Morgunblaðið - 30.04.2000, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 30.04.2000, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR A 1 landslagi hugans MYJVPLIST (ierðarsafn / Lislasafn Kðpavogs ARNGUNNURÝR GYLFADÓTTIR - MÁLVERK Sýningin er opin frá 12 til 18 alla daga nema mánudaga og stendur til 21. maí. ÞAÐ ER of einfalt að segja að landslagið sé viðfangsefnið í mál- verkum Ai’ngunnar Yrar þótt svipir landsins í verkum hennar leynist engum og hún hafi á undanfömum árum kafað svo djúpt ofan í bergið, svörðinn og sandinn að hún hafi meira að segja notað útprent úr jarð- skjálftamælum í verk sín. Þrátt fyrir svo bókstaflegar tilvísanir og fjöllin sem eru greinileg í myndunum er það fyrst og fremst hið innra landslag málverksins sem Amgunnur kannar, ekki hið áþreifanlega landslag kletta og heiða. Með þessu er átt við að hún kanni fyrst og fremst möguleika þess miðils sem hún hefur valið sér og unnið með af meiri einbeitni en flestir jafnaldrar hennar síðasta einn og hálfan áratug. Málverk hennar em umfram allt tilraunir með dýpt og litahrif og landslagið í þeim er til þess haft að draga áhorfandann inn í óra- víddir myndarinnar en ekki til þess að vera eftirmynd landsins eða vísa beint í reynslu okkar af því. Málverkið er þögult ljóð, eins og Símoníðes hinn gríski sagði fyrir hálfu þriðja árþusundi, og það gætu vel verið einkunnarorð Amgunnar á þessari sýningu. I myndum hennar vakir landslagið þögult en lifandi, án orða og einkunna en sífellt hvikult og breytilegt, iðandi eins og gárað vatn eða sandur sem vindurinn hefur ýft upp í öldur. Litaspjald Arngunnar er sem á síðustu sýningum einkum takmarkað við jarðliti, gula, jarð- græna og brúna liti sem minna á gulnuð blöð og haustlandslag, sól- brenndan gróður og lífvana sanda. Umfram allt hafa þessi málverk yfír sér blæ drauma þar sem víddir lands- ins era óræðar bæði í rúmi og tíma. Landslagið sem birtist okkur í mynd- unum er ekki fjallahringurinn eða hálendistindar heldur hið óræða landslag hugans. Það var fyrir um sjö eða átta áram RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR - MÁLVERK OG TEIKNINGAR að Ragnheiður Jónsdóttir sýndi á Kjarvalsstöðum fyrst þær óhlut- bundnu mynsturteikningar sem hafa verið viðfangsefni hennar síðan og mörkuðu þá skörp skil í efnis- og myndmeðferð hennar, viðskilnað við hlutbundna grafík og þau samfélags- legu málefni sem verið höfðu yrkis- efni hennar um árabil. Á þeirri sýn- ingu vora stórar kolateikningar sem túlkuðu reglu og óreiðu í senn, djúpa sýn inn í iður veraleikans þar sem merking og örlög ólga án tilgangs. Ragnheiði var mikið niðri fyrir á sýn- ingunni á Kjarvalsstöðum og sú sýn sem þar kviknaði hefur verið helsta yrkisefni hennar síðan. Frá eintóna teikningunni hefur hún smátt og smátt fært myndir sínar yfir í mál- verk og nú sýnir hún verk þar sem litur og litamunur gegna aðalhlut- verki. Þemun era þau sömu og á síð- ustu sýningum Ragnheiðar en öll úrvinnslan er einhvem veginn bjart- ari og léttari, einfaldari og glaðlegri. I verkunum er ekki að greina þá ör- lagadýpt sem var svo sláandi þegar hún sýndi fyrst afstraktmyndir sínar á Kjarvalsstöðum, en á móti kemur að með þessari sýningu virðist eins og einhverra nýira umskipta sé að vænta í list Ragnheiðar - að enn sé komið að tímamótum í myndfram- setningu hennar. Hafdís Ólafsdóttir hefur fengist HAFDÍS ÓLAFSDÓTTIR - MÁLVERK við erfið viðfangsefni í myndverkum sínum og er skemmst að minnast sýningar hennar í listasafni ASÍ árið 1997 þar sem hún sýndi grafíkmynd- ir af ís, hverfulu efni sem er hvorki loft né jörð, hvorki vatn né fast efni, en þó á einhvem hátt myndað og for- mgert. Nú sýnir Hafdís málverk sem bera að ýmsu leyti sömu einkenni þótt viðfangsefnið sé fjölbreyttara. Sumum myndunum svipar til ís- myndanna á sýningunni í ASI en heildaryfirbragð sýningarinnar er þéttara og ákveðnara, samhengi myndanna sterkara og andstæður í litum ogformum afdráttarlausari. Það er ekki gott að segja hvað við- fangsefni Hafdísar er á þessari sýn- ingu, enda era verk hennar yfirleitt þess eðlis að það er aðferðin sjálf, hin formræna hugsun og efnismeðferðin sem vekja fyrst athygli áhorfandans. Vald Hafdísar á þessum þáttum ber uppi sýningar hennar og áhorfand- ann varðar í raun engu hvað við- fangsefnið er - áhrifin era sterk hvort sem um er að ræða hlutbundið málverk eða afstraksjón. Jón Proppé Eitt af verkum Ragnheiðar Jónsdóttur. Verk eftir Amgunni Ýr Gylfadóttur. ...fyrír þá sem vilja láta f sér heyra Morgynblaðið/Sverrir Haukur Björnsson afhendir Davíð Ólafssyni styrkinn. Davíð Olafsson hlýtur styrk úr söngmenntasjóði DAVÍÐ Ólafsson bassasöngvari hlaut styrk úr Söngmenntasjóði Marinós Péturssonar að upphæð 500.000 kr. Er þetta í sjötta sinn sem styrkur er veittur úr sjóðnum, en stofnfé sjóðsins er dánargöf Marinós Péturssonar sem var um árabil kaupmaður í Reykjavík. Davíð er Keflvíkingur og lauk 8. stigi frá Söngskólanum í Reykja- vík vorið 1997. Samhliða söngnámi lauk Davíð prófi í íslensku og kennsluréttindum frá Háskóla ís- lands. Þá um haustið hóf hann nám við óperudeild Tónlistarhá- skólans í Vínarborg og lýkur prófi þaðan nú í vor. Davíð hefur gert samning við óperuhúsið í Liibeck í Þýskalandi og mun syngja þar næstu tvö árin. Fyrirlestur í LHÍ DANSKI leirlistamaðurinn Jör- gen Hansen heldur fyrirlestur í LHÍ, Skipholti 1, miðvikudaginn 3. maí, stofu 113, kl 12.30. Jörgen er um þessar mundir gestakennari við LHI og vinnur með nemendum að gerð viðarbrennsluofns. Jörgen er þekktur fyrir að vinna stór verk í leir, svonefnda „eldskúlptúra". Þá byggir hann ofn utanum verkið þar sem því er ætlaður staður, en ofninn er síðan fjarlægður meðan verkið er glóandi heitt. Þessi verk hefur hann unnið á alþjóðlegum vettvangi. Jörgen flytur fyrirlestur á ensku um verk sín og sýnir skyggnur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.