Morgunblaðið - 02.04.2000, Page 22
22 B SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KOKKURINN
í KALIFORNÍU
✓
Islendinga er að fínna í öllum
heimshornum og margir
hafa komið sér vel fyrir með
fjölskyldu sinni, reka eigið
fyrirtæki og eru ekkert á
leiðinni heim. Ragnhildur
Sverrisdóttir hitti einn landa
sinn, kokkinn Ara Garðar
Georgsson, í San Ramon í
Kaliforníu, þar sem hann
rekur morfflin- og hádegis-
verðarstaðinn Katy’s Korn-
er. Staðurinn er fjölsóttur og
fékk ágæta umsögn í stór-
blaðinu San Francisco
Chronicle fyrir nokkru.
Morgunblaðið/Ragnhildur Sverrisdóttir
Ari Garðar Georgsson og Benedikta Gísladóttir, eiginkona hans, á veitingastað sínum, Katy’s
Korner í San Ramon í Kaliformu, ásamt dótturinni Esther Jóhönnu.
Esther Jóhanna í leikherbergi barnanna á Katy’s Korner.
ARI Garðar Georgsson
dvaldi í níu mánuði
hjá systur sinni í
bænum Carmel á
Kaliforníuströnd árið
1972, þegar hann var 17 ára. Hann
fór heim til íslands, lauk kokka-
námi í Hótel- og veitingaskólanum
og hélt aftur til Kaliforníu. Þar hef-
ur hann verið nánast óslitið síðan,
ef frá er talinn tíminn þegar hann
var yfirkokkur á Hótel Holti í
Reykjavík og gerði matreiðsluþætti
fyrir nýstofnaða sjónvarpsstöð,
Stöð 2.
Ari vissi að í Kalifomíu væri
mikil eftirspurn eftir kokkum frá
Evrópu og hugsaði sig því ekki
tvisvar um þegar hann hafði lokið
námi. „Fyrsta starfið mitt var á
Ventana Inn Resort í bænum Big
Sur við Kyrrahafsströndina, en
J þaðan fór ég í eldhúsið á hótelinu
Quail Lodge í Carmel. Hótelið var
þá eitt af aðeins sjö 5 stjörnu hótel-
um í Bandaríkjunum. Þama var ég
í næstum því tíu ár. Þessir staðir,
Big Sur og Carmel, eru heimsfræg-
ar paradísir og hafa löngum verið
athvarf auðuga og fræga fólksins.
Ventana Inn-hótelið í Big Sur var í
eigu framleiðanda, sem gerði m.a.
kvikmyndina frægu Easy Rider, en
síðar keypti kvikmyndaverið 20th
Century Fox hótelið. Ég tók við
starfinu þar af einum þekktasta
kokki Bandaríkjanna, Jeremiah
Tower, sem síðar rak Stars-veit-
ingahúsið í San Francisco. Þetta
var auðvitað heilmikil upplifun fyr-
*■ ir 22 ára nýútskrifaðan kokk frá
íslandi.“
íslenskur graflax og humar
Kokkurinn ungi naut lífsins, bjó í
Carmel og ók um á Ford Mustang.
Hann segir að kokkar hafi ekki
verið sérstaklega vel launaðir á
þessum ámm, en verkefnin vom
spennandi. „Þegar ég var ráðinn til
Quail Lodge árið 1978 hitti ég yfir-
menn hótelsins, stjómarformann
og varastjómarformann. Sá síðar-
nefndi var Ungverji og hafði ein-
hvem tímann komið til íslands.
