Morgunblaðið - 24.03.2000, Side 42

Morgunblaðið - 24.03.2000, Side 42
! ý42 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 Væðing af vondri sort Nekt ogklám eru óþjóðlegfyrirbrigði og falla ekki að íslenskri menningu. Eftir Asgeir Sverrisson FLESTU ermisskipt og því miður er það svo að fáum þjóðum gefast tilefni til að gleðjast yfir eigin framgöngu í sama mæli og Islend- ingum. A þeim miklu breytinga- tímum, sem við nú lifum, sannast enn á ný hversu dýrmætum krafti íslensk þjóð býr yfir. Alkunna er að útlendingar eru ekki jafn „opn- ir íyrir“ nýjungum og menningar- þjóðin dáða í norðri. Það er ekki síst sökum þessa eiginleika, sem íslendinga bíður forustuhlutverk á flestum sviðum í heimi framfara og stórbrotinna tækninýjunga. íslendingar eru þjóð „væðing- anna“. „Tölvuvæðingin" hefur nú þeg- ar tryggt íslendingum forskot á aðrar þjóðir. Á nær öllum heimil- um landsins má finna tölvubúnað, sem erlendir menn þekkja aðeins úr alþjóðlegum stórfyrirtækjum. Þessi nýja tækni, sem er göldrum uhiuadc líkust í huga * wniFnr okkar hinna eldri, hefur sýnilega í för með sér að kunnátta íslenskra ungmenna í íramandi tungumálum svo sem ensku eykst til mikilla muna eins og heyra má á þeim upp- hrópunum, sem notkun búnaðar- ins íylgir. Að auki er við- bragðsflýtir þeirra greinilega annar og meiri en fyrri kynslóða líkt og hver og einn fær greint, sem fylgist dálitla stund með afa- baminu fi-emja fjöldamorð í bráð- skemmtilegum tölvuleik, sem er svo raunverulegur að undrun og kátínu vekur. Uppeldisgildi tölvunotkunar er ótvírætt enda er okkur sagt að enginn fái haldið velli, sem aðlag- ast ekki hraða nútímans. Vissulega er erfitt að skilja „hnattvæðinguna“ til fullnustu en greinilegt er að íslendingar hafa tekið henni fagnandi. Er það vafa- laust tengt þeirri yfirburðakunn- áttu, sem yngra fólk í þessu landi ræður yfir í enskri tungu en hlut- ur annarra erlendra mála mun vera lítill og minnkandi í töfra- heimi intemets. Haldbetri rök fyrir því að dönskukennsla verði aflögð í skólum hafa enn ekki komið fram enda er haft fyrir satt að enn hafi enginn íslendingur verið ráðinn til starfa hjá Evrópu- sambandinu sökum kunnáttu í því tungumáli. „Hnattvæðingin" virðist enn- fremur hafa haft þjóðlegt aftur- hvarf í för með sér. Þannig muna þeir sem eldri eru að fyrr á tíð þótti sjálfsagt að tala illa um nafn- greinda einstaklinga á Islandi. Þessi þjóðlegi siður lét síðan, því miður, nokkuð undan en sökum „hnattvæðingarinnar" þykir á ný við hæfi að íjallað sé bæði um ein- staklinga og þjóðfélagshópa sem vesalinga, er aldrei fái staðist kröfúr nútímans. Síðast en ekki síst hefur „hnattvæðingin“ haft í för með sér að Islendingum gefast nú fleiri tækifæri en áður til að ræða um peninga, sem sýnast ætla að verða helsta áhugamál þjóðarinnar á eftir einkahögum annars fólks og öllum hugsanleg- um birtingarformum mannlegrar ógæfu. íslendingar hafa einnig tekið „markaðsvæðingunni“ svonefndu opnum örmum og vart er það að undra; loksins gefst nú færi á að koma á sæmilegri misskiptingu í þjóðfélaginu rétt eins og tíðkast í öðrum menningarríkjum. Jöfnuð- urinn, sem forðum einkenndi sam- félagið, hafði óneitanlega kallað fram minnimáttarkennd hjá þjóð- inni alltof lengi. Yngra fólk gerir sér ef till vill ekki ljóst, að íslend- ingar voru oftar en ekki spyrtir saman við þjóðir Norðurlanda