Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ
54 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000
‘ FRÉTTIR
• •
Ossur og
Tryggvií
Borgarnesi
ÖSSUR Skarphéðinsson og Tryggvi
Harðarson, formannsefni Samfylk-
ingarinnar, verða á opnum framboðs-
fundi á Mótel Venus við Borgarfjarð-
arbrú þriðjudaginn 18. aprfl kl 20.30.
Frambjóðendur kynna stefnumál
sín, hugmyndir um hinn nýja flokk,
sem stofnaður verður formlega í maí,
og framtíðarsýn. Fundarstjóri verð-
ur Dóra Líndal, varaþingmaður
Samfylkingarinnar á Vesturlandi.
Þeir halda sams konar fundi í
4iverju kjördæmi vegna formanns-
kosningar. Gestir á fundum fram-
bjóðendanna fá tækifæri til að spyrja
um þau mál sem fólki þykir mestu
varða. Þá verða fjölmiðlamenn á
hverjum stað í hópi fyrirspyrjenda. í
upphaíi flytja formannsefnin stutt
ávörp.
Atkvæðisrétt í formannskjörinu
hafa allir gildir félagar í Samfylking-
unni eða aðildarfélögum hennar.
Póstkosning hefst 10. aprfl og lýkur
30. aprfl. Úrslit verða kynnt í upphafi
stofnfundar Samfylkingarinnar 5.
maí. A fundinum sjálfum verður
varaformannskjör og kosning í önn-
ur embætti.
Morgunblaðið/Jim Smart
Vinnueftirlit rfkisins
s
Isaga fær viðurkenningu
Á ÁRSFUNDI Vinnueftirlits ríkis- stjóra Isaga, viðurkenningu eftir-
ins afhenti Páll Pétursson félags- litsins ársins 2000 fyrir vinnuvernd-
málaráðherra Geir Þ. Zoéga, for- arstarf innan fyrirtækisins.
Uthlutun Starfslauna 2000
STARFSLAUN verða veitt í fyrsta
skipti úr nýjum Launasjóði fræði-
ritahöfunda við hátíðlega athöfn í
Þjóðarbókhlöðunni í dag kl. 16.
Eftir að tilkynnt hefur verið hverj-
ir hljóta starfslaunin árið 2000 flyt-
ur Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra ávarp. Mikii samkeppni
var um þessi starfslaun.
Rétt til að sækja úr Launasjóði
fræðiritahöfunda hafa höfundar al-
þýðlegra fræðirita, handbóka,
orðabóka og viðamikils upplýsinga-
efnis á íslensku.
Meginhlutverk Launasjóðs
fræðiritahöfunda er að auðvelda
samningu bóka og verka í stafrænu
formi til eflingar íslenskri menn-
ingu. Starfslaun eru veitt til hálfs
árs, eins árs, til tveggja ára eða
þriggja. Stjórn Launasjóðs fræði-
ntahöfunda skipuðu dr. Stefanía
Óskarsdóttir, dr. Sverrir Tómas-
son og dr. Haraldur Bessason.
Ofbeldismál og innbrot
meðal verkefna
Helgin 14. til
16. aprfl
UM helgina voru 56 ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akstm- og 23
grunaðir um ölvun við akstur.
Frekar rólegt var yfir miðbæ
Reykjavíkur á föstudagskvöld en
hins vegar talsverður erill hjá lög-
reglu á laugardagskvöld vegna of-
beldismála og annaiTa verkefna.
Nokkuð var um átök milli manna
sem sáust í eftirlitsmyndavélum
sem voru síðan stöðvuð af lögreglu.
Aðfaranótt laugardags var maður
staðinn að því að sparka í bifreið.
Nokkrar skemmdir urðu á henni
og var maðurinn handtekinn.
Aðfaranótt sunnudags var mað-
ur fluttur með sjúkrabifreið á
slysadeild með áverka á andliti og
hendi, eftir að hafa verið sleginn í
miðbænum. Arásaraðili var hand-
tekinn á staðnum og vistaður í
fangageymslu.
