Morgunblaðið - 30.04.2000, Síða 35

Morgunblaðið - 30.04.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 35 FRÉTTIR Arsfundur Lífeyrissjóðsins Framsýnar 7% kjarabætur til líf- eyrisþega samþykktar A ARSFUNDI Lífeyrissjóðsins Framsýnar, sem haldinn var 26. april sl., var samþykkt tillaga stjórnar sjóðsins um að auka rétt- indi sjóðfélaga frá og með 1. júlí 2000. Lífeyrisgreiðslur þeirra sem fá elli-, örorku- eða makalífeyri úr sjóðnum munu þá hækka um 7%. Jafnframt munu stig annarra sjóð- félaga hækka um sömu prósentu. Á fundinum var kynnt góð af- koma lífeyrissjóðsins á síðasta ári en hrein raunávöxtun sjóðsins var 14,72% og hækkuðu eignir hans um 9 milljarða króna milli ára eða um 23%. Hrein eign til greiðslu líf- eyris í árslok var 45,6 milljarðar króna. Greint var frá stofnun verð- bréfafyrirtækis sem Lífeyrissjóð- urinn Framsýn og Lífeyrissjóður Norðurlands stofnuðu síðastliðið sumar. Eitt aðalmarkmiðið með stofnun þess var að fá beinan að- gang að Verðbréfaþingi Islands. Aðild að Verðbréfaþinginu var samþykkt í desember sl. og eru sjóðirnir fyrstu lífeyrissjóðirnir til að fá beinan aðgang að verðbréfa- markaðinum. Nýr framkvæmda- stjóri ráðinn Framkvæmdastjóraskipti verða hjá sjóðnum 1. júlí nk. en þá mun Karl Benediktsson láta af störfum eftir 30 ára farsælt starf, fyrst hjá Lífeyrissjóði Dagsbrúnar og Framsóknar og síðar hjá Lífeyris- sjóðnum Framsýn sem varð til við sameiningu nokkurra lífeyrissjóða árið 1996. Karl mun áfram sinna verkefnum fyrir sjóðinn næstu þrjú árin. Við starfi Karls tekur Bjarni Brynjólfsson, sem starfað hefur hjá sjóðnum frá árinu 1997, fyrst sem sjóðstjóri en er nú fram- kvæmdastjóri Verðbréfamiðlunar Framsýnar ehf. Hann er 33 ára löggiltur verðbréfamiðlari og við- skiptafræðingur frá University of Bridgeport, Connecticut í Banda- ríkjunum. Tveir nýir stjómarmenn voru kjörnir á ársfundinum þeir Gunn- ar Björnsson í stað Birgis Guð- jónssonar og Ragnar Árnason í stað Unnar A. Hauksdóttur. Stjórn sjóðsins skipa: Halldór Björnsson, formaður, Þórarinn V. Þórarinsson, varaformaður, Bjarni Lúðvíksson, Guðmundur Þ. Jónsson, Gunnar Bjömsson, Helgi Magnússon, Ragnar Árnason og Þómnn Sveinbjörnsdóttir. Til sölu laglegt eintak af Nissan Patrol 2.8 SE, árgerð 1998 Ekinn 29.000 km. Dökkgrænn (DR2) • 5 dyra • Dísel • Beinskiptur (5 gíra) • 33 tommu breyting • Álfelgur fundmetal 15 tommu 15x8 • Tölvukubbur • Dráttarbeisli meö aukarafmagnstengi frá Altenator • Krómgrind • Vindskeið, samlit • Varadekkshlíf króm, samlit • Toppbogar • Kenwood geislaspilari • Ljósahlífar • Húddhlíf Upplýsingar í sima 561 1552 og 899 2853 www.mbl.is Velkomin um borð. Nýr BMW 3 touring. sáas^w 'v" -’-v/ á' í* Þú sérö strax viö fyrstu sýn að BMW 3 touring á sér engan sinn líka. Frábær hönnun með áherslu á samræmi smáatriða, vönduð þægileg innrétting í miklu og vel skipulögðu innra rými auk sportlegra eiginleika gera akstur á BMW 3 touring að frábærri upplifun. Komdu og prófaðu!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.