Morgunblaðið - 30.04.2000, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000 41
MINNINGAR '
+ Sigurlaug Sig-
urðardóttir
fæddist að Höfða í
Dýrafírði 11. janúar
1914. Hún lést á St
Jósefsspítalanum í
Hafnarfirði 17. apríl
siðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Mar-
grét Jóna Petrína
Arnfinnsdóttir, f.
21.6. 1895 í Ytri-
Mýrarhreppi, d. 14.1.
1969 og Sigurður
Jónsson, f. 10.7. 1888
á Næfranesi íMýrar-
hreppi, d. 11.3. 1941,
fórst með línuveiðaranum Pét-
ursey ÍS 100. Systkini Sigurlaug-
ar eru: Lilja, f. 1.5. 1915; Sigurð-
ur Pétur, f. 25.3. 1917, d. 9.4.
1945, línuveiðaranum Fjölni; Jón
Þorsteinn, f. 22.1. 1920; Arnfríð-
ur Kristjana, f. 30.7. 1923, d. 5.4.
1999; Einar Garðar f.23.7. 1927,
d. 19.4. 1990; Jóhann Sigurlíni, f.
8.7. 1928; Gunnar, f. 6.5. 1931;
Guðmundur Kristján, f. 3.3. 1934.
Sigurlaug giftist 8.12. 1934
Ég hef kvatt kæra ömmu mína í
hinsta sinn. Það er alltaf erfitt að sjá
á bak þeim sem eru okkur kærir og
venjulega kemur dauðinn hvorki vel-
kominn né fagnandi en þegar hann
kemur þar sem hans er vænst og ósk-
að er hann lausn fyrir þá sem þjást.
Sigurlaug amma mín var fædd á
Höfða í Dýrafirði árið 1914 og var því
86 ára er hún lést eftir strangt veik-
indastríð. Hún hefur lifað tímana
tvenna eins og þeir sem fæddir eru á
fyrstu árum aldarinnar, fæddist í
torfbæ en bjó á 6. hæð í blokk síðustu
árin. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur
fyrir nokkrum árum kynntist ég
ömmu mjög vel og við áttum margar
góðar stundir saman sem ég nú
minnist með þakklæti. Sagði hún
mér þá oft frá liðnum tímum en hún
ólst upp við kröpp kjör og kynntist
ung striti og erfiðisvinnu og varð það
hennar hlutskipti að vinna mikið alla
tíð og því var henni umhugað um bar-
áttu verkafólks fyiir bættum kjör-
um. Amma var einnig mjög ákveðin
kona sem hafði skoðanir á öllum hlut-
um, hvort sem rætt var um þjóðmál
almennt eða persónuleg málefni.
Eins og margir af hennar kynslóð
var amma ekki ginnkeypt fyrir nýj-
ungum og vildi halda í það gamla eins
og mögulegt var og nýta til hins ýtr-
asta.
Amma var mikil handavinnukona
og ófáar lopapeysurnar og sokkamir
sem eftir hana liggja og við barna-
börnin nutum góðs af. Fallegur gróð-
ur og blóm áttu hug hennar alla tíð
og hún var vel að sér í íslensku flór-
unni. Amma hafði yndi af útiveru og
fór í gönguferðir á meðan heilsan
leyfði. í fyrrasumar fórum við í
nokki-ar ferðir um höfuðborgarsvæð-
ið og nágrenni, m.a. til Þingvalla og
fleiri staða. Kom þá vel í ljós draum-
ur hennar um að eignast lítið sumar-
SIMI551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
AOAI S TKÆ'l'I ili • 101 1U YKJAYÍk
Dtivid htger Úirifnr
IJtfanusíj. I ’tfmnstj. ('tfnnmtj.
LÍ KlvISTUVI N Nl ISTOIA
EWINDAR ÁRNASONAR
Símoni Albínusi
Nikulássyni, f. 1.3.
1898, d. 30.5. 1960.
Árið 1970. hinn
20.6., giftist Sigur-
laug Gísla Guð-
mundssyni, f. 26.6.
1916, d. 29.11. 1998.
Börn Sigurlaugar
og Símons Albínusar
eru 1) Jónas Agúst,
f. 2.5.1935. 2) Asdís,
f. 28.3. 1944, gift
Bjarna Garðarssyni,
f. 8.9. 1943, börn
þeirra eru: a)
Hrefna, f. 30.10.
1964, gift Gunnari Helga Guð-
mundssyni,f. 12.10. 1956, börn
þeirra eru: Ásdís, f. 15.7. 1989,
Katrín, f. 30.11 1994. b) Þröstur,
f. 23.5. 1969, maki Áslaug Þórð-
ardóttir, f. 21.10. 1965. c) Sigur-
laug María, f. 28.9. 1974, maki
Halldór Eraclides, f. 28.7. 1971
bam þeirra Lovísa Ósk, f. 21.12.
1996.
Útför Sigurlaugar fór fram 27.
apríl í kyrrþey.
hús til að geta verið nær náttúrunni
og dvalið þar yfir sumartímann með-
an gróðurinn skartar sínu fegursta.
