Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Qupperneq 23
ÁRFERÐ.
25
gerði norðanliríðar í norðursfslum, og kyngdi niður miMum
snjó par um slóðir. J>ó batnaði tíð par aftur. Má telja, að
aprílmánuður yæri hinn bezti um land alt, pví að pó að smá-
íhlaup kæmi, varð ekkert ur peim. Hinn 5. maí gekk í norð-
anfannkomuhríðar nyrðra, og pví verr, sem norðar dró, og pví
verst í jnngeyjarsýslu. i’rost voru með snjó pessum allmikil.
Hélzt ótíð pessi allan maímánuð, og sumstaðar fram í júní. í
kasti pessu rak hafís að Hornströndum, og um miðjan júní
rak hann inn á Húnaflóa vestanverðan; var hann að flækjast
par fram í júnímánaðarlok, pá fór hann. Frá pví í júnímán-
uði og fram í miðjan ágúst var hin mesta öndvegistíð um alt
land, sífeld sól og blíða, og var svo sem öll náttúran brosti
við sjálfri sér, nema 1 Strandasýsiu og vesturhiuta Húna-
vatnssýslu, par sem hafísinn lá. |>ar var pokusvækja og norð-
ankuldar. í ágúst brá til vætu um tíma, og hröktust nokkuð
hey manna, einkum nyrðra, en svo batnaði aftur; annað vætu-
kastið kom snemma í september, með ofsaveðrum og stórfeld-
um rigningum, en stytti upp aptur pann 14. Síðan voru
purkar og blíða fram í október. TJpp frá pví snemma í októ-
ber gekk í dynjandi og látlausa ofsa og rigningar, ýmist af
landsuðri eða útsuðri. Sunnanlands var að jafnaði auð jörð,enn
nyrðra sífeldar storkur og áfreðar til ársloka. Var par að
sönnu oftast frostalítið, enn gjaffelt vegna jarðbanna og
hrakviðra.
Grasvöxtur var ágætur nærfelt um alt land. Gróður var
kominn góður alstaðar 1 lok aprílmánaðar, enn pegar hríðarnar
komu pá, dó hann allur út, einkum norðanlands. Minna bar
á pví sunnanlands. Úr Jónsmessu fór aftur að gróa, og par
eð tíðarfarið var svo ágætt, spratt bæði fijótt og vel. Mátti svo
segja, að um alt iand væri hið bezta grasár, einkum á harð-
velli; spruttu pá einkarvel sandjarðirnar í Rangárvallasýslu, par
sem stráin annars náðu að gægjast upp úr. J>essi ágæti gras-
vöxtur var um alt land, par sem til hefur frétzt, nema í Stranda-
sýslu og vesturhluta Húnavatnssýslu: Miðfirði og Hrútafirði.
I>ar var mjög snöggt allt sumarið. Heyskapur manna gekk
pví æskilega um alt, og nýting á heyjum var hin bezta, að