Morgunblaðið - 24.03.2000, Síða 45

Morgunblaðið - 24.03.2000, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 4S Lögbrot framið á öryrkj- um og lífeyrisþegrim Ársmeðaltal 1999 Bætur Hvaða vísitala sem not- uð er og hvernig sem út- reikningum er háttað kemur aldrei önnur nið- urstaða en sú, segir Ogmundur Jónasson, að bætur til lífeyrisþeg- ans eru annað hvort lægri en launavísitala eða launaþróun. Tryggingastofnun ríkisins. Eins og hér má sjá hefur ríkisstjórnin ekki einu sinni farið að lögum gagnvart þeim á nýliðnu ári hvað þá að nokkur tilraun hafi verið gerð til að bæta kjör þeirra og gefa þeim réttmætan hlut í margrómuðu góð- æri. Hvaða vísitala sem notuð er og hvernig sem útreikningum er háttað kemur aldrei önnur niður- staða en sú að bætur til lífeyris- þegans eru annað hvort lægri en launavísitala eða verðlagsþróun. Þetta sýndi ég fram á í utandag- skrárumræðu á Alþingi fyrir fáein- um dögum. Astæðan fyrir því að þetta er nú tíundað á síðum Morg- unblaðsins er að fram komu í fjölmiðlum efasemdir um að hér hafi verið um réttar fullyrðingar að ræða - eða markvissan mál- flutning eins og einkunnagjöfin hljómaði í hádegisfréttum Ríkis- útvarpsins daginn eftir umræðuna á þingi. f besta lagi blekking Að mínum dómi er grundvallara- triði að greiðslur til öryrkja og líf- eyrisþega hækki aldrei minna en nemur hækkunum á lægstu kaup- töxtum - og eins og fyi-r er getið hafa slíkir kauptaxtar hækkað helmingi meira á síðustu sjö árum Hækkun frá jan. '99 -jan. '00 5.27 % 5,80 % 3,60 % Hækkun frá des. ’98 - des. '99 5,68% 5,60% 6,20% FYRIR nokkrum dög- um sendi ríkisstjórnin frá sér yfirlýsingu „í tengslum við kjarasamn- inga“ og er þar meðal annars kveðið á um hækkanir á greiðslum almannatrygginga, 4,5% á þessu ári, það er 0,9% umfram þá hækkun sem kom í byrjun árs; síðan 3% á árinu 2001, 3% á árinu 2002 og að lokum 2,25% á árinu 2003. Samanlagðar eru þessar prósentutölur 12,75% á fjórum árum en sam- kvæmt framreikningi 13,36%. Þetta er svipuð prósentuhækkun og Flóabandalagið samdi um, en þá má ekki gleyma því að lægstu laun samkvæmt þeim samningum hækka um 30% á samningstímabil- inu. Af þessu er augljóst að bilið á milli þeirra sem eru á lágum kaup- töxtum annars vegar og hinna sem þurfa að reiða sig eingöngu á bæt- ur almannatrygginga hins vegar mun aukast á komandi árum. Hér er ekki á bætandi í ljósi þeirrar óheillaþróunar sem orðið hefur á undangengnum áratug hvað þetta snertir. Vont versnar Frá 1993 til 1999 hækkuðu lágmarkslaun um 52%, en grunnlífeyrir, tekjutrygging, heim- ilisuppbót og sérstök heimilisupp- bót auk eingreiðslna, um 30%. En hafa ber í huga að á þessu tímabili kom til sérstakrar hækkunar á heimilisuppbót vegna niðurfelling- ar á eftirgjöf á afnotagjaldi út- varps og sjónvarps og ársfjórðung- sgjaldi fyrir síma. Þegar þetta er tekið með í reikninginn lætur nærri lagi að helmingsmunur sé á kjaraþróun þessara hópa. Ef við lítum fram á veginn í ljósi fyrir- ætlana stjórnvalda mun að óbr- eyttu enn gliðna þarna á milli. Lágmarkslaun verða komin í 91 þúsund krónur eftir þrjú ár ef að líkum lætur. Einstaklingur sem býr einn og fær einvörðungu bæt- ur frá Tryggingastofnun hefur nú 69.598 kr. en verður árið 2003 kominn í 76.154 kr. samkvæmt yf- irlýsingunni. Þeir sem hins vegar eru í sambúð eða giftir fá hins veg- ar nú 48.253 kr. á mánuði en munu að öllu óbreyttu fá 52.798 kr. að þremur árum liðnum. Hér er ekki minnst á þá einstaklinga sem búa við þá köldu staðreynd að tekjur maka þeirra skerða bæturnar þannig að þegar upp er staðið geta þeir endað með 15.692 kr. í tekjur. Það er tals- verður vegur frá þessum upphæðum og upp í lágmar- kskauptaxta. Út af fyrir sig er þetta nógu slæmt, reyndar svo slæmt að við það verður ekki unað. Ekki er þó öll sagan sögð því við skoðun kem- ur í ljós að ríkisstjórnin hefur þeg- ar brotið gegn lögum um hækkun bótagreiðslna almannatrygginga. Þegar ríkisstjórnin rauf sam- bandið á milli lágmarkslauna og bótagreiðslna um miðjan tíunda áratuginn var því ákaft mótmælt af hálfu samtaka elli- og örorkulíf- eyi'isþega og samtaka launafólks. Þótt ekki væri fallist á að koma þessum tengslum á að nýju fékkst það í gegn árið 1997 að lögfest var ákvæði sem er að finna í 