Skírnir - 01.12.1916, Síða 68
404
Nýjar appgötvanir um mannsröddina.
[Sklrnir
fær á sig einkenni 3. aðalflokks með heitum hljómblæ í
»Die beiden Grenadiere«, af því að þetta lag hefir orðið
fyrir áhrifum frá franska hergöngusöngnum (Marseillaise),
er gerður er í ásigkomulagi 3. aðalflokks. Eða gömul
kvæði, er enginn veit um höfund að. Er þá máske auð-
velt að sanna, að ýms erindi geti ekki verið eftir sama
höfund, eða að einni eða tveim ljóðlínum sé skeytt inn í
kvæði af öðrum (afritara). Málið er enn á rannsóknar-
stigi, en dyrnar eru þegar opnar í gátt og sér inn í nýj-
an heim ónumdra landa í sálarfræði, málfræði og öðr-
um vísindagreinum.
Alexander Jóhannesson.
Helztu lit um þetta efni eru:
0. Rutz: Xeue Entdeckungen von der menschlichen Stimme. Miinchen
1908.
----: Sprache, Gesang und Körperhaltung. Munchen 1911.
----: Musik, Wort und Körper als Gemiitsansdruck. Leipzig 1911.
----: Neues uher den Zusammenhang zwischen Dichtung und
Stimmqualitat, Indog. Forsch. 28 (1911), hls. 301 nn.
E. Sievers: Neues zu den Rutzschen Reaktionen, Archiv fiir experi-
mentelle und klinische Phonetik, I, 3 (1914, sérprentun).