Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Vinningaskrá 43. útdráttur 23. mars 2000 Bif reiðavinningur Kr. 2.000.000___Kr. 4.000.000 (tvðfaldur) 51161 F erðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvðfaldur) 6093 39834 62482 74516 Ferðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvðfaldur) 10462 15596 25167 44057 56690 74500 15344 24396 36957 53421 65948 74950 Húsbúnaðarvinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvðfaldur) 1306 9509 20541 33049 38355 46119 58274 71694 2986 10171 21267 33225 38586 46628 58616 71832 3436 10239 21316 33433 38999 47148 58628 73034 3605 11894 21319 33544 40996 47353 58890 73190 4109 12683 24325 33618 41018 50928 59585 76015 4594 14254 28307 34844 41467 51743 60590 76726 4636 14827 28514 34952 41586 52282 61577 77089 4799 16140 28657 34954 41737 52492 64090 77326 5636 17879 28755 34963 42017 52672 66629 79524 60.69 18641 28925 35114 42293 54486 69876 7331 19027 29157 36828 44661 56378 71140 7581 19702 29205 36934 45383 56471 71464 8371 20008 32227 38114 45886 56961 71673 Húsbúnaðarvinningur Kr, 5.000 Kr. 10.000 (tvðfaidur) 533 10480 22238 31225 41332 51917 63328 72045 637 10507 22731 31670 42232 52028 63548 72067 766 10761 22886 32002 42384 52204 63775 72240 974 11339 23714 32490 42777 52578 64022 72262 1502 11660 24041 32606 42933 52754 64082 72600 1791 11706 24103 32621 43056 53172 64624 72631 1811 12162 24625 32970 43089 53712 64770 72879 1949 12798 24746 33239 43114 54854 65329 72896 3592 12838 24847 33417 43367 55128 65530 72956 3641 13460 25253 33620 43531 55622 65731 73340 4024 13511 25276 33748 44039 55632 65820 73646 4549 14264 25285 33894 44086 56784 66433 73796 4608 14655 25632 34261 44618 56928 66545 73888 4786 14811 26290 34433 45916 57186 6 '7134 74155 5148 14815 26500 34633 46589 57351 67616 74246 5446 15980 26699 35099 46747 57463 67814 75005 5671 16062 26839 35750 46888 57838 67930 75806 5790 16078 27490 36102 46994 58209 68435 76252 5995 16262 27754 36188 47273 58541 69227 76444 6173 16649 28833 36587 47650 59523 69254 76627 6264 17680 29009 36604 47932 60052 69408 77199 6897 18105 29274 36834 48053 60398 69903 77578 7336 18350 29491 37232 48054 60579 70213 78193 7357 18411 29647 38359 48232 61077 70317 78931 8017 18519 29987 38857 48544 61186 70753 79529 8457 18651 30061 38989 48602 61197 70803 79834 9338 18755 30175 39449 48784 61414 70807 9418 20198 30180 39724 48931 61470 70866 9951 20799 30281 40041 49161 61896 71382 9996 21040 30377 40159 50579 62150 71639 10324 21307 30619 40414 50695 62475 71664 10367 21644 30841 40460 51425 63271 71861 Næsti útdráttur fer fram 30. mars 2000 Heimasíða á Interneti: www.das.is SímaLottó DA5 Aðalvinningur ^^ToyotaYan^kn 998^000 587-8749 Aukavinningar kr. 795 421-1808 421- 3386 422- 7066 423- 7876 435-0024 435-0060 435- 6711 436- 1555 437- 1606 453-5326 456-6191 456-8224 461- 1756 46£-1025 462- 4811 462-5533 464-2594 464- 3560 465- 2342 465-2440 466- 2112 467- 1988 468- 1305 471-1819 478-2000 481-2497 483-3280 483-4064 486-6768 486- 8992 487- 5074 551-0563 551-5129 551- 6399 552- 01-72 552- 0919 553- 2702 553-3029 553- 4542 554- 3137 554- 6417 555- 0321 555-3056 555-3884 555-4826 557-2707 557-5423 557-6939 557-9096 561-5474 