Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Síða 56
58
BÓKMENTIB,
og náði frá dauða Eobespierres til dauða Napóleons hins mikla.
— Hafnardeildin gaf út Islenzkar fornsögur III. |>að er
Svarfdælasaga og J>orleifs páttur jarlskálds. Finnur Jónsson
hefir séð um útgáfuna. |>ar var og gefin út n/ útgáfa af
Kvœðurn Jónasar Hallgrímssonar. |>ar eru prentuð upp hin
fyrri kvæði hans, og örfá óprentuð kvæði, og svo er aftan við
prentað flest pað, er hann hefir ritað í sundurlausu máli í
i’jölni, og fáein sendibréf, sem hann hafði ritað kunningjum
sínum. Með bókinni er andlitsmynd Jónasar, og sýnishorn af
hendi hans, og framan við hana æfiágrip eftir Hannes Hafstein
og álit á honum sem skáldi.
I guðfrœði var með meira móti gefið út petta ár. Fyrst
viljum vér telja Helgidagaprrdihanir eftir Helga byskup
Thordersen (f 1867). Prédikanir pessar eru í alla staði vel úr
garði gerðar, með steinprentaðri mynd höfundarins, ogæfiágripi
eftir Steingrím Thorsteinson. Prédikanir pessar eru fullar af
kennimannlegri mælsku, og bera alstaðar vitni um hið innra
djúp andlegrar auðlegðar, sem hefir ótæmandi búið í brjósti
höfundarins. Sannanir og dómar hans eru skarpir, og svo vel
orðaðir, að ekki er hægt að víkja við meiningu hans. Orðin
leyfa pað ekki. Kæðurnar eru reyndar nokkuð misjafnar, en
ætíð er sami andi, sami maður og sama snild. J>ær eru auð-
sjáanlega frá hans eigin brjósti runnar, en eigi aðfengnar. Hafa
pær pegar fengið góðar viðtökur. Niutíu kvöldliugvekjur voru
og gefnar út. Byskupinn sendi árið áður boðsbréf um land
alt til presta, og bað pá að senda sér hugvekjur til prentunar;
af pessum hugvekjum er petta safn til orðið; fékk hann síðan
600 kr. af landsfé til að gefa pær út. Hugvekjur eru par eftir
42 presta og andlegrar stéttar menn, og eru pær jafnbreytilegar
bæði að lengd, efni og búningi, sem höfundar eru margir. Arið
1882 hafði Helgi Hálfdánarson prestaskólakennari fengið loforð
fyrir 1200 kr. styrk af landsfé til pess að gefa út Almenna
kirkjusögu frá upphafi kristninnar til vorra tíma, Bauð hann
pá Bókmentafélaginu handrit sitt til prentunar á fundi, en fé-
lagsmenn höfnuðu pví á fundinum með litlum atkvæðamun,
prátt fyrir tillögur forseta. Síðan róðst hann í að láta prenta
hana á eigin kostnað, og kom petta árút hið fyrsta hejti. |>að
er 10 arkir, og nær fram undir árið 300. Saga pessi sameinar