Morgunblaðið - 30.04.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 27
Morgunblaðið/RAX
með brjósldos séu mjög vanræktir í
Svíþjóð. „Sjúklingur sem fær
brjósklos á Islandi á kost á fyrsta
flokks meðferð án tafar og oft eru
menn komnir til starfa 3-4 vikum
eftir að brjósklosið gerir vart við sig.
I Svíþjóð lita menn einfaldlega svo á,
að þar sem brjósklos sé ekki lífs-
hættulegt geti sjúklingamir farið á
biðlista og á þá lista komast þeir ekki
fyrr en þeir hafa reynt verkjalyf og
rúmlegu í að minnsta kosti þrjá mán-
uði. Þetta er hrópleg framkoma við
fólk, ekki bara sjúklingana sjálfa,
sem þurfa að þjást mánuðum saman,
heldur einnig vinnuveitendur og
samfélagið allt, því það er dýrt að
hafa manneskju rúmliggjandi heima
í hálft eða eitt ár sem gæti verið í
fullri vinnu ef hún kæmist í klukku-
stundar langa aðgerð. Þessi einföldu
sannindi hafa ekki mnnið upp fyrir
stjórnendum sænska heilbrigðis-
kerfisins. Tryggingarfélög átta sig
hins vegar á þessu og ég er kominn í
samband við tvö stór tryggingarfé-
lög, sem vilja auðvitað koma fólki til
vinnu á ný, í stað þess að greiða
sjúkrabætur mánuðum saman.“
Deildin á íslandi stenst
allan samanburð
Steen Magnús er Reykvíkingur,
sonur hjónanna Margrétar B. Þor-
steinsdóttur kennara og Torbens
Friðrikssonar, sérfræðings í fjár-
málaráðuneytinu. I Svíþjóð hefur
hann búið sér heimili með sambýlis-
konu sinni, Heléne Westrin svæfing-
arhjúkrunarfræðingi og dóttur
þeirra, Ellen Katarinu, sem er tæp-
lega tveggja ára. Hann á tvö böm
heima á Islandi með fyrrverandi eig-
inkonu sinni, Maríu Olafsdóttur sér-
fræðingi í heimilislækningum, ný-
fermdan soninn Einar Búa, 14 ára og
dótturina Unu Björgu, sem er tíu
ára. Steen Magnús á oft leið heim og
enn oftar nú, eftir að eldri börn hans
tvö fluttu þangað með móður sinni. Á
síðasta ári keypti hann litla íbúð í
Reykjavík, þar sem hann og fjöl-
skylda hans eiga athvarf í íslands-
heimsóknum.
Undanfarin þrjú sumur hefur
hann notað sumarfrí sín í Svíþjóð til
að vinna þar sem áhugi hans á heila-
skurðlækningum vaknaði, á Borgar-
spítala, sem nú heitir Landspítali-
háskólasjúkrahús. „Deildin heima
stenst fyllilega samanburð við bestu
heilaskurðdeildir á hinum Norður-
löndunum, bæði vegna hæfni skurð-
læknanna sjálfra og alls annars
starfsfólks. Tækjakostur er góður,
til dæmis hefur deildin yfir fullkom-
inni skurðsmásjá að ráða. Eg fann
engan mun á því að starfa heima og á
deildinni í Linköping. Það eina sem
hægt var að gagnrýna voru þrengsli
á skurðstofunni, en nú er verið að
byggja nýja skurðstofu, svo sá vandi
verður úr sögunni.“
Nokkrir íslenskir sjúklingar hafa
gengist undir aðgerð á heilaskurð-
deild sjúkrahússins í Linköping.
„Við eigum ekki formlegt samstarf
við sjúkrahúsin á íslandi, en fyrsta
sumarið sem ég var að vinna heima,
fyrir þremur árum, kom til mín
sjúklingur með æxli sem mér fannst
ekki ráðlegt að láta fjarlægja þar.
