Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gretn Morgunblaðsins
um athugasemdir For-
eldrafélags Marbakka
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd:
„Foreldrafélag Leikskólans á
Marbakka vill gera athugasemdir við
fréttaflutning Morgunblaðsins af er-
indi félagsins til Bæjarstjórnar
Kópavogs.
Foreldrafélagið lítur á það sem
eðlilegt hlutverk sitt að veita
rekstraraðilum skólans aðhald þegar
kemur að rekstri og viðhaldi skólans.
Erindi okkar til Bæjarstjórnar
Kópavogs í mars síðastliðnum var
hluti af því aðhaldi og hörmum við að
bréf okkar skuli vera orðið tilefni
fréttaflutnings í Morgunblaðinu.
F oreldrafélagið tók það skýrt fram
við blaðamann Morgunblaðsins að
það teldi efni bréfsins ekki þess eðlis
að það ætti heima á síðum blaðsins.
Við viljum taka skýrt fram að mikil
ánægja er meðal foreldra barna á
leikskólanum Marbakka með þá
starfsemi sem þar fer fram og starfs-
fólk skólans."
Aths. ritstj.
Umræddar fréttir Morgunblaðs-
ins voru byggðar á erindi Foreldrafé-
lags leikskólans á Marbakka sem
lagt hafði verið fram í bæjan’áði
Kópavogs og var því opinbert skjal.
Kvartanir foreldra lutu að því að
vegna frágangs grindverks og lýs-
ingar á lóð leikskólans og fleiri atriða
væri öryggi barna þeirra ekki fylli-
lega tryggt og nefnd voru dæmi um
hættulegar aðstæður sem af hefði
leitt.
Það var mat Morgunblaðsins og er
að ástæða væri til að segja frá þess-
um athugasemdum.
Hátíðarsamverur hjá
KFUMogKFUK
KFUM og KFUK bjóða upp á sam-
verur á páskum í aðalstöðvum sínum
við Holtaveg.
Dagskráin hefst kl. 9 um morgun-
inn með stuttri samverustund. Um-
sjón með samverunni hefur Sigur-
björn Þorkelsson, framkvæmda-
stjóri KFUM og KFUK. Erla Björg
og Rannveig Káradætur munu flytja
vitnisburði í tali og tónum. Eftir
stundina verður seldur morgunverð-
ur. Umsjón hefur Esther Gunnars-
son og fleiri.
Opnuð verður myndlistarsýning
með verkum eftir fjöllistamanninn
Ketil Larsen. Verkin eru gjöf lista-
mannsins til fjáröflunar fyrir starf
KFUM ogKFUK.
Kl. 20 verður hátíðarsamkoma
sem Sigurbjörn Þorkelsson, fram-
kvæmdastjóri, stjómar. Halla Jóns-
dóttir, fræðslufulltrúi þjóðkirkjunn-
ar og stjórnai’kona í KFUK mun
flytja nokkur orð og bæn. Guðný
Einarsdóttir leikur hátíðareinleik á
flygil. Þá gefst samkomugestum
kostur á því að taka undir almennan
söng. Ræðumaður kvöldsins verður
dr. Sigurbjörn Einarsson biskup.
Allir eru velkomnir.
ALRllVILAR 50mm
Þessar góðu gömlu
... í 10 litum
O
O
<n
oo
00
LD
AUt fyrirgluggann
Alnabœr
Sföumúla 12 - RcyKjavfk • Ijamargötu J 7 - Kcflavfk
www.atnabacr.is
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 55
HÁTÍÐLEGUR
í BRAGÐI
iPegar íslenski ostunnn er kominn á ostabakkann,
þegar hann kórónar matargerðina — bræddur eða djúpsteiktur
— eða er einfaldlega settur beint í munninn — þá er hátíð!
Ylú er Veisluþjónustan komin á vefinn.
hteimsœktu okkur á www.ostur.is og skoðaðu krœsingarnar.
HVlTA HÖSIÐ / SlA