Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Qupperneq 55

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Qupperneq 55
BÓKMENTIR. 57 Halldórsson-Friðrilíssoii, læknir í Kaupmannaliöfn, liefir íslenzk- að og aukið. Bók pessi er með fjölda mynda af garðplöntum og garðyrkjuverkfæram, og kennir að nota pau. Hið priðja var Almanalúð, með andlitsmyndum peirra Gladstones og Beacons- fields, með æfisögum eftir |>órhall Bjarnarson, og ýmsum fróð- legurn ritgerðum aftan við. |>ar á meðal liefir verið í tveim árgöngum grasatal á íslandi eftir Móritz Halldórson-Friðriksson, eftir Endlichers kerfi; pað er ei nema nöfnin tóm. Bókmentafélagið. Nú á síðari árum hefir pví oft verið hreyft, að pað væri bæði skynsamlegt og sanngjamt, að félagið væri eigi lengur í tveim deildum, með sundurskiftum kröftum; hefir petta mál verið talsvert rætt í blöðum, og oftast á pá eina leið, að Hafnardeildin ætti að flytjast til Keykjavíkur, og félagið síðan vinna par með sameinuðum kröftum. |>etta kom til umræðu á fundi í febrúarmánuði í Beykjavík, og var pá pegar sett nefnd manna í málið: Magnús Stephensen, forseti félagsdeildarinnar í Bvík, Jón ritstjóri Ólafsson og Gestur rit- stjóri Pálsson. Hefndin samdi tillögur um hreytingar á lögum félagsins, er allar lutu að pví að sameina deildirnar. Tillögur pessar voru síðan sampyktar á aðalfundi deildarinnar 9. júlí, með 90 atkv. gegn 12, eptir allmiklar umræður, er flestar hneigðust að sameiningunni. Síðan voru gjörðir pessar sendar Hafnardeildinni til álita og sampyktar. Enn ókljáð var málið par um árslok. Félagið hefir aldrei gefið út eins miklar bækur og petta ár. Nemur verð bóka pessara undir 20 kr. Skírnir, Skýrslur, Fréttir frá Islandi 1881 og 1882 og Tímaritið, 4. ár, var framhald hinna eldri rita pess. Kitgjörðir í Tíma- ritinu voru: 1. Um síld og síldveiðar eftir Árna landfógeta Thorsteinson. 2. Halastjörnur og stjörnuhröp eftir porvald Thoroddsen. 3. Um Loft ríka og ættmenn hans eftir séra Eggert Brím. 4. Æfisaga Garfields eftir Signrð kennara Sig- urðsson. 5. Um fiskiveiðar við Island eftir |>orkel Bjarnason. 6. Um alpýðumentun eftir Jón pórarinsson, og 7. Um bú- reikninga eftir Guðmund prófast Einarsson. önnur rit Keykja- víkurdeildarinnar voru: Óthelló, sorgarleikur eftir Shakspere, pýddur af Matthíasi Jochumssyni. Sýsluniannaœfir Boga Bene- diktsens, 2. hefti: Skagafjarðar- og Húnavatnssýslur; J>á kom og framhald af Veraldarsögu Melsteðs; pað var 10 arka hefti,

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.