561- 6721 562- 1299 562-4097 564-1432 564-2268 564-2479 564- 2818 565- 0953 565-1867 565-3063 565- 9700 566- 6507 567- 4196 567-4775 567-6395 567-7142 567-8365 567- 9099 568- 1197 568-1203 568-2482 586- 1007 587- 4654 587- 9261 588- 6484 588-9921 861-5075 861- 7037 862- 3411 862-8436 863-6222 863-6694, 892- 3334 893- 9429 893- 9703 894- 1382 894-2342 894- 4633 895- 0741 895-0900 895- 6416 896- 6287 897- 1626 897-4224 897- 6630 898- 7762 899- 2141 899-3215 899-3540 899-4386 ÍDAG VELVAKAIVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hnignun siðgæðis ÉG vil þakka Guðrúnu Maríu Oskarsdóttur fyrir að vekja athygli á klámi og hnignun siðgæðis í bréfí til Morgunblaðsins miðviku- daginn 22. mars sl. Greini- legt er þó að Guðrún María les ekki fylgirit Morgun- blaðsins, sem heitir því sakleysislega nafni 24-7. Því miður hefur Morgun- blaðið nú lagst svo lágt að misbjóða siðgæðisvitund lesenda sinna með því að senda þeim aukablaðið 24-7 inni í íþróttablaðinu á fimmtudögum. Nú er sem sagt alveg öruggt að börn- in okkar komast ekki hjá því að lesa klámið með íþróttafréttunum strax og þau eru orðin læs. M.R. (Aths. Eins og bent hef- ur verið á er 24-7 ekki fylgirit Morgunblaðsins og á engan hátt á ábyrgð rit- stjórnar þess, þótt því sé dreift með blaðinu. Það er að vísu prentað í prent- smiðju Morgunblaðsins, en það er DV einnig og ýmis auglýsingablöð. Um þetta hefur verið fjallað í Reykjavíkurbréfi, en þar sagði m.a. í gagn: rýni á þessa útgáfu: „í Morgunblaðinu síðastlið- inn sunnudag var réttmæt gagnrýni á málfarið á 24-7 sem dreift er með Morgun- blaðinu, þótt það komi rit- stjórn blaðsins ekkert við að öðru leyti, jafnvel síður en sum auglýsingablöð sem fylgja Morgunblað- inu. Bréfritari bendir réttilega á mörg vond dæmi um útlendar slettur og augljóst að 24-7 þarf að taka sig taki og nota móð- urmálið skammlaust eins og efni standa til. Það er svo sannarlega ástæða til að fylgjast með því sem verður.“) Tók ekki skrefið VEGNA skrifa Snorra Hanssonar í Velvakanda 21. mars, hringdi ég í Tryggingastofnun ríkisins þar sem mér var sagt að skrefið sem Snorri segir heilbrigðisráðherra hafa stigið til afnáms tekju- tengingar vegna tekna maka öryrkja hafi ekki enn verið stigið. Mér finnt hart að meðlimur Öryrkja- bandalagsins skuli gagn- rýna bandalag sitt svona harkalega sem barist hef- ur fyrir bættum málstað öryrkja sem hafa orðið að skrimta af þeim molum sem fallið hafa af borðum hinna ríkari. Lítill vilji hef- ur verið hjá stjórnvöldum til að rétta hlut þessa fólks sem berst harðri baráttu fyrir réttlátum kjörum sín- um. Öryrkjar eru hetjur nútímans. Sigrún. Ánægð með nýja rukkunarkerfið FYRIR stuttu var í Vel- vakanda grein þar sem Holberg lýsir óánægju sinni með nýja rukkunar- kerfi Morgunblaðsins. Ég er blaðberi og finnst mér algjör himnasending að losna við að rukka áskrift- ina. Hef ég þurft að fara upp undir 10 sinnum í mánuði til að rukka og þurft að rukka sama fólkið kvöld eftir kvöld því sumt fólk er aldrei hægt að ná í, það virðist aldrei vera heima. Mér hefur fundist nóg að berjast í ófærðinni við að koma blaðinu til skila þó ekki þurfi ég að eyða kvöldunum í að rukka í þessari ófærð. Veit ég til þess að margir blaðberar hafa dottið illa og