Einn var fluttur á slysadefld eft-
ir átök tveggja manna við stjórnar-
ráðsbygginguna aðfaranótt sunnu-
dags. Aðfaranótt laugardags hafði
lögregla afskipti af ölvuðum manni
sem vísað hafði verið frá skemmt-
un. Hugðist hann aka á brott á bif-
reið og tók því illa að honum skyldi
meinaður aksturinn. Hann veittist
að lögreglumönnum og var hand-
tekinn og vistaður í fangageymslu.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir í
Grafarvogi aðfaranótt laugardags
þar sem þeir óku ökutækjum sín-
um á 115 km hraða þar sem leyfður
hámarkshraði er 50 km.
A sunnudagskvöld féll maður á
bifhjóli í Armúla. Hann var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild.
Um helgina var tilkynnt um tvö
innbrot í sumarbústaði og var
nokkrum verðmætum stolið, ásamt
því að skemmdir voru unnar við
innbrotin. Þá var tilkynnt um inn-
brot í heimahús í Breiðholti á
sunnudag þaðan sem stolið var
nokkrum verðmætum, einkum
tækjabúnaði.
A íostudag var veski með pen-
ingum og kortum stolið í fyrirtæki í
borginni. Maður sem grunaður er
um verknaðinn sást hlaupa frá
vettvangi.
Á laugardagskvöld var grjóti
hent í gegnum rúður á strætis-
vagni og skemmdist ein rúða á
hvorri hlið vagnsins.
Maður var handtekinn að
morgni sunnudags eftir að sést
hafði til hans bijóta rúður í mið-
bænum.
Eftir hádegi á föstudag var bif-
reið stöðvuð við reglubundið eftir-
lit. Við leit í henni fundust ætluð
fíkniefni og voru þrír handteknir
vegna málsins.
Nokkuð var um verkefni tengd
veðurfari á föstudagskvöld og fram
á laugardagsmorgun. Þakplötur
fuku í Mosfellsbæ og þar lagðist
byggingarkrani á hliðina vegna
veðursins. Tilkynningar um fok
lausra muna bárust víðsvegar að
úr borginni.
*
Innifalið: Flug, bílaleigubíll í Aflokki í 1 viku.
M.v. að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja-11 ára ferðist saman.
Ef2fullorðnirferðast saman er verðið 26.740 kr*
6.000 afsláttur á mann 17. jání, 24. júní og 5. júlí.
Innifalið: Flug, gisting í 15 nætur, flugvallarskattar
og 10.000 kr. afsláttur fyrir Visa-korthafa.
M. v. 2 fullorðna í stúdíói á Sol Doiro.
10.000 kr. afsláttur á mann í brottför 24. apríl og 2. maí.
■ 9 kr. á marn
Innifalið erflug, gisting á Sol Doiro í 2 vikur, flugvallaskattar
og 10.000 kr. afsláttur fyrir Visa-korthafa.
M. v. að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja-11 ára ferðist saman.
Ef 2fullorðnir ferðast saman er verðið 56.550 kr*
10.000 kr. afsláttur á mann í brottför 27. júní.
Innifalið: Flug, gisting í 2 vikur á Dolphin, flugvallarskattar
og 10.000 kr. afsláttur fyrir Visa-korthafa.
M.v. að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja-11 ára ferðist saman.
Ef 2 fullorðnir ferðast saman er verðið 54.990 kr.*
10.000 kr. afsláttur á mann í brottför 10. júlí -----
Miðað er við að ferðin sé að fullu greidd með VISA.
Höfn • S: 478 1000
EgilsstaBir • S: 471 2000
ísafjörður • S: 456 5111
Sauðárkrókur • S: 453 6262/896 8477
Vestmannaeyjar • S: 481 1450
Keflavík• S: 421 1353
Akranes • S: 431 4884
Borgames • S: 437 1040
Dammörk
Þú gctur bókað á wctimu
Umboósmertm Þlúsferða um alll lard
"wST | Blönduós' S: 452 4168 DaMk»S: 466 1405 Akureyri' S: 462 5000 Selfoss» S: 482 1666 Erindavík’S.m 8060 I / ^
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 535 2100 • Fax 535 2110 ‘Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is w FERÐIR