Morgunblaðið - 30.04.2000, Side 64
VlÐ SKIPTAHUC BÚN AÐUR
A HEIMSMÆUKVARÐA
fltagtiiiHiiMfe nr
<Q>
NÝHERJI
S: 569 7700
MORGUNBLADW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTIIÓLFS040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, ,AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Stunginn
í kviðinn
með hnífi
18 ÁRA gamall piltur var stunginn í
kviðinn með hnífi á mótum Lauga-
vegs og Klapparstígs í Reykjavík
um fjögurleytið í fyrrinótt. Hann
hlaut alvarlega áverka og var flutt-
ur í skyndi undir læknishendur.
Hann mun þó ekki vera í lífshættu.
Lögregla fékk lýsingu á árásar-
manninum og var maður handtek-
inn skömmu síðar sem grunaður er
um verknaðinn. Rannsókn málsins
er á frumstigi en lögreglan lítur
málið mjög alvarlegum augum.
Fórnarlamb árásarinnar er illa slas-
að. Hnífurinn gekk inn í kvið pilts-
ins neðan nafla. Hinn grunaði er í
**f.aldi lögreglu og verið var að yfir-
heyra vitni um hádegisbilið í gær.
Líklegt er að farið verði fram á að
hinn grunaði verði hnepptur í
gæsluvarðhald.
Rólað í
sólinni
VORIÐ er komið. Sólin hækkar á
lofti, dagarnir eru hlýrri og kvöldin
orðin björt. Það er ávallt mikið
ánægjuefni að fá að anda að sér
vorloftinu og finna hvernig sólin
vermir, skín og gleður.
Tryggðu þér betri vaxtakjör og lægri þjónustugjöld með því að sameina
kosti Heimilislínu og Heimilisbanka.
® BÚNAÐARBANKINN
HEIMILISLÍNAN
Traustur banki
www.bi.iM
FUNDUR vegna kjaradeilu Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og Sam-
taka atvinnulífsins hófst hjá ríkis-
sáttasemjara kl. 15 í gær. Verkfall
félagsins er boðað 1. maí. Ari
Edwald, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, segir að viðræð-
ur hafi verið árangurslitlar til þessa.
„Ég tel allt stefna í verkfall á þess-
ari stundu,“ sagði hann.
„Við höfum boðið Sjómannafélagi
Reykjavíkur allt það sem okkur er
mögulega stætt á gagnvart öðrum
samningum, sem gerðir hafa verið
að undanförnu, og erum reiðubúnir
að taka mið af sérstökum aðstæðum
sjómanna. Kröfugerð þessa 100
manna hóps gengur að mínu mati út
á það að brjóta á bak aftur þá launa-
stefnu sem samið hefur verið um við
tugþúsundir launafólks.“
SA segir sjómenn kreíjast 70
þúsund króna hækkunar
Ari Edwald sagði sjómenn í raun
ekki láglaunahóp. Þeir hefðu lagt
áherslu á að farið yrði með lægsta
taxta úr 78 þúsund krónum í 100
þúsund en fáir eða engir væru á
þeim taxta. „Laun sjómanna eru
samsett á annan hátt en laun fólks í
landi. Það liggur fyrir að meðallaun
háseta á farskipi eru um 212 þúsund
krónur á mánuði miðað við 12 mán-
aða vinnu á ári en það samsvarar
250 þúsund króna tekjum í landi
þegar tekið er tillit til sjómannaaf-
sláttar en vinna sjómanna er þannig
skipulögð að þeir eru 8 mánuði á sjó
og fjóra í landi. Kröfugerð Sjó-
mannafélagsins felur að mati okkar í
sér 70 þúsund króna hækkun á mán-
uði á þessum heildartekjum.“
Að sögn talsmanna skipafélag-
anna eru þau þegar farin að gera
ráðstafanir vegna yfírvofandi verk-
falls. Fyrstu skipin munu að
óbreyttu stöðvast strax í næstu viku.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Þunglega horfír í kjaraviðræðum farmanna og S A
V erkfall y fírvofandi
á kaupskipaflotanum
Flest
felög’in
sam-
þykkja
FLEST þeirra nærri 40 verka-
lýðsfélaga innan Verkamanna-
sambands íslands úti um land
sem síðustu daga hafa verið að
greiða atkvæði um nýgerða
kjarasamninga hafa samþykkt
þá. Verkalýðsfélag Öxarfjarð-
ar felldi samninginn með 57%
atkvæða gegn 43% en 36% fé-
lagsmanna greiddu atkvæði.