jafnvel brotnað. Vil ég í leiðinni koma því á framfæri að fólk moki tröppur og hafi ljósin kveikt, en það er mikill misbrestur á því að mokað sé almennilega frá tröppum og stéttum. Blaðberi. Þakkir ÉG vil koma á framfæri kærum þökkum til Snorra í Betel fyrir þá mann- eskjuhlið sem hann hefur sýnt. Hann er bæði kær- leiksríkur og góður dreng- ur, hann skilur, veit og þekkir. Ef fleiri væru eins og hann væri veröldin betri. Ef ég þyrfti ein- hvern tímann á kærleiks- ríku samtali að haldmundi ég tala við Snorra í Betel. Bestu kveðjur mínar til fólks sem starfar við það að hjálpa öðru fólki. Matthildur. Þverhníptir hamrar í Vatnsnesi I Morgunblaðinu sl. föstu- dag birtir Magnús nokkur, bóndi í Vatnsnesi, grein þar sem málefni aðfluttra ber á góma. Ég þekki ekki til staðhátta í Vatnsnesi en af efni greinarinnar má ráða að Vatnsnes sé um- lukið þverhníptum hömr- um á allar hliðar og sjald- an sjáist til sólar. Þessir hamrar verða víst seint rifnir niður en það er verk- efni annarra landsmanna að sjá til þess að þeir rísi ekki í kringum aðra bæi og heimili á íslandi. Loftur Ólafsson, Laugarásvegi 73. Spönsk jógurt VALGERÐUR hafði sam- band við Velvakanda og vildi hvetja allar mæður til þess að lesa grein sem birtist í Morgunblaðinu 22. mars sl. Greinin fjallar um spánska jógúrt sem verið er að selja hér á landi. Við Islendingar eigum svo mikið til af frábærum og hreinum mjólkurafurðum. Það er skelfileg tilhugsun að ungar mæður séu að gefa börnum sínum jógúrt og vita ekki hvaða efni eru í henni. Hvað er til ráða? ÁRIÐ 1998 keypti ég net- áskrift í nokkra mánuði hjá X-net í Nóatúni 17. Er þeir mánuðir voru liðnir sem ég hafði beðið um áskrift að hættu þeir inn- heimtu að sjálfsögðu. Við- skiptin við þá voru góð og eðlileg. Svo gerðist það síðast- liðið haust að innheimtu- krafa barst mér frá Net- heimum ehf., Síðumúla 3-5, sem þeir í Búnaðar- bankanum í Kópavogi sjá um. Ég hringdi strax í þessa netþjónustu og kvartaði, sagði það lág- marks kurteisi að spyrja fyrst hvort viðkomandi vildi áskrift áður en reikn- ingur væri sendur. Ég taldi mig nú lausa við þessa óværu. Það var öðru nær, því enn er ég að fá rukkanir. Það sem ég hef gert til að losna er eftir- farandi: Ég endursendi eitt innheimtubréfið með skýringum til bankans, fór þangað sjálf og talaði við starfsmann, hringdi í aðal- stöðvar bankans og hringdi loks í Netheima aftur og talaði við einn eigandann. Þrátt fyrir þetta allt var nýjasta inn- heimtukrafan send frá Kópavogi 8. mars sl. að upphæð 1.510 krónur. Guðlaug Karvelsdóttir. Hælbítar ÉG undrast þá aðför sem gerð hefur verið að Kára Stefánssyni. Ég spyr því; hver er ástæðan? Illgirni, öfund eða eitthvað sem verra er, alla vega finnst mér þetta ekki neinu líkt. Þó tekur steininn úr er Valdimar Jóhannesson ásamt öðrum höfðingja vill fara að selja aðgang að sjúkraskrám. Ég tek sjálf- an mig sem dæmi, ég geng með ólæknandi sjúkdóm, sykursýki, og ef mín sjúkraskrá getur hjálpað einhverjum er það mín ánægja að geta lagt eitt- hvað til þeirra mála. Ég segi þvi bara, þökk sé Kára Stefánssyni fyrir það er hann leggur til vísind- anna. Kunningjakona mín sagðist undrast það jafn- aðargeð er Kári Stefáns- son hefði. Ég svaraði því til að hann væri fæddur af