^Hann spurði mig hvort það væri
enn til siðs á Islandi að hleypa
föngunum á Litla-Hrauni í bíó á
kvöldin, með því skilyrði að þeir
skiluðu sér aftur í fangelsið fyrir
nóttina, en þessar upplýsingar úr
íslandsheimsókn höfðu greinilega
vakið mesta athygli hans.“
„ Ungveijinn fól íslendingnum
unga að opna nýtt veitingahús sem
sérhæfði sig í sjávarréttum. „Veit-
ingahúsið var eitt hið stærsta slíka
á vesturströnd Bandaríkjanna. Ég
hafði meðal annars íslenskan graf-
lax og humar á boðstólum, enda
var þetta rándýr staður svo ég gat
keypt það hráefni sem ég vildi. Síð-
ar tók ég þátt í að opna annan sjáv-
arréttastað Quail Lodge í miðbæ
Carmel og veitingastað á Hawaii-
eynni Maui. Lengst af vann ég þó á
hótelinu þeirra í Carmel, flaggskipi
Quail Lodge-keðjunnar.“
Ari segir að hann hafi átt auðvelt
með að setja sig inn í störf sem
kokkur í Bandaríkjunum. „Flestir
yfirkokkar í Bandaríkjunum á
þessum ámm vora menntaðir í
Evrópu og ég hafði tamið mér
sömu vinnubrögð og þeir. Matseðl-
arnir á fínni veitingastöðum vora
kunnuglegir, svo ég þurfti ekki að
hafa mikið fyrir því að aðlagast
nýjum siðum í eldhúsinu.“
Athvarf fræga fólksins
Fræga fólkið var daglegir gestir
á Quail Lodge í Carmel. „Shirley
Temple borðaði hjá mér þegar hún
og eiginmaðurinn héldu upp á 25
ára brúðkaupsafmæli, Burt Lanc-
aster kom fram í eldhús eitt kvöld-
ið og þakkaði mér sérstaklega fyrir
laxinn sem hann hafði snætt og
Rock Hudson var í mat kvöldið áð-
ur en hann lést. Hann var í heim-
sókn hjá vinkonu sinni, Doris Day,
sem á hús á jörð hótelsins, við 16.
holu á golfvellinum sem umlykur
hótelið. Ég heimsótti hana oft og
hún hefur sótt mig heim. George
Bush gisti á Quail Lodge þegar
hann var varaforseti og þá fylltist
eldhúsið af leyniþjónustumönnum.
Allt þetta fólk átti öraggt athvarf
þarna, því hótelið sagði aldrei frá
þvi hvaða frægu gestir dvöldu þar.
Þetta viðhorf er enn ríkjandi í
Carmel, þar fær fólk að vera í
friði.“
Eftir níu ára starf hjá Quail
Lodge ákvað Ari að söðla um og
flytja heim til Islands. „Mér bauðst
starf sem yfirkokkur á Hótel Holti
og gat ekki hafnað svo góðu boði.
Þegar ég var í kokkanáminu heima
dreymdi mig um að stjórna eldhús-
inu á Holtinu, sem hafði alltaf yfir-
burðastöðu sem veitingastaður.
Auk þess vora ákveðin tímamót í
starfi mínu í Carmel, gamlir sam-
starfsfélagar vora að hætta og mér
fannst tilvalið að nota tækifærið og
breyta um umhverfi."
Frá Holtinu til Stöðvar 2
Ari hafði ekki verið lengi á ís-
landi þegar honum bauðst að prófa
enn eina nýjungina, gerð mat-
reiðsluþátta fyrir Stöð 2. „Stöð 2
var að fara í loftið haustið 1986 og
ég var fyrsti dagskrárgerðarmað-
urinn sem þeir sömdu við. Ég sagði
upp á Holtinu og skellti mér í
myndver. Þættirnir voru sýndir sex
sinnum í viku og vora um tíma eina
innlenda dagskrárefnið á Stöð 2.“
Dvölin á Islandi varð ekki löng,
aðeins um 18 mánuðir. „Ég átti erf-
itt með að aðlagast Islandi á ný,
eftir að hafa fullorðnast á erlendri
grund. Allt vinnufyrirkomulag var
öðravísi heima og ég kunni betur
við mig í Kalifomíu. Eg fór því aft-
ur út árið 1987.“
Ari ákvað að spreyta sig á
rekstri veitingahúss sem fram-
reiddi morgun- og hádegisverð, svo
vinnutíminn yrði í föstum skorðum
og fjölskyldan gæti átt kvöldin
saman. Ari er kvæntur Benediktu
Gísladóttur og eiga þau dæturnar
Esther Jóhönnu og Tinnu Ósk.
