Skírnir - 01.12.1916, Qupperneq 65
'Skírnir]
Nýjar uppgötvanir um mannsröddina.
401
urdrátt eða þrýsting, heflr það áhrif á vöðvana, þeir
íkvika á sama hátt og myndin sýnir og heyrist þessi
breyting i röddinni. Myndir þessar eru ýmist beinar eða
bognar linur; örvaroddur á endum beinu línanna sýnir
stefnu hreyfinganna; yfirhvelfd bugða - sogar að, undir-
hvelfd bugða - hrindir frá; þessar bugður stefna því frá
tilraunamanninum T eða að honum ý.
Skal nú litið snöggvast á þessar myndir (sjá mynd-
irnar á bls. 398). Hér eru sýndar myndir af 11 aðal-
myndum og 5 aukamyndum, er eiga um leið að hafa
áhrif á áðurnefndan herping fyrir ofan naflann, er nefnd-
ur var q. 1. og 3. myndin hafa þau áhrif, að kviðurinn
hvelfist fram og kviðbeinn annaðhvort herpist eða slakn-
ar (1. aðalflokkur með köldum eða heitum hljómblæ). 5.
og 7. mynd hafa þau áhrif, að kviðurinn herpist nokkuð
inn í lárétta stefnu og kviðbeinn herpist annaðhvort eða
slaknar (2. aðalflokkur með köldum eða heitum hljómblæ).
9. mynd hefir þau áhrif, að þrýstingur verður til beggja
hliða niður á við og verður að halda þessari mynd jafn-
hliða lendunum, annaðhvort með oddann heldur fram (3.
aðalflokkur, kaldur hljómblær) eða heldur aftur (3. aðalfl.,
heitur hljómblær), þar eð þessir vöðvar þrýstast niður á
við annaðhvort fram fyrir mjaðmir eða aftur fyrir. (Ann-
ars skal öllum hinum myndunum haldið í lárétta stefnu).
11. mynd heflr eingöngu áhrif á hjartagróf og ef
bugðunni er snvxið frá, verður hljómmagnið mikið (lítið,
ef myndinni er snúið við).
12. mynd hefir þau áhrif, að viss depill fyrir ofan
nafla dregst inn á við, ef oddinum er snúið að tilrauna-
manni, en út á við, ef honum er snúið frá.
13. mynd hefir eingöngu áhrif á neðri herpinginn fyrir
neðan nafla, dúr, (og ekki þann efri, q).
14. mynd hefir eingöngu áhrif á neðri þverspennuna
íyrir neðan nafla, moll (sundurdráttur vöðva).
15. mynd á að tákna þvermál bolsins að neðan og
ihefir þau áhrif, að vöðvar þrýstast til hliða frá miðlínu
:.íyrir neðan nafla og aftur á bak (dramatiskur hljómblær
26