Norðurljósið - 01.01.1983, Blaðsíða 104
104
NORÐURLJÓSIÐ
metra breitt. Það var grafíð upp að hluta til af Yuigail Yadin
prófessor árin 1963 - 1965. Sjálfboðaliðar margir, frá ýmsum
löndum, tóku þátt í uppgreftrinum líka. Massada stendur enn í
dag sem vitnisburður um baráttuþrek og hugrekki Gyðinga.
Tíminn, sem við vorum í Israel, var nú að enda. Þá lögðum
við af stað til Egiftalands. Við fórum í langferðabíl yfir Sínaí-
skagann. Komum við sama dag til Kairó. Ekki var þar mjög
ströng tollskoðun. Eg held líka, að þeir séu ekki eins tortryggnir
og þeir í Israel. Við fórum til gistihúss. Gisting þar hafði verið
pöntuð fyrirfram. Þrjá daga vorum við í Egiftalandi.
Strax daginn eftir fórum við að skoða ýmis undur
Egiftalands. Sama má segja um ána Níl eins og sagt var um
Jórdan, að hún rennur sem nokkurs konar lífæð gegnum
Egiftaland og líka í gegnum borgina Kairó. Mörg dýki og
skurðir liggja úr fljótinu sjálfu út um landið til þess að veita
vatninu á akra og lendur.
i Sagt er, að nú sé minna um vatn í Níl, síðan rafveitustífla var
sett í ána ofar, meðan allt var í lukkunnar velstandi á milh
þeirra og Rússa.
Svo var farið að skoða pýramídana. Þeir eru 130 - 140 m-
háir. Byggðir eru þeir úr stórum steinum, sem eru víst mörg
tonn á þyngd. Það er óþekkt tækni nú, sem þeirra tíma menn
notuðu, er þeir voru gjörðir.
Við skoðuðum einn slíkan pýramída, sem er í nánd við
Kairó. Eg held mér sé óhætt að segja, að það er mesta
mannvirki, sem ég hef séð. Göng lágu skáhalt upp í hann neðan
að frá og upp í hann ofarlega, þó ekki alveg upp í topp. A
sumum stöðum voru herbergi á leiðinni. Miðja pýramídans var
merkt í einu herbergi nákvæmlega. Þetta sýndi gamall maður,
sem leiðbeindi okkur.
Eftir þetta fórum við að skoða í söfnum styttur af gömlum
Faraóum og drottningum. Allt voru þetta furðuverk að list og
stórfengleik. Þarna voru gullkistur, sem Faraóarnir voru lagðu
í, þegar þeir dóu. Meira að segja var einn þeirra í sex gullkist-
um. Var hann í hinni innstu. Skoðuð var stytta af Ramses 2-
Einnig var þar stytta Hatshepsut drottningar, sem haldið er, að
hafi alið Móse upp, og margt fleira.
Kirkjur voru einnig heimsóttar. Ein þeirra var kirM