Morgunblaðið - 24.03.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 63
<
BRÉF TIL BLAÐSINS
Er saimleikuriim sár?
Frá Hinriki Má Ásgeirssyni:
ÉG ER kannski það ungur og
óreyndui’ að sumir hlutir séu einfald-
lega enn sem
komið er ofar
mínum skilningi.
Lífið hefur kennt
mér margar stað-
reyndir og hefur
sú kennsla reynst
trú og sönn í
flestum tilvikum.
Ein staðreyndin
er sú að þegar ég
greiði fyrir eitt-
Hinrik Már
Ásgeirsson
hvað þá fæ ég það, einfalt og skýrt.
Annað sem ég hef lært er að þegar
ég fæ greitt fyrir eitthvað þá mynd-
ast hagsmunir og þá er betra að
standa við gefln orð. Þriðja stað-
reyndin er sú að ef eitthvað er ólög-
legt þá á maður að láta það eiga sig
og hafa ekkert með það að gera.
Fjármál sljórnmálaflokka
Hvað varðar fjármál pólitískra
flokka sem bjóða sig fram sem full-
trúar almennings þá finnst mér það
dapurlegt að umræðan sem á sér
stað um að setja reglur um fjármál
stjórnmálaflokka skuli vera slíkt
deilumál. Eins og staðan er í dag hjá
stjórnmálaflokkum mætti halda að
þeir fylgdu fótboltareglum þegar
kemur að siða- og bókhaldsreglum.
Mætti í raun segja að alþingismenn-
irnir ættu skilið gula spjaldið fyrir
kjaftbrák og óheiðarlegan leik!
Meira að segja nemendafélög
menntaskóla, sem talin eru velta
samtals um 130-150 milljónum
króna fylgja flest strangari reglum.
Það liggur klárt fyrir öllum sem vilja
sjá það að ef einhver borgar flokki
stórar fjárhæðir þá myndast hags-
munir. Þetta er staðreynd og það
hljóta viti bornir menn á Alþingi að
sjá. Er það ekki sjálfsögð krafa al-
mennings, þ.e.a.s. þeirra sem þessir
menn vilja vera í forsvari fyrir, að
einhverjar reglur séu til staðar til að
tryggja að það myndist ekki það
miklir hagsmunir að peningar fari að
vera ígildi atkvæða og hugsjóna?
Eða er það kannski skoðun ríkis-
flokkanna að þeir tapi fleiri atkvæð-
um á að samþykkja slík lög heldur en
að láta þau eiga sig? Tillagan hefur
verið lögð fram fímm sinnum áður á
þingi og í öll skiptin hent í ruslaföt-
una! Ríkisskattstjóri telur alltént til-
löguna til bóta og hlýtur það að telj-
ast hið besta mál. Hins vegar telur
Ríkisendurskoðun það ekki eðlilegt
að hafa skoðun. Stendur hún þar
með ekki undir síðari hluta nafns
síns!
Vill íslenskur almenningur hafa
myrkur yfir fjármálum þess flokks
sem hann kýs? Ég. hef a.m.k áhyggj-
ur og vona innilega að fleiri deili
þessum áhyggjum með mér. Fyrir
mér er grundvöllur þess að fjár-
magnið taki ekki völdin í lýðræðis-
ríki (þinglýðræðisríki) okkar að sett-
ar séu reglur þannig að ekki sé hægt
að beita fjármagni til að hafa áhrif á
stefnu flokka. Ef almenningur vill
aftur á móti hafa myrkur yfir fjár-
málum flokkanna þá legg ég til að við
köllum okkur markaðslýðveldi.
Ég er alls ekki að halda því fram
að þingflokkarnir hafi eitthvað
óhreint í pokahominu. Ég er einung-
is að skýra frá þeirri hættu sem það
hefur í för með sér að hafa engar
reglur um fjármál flokka. Þó svo að
engin spilling eigi sér stað í dag þá er
það engin trygging fyrir því að svo
muni vera um ókomna tíð.
Lokaorð
Ég vil búa á Islandi. Ég vil búa í
lýðræðisríki (sætti mig við þingræði
eins og er). Ég vil ekki búa á landi
þar sem atkvæði mitt er selt velvild-
armönnum stjórnmálaflokka. Ég hef
kynnt mér frumvarp til laga um
starfsemi og fjárreiður stjómmála-
samtaka sem Össur Skarphéðinsson
og Jóhanna Sigurðardóttir fluttu
fyrir þingið. Það er ekkert í þessu
fmmvarpi sem skaðar (eða ætti að
skaða) stjórnmálaflokka þessa lands.
Ég bið bara alþingismenn um að
muna að sannleikurinn er sagna
bestur. En eins og ég sagði er ég
ungur og óreyndur. Kannski skil ég
betur mátt peninga þegar ég verð
eldri. Þá mun ég öragglega hlæja
dátt að því hve óreyndur og saklaus
ég var er ég var ungur.
HINRIK MÁR ÁSGEIRSSON,
meðlimur í Ungum
j afnaðarmönnum.