Yfirlæknirinn minn, Jan Hillman,
gerði aðgerðina með mér úti í Sví-
þjóð og hún tók tuttugu tíma, en
heppnaðist vel. Eftir það hafa tveir
sjúklingar komið til okkar frá ísl-
andi og ef til vill verður eitthvert
framhald þar á.“
Steen Magnús segir að bestu
heilaskurðdeildir taki stundum þann
kostinn að senda sjúklinga annað,
enda séu sjúkdómar svo margvísleg-
ir að ekki sé hægt að ætlast til að
sérþekking á þeim öllum liggi á ein-
um stað. „Við sendum fólk með
ákveðna sjúkdóma frá Linköping til
Gautaborgar eða Stokkhólms, ef
nauðsyn krefur. Viss tilfelli eru svo
sjaldgæf, að þau koma aðeins til
kasta okkar þriðja eða fimmta hvert
ár. Það segir sig sjálft að við búum
ekki yfir sambærilegri þekkingu á
slíkum tilfellum og þeir læknar, sem
hafa sérhæft sig í slíku.“
„Efst á baugi undan-
farin 3-5 ár er svoköll-
uð neuro navigation,
sem er líklega hægt
að kalla siglingafræði
taugalækninga. Á
sýningu, sem haldin
var í tengslum við
ársþing bandarískra
heilaskurðlækna, var
mikil áhersla lögð á
þessa tækni.
getum ekkert gert til að bæta upp-
haflega skaðann sem hefur þegar
orðið þegar sjúklingur kemur til
okkar. Starf okkar miðast allt að þvi
að grípa inn í og draga eins og mögu-
legt er úr keðjuverkuninni og út-
breiðslu afleiðinga upphaflega skað-
ans. En þrátt fyrir allar framfarir,
þá höfum við enn ekkert tæki í hönd-
unum sem sýnir okkur blóðflæðið, og
þar með súrefnisstreymið, til heilans
jafnóðum. Nú er reyndar til ein að-
ferð til að mæla súrefnisstreymi til
heilans, en hún er eingöngu notuð í
rannsóknarskyni, enda of umfangs-
mikil og dýr til að nota á gjörgæslu.
Okkur vantar einfalt tæki, sem sýnir
blóðflæði til heilans, og helst ólíkra
hluta hans, jafnóðum."
Steen Magnús og Jan Hillman
veltu lengi fyrir sér hvaða tækni
gæti nýst þeim við hönnun slíks tæk-
is og nú telja þeir sig komna á sporið.
Þeir nutu liðsinnis Áke Öberg pró-
fessors í Ijóstæknifræði við hönnun
tækis, sem lýsir upp höfuðið með
leysigeisla og nemur svokölluð
Dopplerhrif, eða breytingu á ákveð-
inni tíðni, sem er sama eðlisfræðifyr-
irbæri og notað er til að mæla hraða
reikistjarna og sólkerfa úti í geimn-
um. „Enn eru mörg ljón í veginum,
enda er erfitt að fá mynd af heilanum
í gegnum húð, bein og heilahimnu.
Við fengum styrk úr sænskum nýs-
köpunarsjóði til að þróa tækið og
réðum tæknifræðing til að gera
frumgerð af því. Nú er tækið tilbúið
og á næstu mánuðum ætlum við að
prófa það við rannsóknir á grísaheil-
um. Eg reikna með að það taki ekki
langan tíma að sjá hvort tækið er
nýtanlegt. Ef allt gengur að óskum,
þá er næsta skref að sýna fram á að
tækið sé skaðlaust mönnum."
