Morgunblaðið - 30.04.2000, Page 8

Morgunblaðið - 30.04.2000, Page 8
8 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ásatrúarmeim bor en þeir kristnu e Ásatrúarmenii halda *1 sína árlegu hátíð á Þingvðilum í sumar. Þeim er gert að greiða 750 þúsund króniir fyrir afnot af salerni og annað eins fyrir tjaldstæði. iM/M inifi í’G-tfUAJD Kristilegt eða ókristilegt kúk og piss, herra? Upplagt í eldhúsið bráðsniðugt í barnaherberglð hljómar vel í hjónaherbergi stórgott í stofuna • Myndlampi Black Matrix • Nicam stereo • 50 stöðva minni Allar aðgerðir á skjá • Skart tengi • Fjarstýring • íslenskt textavarp nss? ŒBsEKO á aðeins 18.900 stgr. SBbEKDO á aðeins 14.900 stgr. ORION Myndbandstæki • 6 hausa-nicam-LP/SP • 2 skart/ RCA tengi fyrir myndbandstökuvél • Allar aðgerðir á skjá • Myndvaki • NTSC afspilun BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is Flötum 29 Sími 481 3333 Lok samræmdra prófa grunnskóla Foreldrar - verið vakandi! Bergþóra Valsdóttir SAMRÆMDUM próf- um grunnskólanna lýkur nk. miðviku- dag. Unglingar sem lokið hafa prófunum hafa undan- farin ár gert sér dagamun af slíku tilefni óg væntan- lega verður svo einnig nú. Bergþóra Valsdóttir er starfsmaður á skrifstofu SAMFOK, sem er sam- band foreldrafélaga og for- eldraráða í grunnskólum Reykjavíkur. Hún telur nauðsynlegt að foreldrar séu vakandi fyrir því hvemig böm þeirra hyggj- ast halda upp á lok sam- ræmdra prófa - en hvers vegna? „Kannanir hafa sýnt að margir unglingar neyta áf- engis í fyrsta sinn að lokn- um samræmdum prófum. Okkur foreldrum finnst að mikilvægt sé að unglingar og foreldrar haldi daginn hátíðlegan á heilbrigðan og jákvæðan hátt. Það er mjög já- kvætt að í mörgum skólum hefur tekist gott samstarf foreldra, skóla og félagsmiðstöðva um að gera sér dagamun í tilefni prófaloka. Fam- ar verða margar óvissuferðir með spennandi dagskrám sem rétt er að hvetja til breiðrar þátttöku í.“ - Hvernig geta foreldrar fylgst með að „hátíðahöldin“ fari vel fram? „Mikilvægast af öllu er að hvetja unglinginn til þátttöku í skipulögð- um ferðum af jákvæðu tagi og láta vera að neyta áfengis. Þetta er ekki bara dagur unglinganna þó svo að þeir hafi mikinn áhuga á að fagna honum saman. Mér finnst mikilvægt að benda á að þetta er áfangi sem unglingurinn er að ná og það er mál fjölskyldunnar alh- ar. Ég vil eindregið hvetja foreldra til þess að gera sér dagamun með unglingnum sínum þegar þessum áfanga er náð. Ég tel líka mikil- vægt að foreldrar séu meðvitaðir um á hvem hátt unglingamir fagna með sínum félögum. Ef það er eitthvað sem þeir hafa enga stjóm á þá geta jieir heldur ekki tekið ábyrgð á unglingnum. Þá er ég ekki að tala um að allt eigi þetta að gerast á forsendum foreldra heldur þarf að vera samráð og samkomulag á milli þeirra og ungl- ingsins. Ég vil líka leggja mikla áherslu á að foreldrar samþykki ekki eftirlitslausar ferðir eða par- tí.