Morgunblaðið - 24.03.2000, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 37
Morgunblaðið/Golli
Af sýningu Ingólfs Arnarssonar í Nýlistasafninu.
Hvít list
MYNDLIST
\v1istasafnið
BLÖNDUÐ TÆKNI
INGÓLFUR ARNARSSON,
ANDREAS KARL
SCHULZE, ROBIN VAN
HARREVELDOG HILMAR
BJARNASON
Sýningin er opin alla daga nema
mánudaga og stendur til 16. apríl.
LISTAMENNIRNIR fjórir sem
nú sýna í Nýlistasafninu tefla fram
naumari list en íslenskir sýningar-
gestir eiga að venjast, jafnvel þeir
sem að jafnaði sækja sýningar í Ný-
listasafninu. Mínimalísk framsetning
ræður ferðinni og svo langt er gengið
að gestum gæti við fyrstu sýn virst að
gleymst hefði að setja upp verkin,
sérstaklega þegar komið er upp í
SUM-salinn á efstu hæð þar sem
Andreas Karl Schulze hefur látið sér
nægja að líma nokkra smáa litaða
bómullarferninga á súlu en skilur
veggina eftir auða. Knöpp framsetn-
ing af þessu tagi er gegnumgangandi
í sýningunni.
Schulze býr í Köln og hefur undan-
farin ár einkum unnið verk úr litlum
bómullarfemingum eins og þeim sem
hann sýnir nú. Femingamir em lit-
aðir og verkin byggjast á því að raða
litunum saman og skoða hvemig
heildaráhrifin verða þegar ferningj
amir standa nokkrir saman á vegg. í
Nýlistasafninu hefur Schulze gætt
þess að setja ferninga sína á óvænta
staði, ekki á miðja veggi þar sem alla
jafna mætti búast við að sjá verk
hengd heldur til hliðar eða jafnvel á
súlu eins og í SÚM-salnum.
Robin van Harrevel frá Hollandi
er elstur listamannanna á sýningunni
og sýnir svart-hvítar ljósmyndir sem
liggja í bunka á borði í stað þess að
vera hengdar á veggi. Viðfangsefnið
er hversdagslegir hlutir, svo hvers-
dagslegir að stundum getur jafnvel
verið erfitt að átta sig á því að um yf-
irleitt sé um ljósmynd af einhverjum
sérstökum hlut að ræða, til dæmis
Uppspuni
frá rótum á
Húsavík
LEIKFÉLAG Húsavíkur frum-
sýnir Uppspuni frá rótum eftir
þingeyska þríeykið Armann Guð-
mundsson, Sævar Sigurgeirsson
og Þorgeir Tryggvason, á morgun,
laugardag kl. 17.
I fréttatilkynningu segir að
þetta sé fislétt og fyndin fjöl-
skyldusaga með söngvum. Leik-
stjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson,
tónlistarstjóri er Valmar Valjaots.
Leikritið var sérstaklega skrifað
fyrir Leikfélag Húsavíkur í tilefni
af 100 ára afmæli félagsins og 50
ára afmæli Húsavíkurkaupstaðar.
Þátttakendur í leikritinu þ.e.
leikarar og annað starfsfólk, eru
55.
Næstu sýningar eru þriðjudag-
inn 28. mars, föstudaginn 31. mars
og laugardaginn 1. apríl
þegar skoðuð er ljósmynd af óskrif-
uðu vinnubókarblaði.
Hilmar Bjamason, yngstur lista-
mannanna, hefur verið við nám í Vín
og Kaupamnnahöfn og verk hans -
hljóð- og myndbandsverk - þarfnast
meiri umgjarðar en framlag hinna.
Myndbandsverkin eru sýnd á nokkr-
um sjónvarpsskermum á gólfi í forsal
safnsins og sýna óljósar skugga-
myndir sem nær hverfa í snjó og
truflunum. Hljóðverkin má hlusta á í
heymartólum og era þau svipaðs eðl-
is og myndböndin, hávaði sem leysist
upp í truflunum og verður eins og
margradda suð. Verkin vinnur Hilm-
ar með framstæðum eða gamaldags
tækjum svo í raun virðist sem verið
sé að hlusta á traflanir úr búnaðinum
frekar en það sem tekið er upp.
Loks má sjá verk Ingólfs Arnar-
ssonar, sem jafnframt stjómar sýn-
ingunni í Gryfjunni á neðstu hæð
safnsins. Þar er um að ræða óhlut-
bundnar teikningar, unnar með blý-
anti beint á vegginn, en slíkar teikn-
ingar hafa verið helsta viðfangsefni
Ingólfs undanfarin ár.
Allir þessir íjórir listamenn eiga
það sammerkt að reyna að ganga
eins langt og hægt er til að leysa
listaverk sín upp og láta þau nánast
hverfa inn í umhverfið eða renna
saman við það. Bæði hvað varðar
framsetningu og innihald forðast þeir
alla persónulega túlkun eða táknun,
verkin merkja alls ekki neitt, miðla
ekki neinni sérstakri sýn á veraleik-
ann eða vekja nein sérstök hugrenn-
ingatengsl hjá áhorfandanum. Eftir
stendur formið eitt, miðillinn sjálfur
og tær, óhlutbundin framsetningin.
Þessi óvenju knappa og afdráttar-
lausa sýning er þrátt íyrir naumleik-
ann afskaplega heillandi. Þar ráða
auðvitað mestu öragg og fost tök
listamannanna á viðfangsefninu og
óvenju vel heppnuð samsetning
verka. Eins ólíkir og þeir fjórir era
sem nú sýna í Nýlistasafninu nær
sýningin að mynda öfluga heild og
miðla styrk hvers listamanns um leið
og verkin kallast á hvert við annað.
Jón Proppé
Sýningxim
lýkur
Listasafn íslands
Sýningu á verkum Svavars
Guðnasonar og Nínu Tryggva-
dóttur, í sal 3 og 4, lýkur nú á
sunnudag.
Nína og Svavar eru tveir
helstu fulltrúar abstrakt-
expressíónismans í íslenskri
myndlist.
Öll verkin á þessum sýning-
um era í eigu Listasafns Is-
lands.
Safnið er opið alla daga, nema
mánudaga, kl. 11-17.
Listamiðstöðin Straumur
v/Reykjanesbraut
Málverkasýningu Árna Rún-
ars Sverrissonar lýkur á sunnu-
dag. Ami hefur unnið á vinnu-
stofu í Straumi sl. fimm mánuði.
Sýningin er opin frá kl. 11-18.
Með blaðinu
*
a morgun
44 síðna blaðauki
um fermingar
fylgir Morgunblaðinu
á morgun.
DENVER
fullorfl.jakkl
flísfóðraður
með öndunarfilmu
Stærðir: S-XL
Sifefc.... Litír: 6
FJORD
fullorð.flís
2.9S0
áður 8.600
Stærðlr: S-XL
Lltir: 5
töppurtfitví/útUút
Stofnaö 1913
Eyjarslóð7 Reykjavík Sími511 2200
íbróttir á Netinu
ég> mbl.is