Kvóti og Kanarí
Frá Guðmundi Bergssyni:
GUÐMUNDUR Þórarinsson skrifar
grein í Dagblaðið 8.3. um kosninga-
loforð og kvótamál. Hann vitnar í
kosningaræðu utanríkisráðherra um
að fólki væri misboðið þegar menn í
útgerð hættu í greininni og færa út
með gríðarlegar fjárhæðir og taldi
hann að skattleggja bæri söluhagn-
aðinn. Ekki hefur ráðherrann
minnst á þetta eftir kosningar. Nóg
hefur þó þetta verið í umræðu að
undanförnu eftir að einn aðili seldi
hlut sinn í kvótahæsta útgerðarfyrir-
tæki landsins en það er ekki víst að
Halldór hafl frétt af því. Þarna var
verið að selja þjóðareignina fiskinn í
sjónum sem þeir höfðu í upphafi að-
eins leyfi til að veiða en ekki selja
sem sína eign enda var í upphafi ekki
gert ráð fyrir að þeir eignuðust fisk-
inn í sjónum. Það var bara veiðileyfi.
Ef bara skipin hefðu verið seld í um-
ræddu tilfelli, hefði ekld fengist
mjög hátt verð fyrir þau, þrátt fyrir
að þau séu góð, svo það er fiskurinn i
sjónum sem hleypir upp verðinu.
Halldór sagði nú fleira fyrir kosning-
ar t.d. að hann ætlaði að beita sér
fyrir stór átaki til að útrýma eitur-
efnavandanum sem er að eyðileggja
mannlíf á íslandi. Ekki bólar á því
eftir kosningar að hugur hafi fylgt
máli frekar en í kvótamálinu, en það
er alvanalegt að það sem sagt er fyr-
ir kosningar komi ekki strax að þeim
loknum og er þá vanalega svarið, ef
eftir þeim loforðum er spurt, að mið-
að sé við að gera það á kjörtímabilinu
þannig að þetta getur aðeins dregist.
í sáttmála stjórnarflokkanna er lof-
að að skipa nefnd til að endurskoða
fiskveiðistjómunina. Sú nefnd hefur
ekki enn verið skipuð. Guðmundur
segir að áhugahópur um auðlindir í
almannaþágu hafi skrifað sjávarát-
vegsráðherra bréf og óskað eftir við-
ræðum fyrir þrem mánuðum en ekk-
ert svar hefur ennþá borist enda era
póstsamgöngur milli Hafnarfjarðar
og Reykjavíkur sjálfsagt ei’fiðar nú í
ótíðinni. Guðmundur hefur mikið álit
á Davíð og er ekki einn um það ef
marka má skoðanakannanir. Þess-
vegna reiknar hann með því að hann
grípi inní gang mála eins og oft áður
nú í kvótamálinu og væri ekki van-
þörf á þegar svo er komið að eitt út-
gerðarfyrirtæki á eða hefur umráð
yfir um 7% af kvótanum. Það er nú
svo komið að þau tíu útgerðarfyrir-
tæki sem mest hafa eiga hátt í 40% af
kvótanum (samkvæmt kvótabók-
inni). Tíu fyrirtæki hafa náð til sín
þetta stóram hluta af fiskinum í sjón-
um, sameign allra landsmanna, þjóð-
areigninni, eins og ráðamenn þjóðar-
innar segja stundum þegar þeim
finnst það eiga við. Guðmundur hef-
ur ekki horft á Davíð í sjónvarpi þeg-
ar rætt var um kvótadóm á Vest-
fjörðum í Kastljósi. En þá sagði
Davíð að ef sá dómur yrði eins í
Hæstarétti myndi það rásta allri út-
gerð og atvinnulífi á íslandi og þá
væri ekkert annað að gera en loka
öllu hér og flýja hólmann og flytja til
Kanarí. Svo mörg vora þau orð.
Vestfirðingar hafa alla tíð verið
harðir í horn að taka enda lifað mest
á trosi allt frá dögum Þuríðar Sunda-
fyllis og þeir vilja halda því áfram.
Ef Vestfirðingar verða ei góðir
VillhannDavíðtakafrí
Suðrænar á siglir slóðir
Sest hann að á Kanarí.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
INNROMMUNCO
O
FAKAFENI 11 * S: 553 1788
Rógurinn
um f SAL
Frá Hlöðveri Kristjánssyni:
Á VEFSÍÐU ASÍ og í dagblöðum,
hefur á síðustu mánuðum verið
haldið uppi alveg ótrálegum rógi um
íslenska álfélagið hf. Nú nýlega má
sjá á vef ASí atlögu að fyrirtækinu
þar sem greint er á mjög hlutdræg-
an hátt frá niðurstöðu Félagsdóms í
þremur málum sem stéttarfélögin
fóra með þangað vegna uppsagna
þriggja starfsmanna hjá ISAL. í
þessari grein er því haldið fram að
stjórnendm- fyrirtækisins grípi ít-
rekað til óvinsælla aðgerða gegn
starfsmönnum, þeir séu iðnir við að
viðhalda neikvæðu andrámslofti á
svæðinu, ætlun þeirra sé sú að vekja
upp ótta og hræða fólk til hlýðni! -
nokkrir starfsmenn hafi að ástæðu-
lausu og án fyrirvara verið reknir
frá fyrirtækinu og undran og reiði
hafi risið upp meðal starfsmanna
„m.a. vegna þess að töluverður
skortur hefur verið á starfsfólki og
verksmiðjan hefur verið að auglýsa
eftir starfsmönnum" eins og segir í
greininni.
