Morgunblaðið - 02.04.2000, Page 29
MÖRhuf'ÆLABIÍ)
S'tJtfNt JIÍAGUlí 2.: Al'RÍL 2000 B 2Ó
Orðsending frá Landssam-
tökum lífeyrissjóða
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi athugasemd frá
Landssamtökum lífeyrissjóða:
„Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ
og fyrrverandi alþingismaður og
ritstjóri, sendir starfsfólki lífeyr-
issjóðanna í landinu frekar ógeð-
felldar kveðjur í Morgunblaðinu
sl. sunnudag. í greininni fjallar
hann um kjör eldri borgara sem
hann telur oft slæm. í lok greinar
sinnar segir Ellert að sjálfsagt
séu teknar upp kampavínsflöskur
hjá hverjum lífeyrissjóði í hvert
skipti sem eitthvert gamalmenni
fellur frá. Einnig telur hann að
forsvarsmenn lífeyrissjóðanna séu
uppteknari við að leggja fjármagn
sitt í „spilavíti fjármálamarkaðar-
ins en að sinna því fólki sem hefur
lagt sinn skerf til þessara sjóða“.
í grein Ellerts gætir verulegrar
vankunnáttu og fordóma í garð
lífeyrissjóðanna og starfsfólks
þess. Eins og öllum ætti að vera
kunnugt er eina hlutverk lífeyris-
sjóðanna að greiða sjóðfélögum
lífeyri. Lífeyrissjóðir eiga ekki að
hafa neina aðra starfsemi með
höndum en sem lýtur að því að
taka við iðgjöldum og ávaxta þau
með þeim hætti að tryggt sé að
hægt sé að greiða sem bestan líf-
eyri við starfslok, örorku eða frá-
fall sjóðfélaga.
Ekki skal því mótmælt að eldra
fólk í dag er ekki ofsælt af þeim
lífeyri sem það fær. Þar er hins
vegar ekki við lífeyrissjóðina að
sakast. Lífeyrissjóðirnir á Islandi
eru almennt ungir og því hefur
það fólk sem nú er orðið fullorðið
og komið á ellilífeyri annaðhvort
ekkert greitt í lífeyrissjóð eða að-
eins greitt lítinn hluta af starfsæfi
sinni til lífeyrissjóðs og þá senni-
lega ekki af nema hluta launa
sinna. Þar af leiðir fær þetta fólk
ekki mikið greitt úr lífeyrissjóð-
unum.
Þeir 500 milljarðar króna sem
safnast hafa á hendur sjóðanna,
eins og segir í greininni, eru eign
þeirra sjóðfélaga sem í þá hafa
greitt og þeir fjármunir verða
aldrei greiddir neinum öðrum en
þeim sem þá eiga, þ.e. sjóðfélög-
unum, mökum þeirra og bömum.
Þess vegna er það skylda starfs-
fólks og stjórna lífeyrissjóðanna í
landinu að varðveita þessa fjár-
muni og ávaxta þá með sem best-
um hætti, þannig að hægt sé að
standa við gefin lífeyrisloforð.
Þetta á að vera Ellert B. Schram
ljóst þótt hann kjósi að þessu
sinni að hafa uppi ósmekkleg um-
mæli í garð lífeyrissjóðanna og
starfsfólks þeirra."
r Lærðu Naprapati! ^
- nám nútímans
Naprapati er meðferðarleið sem á engan sinn líka og er ein sú
algengasta innan handlækninga. Lögð er áhersla á meðferð hryggjar,
liða- og vöðvaverkja.
4 ára fullt nám undir eftirliti háskólastigsins.
Námið nær m.a. yfir:
• Læknisfræðilegt efni.
• Sjúkraþjálfun.
• Handlækningar.
• íþróttameiðsl
__________________________________________________________/
«
Naprapathögskolan
Observatoriegatan 19-21,
113 29 Stockholm.
Sími 00 46 8 16 01 20.
Fax 00 46 8 33 55 18.
Heimasíða: www.nph.se
Netfang: info@nph.se
yþlfmœlisþakkir
Kœrar þakkir sendi ég öllum þeim mörgu sem
minntust mín á stór afmœli mínu í mars.
Guðs blessun fylgi ykkur.
Jakobtna Mathiesen.
k ---------- X
að skynmat er öflugt
tæki í vöruþróun og
auðveldar fyrirtækjum
að verða við óskum
neytenda og auka
gæði vörunnar?
Hjá Rf getur fyrirtæki þitt fengið mat á geymsluþoli
matvæla.
Rf veitir aðstoð við framkvæmd neytendakannana
Rf veitir matvælafyrirtækjum aðstoð við að þjálfa upp
skynmatshóp innan fyrirtækisins til að hafa eftirlit með
framleiðsluvörum og stunda markvissa vöruþróun.
Rf heldur námskeið í skynmati sem sniðin eru að
þörfum fyrirtækja.
Hafðu sambsnd tal að fá nánari upplýsingar:
RANNSÓKNASTOFMUN FISKIÐNADARINS
Skúlagötu 4, pósthólf 1405, 121 Reykjavík
Sími 562 0240 • Fax 562 0740
Netfang info@rfisk.is • Heimasíða www.rfisk.is
w
Viltu tala út?
Nú geturðu hringt oftar til útlanda og talað lengur án þess að hækka
símreikninginn. Islandssími býður þér Frímfnútur — millilandasímtöl á aðeins
18,90 kr./mín. til okkar helstu viðskiptalanda. Örugg tenging, gott samband.
mt* 0 **<
/ts *
tHtammm
tnmmmm
mma
mm
iii ■
íí
«•
iia
«■■■
HIBB
m
a ■««%%%%
m ■*%tu\
■ %iitt
■ ■■■■« nt
■ ■■■■■■« i
■ ■■■■■■
■ ■■■■■■«
■ mmma
mmas
mmm
mam
mmrn
Hvað geri ég?
1. Þú skráir þig í síma 594 4000
eða á friminutur.is
2. Þú hringirtil útlanda og símtölin
fara sjálfkrafa í gegnum Íslandssíma
eftir að skráning hefur verið staðfest.
3. Þú sparartengigjald, kr. 3,15 í hvert
skipti sem þú hringir.
4. Þú fagnar lægri símreikningi!
Sumt breytist ekki...
Þú þarft engan aukabúnað
Þú heldur þínu númeri
Þú velur 00 fyrir útlönd
...annað til hins betra
Ekkert tengigjald
Sama verð á degi sem nóttu
Íslandssími