“ - Eru foreldrar of eftirgefanleg- ir íþessum efnum ? „Já, ég tel það. Ég held að nokk- uð sé um að foreldrar séu óömggir í sínu uppeldishlutverki, ég er ekki í nokkrum vafa um að aílir foreldr- ar vilja það allra besta fyrir bömin sín. I hraða nútímaþjóðfélags þar sem við foreldrar emm oft undir miklu áiagi og samviskan nagar þá verður okkur stundum á að láta undan óskum sem bomar em fram undir yfirskriftinni; Allir hinir mega það, en em í raun ekki af hinu góða.“ -Eru þessi hátíða- höld vegna prófaloka nýtt fyrirbrigði? „Nei, það hefur lengi verið haldið upp á prófalok en það er alveg óhætt að segja að á síð- ustu ámm hefur þetta farið tölu- vert mikið úr böndunum. Ungling- ar hafa safnast saman í miðbænum og í Kringlunni og mikið hefur ver- ið um áfengisdrykkju og jafnvel neyslu annarra fíkniefna. I fyrra var í fyrsta skipti staðið fyrir skipulögðum ferðum í tilefni próf- loka í flestum skólum og það sýndi sig að það skilaði góðum árangri ► Bergþóra Valsdóttir fæddist í Reykjavík 11. september 1958. Hún lauk stúdentsprófl frá Menntaskólanum við Sund og stundaði háskólanám ílanda- fræði, stjómmálafi'æði ogþjóð- hagfræði við háskólann í Ósló í nokkur ár. Hún var ritari á Rannsóknarstofnun landbúnað- arins eftir stúdentspróf en eftir að hún kom frá Noregi sinnti hún umönnun bama sinna og hóf svo störf á skrifstofu SAMFOK fyrir tveimur árum. Bergþóra er gift Birni Erlingssyni hafeðlisfræð- ingi og eiga þau fjögur böm. ásamt eftirliti foreldra á samkom- ustöðum unglinganna á höfuð- borgarsvæðinu" - Væri ástæða til að hafa marga foreldra á rölti á þessum stöðum á miðvikudagskvöld? „Ég vil eindregið hvetja foreldra til að vera sýnilegir í miðbænum og annars staðar þar sem ungling- ar koma saman nk. miðvikudag- skvöld og næstu daga. Mörg for- eldrafélög eru með virkt foreldrarölt í sínum hverfum og það hefur skilað mjög góðum ára- ngri. Það er afar mikilvægt að við látum okkur alla unglinga varða. Mjög oft eru það foreldrar ungl- inga sem virða útivistartímann sem eru hvað öflugustir í foreldra- röltinu og þeir gætu haft afskipti af þeim unglingum sem eru óheppnir með foreldra að þessu leyti. Það er kærleiksverk að sinna villuráfandi unglingum." - Verða foreldrar með aðstöðu eða miðstöð fyrir röltara og ungl- inga? „Ef unglingar hafa áfengi um hönd og virða ekki útivistartíma verða þeir færðir í athvarf í mið- bænum þangað sem foreldrar þeirra eiga að sækja þá. Foreldrar á röltinu hafa aðstöðu í Loftstof- unni í Austurstræti við hlið Macdonalds. Svona var þetta í fyrra. Fjöldi aðila stendur að þess- ari aðstoð." - Geta foreldrar bara farið niður í bæ til að fylgjast með eða eiga þeir að skrá sig ein- hvers staðar? „Best væri að þeir til- kynntu sig í aðstöðu for- eldraröltsins þegar þeii' koma í bæinn. Þá er mikilvægt að þeir fái símanúmer sem þeir geta hringt í ef þörfkrefur.“ - Telurþú að aðgerðir sem þess- argeti minnkað áfengisdrykkju og lætialmennt meðal unglinga? „Ég er sannfærð um það, þeir haga sér öðruvísi þai' sem margt fullorðið fólk er á vettvangi og þeir kunna í flestum tilfellum vel að meta þetta starf.“ Samþykkið ekki eftir- litslausar ferðir og partí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.