Morgunblaðið - 24.03.2000, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUÐAGUR 24. MARS 2000 67
FÓLK í FRÉTTUM
Rósa Björk á heimsmeistarakeppni í ásetningu gervinagla
Öll smáatriði skipta máli
Morgunblaðið/Golli
Rósa Björk Hauksdóttir er naglatæknir og förðunarfræðingur.
í FEBRÚAR stóð tímaritið Hár og
fegurð fyrir förðunarkeppni á Hótel
Islandi. Keppt var í ýmsum flokkum
og var ásetning gervinagla einn
þeirra. Rósa Björk Hauksdóttir
hafnaði í öðru sæti í þeim flokki en í
kjölfarið bauðst henni að taka þátt í
heimsmeistarakeppni á því sviði
sem fram fer í Diisseldorf í Þýska-
landi nú um helgina. Annette nokk-
ur frá Svíþjóð, sem var dómari í
keppninni á Hótel íslandi, kom
auga á hæfileika Rósu og mælti með
því að hún tæki þátt í heimsmeist-
arakeppninni. Það er ekki hlaupið
að því að öðlast þátttökurétt, aðeins
nokkrir útvaldir fá boð um þátttöku,
en Rósa er auk þess fyrsti íslend-
ingurinn sem tekur þátt í keppninni.
En hvað er það fyrsta sem verður
að hafa í huga þegar halda skal í
keppni sem þessa?
Að ýmsu þarf að hyggja
„Eg reyni að fá módel sem er með
fallegar hendur og fallegar neglur,“
útskýrir Rósa. „I keppninni verð ég
að setja gervineglurnar á á staðnum
og lakka þær og ég hef tvo og hálfa
klukkustund til verksins.“
En að hverju þarf að hyggja til að
ásetningin heppnist sem best?
„Það eru ýmis smáatriði sem þarf
að hugsa út í,“ segir Rósa. „I fyrsta
lagi að neglurnar séu allar jafn
langar og allar eins í laginu, hliðarn-
ar allar jafnar, límingin sé góð og
„broslínan" falleg og bein. Engin
skil mega sjást og gervineglurnar
verða að vera þunnar, það má í raun
ekki sjást að um gervineglur sé að
ræða.“
Neglurnar eru glærar þegar þær
eru settar á en síðan verða Rósa og
aðrir keppendur að lakka þær í ein-
hverjum fallegum lit og verður
lökkunin að vera óaðfinnanleg.
„Keppnin úti er miklu strangari en
hérna heima,“ segir Rósa. „Ég er
búin að fá smáþjálfun frá Annette
og hún hefur leiðbeint mér um það
sem betur má fara. Ég lærði heil-
mikið af henni.“
En hvernig fara dómararnir að
því að sjá hvað er jafnt, nota þeir
málband?
„Ja, þeir mæla þetta bara með
augunum," segir Rósa og hlær.
„Þær eru rosalega þjálfaðar í því að
sjá strax hvort neglurnar eru jafnar
eða ekki. Það er farið eftir ströng-
um alþjóðlegum reglum í keppn-
inni.“
Hérlendis fá keppendur einn og
hálfan tíma til að ljúka við að setja
gervineglurnar á en þá eru líka að-
eins fimm fingur sem þarf að setja
neglur á en í heimsmeistarakeppn-
inni verða allir tíu fingurnir að fá
sömu meðferð.
Rósa notast við gelneglur en
keppendur ráða hvers konar neglur
þeir nota. „Gel er efni sem ég set á
neglurnar sem er síðan hert undir
ljósi.“
Rósa starfar á snyrtistofunni
Heilsu og fegurð en hún er mennt-
aður naglatæknir auk þess sem hún
hefur lært förðun.
Hvað fínnst þér vera mest spenn-
andi við þetta fag?
„Þegar ég byrjaði í náminu hafði
ég varla hugmynd um hvað ég var
að fara út í,“ viðurkennir Rósa og
brosir. „En mér fannst þetta rosa-
MYNDASÖGUR
www.nordiccomic.com
lega spennandi þegar ég sá hvað
þetta snerist um. Mér finnst þetta
mjög gaman og ég legg mikinn
metnað í hvert einasta sett af nögl-
um sem ég set á.“
En hvaða möguleika áttu í keppn-
inni úti?
„Það er aðeins keppt um heims-
meistaratitilinn. Ég hef sjálfsagt
einhverja möguleika líkt og aðrir
keppendur en ég vinn nú kannski
ekki,“ segir hún að lokum hlæjandi.
Keppnin verður haldin næstkom-
andi sunnudag, hinn 26. mars, en
um helgina verður einnig opnuð í
Dusseldorf stór sýning á öllu sem
viðkemur nöglum og naglasnyrt-
ingu.
Aparnir siðsömu rökræða hvað þeir eigi að gera við „Kalla Hest“.
Apaplánetan
endurgerð
NU er endanlega búið að ganga
frá samningum um endurgerð
ævintýrisins um apaplánetuna.
Það verður enginn annar en
snillingurinn Tim Burton sem
leikstýrir myndinni, en hann
flýtur þessa dagana á öldu vel-
gengninnar eftir að siðasta
mynd hans „Sleepy Hollow"
kvað niður efasemdarraddir.
Tim Burton lofar að nálgun
hans að verkinu verði með öðru
móti en upphaflegu myndirnar
enda er hann þekktur fyrir að
skapa yfirleitt afar sérstætt and-
rúmsloft í myndum sínum sem
ofast er yfirfullt af kaldhæðni.
Framleiðandi myndarinnar,
Richard Zanuck, er sá sami og
kom boltanum af stað í upphaf-
legu seriunni.
Upphaflega myndin, frá árinu
1968 þar sem Charlton Heston
(eða Kalli Hestur) lék geimfar-
ann sem brotlenti á framtíðar-
jörð í sárum kjarnorkustyrjald-
ar og sprangaði þar um á loð-
dýrssvuntu á meðal talandi apa,
var kvikmyndaútfærsla af sam-
nefndri vísindaskáldsögu eftir
Pierre Boulle.
Vinsældir myndarinnar urðu
svo gífurlegar að gerðar voru
fjórar framhaldsmyndir, með
mislukkuðum árangri og óvenju
stuttlíf sjónvarpssería.
Tökur hefjast á endurgerðinni
i' sumar og er þegar byrjað að
tala um myndina sem einn
stærsta sumarsmell næsta árs.
Hverjir koma til með að fara
með aðalhlutverkin er ekki vitað
en þó þykir líklegt að stuðst
verði við tölvutækni til að gera
mun „raunverulegri" apa en
voru í upprunalegu seríunni.
Nœturqatinn
í kvöld leikur Danssveitin Cantabile
frá Akureyri. Ókeypis aðgangur og
_ veitingar á hálfvirði til kl. 24.00.
HftRMONIKUBftLL
verður í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima,
á morgun, laugardagskvöldið 25. mars, kl. 22
Allir velkomnir
maxFactor
kynningar
Nýr andlitsfarði
Kvikmyndir sem Max Factor hefur séð um förðun eru m.a.:
Notting Hill, Titanit, The English Patient, Evita, Ever After, Bugsy Malone,
Alien, Interview with a Vampire, Midnight Express, Anna and the King....
Nýir Gold-varalitir
Spennandi kaupauki
Háholti 14, Mosfellsbæ,
í dag, föstudag,
kl. 14-18.
rMadonnu-
, varalitir ,