Morgunblaðið - 24.03.2000, Side 34

Morgunblaðið - 24.03.2000, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Sviðstjörn- ur o g hand- rukkarar Söngleikurinn Kysstu mig Kata eftir Cole Porter verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld í leikstjórn Þór- hildar Þorleifsdóttur. Hávar Sigurjónsson _____----------------y---- ræddi við hana og leikarana Egil Olafsson og Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur. Morgunblaðið/Ami Sæberg íslenski dansflokkurinn leggur svningunni lið með miklum tilþrifum. ÞAÐ er óhætt að segja að í leikflokk Freds Grahams hafi raðast mislitir sauðir. Fyrstan skal að sjálfsögðu telja hann sjálfan, stórleik- ara sem leikið hefur öll helstu hlutverk leikbók- menntanna í leikhúsum ut- an heimsborganna. Ekki skyldi heldur gleyma prímadonnunni Lilli Van- essi, fyrrverandi eiginkonu hans, sem hefur náð svo langt að komast til Holly- wood og „er miklu frægari en Fred“, segir Jóhanna Vigdís sem stendur með sinni konu. Egill leyfir sér að efast um það og bendir á að Fred hafi leikið Hamlet í Amsterdam. „A tréskóm. Gleymdu því ekki,“ segir Jóhanna Vigdís. Handrukkarar með hæfileika Aðrir leikarar í leikhópi Freds eru héðan og þaðan, Fred sumir þekktir fyrir flest annað en leikhæfileika, en metnaður Freds er þó slíkur að sjálf- ur Shakespeare er tekinn til kost- anna; Skassið tamið með þau hjónin fyrrverandi í aðalhlutverkum, Petr- úsíó og Katrínar. Einn leikaranna í hópnum Bill Calhoun, er óforbetran- legur spiiafíkill og hefur safnað upp stórri skuld við glæpaforingja í borginni. Tveir skuggalegir hand- rukkarar gera sig heimakomna í leikhúsinu á frumsýningardaginn og það flækir óneitanlega málið að Bill hefur falsað nafn Fred undir skulda- viðurkenninguna. Handrukkararnir reynast þó meiri listunnendur en virðist við fyrstu sýn og eiga tals- verðan þátt í skemmtigildi sýningar- innar. Sumsé, Fred og Lilli, takast á bæði innan sviðs og utan. Þau eru ennþá ástfangin, það er greinilegt, en jafngreinilegt er að að ástin leysir ekki allan vanda þeirra. Handrukk- og Lilli eru engan veginn skilin að skiptum þó skilin séu. aramir flækja svo málið enn frekar og loks er það frumsýningin á Skass- inu sem auðvitað fer úr böndum þeg- ar Lilli og Fred halda áfram að leysa ágreining sinn þó kominn séu í bún- inga og aðrar persónur. Því má ekki á milli sjá hvort það er Fred sem notar feginn tæidfærið og flengir Lilli í hefndarskyni eða Petrusíó sem gerir það af hreinni gæsku fyrir hinni óstýrilátu heimasætu. Hvað segja Egill og Jóhanna Vig- dís um þetta spil allt saman. „Þetta er frábærlega skemmtilegur söng- leikur, með tónlist sem á fáa sína líka í þessum bransa og skemmtilegum söguþræði sem heldur öllum ágæt- lega við efnið,“ segir Egill og bætir því við að þetta sé auðvitað það sem gert hafi Kötu jafnvinsæla og raun ber vitni. „Þetta hefur verið sýnt út um allan heim og alls staðar við met- Handrukkararnir tveir luma á ýmsum hæfileikum þegar á reynir. aðsókn. Ekki síður núna en fyrir hálfri öld.