og sambærilega fulltrúa jafnaðar, meðalmennsku og yfirþyrmandi leiðinda í heiminum. „Símavæðingin" er síðan lyg- inni líkust og þegar hugsað er til baka er í raun óskiijanlegt að hvarfla skyldi að nokkrum manni að leggja upp í vélsleðaleiðangur án þess að með í för væri búnaður, sem gerði kleift að greiða rafork- ureikninginn af hálendinu. Frekari „hirðvæðing" for- setaembættisins nýtur yfir- gnæfandi fylgis. íslendingar eru því hæstánægð- ir með „væðingarnar". Allar nema „klámvæðinguna". Nýjungagirni þjóðarinnar á þessu sviði veldur vonbrigðum eins og jafnan þegar ekki er brugðist tímanlega við óæskilegu erlendu áreiti. Nekt og klám eru óþjóðleg fyrirbrigði og falla ekki að íslenskri menningu. Stúlkur þær, sem kasta af sér fotunum fyrir peninga í menningarborginni Reykjavík, munu enda flestar tala erlend tungumál auk þess að vera vændiskonur og eiturlyfjasjúkl- ingar. Að auki er fatnaðurinn, sem þær fella, Islendingum framandi og svo óhentugur í því loftslagi, sem hér ríkir, að meiri undrun vekur að þær skuli klæðast honum en afklæðast. Rétt er það, Grettir Ásmundar- son klæmdist. En þar var um að ræða lögmæta vörn hans við frýj- unarorðum griðkonu, sem veittist að honum fyrir neðan beltisstað og hlaut makleg málagjöld. Spurt hefur verið hvers vegna ráðamenn og lögregla láti „klám- væðinguna“ viðgangast, sem ýti undir kvenfyrirlitningu, ónáttúru og misnotkun barna, ferfætlinga og fiðurfénaðar. Áður en menn taka að gagnrýna lögregluna, mik- ilvægustu þjónustustofnun samfé- lagsins, ættu þeir að huga að því álagi, sem hlýtur að vera samfara rannsóknum af þessu tagi: - Sæl góða. - Sæll vinur, hvemig var í vinn- unni? - Bara eins og venjulega. Varð- stjórinn sendi mig út í hádeginu að kaupa malt og skoða klámblöð. Síðan fór ég í myndböndin. - Erfitt? - Söguþráðurinn er stundum rosalega flókinn. Ég er t.d. enn ekki búinn að átta mig á hvað pyg- mýamir og kamel-dýrin em að gera þarna. Hvar er Þrúðsteinn? - Inni í herbergi, á intemetinu, eins og venjulega. Skáld-Sveinn þekkti vargöld, vindöld, skálmöld, og skeggöld en þrátt fyrir mikla framsýni hvarfl- aði ekki að honum að klámöld yrði þröngvað upp á eðlilegt fólk í þessu landi. Mótun opinberrar nektarstefnu, sem samgöngu- ráðherra hefur haft forystu um, vekur vonir. Þótt yfirþyrmandi og viðurstyggilegt siðleysi kunni að tíðkast í löndum þar sem hitinn hefur lamað allan framkvæmda- vilja manna og sólin rúið fólk sjálfsvirðingu er það engan veginn sæmandi menningarþjóð sem Is- lendingum að taka upp nektar- dýrkun og hvatalíf suðrænna manna, sem hvorki þekkja fald né stokkabelti. MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Menningarsam- starf Islands og Bonn-borgar Andreas Guðmundur Sigurður Loesch Emilsson Bragason Hin glæsilega listadag- skrá Reykjavíkur, einn- ar af níu menningarhöf- uðborgum Evrópu árið 2000, hefur að vonum vakið athygli í Evrópu- löndum, segir Andreas Loesch, ekki síst í Þýskalandi, þar sem áhugi á íslenskri menn- ingu og listum á sér djúpar rætur. ETTA á ekki síst við um íbúa í Bonn, sem um ára- tugi var ríkisstjórnarset- ur sambandslýðveldisins, en borgin sækist nú eftir því að verða menningarhöfuðborg Evrópu innan tíðar. Menningaryfirvöld í Bonn telja sig geta lært töluvert af systurborgum í Evrópu, þar sem menningarlíf blómstrar vel, en von- ast jafnframt til þess að geta átt