Ekki er hægt að segja til um það
nú hve langan tíma það myndi hugs-
anlega taka að koma tækinu í notkun
á sjúkrahúsum. „Ef þessi hugmynd
okkar reynist haldbær, þá verður
þessu tæki tekið fegins hendi af
heilaskurðlæknum um allan heim. Á
læknaþingi um heilagjörgæslu í
Belgíu, sem ég sótti á síðasta ári,
voru kollegar mínir sammála um að
slíkt tæki yrði mikið framfaraskref
og myndi valda byltingu í gjörgæslu
heilasjúklinga.“
Brjósklosaðgerðir í hjáverkum
Steen Magnús lætur ekki staðar
numið við heilaskurðlækningar og
hönnun gjörgæslutækja. Á næstunni
hyggst hann opna eigin stofu í Lin-
köping, en segir enga hættu á að þar
takist hann á við heilaskurðlækning-
ar. Hins vegar sé fjöldi sjúklinga á
biðlista í Svíþjóð eftir minni aðgerð-
um og hann ætli að gera sitt til að
stytta þann biðlista eitthvað. „Allt
frá því að ég fékk sérfræðileyfið hef
ég velt fyrir mér að opna stofu. Heil-
brigðiskerfið í Svíþjóð hefur hins
vegar alltaf verið mjög miðstýrt og
læknar hafa ekki haft mikið svigrúm
til að reka eigin stofur. Núna blása
hins vegar aðrir vindar. í Stokk-
hólmsléni hefur til dæmis verið
ákveðið að bjóða út alla heilsugæslu,
sem hefði nú þótt saga til næsta bæj-
ar fyrir nokkrum árum. Heilbrigðis-
ráðherrann hefur að vísu heitið því
að spyrna við fótum, en fæstir efast
um að heilbrigðiskerfið verði einka-
rekið í auknum mæli. Þessar breyt-
ingar hafa hvatt mig til að reyna fyr-
ir mér, en ég hef hugsað mér að reka
stofuna samhliða starfinu hjá
sjúkrahúsinu, enda er sá háttur
hafður á þar að borga yfirvinnu með
frídögum, svo ég get líklega starfað á
stofunni einn dag í viku.“
Steen Magnús segir að sjúklingar
Full búð af
bútasaumsefnum
VIRKA
Opið
Mánud.-föstud. kl. 10-18,
Mörkin 3, sími 568 7477. lokað á lau. frá 1. júní.
Hugað aé heilsunni
l
LYSI J
kalk 'vœsSk wƧ
wfflrSsUfA
I góðum
maium
m
Blóðsykursmæling
Kólesterólmæling
BMI mæling
Þyngdarmæling
Blóðþrýstings
/púlsmæling
Vefjafitumæling
Róðgjöf við
. lyfjanotkun
a getur þú koi
m hjúkrunarfK
ur verða til
Allar mælingar verða skróðar í þína eigin
bók sem afhent verður við fyrstu heimsókn
Vinsamlegast geymið auglýsinguna
2. maí , verður hugað að heilsunni
í Apótekinu Iðufelli frá 14.00 til 18.00
3. maí, verður hugað að heilsunni
í Apótekinu Suðurströnd, Seltjarnarnesi
frá 14.00 til 18.00
4. maí, verður hugað að heilsunni
í Apótekinu Spönginni í Grafarvogi
frá 14.00 til 18.00
5. maí, verður hugað að heilsunni í Apótekinu Nýkaupi
í Mosfellsbæ frá 14.00 til 18.00
8. maí, verður hugað að heilsunni í Apótekinu Hagkaupi
í Skeifunni frá 14.00 til 18.00
Apótekið er á eftirtöldum stöðum:
Smáratorgi 1, Kópavogi * Smiðjuvegi 2, Kópavogi * Kringlunni 8-12, Nýkaupi
Spönginni 13, Grafarvogi * Iðufelli 14, Breiðholti * Skeifunni 15, Hagkaupi
Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi * Fjarðargötu 13 - 15, Firði í Hafnarfirði
Þverholti 2, Nýkaupi f Mosfellsbæ * Furuvöllum 17, Hagkaupi Akureyri
Hugum saman að heilsunni þinni