir í viðræðum við Stefán
Baldursson þjóðleikhússtjóra um
sniðuga uppákomu sem bjóði upp á
að hægt sé að nýta það sönglið sem
íslendingar eigi heima og erlendis.
„Ég vona að það verði fæðing úr því,“
segir hann.
Sálumessa Verdis í Höllinni
Uppfærslan á Aidu í Laugardals-
höll í febrúar heppnaðist afbragðs
vel, að mati Kristjáns. „Ég er afar
stoltur af því að það skyldi vera upp-
selt og að okkur tækist að setja á fót
svo fjölmenna sýningu, með 350 lista-
mönnum, í svona litlu samfélagi.
Næst stefnum við á að setja upp
Sálumessu Verdis í kringum páskana
í Höllinni. Það hefur verið draumur
hjá mér í tíu ár, en ég hef sungið það
nokkmm sinnum áður, m.a. í Notre
Dame.“
Þá stendur til að Kristján syngi á
hátíðartónleikum í Höllinni 8. júní.
„Þar syng ég með landsliði íslenskra
söngvara, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur,
Rannveigu Bragadóttur og Kristni
Sigmundssyni,“ segir hann. „Þetta
verður kræsilegur kokkteill enda ær-
ið tilefni, Sinfóníuhljómsveit íslands
á hálfrar aldar afmæli og þrjátíu ár
era liðin síðan Listahátíð í Reykjavík
var haldin í fyrsta skipti."
Eins og við mátti búast er meira á
dagskrá hjá íslenska stórtenórnum.
„Ég syng inn á plötu í maí ásamt Sin-
fóníuhljómsveit Lundúna og verða
það þjóðkunn íslensk lög í spariföt-
unum. í haust mun ég svo taka þátt í
Aidu árþúsundamótanna í Kaíró. Það
er risauppfærsla. Um 12 til 15 hund-
ruð manns þátt í sýningunni og hluti
af leikmyndinni em pýramídamir.“
Aðspurður hvort ekki sé þröngt um
manninn á sviðinu, svarar Kristján:
„Hún er stór sandauðnin."
Eftir það stendur til að heims-
fmmflytja verk eftir ítalska tón-
skáldið Togni í Brescia. „Það er óp-
era byggð á biblíusögunum og ég
verð í hlutverki Barrabas," segir Kri-
stján. Þetta er sameiginlegt verkefni
þriggja borga á Ítalíu. Og óperu-
söngvarar skipuleggja sig langt fram
í tímann. „Ég mun syngja mikið í Vín
á næsta ári. Þá verður 100 ára dán-
arafmæli Verdis og óperur eftir hann
á dagskrá hjá öllum helstu óperahús-
unum. Ég mun syngja í Oþelló og
Aidu í Vín, Oþelló í Frankfurt og
Oþelló í Pai-ma, sem er fæðingarborg
Verdis."
Söngnámskeið í framtíðinni
Kristján hristir bara höfuðið þegar
hann er spurður að því hvort hann
ætli að flytja heim aftur. „Ég hef búið
á Ítalíu í 24 ár, helminginn af líftór-
unni, og mér finnst mannlífið þar
elskulegt og ljúft. Við Sigurjóna höf-
um náð að festa þar rætur, og það er
ekki síst henni að þakka; hún er ekki
bara húsmóðir heldur er hún líka
listamaður sem þekkir leikhúsið og
veit hvað þarf til að ná árangri á þeim
vettvangi. Hennar skynsemi er mín
lukka.“
Auðheyrt er að Kristján nýtur h'fs-
ins við Garda-vatn, þar sem hann
hefur búið í tólf ár. „Það er mikil-
vægt, ekki síst fyrir mann í mínu
starfi, að eiga fjölskyldu og fastan
samastað, elska og vera elskaður."
Hann brosir breitt og bætir kumpán-
lega við: „Við eram líka svo hégómaf-
ullir. Við þurfum reglulega að fá
komplíment og það helst á færibandi.