gott samstarf við yfirvöld menning- armála og listamenn sem flestra landa. Menningarsamstarfið hefur yfirleitt tengst Sumarlistahátíðinni í Bonn, sem um árabil hefur verið ein umfangsmesta og fjölbreyttasta listahátíð sinnar tegundar í Þýska- landi. Ný áætlun um menningarsamvinnu Borgarstjórnin í Bonn hefur nú samþykkt nýja og umfangsmikla áætlun um alþjóðlega samvinnu á sviði lista og menningar við ýmsar borgir víða um heim. Að þessu sinni er áhersla lögð á samvinnu við nokkrar borgir í Mið-Asíu, Afríku, Bandaríkjunum og Suður-Ameríku. Evrópa er ekki undanskilin í nýju áætluninni, frekar en áður, og er gert ráð fyrir að borgunum Murcia á Spáni, Salzburg í Austurríki og Reykjavík verði boðið til samstarfs. Með áætluninni er leitast við að skapa nýtt fyrirkomulag í samskipt- um borga á milli, sem jafnframt nái út fyrir hið hefðbundna vinabæjar- samband. Reynt verður, að taka upp samstarf við svæði, sem þýskar borgir hafa ekki átt samstarf við áð- ur, til dæmis í nýju lýðveldunum í Mið-Asíu. Einnig er leitast við að hafa í huga aðra mikilvæga þætti í samskiptunum samhliða menning- arsamskiptum, t.d. hið svokallaða „norður-suður“ samstarf í anda Sameinuðu þjóðanna, ekki síst inn- an ramma umhverfisáætlunar sam- takanna (Agenda 21), en þess má geta, að skrifstofur samnings Sam- einuðu þjóðanna til að sporna við eyðimerkurmyndun hafa aðsetur í Bonn. í því sambandi er ætlunin að efna til samstarfs við borgir á svæð- um, sem ógnað er af eyðimerkur- myndun, t. d. borgir í Mið-Asíu og Afríku. Menningarsamstarf með stuðningi ESB Sem fyrr segir hafa borgir í Evrópu ekki verið undanskildar í menningarsamstarfi Bonn-borgar. Mikil reynsla er nú komin á sam- starf við ýmsar borgir í ESB-ríkj- um með stuðningi Evrópusam- bandsins, en eins og kunnugt er geta EES-þjóðir einnig notið góðs af hinni umsvifamiklu menningar- samvinnu Evrópusambandsins. Borgaryfirvöld í Bonn hafa því áhuga á að fá til liðs við sig sam- starfsaðila, til að hrinda í fram- kvæmd áætlunum, sem njóta stuðn- ings Evrópusamvinnunnar. Það gefur mikla möguleika í sambandi við fjölhliða menningarsamstarf Is- lands innan Evrópu, að Island er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu og því gjaldgengur aðili í sameigin- legum menningaráætlunum, sem styrktar eru af Evrópusambandinu. íslenskar listahátíðir í Bonn og Nordrhein-Westfalen íslenskir listamenn hafa notið góðs af þessum áhuga stjómar menningarmála í Bonn á samskipt- um við Island. Fyrir um tíu árum tókst með Bonn og íslendingum gott samstarf, sem náði hápunktum með íslenskum listahátíðum, „Kult- ur aus Reykjavík" árið 1993 innan ramma Sumarlistahátíðarinnar í Bonn og „Kultur aus Island“ árið 1995 í nokkrum borgum sambands- landsins Nordrhein-Westfalen; Bonn, Bielefeld, Dússeldorfj Kref- eld og Köln. Forgöngu af Islands hálfu í þessu samstarfi hafði ís- lenska sendiráðið í Bonn undir for- ystu sendiherranna Hjálmars W. Hannessonar og Ingimundar Sig- fússonar. Fjölmargir aðrir íslenskir aðilar lögðu þar hönd á plóginn, til að gera þátttöku íslendinga sem veglegasta, þeirra á meðal Reykvík- urborg, Kjarvalsstaðir, menntamál- aráðuneytið og utanríkisráðuneytið. Reykvíska listahátíðin í Bonn 1993, sem opnuð var af Markúsi Erni Antonssyni, þáverandi borgar- stjóra, var umfangsmesta íslenska menningardagskrá, sem haldin hafði verið í Þýskalandi. Á