65. grein almannatryggingalaga þar sem segir að bætur almannatrygginga skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni og svo vitn- að sé orðrétt í greinina þá „... skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neyslu- verðs“. Frá lögum til framkvæmdar Lítum á framkvæmd þessara laga og horfum til síðasta árs. Hver skyldi verðlagsþróun hafa verið á síðasta ári? Spyrjum enn- fremur um launaþróunina og að lokum um hækkun bóta almanna- trygginga. Nú er okkur einn vandi á höndum og hann er sá að menn nota mismunandi reikningsaðferð- ir við útreikninga af þessu tagi. Þess vegna ætla ég að bregða á það ráð að setja upp í eftirfarandi töflu útreikninga sem byggja á mismunandi forsendum: Hækkun bóta með eingreiðslum 5,26 % Vísitala neysluverðs 3,23 % Vísitala launa 6,80 % Sá hópur sem hér er notaður til viðmiðunar eru þeir sem búa einir og hafa engar aðrar tekjur en frá en greiðslur í almannatrygginga- kerfinu. Ef ekki á að miða við þessa kauptaxta eins og krafist Ögmundur Jónasson Mesta þræla- ríki nútímans BISKUP íslands hefur skörulega bent á við hvaða áþján börn búa í Indlandi, en þar eru þau hneppt í þrældóms áþján í þúsundatali, ef ekki tugþúsundatali. Þarf ekki að fara mörgum orðum um, hversu óguðlegt ríki Indland er, en þar tíðkast allt, sem kristnir menn fordæma, og margt í hávegum haft. Þar eru konur færðar á bál að brenna lifandi með dauðum mönnum sínum, börn færð í þrældóm vegna skulda foreldra eða seld eins og kvikfénaður, og þjóðfélagið í heild er byggt á kenningum um óyfirstíganlega múra stéttaskiptingar (kastakerfinu) og þeir sem þar eru lægstir hafa engan mannlegan rétt. Þrátt fyrir fagurt ytra byrði á stundum er Indland eitt ógeðfelld- asta ríki veraldarinnar. Það hefur komið fram_ í fréttum, að for- seti Islands ætli að fara í opinbera heimsókn í þetta ríki. Mér er sú heimsókn óskiljanleg. Af hverju eiga Islend- ingar að senda forseta sinn til að skála við foringja Ind- lands? Forseti Islands á ekki að sækja þrælaríki eins og Indland Indland Forseti íslands, segir Haraldur Blöndal, á ekki að sækja þrælaríki eins og Indland heim. heim. íslendingar eiga ekki að hafa viðskipti við ríki, sem er grundvall- að á mannfyrirlitningu og mann- hatri. Væri ekki nær að sleppa þess- ari heimsókn og afhenda féð, sem sparast, til biskups, að hann geti keypt indverskum börnum frelsi úr áþján sinni? Það yrðu mörg börn. Höfundur er lögfræðingur. Haraldur Blöndal hefur verið, þá verður ríkisstjórnin að gera sér grein fyrir því að hún er bundin af því í landslögum að taka skuli mið af almennri verð- lags- og launaþróun í landinu þeg- ar hækkanir á gi-eiðslum almanna- trygginga eru annars vegar. Undan þessu lágmarksskilyrði get- ur hún ekki vikið sér. Nýleg yfirlýsing ríkisstjórnar- innar gagnvart lífeyrisþegum og öryrkjum er í besta lagi blekking- arleikur - í versta lagi hefur hún í för með sér lögbrot og kjaraskerð- ingu fyrir lífeyrisþega og öryrkja. í yfirlýsingunni er gert ráð fyrir hækkunum til öryrkja og ellilífeyr- isþega í samræmi við lágmarksum- samda launaþróun. Það er lög- bundið eins og hér hefur verið rakið. Ef hins vegar verðlagsþróun er hærri en þessum hækkunum nemur verða þessir hópar hlunn- farnir. Yfirlýsingin gefur þessum hóp- um ekki meiri kjarabætur en nú- verandi lög kveða á um - en út- koman getur hins vegar orðið lakari ef verðlags- eða launaþróun verður umfram þær hækkanir sem kveðið er á um í yfirlýsingunni. Höfundur er alþingismaður og form. BSRB. SLIM-LINE dömubuxur frá gardeur öðuntv tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 Byggingaplatan WDK©(S® sem allir hafa beðið eftir VlROC®byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf VIROC*byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi VlROC®byggingaplötuna er hægt að nota úti sem inni VIROC® byggingaplatan er umhverfisvæn VIROC®byggingaplatan er platan sem verkfræðingurinn getur fyrirskrifað blint. PP &CO Leitið frekari upplýsinga Þ.hORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 8 568 6100 Spindillæsing 600w, 115mm Lipur og léttur Fyrir iðnaðar- manninn 4.995 kr. HUSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is HITACHI SKpirokkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.