Þá felldu verkalýðsfélögin Ald-
an og Fram á Sauðárkróki
einnig samningana.
Felldur var sérkjarasamn-
ingur sem gerður var við
starfsmenn hjá Mjólkurbúi
Flóamanna á Selfossi en
verkalýðsfélagið á Selfossi
samþykkti og gera Samtök at-
vinnulífsins athugasemd við
framkvæmd atkvæðagreiðsl-
unnar. Mjólkurfræðingar
komu til fundar við viðsemj-
endur sína hjá ríkissáttasemj-
ara í gærmorgun og flugfreyj-
ur ræddu einnig við
viðsemjendur sín í gær.
Afstaða SA óbreytt
Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins,
sagði að þótt niðurstöður væru
ekki komnar frá öllum félögun-
um væri ljóst að yfirgnæfandi
meirihluti þeirra hefði sam-
þykkt samningana og kvaðst
ánægður með þá stöðu. Hann
sagði að Samtök atvinnulífsins
myndu hins vegar gera at-
hugasemd við framkvæmd at-
kvæðagreiðslunnar á Selfossi.
„Við höfum ekki tekið
ákvarðanir um hvernig unnið
verður úr stöðunni á Sauðár-
króki eða á öðrum stöðum sem
kynnu að fella. Afstaða okkar
til þess um hvað samningarnir
geti snúist um hefur að sjálf-
sögðu ekki breyst þrátt fyrir
það,“ sagði Ari og kvaðst búast
við að ríkissáttasemjari myndi
kalla aðila til fundar fljótlega.
Verkfall skellur að líkindum
aftur á 4. maí þar sem samn-
ingar eru ekki samþykktir.
15% minni
bílasala
fyrstu þrjá
0 * mánuðina
15,7% SAMDRÁTTUR er í sölu á
nýjum fólksbílum fyrstu þrjá mánuði
þessa árs miðað við sama tímabil í
fyrra. Sölusamdrátturinn í apríl
mánuði er enn meiri, eða 23%, miðað
við apríl í fyrra. Fyrstu þrjá mánuð-
ina höfðu selst 4.395 fólksbílar sam-
anborið við 5.214 bíla í fyrra sem er
fækkun upp á 819 bíla.
Þegar einstakar tegundir sem
seljast í einhverju magni eru skoðað-
ar sést að dregið hefur úr sölu á sölu-
hæstu gerðunum, Toyota og VW, um
9,3% og 5,5%, fyrstu þijá mánuðina.
Sömuleiðis hefur sala á Honda dreg-
. ^gjst saman um 41,3%, Isuzu um
39,6%, Peugeot um 38,6%, Mitsu-
bishi um 34,7% og Suzuki um 33,6%.
Hins vegar er 8% söluaukning á
Hyundai-bílum og 4,6% á Opel
fyrstu þrjá mánuðina.
Kappakstur
á Sæbraut á
146 km hraða
TVEIR ungir ökumenn voru
stöðvaðir á bílum sínum á
Sæbraut til móts við Skeiðar-
vog rétt eftir miðnætti aðfara-
nótt laugardags þar sem þeir
þreyttu kappakstur, að því er
talið er.
Bílarnir voru mældir á 146
km hraða en þarna er 60 km
hámarkshraði. Mennimir voru
báðir sviptir ökuréttindum á
staðnum.