hátíðinni var m.a. haldin stærsta sýning á verkum Jóhannesar Kjarvals, sem þá hafði verið haldin utan Islands. Islenska menningarkynningin í Nordrhein-Westfalen 1995 var opn- uð í Bonn af Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra. Viðstaddur var einnig Hans Schwier mennta- málaráðherra Nordrhein-West- falen. í tengslum við hátíðina fór einnig fram sérstök miðsumarhátíð í Augústusborgarhöll við Köln í boði Jóhannesar Rau, núverandi forseta Þýskalands, sem þá var forsætis- ráðherra Nordrhein-Westfalen. Of langt mál yrði að telja upp all- an þann fjölda íslenskra lista- manna, sem komið hafa fram í Bonn-borg á síðustu árum, en þeir eru örugglega vel á þriðja hundrað. Aftur á móti skiptir það mestu máli, að íbúar í Bonn hafa fengið að kynn- ast afburða listamönnum, eins og Tríói Reykjavíkur og Kammersveit Reykjavíkur, nýjustu íslensku kvik- myndunum, Islenska dansflokkn- um, verkum afburða rithöfunda, sem þýdd hafa verið á þýsku, eins og Einars Kárasonar og Einars Heimissonar, Jazzkvartetti Reykja- víkur, verkum ungra myndlistar- manna og ljósmyndara. Mikið ánægjuefni var heimsókn hins sérstaka leikhóps, Perlunnar, undir forystu Sigríðar Eyþórsdótt- ur, sem sýndi verkið „Midas kon- ungur í Bielefeld“ og dvaldi þar síð- an í eina viku í samstarfsverkefni með leikhópum fatlaðra í Þýska- landi. Ný íslensk tónlist Á listahátíðunum í Bonn var leit- ast við sýna hina fjölbreytilegu nú- tímamenningu Islendinga. Það var ekki síst lyftistöng í þeim efnum, að samstarf komst á við Guðmund Em- ilsson hljómsveitarstjóra, sem gerði hvert stórvirkið á fætur öðru. Á listahátíðinni 1993 gekkst hann fyr- ir eftirminnilegri kynningu í Beet- hoven Haus á íslenskum nútímatón- skáldum, m.a. Þorkeli Sigur- björnssyni, á tónleikum Ensamble Instrumental de Grenoble, ásamt íslenskum einleikurum og söngvur- um. Á listahátíðinni 1995 stjórnaði Guðmundur konsertfrumflutningi óperunnar Tunglskinseyjan eftir Atla Heimi Sveinsson, með Sigurð Bragason bariton og Signýju Sæ- mundsdóttur sópran í aðalhlutverk- um. Hljómsveitarstjórn Guðmund- ar Emilssonar á Baltnesku fíl- harmóníuhljómsveitinni í Riga hefur vakið verðskuldaða athygli, eins og nýjasti geisladiskur hennar með forleikjum og aríum úr óperum Mozarts og söng Sigurðar Braga- sonar baritons ber glæsilegan vott um. Áframhaldandi menningarsamstarf Listahátíðimar í Bonn urðu einn- ig hvati að því að komið var á lagg- irnar reglulegum fundum embætt- ismanna í menningarmála- og utanríkisráðuneytum og sendiráð- um landanna, til að fjalla um menn- ingarsamvinnu. Til funda þeirra hefur einnig verið boðið fulltrúum ýmissa menningarstofnana, auk þess sem menntamálaráðuneyti sambandslandsins Nordrhein- Westfalen hefur einnig tekið virkan þátt í þessum skoðanaskiptum. Þessi skoðanaskipti hafa orðið til að treysta samskipti ríkjanna í menn- ingarmálum og eiga eftir að nýtast vel í framtíðinni. Hin nýja menningarsamstarfs- áætlun Bonn-borgar ber vott um hinn góða árangur af samstarfinu við íslendinga og vilja til að halda áfram á sömu braut. Hún verður vonandi einnig hvatning til Islend- inga um að gera fleiri þýskum lista- mönnum kleift að koma til íslands. Höfundur er yfírmaður AI- þjóðadeildar inenningarmálaskrif- atofu Bonn og framkvæmdastjóri sumarlistahátfðarinnar í Bonn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.