Fyrir átti Ari þrjú börn, Huldu,
Róbert og Vilhelm. Benedikta, eða
Benný, átti þrjá stráka, Anton, Ax-
el og Viktor. Það var því oft líf og
ljör á heimilinu. Esther Jóhanna er
níu ára og Tinna Ósk aðeins
þriggja ára, en eldri krakkamir
era vaxnir úr grasi. Þeir koma þó
1
oft til lengri og skemmri dvalar, til
dæmis dvelur Anton nú á heimilinu
ásamt Kolbrúnu kærastu sinni og
dótturinni Öldu Karen.
Bæjarstjórinn
og hafragrauturinn
„í Carmel keyptum við ásamt
tveimur öðram 100 manna stað
sem var í fullum rekstri, Katy’s
Place. Þann stað rákum við í tíu ár.
Staðurinn var mjög vinsæll og vel
sóttur, meðal annars af stjömun-
um. Sjónvarpsstjarnan Roseanne
Barr var fastagestur. Eftir að hún
skildi við Tom Arnold stóðu fjöl-
miðlar í þeirri trú að hún hefði far-
ið til Frakklands. Sannleikurinn
var sá, að hún sat með ljósa hár-
kollu og sólgleraugu við borð 6 á
Katy’s Place á hverjum morgni.
Hún lét hins vegar lífvörð sinn,
sem hún giftist síðar, sjá um að
panta fyrir sig, enda hefði hún ver-
ið auðþekkjanleg um leið og hún
opnaði munninn. Dina Ruiz, eigin-
kona Clints Eastwood, kom á
hverjum morgni. Hann hefur búið í
Carmel í rúman aldarfjórðung og
var bæjarstjóri eitt kjörtímabil.
Kona hans er sjónvarpsfréttakona
og notaði alltaf morgnana til að
fara yfir helstu dagblöðin hjá okk-
ur. Arið 1997 eignaðist hún dóttur-
ina Morgan og kom nánast beint af
fæðingardeildinni aftur á Katy’s
Korner að fá sér morgunverð. Clint
kom líka endrum og sinnum, en
hann fékk sér oftast hafragraut.
Honum er greinilega annt um
heilsuna.
Nokkrir íslendingar komu til
Carmel og störfuðu á Katy’s Place,
þar á meðal Sturla Birgisson, nú-
verandi yfirkokkur í Perlunni.
Kennileitið Katy’s Korner
Eftir áratug á Katy’s Place fóra
Ari og Benedikta að hugsa sér til
hreyfings. „Við vildum eignast okk-
ar eigin stað, auk þess sem Carmel
er ekkert sérstaklega skemmtileg-
ur bær fyrir börn. Þarna er mikið
af eldra fólki og ferðamönnum og
fáir leikfélagar fyrir krakkana. Við
seldum hlutinn í Katy’s Place í nóv-
ember 1998, fundum þetta húsnæði
í San Ramon og opnuðum Katy’s
Korner í desember 1998. Staðurinn
er opinn daglega frá 7 á morgnana
til 2 eftir hádegi. Við eram mjög
ánægð með staðsetninguna og stað-
urinn hefur gengið vel frá fyrsta
degi. Fyrst unnum við hérna þrjú,
ég eldaði, Anna Harðardóttir sem
hefur starfað hjá okkur í átta ár
þjónaði til borðs og Benný sá um
allt annað, hreinsaði af borðum,
þvoði upp og aðstoðaði í eldhúsi.“
San Ramon er smábær við aust-
urströnd San Francisco-flóa,
miðja vegu milli Berkeley og San
Jose. Nálægðin við Silicon Valley
er auðsýnileg af ríkmannlegum
húsunum, til dæmis í Danville,
þar sem Ari, Benný og fjölskylda
búa. Bandaríska stórblaðið San
Francisco Chronicle skrifaði pistil
um Katy’s Korner í nóvember á
síðasta ári og var matarskríbent
blaðsins greinilega hrifinn af
staðnum og sagði hann hafa alla
burði til að verða kennileiti