góðu fólki og ættaður frá þeim landshluta er fjöllin væru sem ævintýraheimur og himinninn blár og tær. Eg vona að allt þetta styrki Kára Stefánsson í baráttunni. Sigríður Eymundsdóttir. Pýrahald Kettlingar fást gefíns MJÖG fallegir grábrönd- óttir kettlingar fást gefins. Þeir eru kassavanir. Nán- ari upplýsingar í síma 588- 6277 eða 695-0018. Víkverji skrifar... VEÐRIÐ heldur áfram að angra Víkverja og vafalaust fleiri. Þegar hann er í allra versta skapinu sínu er hann sannfærður um að svona langan leiðindakafla hafi hann aldrei upplifað. Þetta hljóti að vera eitthvað skrítið. Þess vegna sperrir hann eyrun þegar veðurfræðingamir fara að nota orðið „óvenjulegt", kannski þeir ætli nú að staðfesta graninn um að ástandið sé ekki eðlilegt? En því miður, þeir eru alltaf við sama heygarðshomið. Varla eru þeir búnir að sleppa út úr sér orðinu óvenjulegt þegar þeir bæta því við að samt þurfi nú ekki að leita langt til að finna sambærilegan kafla, svona þrjátíu eða fjörutíu ár. Þar rauk vonin um að Víkverji gæti fundið sökudólg og sagt að rysj- ótta tíðin hérna sé gróðurhúsaáhrif- unum að kenna. Hann verður að sætta sig við að veðrið er víst eins og það hefur alltaf verið á íslandi, afar óstöðugt. Og slæmur vetur eins og núna er þó hátíð borið saman við harðindin á sautjándu og átrjándu öld. Þá fengu verstu hafísveturnir heiti eins og Lurkur, nafnið lýsir því hvernig forfeðrunum leið í vetrarlok. xxx VÍKVERJI er viss um að allir geta nú farið í Iðnó og haft gaman af verkum Shakespeares án þess að hafa nokkum tíma reynt að sjá verk skáldsins á sviði eða á kvik- myndatjaldinu. Samsuða allra verk- anna, Sjeikspír eins og hann leggur sig, á 97 mínútum er svo óborgan- lega fjömg og fyndin að enginn þarf að óttast að skilja ekki hvað fram fer. Leikurunum tekst að gera grín að öllum hátíðleikanum og Víkverji hef- ur sjaldan skemmt sér jafn vel í leik- húsi. Margir sem aldrei hlusta á klass- íska tónlist halda að hún sé öll of þung, allt of hátíðleg fyrir þeirra smekk. Væri ekki ráð að Sinfón- íuhljómsveitin efndi til tónleika þar sem markmiðið væri að „flippa út“ og hlæja að sjálfum sér? Tónlistin sjálf og höfundar hennar myndu lifa þetta af þótt einhverjir myndu áreið- anlega kvarta. En margir fengju áhuga á því sem þeir era nú búnir að afskrifa vegna þess að þeir halda að þannig tónlist sé bara fyrir aðra. x x x ERSLUNAREIGENDUR ættu að huga að því að þótt við- skiptavinirnir séu oft fljótir að gleyma getur verið að í undirmeðvit- undinni sitji eftir jákvæð eða nei- kvæð ímynd. Sú neikvæða getur rek- ið þá á ný mið. Vinkona Víkverja þurfti að fara í Mörkina í vetur til að versla. Þama eru í sama húsinu meðal annars hannyrðaverslanir, sólbaðsstofa og fleira. Á bílastæðinu við húsið var ekki búið að ryðja burt klaka og snjó, fólk varð að reyna að skrönglast með bílinn eftir djúpum skorningum og stöðugt hætta á skemmdum. Ófá púströrin hljóta að liggja í valnum. „Næst fer ég í verslun þar sem auðveldara er að leggja bflnum. Ég skil ekkert í eigendum verslananna í húsinu að taka sig ekki saman um að leigja tæki til að ryðja bflastæðið. Þeir hljóta að sjá að þeir eiga sam- eiginlegra hagsmuna að gæta,“ sagði vinkonan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.