Hverjum er ætlað að trúa svona
fáránleika, eða er það trálegt að fyr-
irtæki sem vantar starfsfólk sé að
ástunda „terrorisma" gagnvart því
og sé að segja upp starfsmönnum
sem eigi að „baki áratuga farsælt
starf hjá fyrirtækinu" án þess að
hafa til þess ástæður?
Svo er lítið gert úr þvi að Félags-
dómur dæmdi eina uppsögnina lög-
mæta, skilningur dómara á þeirri
klausu kjarasamninga að fastráðnir
starfsmenn skuli að öðra jöfnu hafa
forgang „sé ekki í samræmi við
skilning stéttarfélaganna" getur
ekki verið að fyrirtækið hafi sínar
ástæður en sé ekki reiðubúið, m.a.
vegna hagsmuna starfsmannanna
sjálfra, að láta þær koma fram í
dagsljósið?
Ég held að menn séu á villigötum
ef þeir halda að ágreiningsmál sem
þessi sé hægt að leysa með því að
níða niður stjórnendur fyrirtækisins
á þann hátt sem gert er, það a.m.k.
stuðlar ekki að bættu andrámslofti á
vinnustað.
ISAL hefur nú verið á
vinnumarkaði í rám þrjátíu ár og er
öragglega það fyrirtæki sem hefur
komið með fleiri og betri réttinda-
bætur inn í umhverfí íslenskrar
verkalýðsbaráttu en nokkrir aðrir
atvinnurekendur, og má þar nefna
nú síðast stofnun Stóriðjuskólans,
sem þó hefur verið reynt að gera
tortryggilegan, en einn af starfs-
mönnum ÍSAL svaraði þeirri aðför
svo sem vert er - og var þá svarað
því til í Morgunblaðsgrein að starfs-
manninn væri ekkert að marka,
hann væri flokksstjóri og hugsaði
líklega „rétt“! Ég var mörg ár í
samninganefndum starfsmanna fyr-
irtækisins, þá tíðkaðist ekki að sam-
skipti við viðsemjendur færa fram
með fúkyrðum og illmælgi á opin-
berum vettvangi, það var ekki hátt-
ur manna eins og Magnúsar Geirs-
sonar, Hermanns Guðmundssonar
eða annarra sem voru í forsvari fyr-
ir starfsmenn á þeim tíma.
Ég skrifa þessa grein vegna þess
að mér ofbýður þessi óhróður um
minn gamla vinnuveitanda, sem
sjálfur hefur valið þann kostinn að
svara lítt þessum árásum. Mál er að
linni.
HLÖÐVER KRISTJÁNSSON,
rafvélavirki á ellilaunum
Hjallabrekku 35, Kópavogi.
Hættu að reykja
í síðasta skiDti!
Námskeið í Reykjavík
frá 3.-19. aprfl
Námskeiðið verður haldið í Brautarholti 8, 2. hæð,
mánudaga og miðvikudaga kl. 18.45.
„Hvort sem vií trúum þvl oð viðgetum eitthvaS eSa ekki,
höfiim við réttfyrir okkur. “ Henry Ford.
Bókaðu núna og náðu árangri
Verð aðeins 9.500 kr.
Árskostnaður við reykingar kr. 131.400
(miðað við einn pakka á dag).
Heihu?arður Gauja litla
imnt
VISA
Guðjón Bergmann,
tóbaksvarnaráðgjafi.
Nánari upplýsingar í símum
561 8586 og 694 5310 og
e-mail: gbergmann@simnet.is
Kennslustund í hönnun
Óvenjuskemmtileg og djörf hönnun sem svo sannarlega hefur
slegið f gegn í Evrópu. Multipla var valinn bíll ársins í Danmörku
M.a er hann eini bfllinn tfl sýnis á Nýlistasafninu í New York sem
dæml um frábæra hönnun. Sex sæti, gott aðgengi og yflrdrifið
pláss fyrir alla. Undrabíll sem þú verður að skoða og prófa til að
trúa. Multipla Fiat er hinn fullkomni fjölskyldubíll.
Fiat Multipla Verð kr. 1.630.000
*ABS hemlalæsivörn
*4 loftpúðar
*6 sæti
‘Rafstýrð hæöarstilling framsætis
*6 x þriggja punkta belti
*160w hljómflutningstæki
‘Fjarstýrðar samlæsingar
‘Grindarbyggður
'Upphitaðirog rafdrifnirspeglar
*8 ára gegnumtæringarábyrgð
Opiö á laugardögum 13-17
_______BlLAR FYRIR ALLA________
SMIÐSBÚÐ2 - GARÐABÆ - S I Ml 5 400 800