Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Page 10
12
NÝ LÖG.
til utanferðar. Enn þar er nú eru svo margir teknir að sigla
þangað, og margir af peim með litlum árangri, var styrkur
þessi úr lögum numinn.
Lög um jarðamat að nýju í Rangárvallasfslu kveða á, að
allar pær jarðir, er orðið liafa fyrir skemmdum af sandágangi
skaðræðisvorið 1882, skuli metnar af nýju til dýrleika, og skal
pað svo fljótt gert, að matið geti orðið lagt fyrir ping 1885, og
náð pá löggildingu.
Aðrar konunglegar auglýsingar voru engar pær, er hér
verði um talað, nema auglýsing, gefin út 29. sept., er auglýsir,
að svofeldur samningur hefir verið ger milli Dana og ítala
stjórna, að Italir skuli eiga kost á að fá gjafsókn 1 málum 1
konungsríkinu Danmörku, með íslandi og nýlendunum, og
hinsvegar danskir pegnar á Italíu, með sömu kjörum og sama
formi og lög standa til í ríkjum pessum, pegar vottorð um fá-
tækt og önnur skírteini eru í góðri reglu til að styðja heiðni
peirra.
Svo sem áður er frásagt í pingskýrslunni afgreiddi pingið
lög um nýja tilhögun á eftirlaunum emhættismanna og ekkna
peirra. Lög pessi fara fram á, að eftirlaununum verði hagað
líkt og eftirlaunum presta, pannig, að peir fengi vísa upphæð
fyrir hvert ár, sem peir hafa verið við embætti. Með pessu
móti hefðu eftirlaunin lækkað að góðum mun, og mikið létt
á landssjóð, enn pá einnig getað horft til pess, að sumir
emhættismenn lenti í skorti í elli sinni; landshöfðingi og ráð-
gjafi lögðu pví á móti pví, að lög pessi næði staðfestingu, og
peirri tillögu sampykktist konungur með úrskurði 8. nóv. í
sambandi við lög pessi má geta pess, að við nýár 1884 njóta 7
embættismenn og 23 embættismanna ekkjur (allir verzlegir)
eftirlauna aflandssjóð, er nema um 18460 kr.
III. Innanlandsstjórn.
Laxamál Thomsens.—Verðlagsskrár.—Fjárveitingar.—Embættaskipun o. fl
|>að mál, sem lengst hefir staðið í stímabraki með um
margra ára tíma, og oft hefir fyrirfarandi verið á minnzt í
fréttum pessum, er hið pjóðræmda laxamál A. Thomsens