Amma var gestrisin kona og gerði
vel við þá er sóttu hana heim, bæði í
mat og drykk, og tók ekki annað í
mál en að gestir hennar þægju ein-
hverjar góðgerðir. Þrátt fyrii' að hún
gæti vart mælt fyrir þjáningum und-
ir það síðasta bauð hún gestum sín-
um ætíð upp á góðgæti sem hún átti í
handraðanum og lýsir það vel hlýju
hennar og gestrisni í garð þeirra sem
henni þótti vænt um. Blessuð sé
minning ömmu Sigurlaugar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
núkominerlífsins nótt
Þig umveQi blessun og bænir,
égbiðaðþúsofírrótt
Þótt svíði sorg mitt hjarta,
þá sælteraðvitaafþví,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þáauðnuaðhafaþighér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þótt þú sért horfin úr heimi
ég hitti þig ekki um hrið
þín minning er ljós sem lifir
oglýsirumókomnatíð.
(Þórunn Sig.)
Þröstur Bjamason.
Elsku amma mín, mér brá svo
þegar ég sá þig, hinn 20. febrúar sl.
Þú varst í rúminu og þú varst ekki
eins hraust og áður. Eg grét yfir þér
og þú sagðir mér að ekki þýddi að
gráta. Ég gisti hjá þér í nokkra daga
og annaðist þig, en ég hef aldrei fyrr
annast neinn undir slíkum kring-
umstæðum. Ég aðstoðaði þig eins og
ég gat. Við sátum og þú reyndir að
koma niður nokkrum sopum af malt-
öli. Seinna fékk ég þig til að fara á
sjúkrahúsið og þú vildir að ég og
hann Þröstur færum með þig.
Daginn sem þú fórst pökkuðum
við niður helstu hlutum fyrir þig og
þú varst þögul. Þú vissir að þú kæmir
ekki aftur heim til þín. Við systkmin
báðum mömmu að fara suður til þín
og hún var daglega hjá þér þar til yfir
lauk. Elsku amma mín, við söknum
þín.
Nú er komin þín hvíld og ró.
Af hjarta léttir þér.
Sofðunúctjúptogvært,
elskuammamín.
Sigurlaug, Halldór og
Lovísa Ósk, ísafirði.
Blómastofa
Frídjtnns
Suöurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK___________________
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960,fax: 587 1986
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Simi 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Utfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
£ £
% ^
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
SIGURLAUG
SIG URÐARDÓTTIR
1899
t
Okkar ástkæri sonur, stjúpsonur, faðir, bróðir
og afi,
HRAFN HAUKSSON,
Reynimel 51,
Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 26. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd okkar allra,
Haukur Óskar Ársælsson,
börn, systkini og aðrir vandamenn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, fóstur-
móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
INGUNN ÞORVARÐARDÓTTIR,
Grænugötu 12,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðviku-
daginn 3. maí kl. 13.30.
Kristján Einarsson,
Krístbjörg Kristjánsdóttir, Stefán Sigurðsson,
Guðfinna Kristjánsdóttir, Kristján Magnússon,
Árvök Kristjánsdóttir,
Einar Kristjánsson,
Ársæll Kristjánsson,
Heiðrún Kristjánsdóttir,
Ásta Sigurðardóttir,
Haukur Arnar Árnason,
Sólveig Guðmundsdóttir,
Dóra Kristjánsdóttir,
Vilhjálmur Þ. Snædal,
Sveinbjörg Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
(
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
JÓNA KRISTÍN HARALDSDÓTTIR,
Grýtubakka 2,
Reykjavík,
lést á gjörgæsiudeild Landspítalans við Hring-
braut, þriðjudaginn 25. apríl.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 3. maí kl. 15.00.
Kristján Vernharðsson,
Sigríður Gunnarsdóttir, Stefán Hallgrímsson,
Haraldur Gunnarsson, Ingibjörg Gísladóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, fósturmóður, ömmu og
langömmu,
SIGRÍÐAR ÁSGEIRSDÓTTUR,
Hlfð 2, ísafirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki öldr-
unardeildar Landspítalans við Hringbraut.
Kristján V. Jóhannesson,
Jóhannes Jónsson, Sigrún Sigurðardóttir,
Ásgeir Magnússon, Svanfríður Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ELÍNAR ÓLAFSDÓTTUR,
Bræðraborgarstíg 37,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar
Krabbameinsfólagsins fyrir einstaka umönnun,
skilning og nærgætni.
Guð veri með ykkur kæru vinir.
Haraldur Karlsson,
Karl Þórhalli Haraldsson,
Ólöf Haraldsdóttir, Pétur Ottósson,
Sigrún Ásta Haraldsdóttir, Þórður Adolfsson,
Hjálmar Haraldsson, Svanhvít Ástvaldsdóttir,
Jónas Haraldsson, Sigrún Sigurðardóttir,
Kristbjörn Haraldsson, Ásdís Ástvaldsdóttir,
Sigríður Haraldsdóttir, Magnús Bjarni Baldursson,
barnabörn og barnabarnabörn.