Norðurljósið - 01.01.1983, Blaðsíða 84
84
norðurljósið
hvaðan komið þér? Og þeir sögðu við hann: Vér þjónar þínir
erum komnir frá mjög fjarlægu landi fyrir sakir nafns Jahve,
Guðs þíns, því að vér höfum heyrt hans getið, svo og alls þess,
er hann gjörði Egiftum, sem og þess, hvernig hann fór með
báða Amoríta konungana, er bjuggu hinum megin Jórdanar, þá
Síhon konung í Hesbon og Og konung í Basan, sem bjó í
Astarót. Fyrir því sögðu öldungar vorir og allir íbúar lands vors
við oss: Takið yður veganesti og farið til fundar við þá og segið
við þá: Vér erum þjónar yðar; gjörið nú sáttmála við oss. Sjáið,
hér er brauð vort; vér tókum það nýbakað oss til nestis að
heiman, þá er vér lögðum af stað á yðar fund, en sjá, nú er það
orðið hart og komið í mola. Og vínbelgir þessir voru nýir, þegar
vér létum á þá, en sjá, nú eru þeir farnir að rifna; og þessi klæði
vor og skór vorir eru slitnir orðnir á þessari afarlöngu leið. Þa
tóku mennirnir (Israelsmenn) nokkuð af nesti þeirra, en
atkvæða Drottins leituðu þeir ekki. Hét Jósúa þeim þá friði og
gjörði þann sáttmála við þá, að hann skyldi láta þá lífi halda; og
höfuðsmenn safnaðarins bundu það svardögum við þá. En
þremur dögum eftir það, að þeir höfðu gjört þennan sáttmála
við þá, spurðist það, að þeir væru þar úr grenndinni og að þeir
byggju mitt á meðal þeirra. Israelsmenn lögðu nú upp og komu
á þriðja degi til borga þeirra, en borgir þeirra voru Gíbeon,
Kefíra, Beerót og Kirjat-Jearím. Og Israelsmenn drápu þa
eigi, því að höfuðsmenn safnaðarins höfðu svarið þeim grið i
nafni Jahve, Israels Guðs; möglaði þá allur söfnuðurinn gegn
höfuðsmönnunum. Þá sögðu allir höfuðsmennirnir við
gjörvallan söfnuðinn: Vér höfum svarið þeim grið í nafm
Jahve, ísraels Guðs; fyrir því megum vér nú eigi snerta þá-
Þetta munum vér gjöra og láta þá lífi halda svo að eigi komi yfif
oss reiði vegna eiðsins, er vér sórum þeim. Þá sögðu höfuðs-
mennirnir við þá: Þeir skulu lífi halda! Og þeir urðu viðar-
höggsmenn og vatnsberar fyrir allan söfnuðinn, eins og
höfuðsmennirnir höfðu sagt þeim. Þá lét Jósúa kalla þá °S
mælti við þá á þessa leið: Hví svikuð þér oss, er þér sögðuð: Ver
eigum heima mjög langt í burtu frá yður, þar sem þér þó búið
mitt á meðal vor? Fyrir því skuluð þér vera bölvaðir og jafnan
vera þrælar upp frá þessu, bæði viðarhöggsmenn og vatnsberar
fyrir hús Guðs míns. Þá svöruðu þeir Jósúa og sögðu: Oss