Ekki síst þegar ekki hefur gengið að
óskum. Þegar lífið er dans á rósum er
maður faðmaður og kysstur, en um
leið og dansinn verður að þunglama-
legu stappi þá vill vinunum fækka.“
Nokkrir af nágrönnum Kristjáns
við Garda-vatn era um þessar mund-
ir að stofna alþjóðlegan aðdáenda-
klúbb og era félagar þegar orðnir um
hundrað talsins. Er ætlunin að efna
til hópferða á uppákomur með Krist-
jáni um allan heim. Þá fær hópurinn
aðgang að litlu leikhúsi sem verið er
að endurbyggja í bænum Desenzano;
þar verða haldnirtónleikar og jafnvel
settar upp óperur. „Tónlistarlífið á
svæðinu hefur verið í lægð og mikill
vilji er fyrir því að koma hreyfingu á
það aftur.“
Kristján hyggst einnig standa fyr-
ir söngnámskeiðum í framtíðinni fyr-
ir unga söngvara, sem era við það að
ná frama á alþjóðavettvangi. „Ég
myndi leiðbeina þeim um verkefna-
val, tækni, söngmáta og jafnvel sjá
um að koma þeim á framfæri," segir
hann að lokum.
HriWáriiærtf
NATURAL COSMETICS
Jason Aloe Vera 84% rakakrem.
Jason tryggir náttúruleg gœði!
♦ Vlðheldur raka og mýkt húðarirmar
♦ Vemdar gegn mengun og kulda
• Einstaklega milt
• Inniheldur 84% Afoe Vera
• E vítamín dregur úr hrukkumyndun
• Inniheldur nærandi olíur
* Ver húðina fyrir útfjólubláum geislum
» Hentar alfri fjölskyídunni
* Alhliða dag og nætur krem
♦ Jason, náttúrulegt siðan 1959
Fæst í apótekum og sérverslunum um land allt.
/j/a/s/ö/n/®
Fyrirlestrar og
námskeið í LHI
JOHN Baldessari flytur fyrirlestur
í Listaháskóla Islands, Laugarnes-
vegi 91, stofu 24, í dag, föstudag, kl.
12.30. Fyrirlesturinn nefnir hann
„Víkingur í Kaliforníu" og fjallar
hann þar um eigin verk. John Bald-
essari er bandarískur ljósmyndari
og listamaður (f. 1931), sem hefur
verið einn fremsti fulltrúi hug-
myndalistarinnar í heiminum und-
anfarna þrjá áratugi, segir í frétta-
tilkynningu. Hann hóf feril sinn
sem listmálari en vinnur nú mikið
með ljósmyndir og orðmyndanir af
ýmsu tagi í verkum sínum. Baldess-
ari hefur einnig unnið með kvik-
myndir.
Baldessari hefur hlotið fjölda við-
urkenninga og verið fulltrúi Banda-
ríkjanna á ýmsum þekktum alþjóð-
legum sýningum.
Listamaðurinn er staddur hér á
landi í boði Listasafns Reykjavíkur
til undirbúnings sýningar á verkum
hans, sem haldin verður í Hafnar-
húsinu á komandi hausti. Sýningar-
stjóri verður Þorvaldur Þorsteins-
son myndlistarmaður.
Mánudaginn 27. mars kl. 12.30 á
Laugarnesvegi 91, stofu 24, fjallar
Jaroslaw Kozlowski um eigin verk
og sýnir litskyggnur. Jaroslaw er
pólskur myndlistarmaður og um
þessar mundir gestakennari við
skúlptúrdeild LHI. Miðvikudaginn
29. mars kl. 12.30 í stofu 113 í Skip-
holti 1 fjallar Arno Lederer um
samspil myndlistar og byggingar-
listar. Hann er kunnur þýskur arki-
tekt og kennari við arkitektaskól-
ann í Karlsruhe.
Námskeið
Framhaldsnámskeið í bókagerð
hefst þriðjudaginn 28. mars. Kynnt-
ar eru fleiri aðferðir við að binda
inn og búa til bækur á einfaldan
hátt, byggðar á japönskum hefðum.
Námskeiðið er ætlað þeim sem
áður hafa fengist við bókagerð í ein-
hverjum mæli eða verið á byrjend-
anámskeiði.
Kennari er Sigurborg Stefáns-
dóttir myndlistarmaður.
Kennt verður í Listaháskóla Is-
lands í Skipholti 1.