“ Metaðsókn alls staðar Kysstu mig Kata tók Broadway með trompi árið 1948. Sýningar urðu alls 1077 og í London urðu þær 400. Ails staðar þar sem meistarastykki Cole Porters birtist á sviði sló það í gegn, jafnvel í Vínarborg hefur eng- inn annar söngleikur slegið metið sem Kysstu mig Kata setti þar á 6. áratugnum. Þjóðleikhúsið sýndi söngleikinn 1958 og fyrir tíu árum var hann sviðsettur á Akureyri. Og nú hefur Leikfélag Reykjavík- ur tekið „Kötu“ til sýninga í leik- stjóm Þórhildar Þorleifsdóttur leik- hússtjóra. „Stórsýning þar sem við leggjum mikla áherslu á að útlit sýn- ingarinnar sé sem glæsilegast, fal- IdlBt M Slappleiki og slen horfið ! Fæst i apótekum og ^^sérverslununwn^anc^allt^ „Eftir að ég byrjaði að taka Naten hefur slappleiki og slen horfið eins og dögg fyrir sólu. Mér líður miklu betur, er hressari jákvæðari og kem meiru í verk. Ég ætla að halda áfram að taka Naten." K Y N N I N G Lyf & Heilsa 1. hæð Krínglunni Laugardaginn 25.3 frá kl. 13-16 20% kynnmgarafsláttur legir búningar, fjölmenn dansatriði með þátttöku íslenska dansflokksins og frábærir tónlistarmenn undir stjóm Óskars Einarssonar," segir Þórhildur sem kveðst sannfærð um að Kysstu mig Kata eigi eftir að vinna hug og hjarta áhorfenda hér og nú sem fyrr og annars staðar. Það sem vekur sérstaka eftir- væntingu er að danshöfundurinn og búningahönnuðurinn koma frá Eng- landi og hafa ekki unnið hér áður. Þórhildur kveðst mjög ánægð með vinnu þeirra enda séu þetta hvom- tveggja þaulvanir atvinnumenn hvor á sínu sviði. Michele Hardy (danshöfundur) fæddist á Englandi en hlaut þjálfun hjá NewYork City Ballet og dansaði með Royal Winnipeg ballettinum og í söngleilgum á Broadway. Hún sneri aftur til Englands og dansaði á West End en einnig í kvikmyndum og sjónvarpi, m.a. í Oliver og Scrooge. Hún hefur samið dansa fyr- ir sýningar Ensku þjóðaróperunnar, Skosku ópemnnar, Opera North, Áströlsku óperunnar ofl. Hún hefur einnig samið dansa og leikstýrt söngleikjum á borð við West Side Story, Chicago og Showboat, og tek- ið þátt í sýningum hjá Royal Albert Hall í London og unnið að auglýsing- umog kvikmyndum. David Blight (búningar) stundaði nám við Wimbledon College of Art og lauk þaðan BA prófi í leikhús- hönnun. Hann hannaði búninga fyrir Salome og The Trial hjá Steve Berk- off við The Royal National Theatre og kvikmyndina Decadence með Joan Collins. Hann hefur hannað leikmyndir og búninga fyrir tólf heimsfmmsýningar á ópemm fyrir mismunandi óperahús, jiar á meðal Ensku þjóðarópemna, Skosku óper- una og Opera North. Betri en flestir söngleikir Egill rifjar upp að tónlist Cole Porters hafi náð langt út fyrir raðir söngleikjafólksins. „Á sjötta og sjöunda áratugnum sungu allir Leikarar og listrænir sljórnendur KYSSTU MIG KATA við tón- list og söngtexta eftir Cole Porter. Höfundar leiktexta: Sam og Belia Spivak. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir Leikarar: Ami Pétur Guð- jónsson, Baldur Trausti Hreins- son, Bjöm Ingi Hilmarsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Egg- ert Þorleifsson, Egill Ólafsson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldssson, Hera Björk Þórhallsdóttir, Jó- hanna Vigdís Amardóttir, Jón Hjartarson, Margrét Sigurðar- dóttir, Regína Ósk Óskarsdótt- ir, Sigrún Edda Bjömsdóttir, Stefán Stefánsson, Theódór Júl- íusson, Þórhallur Gunnarsson. Dansarar Islenska dans- flokksins: Cameron Corbett, Chad Adam Bantner, Guðmundur Helgason, Hildur Óttarsdóttir, Hlín Diego Hjálmarsdóttir, Jó- hann Freyr Björgvinsson, Júlía Gold, Katrín Ingvadóttir, Kat- rín Ágústa Johnson. Þýðing leiktexta: Gísli Rúnar Jónsson. Þýðing söngtexta: Egill Bjamason, Böðvar Guð- mundsson, Jón Hjartarson. Tónlistarstjóri: Óskar Einarsson. Danshöfundur: Michéle Hardy. Leikmynd: Stígur Steinþórsson Búningar: David Blight. Lýsing: Láras Bjömsson. Hljóð: Baldur Már Arn- grímsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.