Skírnir - 01.12.1916, Blaðsíða 104
440
Kitfregnir.
[Skirnir
amtmaður Kristján Múller, sem um þessar mundir líka var um-
boðsmaður Gyldenlove’s stiftamtmanns, var algjörlega á baridi kaup-
manna og dró taum þeirra í öllu; var sagt, að hann ætti sjálfur
hlut í versluninni. Hagaði hann vináttu sinni eða óvináttu mest
eftir því, sem hann sá kaupmönnum best henta. Arið 1701 hafði
hann lagt fæð á Gottrup, af því að honum þótti hann of nærgöng-
ull við kaupmenn i sendiför sinni, að því er Arni Magnússon segir
í brjefi til rentukammersins (AM., Embedsskr. nr. 70, bls. 214).
Framan af, rneðan nefndarmenn gengu ekki í berhögg við kaup-
menn, virðist hann ekki hafa verið þeim óvinveittur. Enn árið
1705 komust nefndarmenn að því, að kaupmenn reru að því öllum
árum við stjórnina með tilstirk amtmans, að öll verslun lanasins
irði seld í heudur einu alsherjar verslunarfjelagi í stað þess að
áður vórtt einstakar hafnir boðnar upp til einstakra kaupmanna.
Tóldu nefndarmenn þessa fjelagsverslun ntiklti óhagfeldari firir
laudsmenn enn það firirkomulag sem þá var, og ekki bætti það úr
skák, að kaupmenn og Miiller vildu láta banna öll verslunarvið-
skifti með mönnum innanlands. Rjeð Arni þá af að fara utan þegar
í stað til að reina að sporna við þessu ráðabruggi amtmans og
kaupmanna. Lagði Árni sig allan fram í þessu máli. I bráðabirgða-
álitsskjali til konungs, dags. 8. des. 1705, veitist hann beint að
Múller amtmanni og ber honum á brín, að hann hafi lagt meiri
stund á að hlinna að hagsmunum kaupmanna enn að velferð alþíðu.
Og 5. janúar 1706 sendir hann konungi mjög ítarlegt og vel rök-
stutt álitsskjal gegn fjelag3versluninni (AM., Embedsskr. nr. 51 og
53, 132. og 133.—153. bls.). Tókst Arna að kveða niður þennan
draug, svo að hann kom ekki upp aftur meðan hann lifði, og er
þetta ljós vottur þess, að stjórnin hafði þá enn fult traust á Arna,
einkum þegar þess er gætt, að verslunar-3tjórnardeildin (commerce-
collegium) var fjelagsversluninni filgjandi (AM., Embedsskr. nr. 51,.
bls. 131). Enn upp frá þessu var Múller amtmaður svarinn óvinur
Arna, og rægir hann hvar sem hann fær þvt við komið; er það
t. d. ófagur vitnisburður, sem Múller gefur Árna í brjefi til.
Gyldenlove’s 14. febr. 1708 (AM., Embedsskr. 237. bls.)1) út af
Bræðratungumálinu svonefnda, senr, reis af málaferlum Arna við •
Magnús Sigurösson í Bræðratungu um það, að Magnús hafði brigslað
Arna um að hann ætti vingott við konu Magnúsar Þórdisi.. Óvinir
‘) Þar er þetta brjef dags. 14. febr. 1707, eun það hlfttir að'vera
rangt, því að það er umscigu um beiðni Árna, sem er dagsett 29. ág. 1707.,